Morgunblaðið - 20.01.1976, Page 2

Morgunblaðið - 20.01.1976, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1976 Sæmileg loðnuveiði úti af Langanesi Heildaraflinn orðinn 6200 lestir Heildarloðnuaflinn var á há- degi f gær orðinn um 6200 lestir, en í fyrrinótt fengu 8 bátar alls um 2100 lestir. f upphafi ætluðu flestir bátanna með afiann til Raufarhafnar og Vopnafjarðar, en vegna mjög slæms veðurútlits á miðum sneru flestir við og héldu til Seyðisfjarðar. Loðnuna fengu bátarnir úti af Langanesi. Andrés í'innbogason, starfs- maður Loðnunefndar, sagði þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gær, að sér virtist byrjun þessarar vertíðar lofa góðu, sérstaklega þegar haft er í huga hve norðar- lega veiðin hófst, en undanfarin ár hefur skipunum almennt ekki tekizt að veiða loðnuna fyrr en hún hefur verið komin á móts við Glettinganes eða þar suður af. Kvað Andrés loðnuskipum nú fara ört fjölgandi á miðunum eft- ir að verð hafði verið tilkynnt og Stuttur sáttafundur SÁTTASEMJARI hélt fund með aðilum vinnumarkaðarins í gær. Klukkan 10 hófst fundur milli fulltrúa Verkamannasambands- ins og vinnuveitenda og einnig voru undirnefndir að störfum vegna sérkrafna netagerðar- manna, kjötiðnaðarmanna og mjólkurfræðinga. Síðan var fundur með almennu samninga- nefndunum kl. 4 en þegar Morgunblaðið ræddi við Torfa Hjartarson, sáttasemjara, síðdeg- is taldi hann að þeim fundi lyki um kvöldverðarleytið. síðari hluta dags í gær voru 35 skip búin að tilkynna sig til veiða. Eftirtalin skip tilkynntu um loðnuafla í gærmorgun: Þór- steinn RE 240 lestir, Eldborg GK 500 lestir, Huginn 2. VE 220 lest- ir, Jón Finnsson GK 300 lestir, Ásgeir RE 240 lestir, Albert GK 180 lestir, Náttfari ÞH 270 lestir og Kristbjörg VE 150 lestir. 3 jafntefli hjá Friðrik AÐ LOKNUM þremur umferðum af 11 á skákmótinu í Wijk an Zee er Friðrik Ólafsson f 4.—8. sæti með V/i vinning. Friðrik hefur gert jafntefli f öllum skákum sfnum til þessa. Júgóslavinn Ljubomir Ljubojevic, sem er að- eins 25 ára gamall, hefur strax náð góðri forystu, hefur unnið allar sfnar skákir og er með einum vinningi meira en næstu menn. Friðrik tefldi við Sovétmann- inn Tal á laugardaginn, en hann er fyrrverandi heimsmeistari í skák eins og flestum er kunnugt. Friðrik hafði hvítt og leitaði vinn- ingsleiða en Tal tefldi mjög stíft til jafnteflis og var jafntefli samið. í 3. umferðinni tefldi Frið- rik við Mark Dverecki frá Sovét- rfkjunum og hafði Friðrik svart. Skákinni lauk með jafntefli. Skákmennirnir áttu frí í gær en í dag á Friðrik að tefla við Ljubojevic og hefur Friðrik hvítt f skákinni. Mikið að gera hjá björgunarsveitar- mönnum í Kgndli ÞEIR höfðu nóg að gera um helgina félagarnir f björgunar- sveitinni Kyndli f Mosfells- sveit. Þeir voru kallaðir út um matarleytið á sunnudaginn til leitar að Páli Bjarnasyni sem týndur var f Bláfjöllum. Þegar þeir voru að koma heim til sín f gærmorgun voru þeir aftur kallaðir út og fleiri útköll fylgdu í kjölfarið og komust þeir ekki heim til sfn fyrr en undir kvöld í gær. Fyrsta útkallið eftir Blá- fjallaleitina var upp á Kjalar- nes þar sem rúta hafði fokið út af veginum og þrennt slasazt. Var fólkið flutt á slysadeildina. Þegar þeim flutningum var lokið kom beiðni um aðstoð við að koma skólabörnum í Mos- fellssveit heim til sín og tók það nokkurn tíma. Þessu var ekki fyrr lokið en beiðni kom um að flytja sængurkonu á fæðingar- deildina og var það gert. Erlingur Ólafsson, formaður sveitarinnar, sagði í gær að óvenju mörg útköll hefðu verið síðan um áramót vegna óveðurs og ófærðar. Björgunarsveitin er 9 ára og er hún vel búin tækjum. Til dæmis fóru 12 félagar sveitarinnar á 8 vél- sleðum til leitarinnar