Morgunblaðið - 13.01.1976, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 13.01.1976, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANUAR 1976 21 Trnkklansir töpnðn fyrir „ÞETTA var kærkominn sigur, og ekki spillti það fyrir að hann var gegn KR, liði sem við höfum aldrei sigrað áður,“ sagði Hilmar Hafsteinsson þjálfari UMFN eftir sigurinn gegn KR um helgina. „Þetta var án efa okkar langbesti leikur í mótinu til þessa, og ég held að strákarnir séu að öðlast meira sjálfstraust en það hefur illilega skort í vetur. Þá náðum við í þessum leik í fyrsta skipti f mótinu upp góðri hittni og fannst mörgum tími til kominn.“ Já, það er ekki orðum aukið að hittni Njarðvíkinganna hafi verið góð í þessum leik, og sérstaklega þó í síðari hálfleik. Þá var á löngum kafla sama hver skaut og hvaðan — allt hafnaði í körfu KR. En í fyrri hálfleiknum vai leikur UMFN ekkert sérstakur, og hefði ,,Trukkur“ Carter verið með hefði KR náð góðri forustu í hálfleiknum. En hálfleikurinn var jafn og spennandi fyrir þá mörgu áhorfendur sem sáu leik- inn, jafnt var á flestum tölum, og staðan að loknum fyrri hálfleik var 37:34 fyrir UMFN. En „martröð" KR-inga hófst strax í upphafi síðari hálfleiks. Stefán Bjarkason gaf tóninn fyrir UMFN með langskotum úr horn- unum sem rötuðu rétta leið og hinir fylgdu strax með. Á sama tíma lék KR-liðið eins og það lak- ast gerir, og komu nú áhrifin af fjarveru „Trukks" illilega í ljós. Ekki nóg með að það vantaði af- gerandi mann í sóknarleikinn, heldur voru menn linir í varnar- fráköstum og höfðu Njarðvík- ingar oftast vinninginn við körfu KR ef þeir hittu ekki fyrsta skoti. Þetta gilti þó ekki um Birgi Guð- björnsson sem hirti mikið af varnarfráköstum, en Birgir náði ekki að fylgja þeim árangri sínum eftir fram á völlinn. Það gat því ekki farið nema á einn veg, UMFN náði um miðjan sfðari hálfleik 15 stiga forustu 60:45, og var ljóst hvert stefndi. KR-ingar reyndu að skipta yfir í maður á mann vörn til að hamla gegn hittni UMFN, og það bar þann árangur að þegar þrjár mín. voru til leiksloka var munurinn 7 stig, 70:63. En lengra komst KR ekki, og lokatölur urðu 77:69 fyrir UMFN. Kærkominn sigur sem var fagnað mjög, og ekki virtust þeir Ármenningar sem horfðu á leikinn neitt óhressir með þessi úrslit, þeir brostu breitt, enda styrkir þetta stöðu þeirra mjög mikið. Maður þessa leiks var án efa Kári Marísson sem er nú betri en hann hefur verið áður. Hann stendur ávallt fyrir sínu í vörn- inni, og nú kom „neistinn" hjá honum í sóknarleiknum. Hann skoraði mikið og gerði marga afar fallega hluti. Þá voru þeir Stefán og Gunnar sterkir, og þeir Geir Þorsteinsson og Jónas Jóhannes- son með góða kafla. Þessi leikur UMFN var með þeim hætti, sem ég vissi að þeir gætu leikið á heimavelli, en liðið hefur ekki náð þessu þar fyrr en nú. Besti maður KR var Bjarni Jó- hannesson sem gat þó ekki leikið nema ríflega helming leiksins vegna villuvandræða. Þá kom Gunnar Ingimundarson vel frá leiknum, en hann var ekki not- aður fyrr en seint í sfðari hálfleik. Kristinn Stefánsson lék lítið með, en sýndi þó að hann getur hvenær sem er styrkt KR liðið, enda ekki um aðra miðherja þar að ræða f fjarveru „Trukks". Kolbeinn gerði allt of mörg mistök í þessum leik, og Jóakim Jóakimsson var afar slakur nú. STIGHÆSTIR HJÁ UMFN: Kári Marísson 21, Stefán Bjarkason 18, Gunnar Þorvarðsson 15. HJÁ KR: Bjarni Jóhannesson 17, Kolbeinn og Eiríkur Jóhannesson 11 stig hvor. Góðir dómarar í þessum leik voru þeir Marinó Sveinsson og Þráinn Skúlason. Rk. IR-ingar aldrei í vandrœðum með hið kornunga Fram-lið Segja má að leikur Islandsmeistara IR gegn nýliðum Fram í 1. deild hafi verið leikur risans Golíat, við hinn litla Davíð. Lið Fram virðist heldur hafa dalað að undanförnu, en eftir byrjun þess á keppnistímabilinu að dæma reiknaði maður