Morgunblaðið - 13.01.1976, Side 27

Morgunblaðið - 13.01.1976, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANUAR 1976 27 1976 t GÓLFTEPPI vertlsek&un ~ &A en hve lengi c ^ Tollur Vörugjald Þessi tolla- og vörugjaldslækkun kemur þegar fram í VERÐLÆKKUN ALLRA GÓLFTEPPABIRGÐA Nýjar sendingar verða að sjálfsögðu á lága verðinu að öllu óbreyttu. En hver treystir á stöðugt verðlag á þessum tímum? Hjá okkur getið þér valið á milli 60 LITA í mismunandi gerðum gólfteppa. Röskir sölumenn eru ávallt reiðubúnir til aðstoðar við teppavalið, enda eru kjörorð okkar: ÞEKKING — REYNSLA — ÞJÓNUSTA nnreHín' AUGLYSINGA- SÍMINN ER: 22480 Viö álítum.aö hentugri vörubílar í léttþungavigt séu vandfundnir. Leitiö upplýsinga í Volvo salnum, eöa hringiö í Jón Þ. Jónsson í söludeild. VELTIR HF Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200 Athugasemd frá land- lækni vegna skrifa um sjúkraþjálfara Herra ritstjóri. Undanfarið hefur frú Sigriður Gísladóttir, formaður FtS, rætt ítrekað við ýmsa fjölmiðla um lög- gildingu Eðvalds Hinrikssonar sem sjúkraþjálfara. Af frásögn frúarinnar má ráða að annarleg- um aðförum hafi verið beitt við þá gerð. Tilgangur þesarar grein- argerðar er að skýra frá raun- verulegum gangi mála. í 1. gr. laga um sjúkraþjálfun nr. 31/1962 greinir svo: „Sjúkra- þjálfari skal hafa lokið námi í sjúkraþjálfun við skóla í þeirri grein sem viðurkenndur er sem fullkominn sjúkraþjálfaraskóli af heilbrigðisstjórn þess lands sem námið er stundað í, og af land- lækni eða hafi menntun sem því jafngildir að dómi ráðherra.“ Meðmæli mín sem mjög hafa verið til umræðu eru byggð á eft- irfarandi atriðum: 1. Eðvald Hinriksson lauk iþróttakennaraprófi í Tarku í Eistlandi 1931 (1 árs nám) og starfaði síðan sem íþróttakennari. 2. E.H. lauk „saniter Diploma" i Tallin 1938. Námsefni: Nudd, þjálfun, hjálp i viðlögum og hjúkrun sem þótti tilheyra á þeim tíma. Kennari hans var dr. Bresko prófessor í bæklinga- og hitalækn- ingum. Þetta nám var viðurkennt á þeim tíma sem fullgilt nám i sjúkraþjálfun í heimalandi hans. 3. Eftir að E.H. kom hingað 1946 sem flóttamaður (en skip hans strandaði við Austfirði er það var á leið til Kanada) hefur hann starfað alla tið við þjálfun og nudd undir handleiðslu og eft- ir tilvísun og fyrirmælum lækna. Árið 1962 var honum veitt tak- — Minning Guðmundur Framhald af bls. 33 að bjóða gesti velkomna inn á sitt heimili. Guðmundur vann i landi nokkur ár eftir að hann fluttist til Ytri-Njarðvikur, en var síðan á vélbátum og lengstan tíma með Pétri Sæmundssyni skipstjóra. Við fráfall Guðmundar er stórt skarð rofið i hans fjölskyldu og söknuðurinn mikill hjá eftirlif- andi konu og börnum, og mikill verður söknuður litlu ljúfu barna- barnanna, þegar þau koma að Hólagötu en afi er ekki heima. Guðmundur ákvað síðastliðið sumar að hætta sjómennsku og var búinn að vinna nokkra mán- uði í Iandi þegar hann var fluttur á sjúkrahús þar sem gerðir voru á honum tveir holskurðir vegna þess sjúkdóms, sem varð honum að aldurtila. Ég óska eiginkonu Guðmundar og fjölskyldu hans velgengni á ókomnum árum og votta þeim innilega samúð vegna „ fráfalls góðs drengs. Eg kveð Guð- mund með söknuði, en að lokum hittumst við öll á hinni Gullnu strönd handan marka lífs og dauða. Guð blessi hann og varð- veiti fjölskyldu hans. Haraldur Jensson. markað lækningaleyfi sem nudd- ari. 4. Er E.H. sótti um full sjúkra- þjálfararéttindi árið 1974 lagði hann fram hæfnisvottorð frá fleiri læknum og þar á meðal fyrr- verandi tryggingayfirlækni og fyrrverandi landlækni. E.H. glataði prófgögnum er hann flýði alls laus frá Eistlandi undan sovézka hernum til Sví- þjóðar 1944. Ég hefi kannað möguleika á því að nálgast próf- gögn hans, m.a. gegnum Alþjóða heilbrigðisstofnunina en mér var tjáð að flóttamenn nytu ekki slíkrar fyrirgreiðslu valdsmanna í fyrrverandi heimalandi Eðvalds. Ótal mörg dæmi eru til m.a. á Norðurlöndum um að flóttamenn með fagþekkingu, hafi fengið full starfsréttindi, er þeir framvísuðu hæfnisvottorðum. Að mínu áliti er E.H. ekki „snöggsoðinn sjúkra- þjálfari" heldur fagmaður sem hefur líkt nám að baki og ýmsir sem fengið hafa sjúkraþjálfara- réttindi hér á landi. í ofanálag hefur hann lengri starfsþjálfun en flestir sjúkraþjálfarar hér. Um hæfni hans votta fleiri læknar og þar á meðal tveir fyrrverandi landlæknar og fyrrverandi trygg- ingalæknir. Ég treysti mér ekki til þess að hafa að engu vottorð manna, er hafa haft faglegt eftirlit með starfshæfni heilbrigðisstarfs- manna sl. 40 ár hér á landi. Frú Sigríður Gísladóttir hefur ekki haft frammi mótrök sem breyta skoðun minni. Það er regla að þegar ný lög eða reglugerðir taka gildi, þá eru nokkrum hópi manna veitt full starfsréttindi, þó að þeir hafi ekki lokið þeim náms- tíma sem tilgreindur er í lögunum en vitaskuld er krafizt hæfnis- mats og tel ég að svo hafi verið gert nú. Ég er sannfærður um að hið unga og stælta Félag ísl. sjúkraþjálfara hefur mikilvægari málefnum að gegna en meiða ald- inn flóttamann. Að lokum skal upplýst, að í meðmælum mínum um starfsleyfi um Heilsustöðina í Glæsibæ voru sett þau ófrávíkjan- legu skilyrði, að þar starfaði full- gildur sjúkraþjálfari undir stjórn sérfræðings í orkulækningum. Ólafur Olafsson landlæknir. Hérna hefurðu hann Léttu F-vörubílarnir frá Volvo eru komnir á mark- aðinn.Þetta eru bílar með ótrúlega burðargetu, hag- kvæmir í rekstri, og liprir í akstri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.