Morgunblaðið - 13.01.1976, Page 11

Morgunblaðið - 13.01.1976, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANUAR 1976 11 Otto Jörgensen, fyrrv. póst- og símstjóri í Siglufirði, áttrœður Otto Jörgensen, fyrrv. póst- og símstjóri í Siglufirði, sem sett hefur svip á það byggðarlag í meir en hálfa öld, er áttræður í dag. Otto Holger Winther Jörgen- sen, eins og hann heitir fullu nafni, er fæddur i Seyðisfirði 13. janúar 1896, sonur hjónanna Anders Jörgensens, bakarameist- ara þar, og konu hans Johanne Jörgensen. Otto hóf störf hjá Landsímanum I Seyðisfirði ungur að árum og lauk símritaraprófi árið 1914. Að því loknu fór hann utan til frekara náms í fagi sínu. Hann hóf kennslustörf i símritun i Reykjavik á árinu 1919, sem hann stundaði unz hann var skip- aður póst- og simastjóri í Siglu- firði árið 1921. Árið 1925 var hann skipaður umdæmisstjóri pósts og síma í Siglufjarðarum- dæmi, er hann gegndi unz há- marksaldri íslenzkra embættis- manna var náð. Otto er gæddur sterkum per- sónuleika, víðsýnn og vel látinn og ávann sér skjótt traust og virð- ingu samborgara sinna, sem enzt hefur honum góðan aldarhelm- ing. Hann var mikill starfsmaður en Ijúfur húsbóndi og hélt um stjórnartaumana í stofnun sinni með þeim hætti, að hann naut þakklætis og hlýhúgar bæði við- skiptavina og undirsáta. Slik stjórnunarsemi, blandin velvild í garð samstarfsfólks, var hans aðalsmerki. Póstmeistarinn tók ríkan þátt f félagslífi staðarins og bæjar- málum, meðan þessi söguríki bær óx úr þorpsnefnu i miðstöð síld- veiða og síldariðnaðar i landinu; stóriðjuverstöð, sem um áratugi var einn helzti hornsteinn verð- mæta- og gjaldeyrissköpunar í landinu. Hann var bæjarfulltrúi á árunum 1937 til 1945, einn af stofnendum kaupfélags á staðn- um og virkur þátttakandi í margs konar félags- og menningarstarf- semi. Ekki væri rétt frá sagt þessum þætti i félagsmálaþátt- töku póstmeistarans, ef þess væri ekki jafnframt getið, að hann var róttækur í skoðunum og á vinstri væng bæjar- og þjóðmála. Að leikslokum bæjarmálaafskipta hans átti hann þó ekki síður hlý- hug og virðingu okkar, sem örlög- in skipuðu hægra megin mark- anna í stjórnmálaátökum, sem þó voru oft hörð og hávaðasöm. Það var vel gjörlegt að hafa önnur sjónarmið en Otto Jörgensen á þessum árum — en hitt var úti- lokað, að vera persónulegur and- stæðingur hans. Sllkir voru per- sónutöfrar hans og samskipti öll við samborgara, hverjar sem skoðanir þeirra voru. Otto Jörgensen kvæntist Þórunni Þórðardóttur, sjómanns og bátasmiðs að Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi, Jónssonar, hinn 15. október 1921. Þeirra sonur var Gunnar Jörgensen, er tók við embætti póst- og símstjóra i Siglu- firði, er faðir hann lét af störfum fyrir aldurssakir. Hann lézt fyrir nokkrum árum, um aldur fram, og var að honum mikill sjónar- sviptir í Siglufirði. Gunnar heitinn var kvæntur Freyju Jörgensen, Árnadóttur Kristjáns- sonar, af Lambanesætt, sem er að góðu kunn í Austur-Skagafirði og Siglufirði. Þeirra börn eru: Ottó Jörgensen flugvirki, Reykjavík, Árni Jörgensen, blaðamaður á Morgunblaðinu, Halldóra, Guð- björg og Gunnar, öll í heimahús- um. Á þessum tímamótum í ævi Otto Jörgensen, fyrrv. símstjóra í Siglufirði, hugsa allir Siglfirð- ingar til hans með hlýhug, virð- ingu og þakklæti. Mér kæmi heldur ekki á óvart að skips- stjórnarmenn og aðrir þeir, sem við hann áttu samskipti á árum ,,sildarævintýrisins“, hugsi til Patreksfirðingar óska eftir friðun ákveðinna veiðisvæða fyrir togurum Patreksfirði, 8. jan. 1976. VEGNA þess hve þungiega horfir með afla á Ifnu og netavertið nú f vetur og ágang nýju skuttogar- anna á mið bátanna, þrátt fyrir útvfkkun landhelginnar f 200 mfl- ur, hefur hreppsnefnd Patreks- hrepps sent sjávarútvegsráðu- nevtinu ályktun um friðun ákveð- ins veiðisvæðis fyrir togurum ákveðinn tfma yfir vertíðina. Fvlgir hún hér á eftir. Sunnanverðir Vestfirðir, þ.e.a.s. Bíldudalur, Tálknafjörður og Patreksfjörður reka ennþá sína útgerð með hinum gamla hefðbundna hætti, gera út báta á línu og net yfir vertíðina og að sumu leyti allt árið. A Patreksfirði eru gerðir út 6 stórir bátar, á Tálknaf. 