með þeim nokkuð sterkum í vetur. Þeirra von um að halda sér uppi í 1. deild er þó nokkuð góð, a.m.k. á meðan lið Snæfells leikur ekki betur en það hefur gert fram að þessu. Og þá er ekki að efa að Framliðið á eftir að verða mun sterkara strax næsta vetur, enda liðið örugglega yngsta lið sem hefur leikið í 1. deild í nokkurri fþróttagrein hérlendis. Þarf því ekki að orðlengja um yfirburði ÍR í þessum leik, þeir voru miklir eins og lokatölurnar 92:55 (43:28) gefa til kynna. IR liðið náði oft mjög saman, en mót- staðan var of Iftil til þess að sé hægt að taka þennan leik alvar- lega. Þó var greinilegt að hinir „gömlu“ sterku framherjar IR, þeir Birgir og Agnar eru báðir að sækja sig mikið Þegar þeir eru báðir komnir í „form“ verður erfitt fyrir önnur lið að sækja stig í greipar IR. Framararnir voru nánast allir á sama „plani“ í þessum leik, þar skar sig enginn neitt verulega úr, nema e.t.v. Ömar Þráinsson sem var þeirra stighæstur. Hann hef- ur allt til þess að bera að geta skorað mikið í hverjum leik, en er of ragur enn sem komið er. Stighæstir hjá ÍR: Kolbeinn Kristinsson 24, Birgir Jakobsson 18, Agnar Friðriksson 14. Hjá Fram: Ómar 13, Héðinn Valdmarsson og Þorvaldur Geirs- son 9 stig hvor. gk—. Aðrar deildir Staðan í 2. deild í körfu- boltanum nú er sú, að lið Þórs og UMFG eru einu taplausu liðin þar. UMFG hefur komið mjög á óvart í vetur, og liðið hefur unnið leiki sína nokkuð auðveld- lega. Þess ber þó að gæta, að UMFG hefur ekki enn leikið við lið Þórs og UMFS, en þessi lið koma til með að berjast um fyrsta sætið í 2. deild ásamt UMFG. UMFS hefur tapað einum leik, fyrir Þór í heimaleik Þórs á Akureyri. í suðurlandsriðli 3. deildar stendur lið UMFL best að vígi, og hefur liðið ekki tapað leik. i liðinu eru kunnir leikmenn eins og t.d. þeir Anton Bjarnason og Birkir Þorkelsson. Lið I.B.V. hefur komið mjög á óvart í þessum riðli, t.d. með sigri sínum yfir I.B.K. sem margir álitu fyrirfram sterkasta liðið í suður- landsriðlinum. 1 Norður- landsriðlinum kemur keppnin til með að standa á milli Tindastóls frá Sauðár- króki og liðs K.A. — og í þriðja riðlinum eru lið U.Í.A. og Harðar frá Patreksfirði. Þau lið leika tvo leiki og það lið sem sigrar fer beint í úrslita- keppnina. gk.—. STIGHÆSTIR: Kristinn Jörundsson IR 156 Kristján Ágústsson Snæf. 143 Jimmv Rogers Ármann 137 Kolbeinn Kristinsson tR 130 „Trukkur“ Carter KR 129 Bjarni Gunnar IS 121 Stefán Bjarkason UMFN 115 Torfi Magnússon Val 114 Jón Jörundsson tR 109 Jón Sigurðsson Armann 105 Vftaskotanýting: (miðað við 15 skot sem lágmark). Jón Sigurðsson Ármann 20:17 — 85% Steinn Sveinsson lS 35:29 — 83% Jón Jörundsson IR 32:25 — 78% Kári Marísson UMFN 24:18 — 75% Rfkharður Hrafnkelsson Val 18:13 — 72% Jón Héðinsson IS 24:17—71% Fleiri Jeikmenn ná ekki 70% af þeim er tekið hafa 15 skot eða fleiri. Eins og undanfarin ár verða veitt verðlaun þeim leikmanni sem sýnir bezta vfta- skotanýtingu f Islandsmótinu f heild, og verður þá miðað við 40 skot sem lágmark. Belgíumaðurinn Emiel Puttemans setti nýtt heimsmet f 5000 metra hlaupi innanhúss á móti sem fram fór f Parfs um heigina. Hljóp hann vegalengdina á 13:20,8 mfn. Sjálfur átti hann eldra heimsmetið sem var 13:24,6 mfn„ sett f Parfs f marz 1974. Bengtson beztnr í Brighton Sænski borðtennismaðurinn Stellen Bengtsson bar sigur úr býtum f einliðaleik karla f opna brezka meístaramótinu f borð- tennis sem lauk f Brighton um helgina. Til úrslita keppti Bengtsson við Ánton Stipancic frá Júgóslavfu og stóð viðureign þeirra í 50 mfnútur. Urðu úrslft leiksins þau að Bengtsson sigraði: 14—21, 21—19, 21—13, 13—21 og 21—16. Bengtson sem nú er 23 ára að aldri vann heimsmeistaratitilinn f einiiðaleik 1971, en Stipancic sem er 25 ára keppti til úrslita um heims- meistaratitilinn þegar leikið var um hann f Calcutta f fyrra. t