Morgunblaðið - 13.01.1976, Síða 12

Morgunblaðið - 13.01.1976, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1976 Götuljós skemmd fyr- ir 7 millj. kr. á sl. ári BLAÐINU hefur borizt eftir- farandi frá Rafmagnsveitu Reykjavfkur varðandi skemmdarverk á götuljósakerf- inu: Götulýsing á orkuveitusvæði Rafmagnsveitu Reykjavíkur hefur verið aukin verulega á undanförnum árum. Ennfrem- Myndin sýnir hluta af þeim götuljósabðnaðl, sem eyðilagður hefur verið og safnast upp f birgðastöð Rafmagnsveitu Reykjavfkur. Götulýsing í Reykjavfk ur hefur víða verið sett lýsing við gangstíga, hjá skólum og á lóðum fjölbýlishúsa. Flestum er Ijóst hversu nauðsynleg þessi Iýsing er. Þó hefur allmik- ið borið á að unnin væru skemmdarverk á götuljósunum. Þessi verknaður er að verulegu leyti unninn á einstökum stöð- um, eða í vissum hverfum, þannig að þar er tæpast unnt að halda lýsingunni í viðunandi lagi. Hins vegar verður lítið sem ekkert vart skemmdar- verka I öðrum hverfum. Athugun sem gerð hefur ver- ið, bendir til, að kostnaður vegna skemmdarverka á götu- Ijósakerfinu nemi á s.I. ári yfir 7 milljónum króna. Um miðjan desember s.l. var öllum skóla- stjórum barna- og gagnfræða- skóla sent kynningarbréf um götuljósakerfið, en þessir skólar eru um 40 talsins á orku- veitusvæði Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Samkvæmt beiðni Rafmagnsveitunnar munu flestir skólastjórarnir hafa kynnt þetta mál fyrir nemend- um sínum, áður en jólaleyfi hófst. Áformað er að hefja frek- ari kynningu í skólunum, næstu daga. Ekki er með þessu sagt, að það séu eingöngu nemendur í barna- og gagnfræðaskólum, sem valda þessum skemmdum. Þess eru dæmi að fullorðnir menn skjóti á götuljósin, auk þess sem iðulega er ekið á götu- ljósastólpana og þá stundum vegna algjörs gáleysis. 1 kynningarbréfinu, sem sent hefur verið i skólana kemur m.a. fram, að nú séu um 13 þús. götuljós af ýmsum stærðum og gerðum á orkuveitusvæði Raf- magnsveitu Reykjavikur. Stofnkostnaður við meðalstórt götuljós ásamt nauðsynlegum jarðstrengjalögnum er nú rúm- lega 100 þúsund krónur. Ef byggja þyrfti alla þessa lýsingu upp á einu ári væri áætlaður kostnaður 1300 millj. króna. Aðeins perurnar I þessi ljós kosta um 10 millj. kr. 1 Listasafni tslands: Guðrún Hvannberg til vinstri, Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra og dr. Selma Jónsdóttir hjá tveimur mynda Gunnlaugs Schevings. Ljósmynd Mbl. Friðþjófur. Lýðveldismálverk Schevings gefin Listasafninu Vitni vantar MÁNUDAGINN 5. janúar var ekið á kyrrstæða bifreið á Reykja- nesbraut í Blesugróf, en hún hafði orðið að stöðva þar vegna ófærðar sem var mjög mikil þennan dag eins og menn muna væntanlega. Bifreiðin er Volks- wagen 1500, skrásetningarnúmer R-36150. Þarna var röð af kyrr- stæðum bílum og var þessi bif- reið aftast í röðinni. Bifreiðin skemmdist mjög mikið að aftan, og virðist líklegast að stórvirk vinnuvél hafi ekið á hana. Margir voru á ferðinni um þetta leyti, og eru vitni að atburðinum beðin að gefa sig fram við rannsóknarlög- regluna. Heftum Verð- launakrossgátu- ritsins fjölgað Verðlaunakrossgáturitíð kom út alls 5 sinnum á síðasta ári og um þessar mundir er að koma út fyrsta hefti þessa árs. Auk kross- gátna hefur Verðlaunakrossgátu- ritið að geyma ýmislegt léttmeti til lestrar. Gert er ráð fyrir að ritið komi út 9 til 10 sinnum á þessu ári. 5 MYNDIR eftir Gunnlaug Schev- ing listmálara hafa verið gefnar Listasafni Islands til minningar um Jónas Hvannberg kaupmann. Gefendur listaverkanna' eru ekkja Jónasar, frú Guðrún Hvannberg, og synir þeirra hjóna, þeir Haukur og Gunnar Hvann- berg. Myndir þessar úr íslensku at- vinnulífi eru gerðar í tilefni af lýðveldisstofnun árið 1944, að beiðni Jónasar sjálfs. Jónas Hvannberg var fæddur á Eyrarbakka 4. nóvember 1893 og lést í Reykjavík 1. apríl 1972. Jónas Hvannberg var mikill listunnandi og eignaðist stórt og vandað safn íslenskra listaverka. Studdi hann með listaverkakaup- um og á annan hátt ýmsa mynd- listarmenn, sem þá voru enn lítt þekktir. Lélegur rækju- afli fyrir vestan HAUSTVERTfÐ hjá rækjubátum við fsafjarðardjúp og Steingrfms- fjörð hófst f byrjun nóvember og lauk 12. desember, en Bflddæl- ingar byrjuðu róðra 27. október. Á þessu hausti stunduðu 58 bátár rækjuveiðar frá Vestfjörðum, og er það 24 bátum færra en á sfð- asta hausti. Heildaraflinn varð nú 881 lest, en var 1.921 lest á sfðasta hausti. Frá Bíldudal hafa róið 7 bátar, og var desemberafli þeirra 17 lestir. Er aflafengur þeirra á ver- tíðinni þá orðinn 82 lestir, en var 209 lestir á sama tíma í fyrra. Frá verstöðvunum við Isa- fjarðardjúp hafa róið 37 bátar, og var afli þeirra í desember 151 lest. Vertíðaraflinn er þá 585 Iest- ir, en í fyrra gaf haustvertiðin 55 bátum 1.220 lestir. Frá Hólmavík og Drangsnesi hafa róið 14 bátar f haust, og öfluðu þeir 101 lest í desember. Er vertíðaraflinn þá 214 Iestir, en var 492 lestir i fyrra. Mokfiskirí hjá Dagnýju Siglufirði 10. jan. DAGNÝ er væntanleg inn í dag með stórfinan afla, 150—160 tonn af fiski eftir aðeins 7 daga útivist. Hér er leiðindaveður, norðaustan stórhrið. m.j. Á f immtudag veróur dregió í 1. flokki. 6.030 vinningaraó fjárhœó 82.170.000 króna Á morgun er síóasti endnýjunardagurinn. 1. flokkur: 9 á 1.000.000 kr. 9 - 500.000 — 9 - 200.000 —. 153 - 50.000 — 5.832 - 10.000 — 6.012 Aukavinningar: 18 á 50.000 kr. 6.030 9.000.000 kr. 4.500.000 — 1.800.000 — 7.650.000 — 58.320.000 — 81.270.000 kr. 900.000 — 82.170.000.00

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.