3 og á Bildudal 1. Ef þessir bátar fá hvergi frið til þess aó hafa veiðarfæri sin i sjó yfir vertíðina er ekki annað sjáan- legt en rekstur þeirra stöðvist og breytt verði yfir i skuttogara eins og allir aðrir hafa gert þó að það virðist nú ekki vera vel séð eins og málum er komið i dag. Skipulagsleysi í veiðum má ekki vera það algert að bátar í heilum landshlutum fái aldrei frið allt árið til þess að stunda hefðbundnar veiðar á heimamið- um án þess að eiga það á hættu að missa veiðarfæri sín í klærnar á togurunum fyrir nú utan það að eftir skrap þeirra er veiðivonin nú ekki mikil. Páll. Hreppsnefndarfundur haldinn 6. janúar 1976 á Patreksfirði sam- þykkir eftirfarandi ályktun til sjávarútvegsmálaráðuneytisins og allra þingmanna Vestfjarða- kjördæmis: Á undanförnum árum hefur afla- og veiðarfæratjón íslensku togaranna verið mjög tilfinnan- legt. Til þess að komast hjá slík- um vandræðum á hefðbundnum neta- og línumiðum bátanna, þá skorar hreppsnefnd Patreks- hrepps á sjávarútvegsráðuneytið að hlutast til um, að friða ákveðið veiðisvæði fyrir togveiðum, um takmarkaðan tíma á vetrarvertíð- inni. Enginn togari er gerður út frá sunnanverðum Vestfjörðum og þvi eingöngu treyst á heima- mið, fyrir linu- og netaveiðar þeirra báta sem héðan eru gerðir út og því er hér um llfshagsmuna- mál Patreksfjarðar, Tálknafjarð- ar og Bíldudals og reyndar ann- arra byggðarlaga á Vestfjörðum, að ræða. Það veiðisvæði, sem hér um ræðir eru við Víkurál. Leggur hreppsnefndin því til að eftirfar- andi svæði verði friðað fyrir tog- veiðum á tímabilinu 1. janúar til 15. marz innan línu sem dregin er milli eftirfarandi punkta: 1. 65 gr. 36 m. N 25 gr. 15 m. V 2. 65 gr. 39 m. N 26 gr. 04 m. V 3. 65 gr. 58 m. N 25 gr. 43 m. V 4. 65 gr. 51 m. N 25 gr. 05 m. V Að fenginni reynslú álítur sveitarstjórnin, að friðun sem þessi, sé ein meginforsendan til þess að hægt sé að gera út báta á lfnu og netaveiðar frá sunnan- verðum Vestfjörðum á þessu tímabili. Umhleypingar og hafís settu svip á haust- vertíð Vestfirðinga fyrri tíma, bæði með söknuði og þakklæti. Ég veit að ég mæli fyrir hönd allra Siglfirðinga er ég færi afmælisbarninu beztu árnaðar- óskir með einlægri ósk um, að hann megi enn lifa mörg ánægju- rík ár í firðinum milli fjallanna, þar sem mannlíf hefur þróazt frá landnámsöld fram á okkar daga, og þar sem nú er hafin ný fram- sókn og þáttaskil í byggðarsög- unni. Stefán Friðbjarnarson. STÖÐUGIR umhlevpingar settu svip sinn á haustvertíð Vestfirð- inga að þessu sinni, og f desember var hafísinn á sffelldri hrevfingu um alla fiskislóðina út af Vest- fjörðum, allt frá Horni og vestur undir Vfkurál. Hefir sjósókn verið einstaklega erfið af þessum sökum allt haustið, segir f vfirliti frá skrifstofu Fiskifélags tslands á lsafirði. Linuafli var almennt tregur í desember, en togararnir fengu góðan afla fyrri hluta mánaðar- ins, fyrir hátíðarnar var svo dauður sjór, en milli hátíðanna kom svo góður neisti í tvo daga. Heildaraflinn í mánuðinum varð 3.592 lestir, en var 3.073 lestir á sama tíma í fyrra. Afli línubátanna varð nú 1.423 lestir f 355 róðrum eða 4,00 lestir að meðaltali f róðri, en í fyrra var desemberafli línubátanna 1.354 lestir í 293 róðrum eða 4,62 lestir að meðaltali í róðri. Aflahæsti línubáturinn í mán- uðinum var Hafrún frá Bolunga- vík með 94,5 lestir í 20 róðrum, en í fyrra var Sólrún frá Bolungavik aflahæsti línubáturinn i desem- ber með 93,4 lestir í 15 róðrum. Af togbátunum var Bessi frá Súðavík aflahæstur með 323,4 lestir, en í fyrra var Guðbjörg frá Isafirði aflahæst í desember með 305,1 lest. Heildaraflinn á tímabilinu októ- ber/desember varð nú 10.847 lestir, en var 9.749 lestir á sama tímabili í fyrra. Aflahæsti línu- báturinn á haustvertiðinni var Víkingur III frá Isafirði með 310,0 lestir í 66 róðrum, en hann var einnig aflahæstur á haustver- tíðinni í fyrra með 353,4 lestir í 68 róðrum. GREIÐENDUR vinsamlega veitið ef tirfarandi erindi athygli: Frestur til aó skila launamiöum rennur út þann 19. ianúar. Þaö eru tilmæli embættisins til yðar, að þér ritið allar upplýsingar rétt og greinilega á miöana og vandið frágang þeirra. Með því stuðlið þér að hagkvæmni í opin berum rekstri og firrið yður óþarfa tímaeyðslu. RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.