einliðaleik kvenna sigraðí Hammersley frá Bretlandi Christín Hellman frá Svfþjóð f úrslitaleik 21—3, og 21—13. og f tvfliðaieik karla sigruðu D. Douglas og D. Neal frá Bretlandf þá Z. Kosanovic og Stipancic frá Júgóslavfu f úrsiitaleik: 18—21, 21—15,21—15 og 21—17. Bandarfski hnefaleikarinn Ken Norton sigraði Argentfnu- manninn Pedro Lovell f fimmtu lotu f keppni þeirra sem fram fór f Las Vegas f Bandarfkjunum um helgina. Þótti Argentfnu- maðurinn koma verulega á óvart til að byrja með, þar sem hann vann fyrstu þrjár loturnar nokkuð örugglega. I fjórðu lotu kom Norton hins vegar á hann mjög þungum höggum og hafði Lovell engan veginn jafnað sig þegar fimmta lotan hófst. Tókst Norton fljótlega að koma honum út f kaðlana og barði hann þar síðan sundur og saman. Stöðvaði dómarinn leikinn eftir 1 mfn. og 40 sek. af lotunni og dæmdi Norton sigur á tæknilegu rothöggi. Varð fyrstrn* - sígraði ekki Johannes Shoto bar sigur úr býtum f hinu árlega maraþon- hlaupi sem fram fer í Jóhannesarborg f Suður-Afrfku. TÓk Shoto forystu f hlaupinu þegar f upphafi og hélt henni til loka. Tfmi hans var 2 klst. 33,27 mfn. Þrátt fyrir að Shoto kæmi langfyrsíur að marki var hann ekki vióurkenndur sfgurvegari f hlaupinu. Ástæðan: Hann er blökkumaður, og hlaupið átti eingöngu að vera fyrir hvfta menn. Opinberlega var þvf tllkynnt að Kobus Scott hefði orðið sigurvegari, en hann kom f markið 1 mfnútu og 11 sekúndum á eftir Shoto. fióðnr snntiárajipr í Montreal Austur-þýzkt sundfólk var mjög sigursælt á mðti sem fram fór f Montreal f Kanada um helgina. Roger Pyttel sigraði f 200 metra flugsundi karla á 2:05,90 mfnútum, 35/100 úr sekúndu á undan Bandarfkjamanninum Bill Forrester. Kornclia Ender sigraði f 50 metra skriðsundi kvenna á 27,26 sek., Ulrike Tauber sigraði f 400 metra fjðrsundi kvenna á 4:48,54 mfn.; Sigurvegari f 400 metra fjórsundi karla varð Andy Ritchie frá Bandarfkjunum sem synti á 4:43,05 mfn., Graham Smith frá Bandarfkjunum sigraði f 100 metra bringusundi karla á 1:08,85 mfn., og Astralfu- maðurinn Stephen Badger sigraðl f 200 metra skriðsundi karla á 1:56,54 mfn., 66/100 úr sek. á undan Bandarfkjamanninum Tony Bartle. Mjrmo siffaði meJ yfirlwnliiin Norðmaðurinn Magne Myrmo sigraði f 15 kflómetra skfða- göngu á alþjóðlegu móti sem fram fór f Le Brassus um helgina. Gekk hann vegalengdina á 42:36,8 mfn. og var þvf vel á undan næsta manni sem var Jean-Paul Pierrat frá Frakklandi, sem gekk á 42:48,00 mfn. Þriðji varð svo Alfred Kælin frá Sviss sem gekk á 42:58,2 mfn. og þriðji varð Tore Gullen frá Noregi sem gekk á 43:03,0 mfn. Norðmenn binda miklar vonir við frammi- stöðu Myrmo á Olympfuleikunum f Innsbruch, en Myrmo varð sigurvegari f 15 km göngu á sfðasta heimsmeistaramóti. AIIs kepptu 89 göngumenn f Le Brassus, en þar var einnig keppt f norrænni tvíkeppni og f henni sigraði Urban Hettich frá Vestur- Þýzkalandi, hlaut 419,70 stig. I öðru sæti varð Stanislav Kavulok frá Póllandi sem hiaut 416,00 stig og þriðji varð Stefan Hula frá Póllandi sem hlaut 408,97 stig. Sovézkt skautafólk sigorsælt Sovézkt skautafólk vann sigur i ölium greinum á alþjóðlegu skautamóti sem fram fór f Innsbruck f Austurrfki um helgina. Meðal úrslita má nefna eftirfarandi: Andrej Malikov sigraði f 500 metra hlaupi karla á 39,19 sek.. og f 1500 metra hlaupi á 2:03,42 mfn. og Ljubov Satshikova sigraði f 500 mctra hlaupi kvenna á 43,47 mfn. og Taiana Averina sigraði f 1500 metra hlaupi kvenna á 2:17,53 mfn. Kasaya fer til Innsbruck Yukio Kasaya, japanski skfðastökkvarinn sem sigraði f stökki af 70 metra palli á Olympfuleikunum f Sapporo 1972, hefur verið valinn f Olympfulið Japana sem keppa mun f Innsbruck. Munu Japanir sendi 72 þátttakendur á leíkana, 57 skfða- og skauta- menn og 15 fararstjóra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.