í Bláfjöll- Ljósm. Mbl. Þórleifur Ól. Togarinn Lord Jellicoe að veiðum f sfðasta þorskastrfði skammt úti af Hvalbak. Lord Jellicoe og Ægir í árekstri fvrrakvnlH on í fvrrin Gat kom á salernisklefa togarans Brezki togarinn Lord Jellicoe sigldi á varðskipið Ægi kl. 10.10 f gærmorgun þegar varðskipið reyndi að klippa á togvfra togar- ans. Smávægilegar skemmdir urðu á varðskipinu, aðallega á þvrluþilfari. Hins vegar kom gat á togarann, þar sem aðalsalerni og snyrtiklefar togarans eru. Allar sturtur og salerni fóru úr sambandi f togaranum og gátu skipverjar ekki gengið örna sinna. Að sögn Landhelgisgæzl- unnar bað skipstjóri togarans um leyfi til að sigla heim, af þessum ástæðum, en fékk neitun. Þegar áreksturinn átti sér stað voru skipin stödd 52 sjómílur aust- norðaustur af Glettinganesi. Að sögn talsmanns Landhelgis- gæzlunnar kom varðskipið Ægir togarahóp að óvörum úti af Glett- inganesi í gærmorgun. Klippur varðskipsins voru settar út og átti að reyna að klippa á togvíra ein- hvers togarans. Lord Jellicoe varð fyrir valinu og var sigit i stefnu fyrir aftan togarann. Þegar skip- stjóri togarans varð þess var, hvað verða vildi, bakkaði hann á fullri ferð aftur á bak og skipti það engum togum að skutur togarans skall á bakborðshlið varðskipsins við þyrluþilfar. Við höggið lagðist rekkverk aftan til á þyrluþilfari saman og dekklisti á þyrluþilfari dældaðist. Þá lyftist þyrluþilfarið lítillega upp í miðju og fjórir bitar sprungu frá keis. Ægir lá fyrir austan Papey í fyrrakvöld, en í fyrrinótt hélt skipið þaðan í skjóli náttmyrkurs til austurs. Var haldið nokkuð á haf út, þannig að varð- skipið kom að togurunum úr austurátt. Áttu togaramenn og yfirmenn verndarskipanna ekki von á því. Dráttarbáturinn Euroman var á þessum slóðum og fékk skipstjóri hans skömm í hatt- inn fyrir að uppgötva ekki varð- Framhald á bls. 35 3.50 kr. fyrir loðnukílóið Verksmiðjueigendur mótmæla verðinu A FUNDI Verðlagsráðs sjávarút- vegsins I fyrrinótt var ákveðið að lágmarksverð á loðnu til bræðslu frá 17. til 31. janúar 1976 skuli verða kr. 3,50 pr. kfló. Auk þessa greiðast 10 aurar fyrir hvert kfló í loðnuflutningasjóð. Verð á úr- gangsloðnu frá frystihúsum á að vera 10% hærra en framangreint Listaskáldin vondu fylltu Háskólabíó LISTASKÁLDIN vondu, sem svo nefna sig, snarfylltu Háskólabió á Iaugardaginn var, er þau fluttu verk sín f um tvær klukkustundir. Stapafellið tók niðri á hra»A«ln har spm vprksmióian á Breiðdalsvík Litlafellið dró olíuskipið til Akureyrar í slipp OLlUSKIPIÐ Stapafell tók niðri við Breiðdalsvík aðfararnótt s.l. 93 kr. meðalverð í Þýzkalandi NETABATURINN Arnar frá Þor- lákshöfn seldi 70 lestir af fiski, mest ufsa, f Cuxhaven í gærmorg- un. Fyrir aflann fékk báturinn 98.300 mörk eða 6.5 millj. króna. Meðalverð var kr. 93 pr. kfló. 5.3 lestir af afla bátsins voru dæmdar ónýtar. föstudags með þeim afleiðingum að stýri skipsins varð óvirkt. Ömar Jóhannsson hjá skipadeild SlS tjáöi Mbl. í gær að skinið hefði rekið hælinn í botn á Breið- dalsvík og hefði ekki verið hægt að hreyfa stýri skipsins. Var Litla- fellið fengið til að draga Stapafell til Akureyrar þar sem það verður tekið í slipp, en í gær var ekki búið að kanna skemmdírnar á olíuskipinu, sem var með oliu- farm til hafna á Austurlandi og m.a. til Ioðnubræðslunnar á Vopnafirði, sem getur ekki hafið bræðslu þar sem verksmiðjan enga svartolíu á staðnum. Ómar kvað nú unnið að því að leysa það mál, en ekki kvaðst hann hafa heyrt að olíuskortur væri á öðrum stöðum. Litlafellið er nú að losa gasolíu á Norður- landshöfnum. Að sögn listaskáldanna má áætla áð a.m.k. 1100—1200 manns hafi sótt samkomuna auk mikils fjölda barna sem tekin voru í gæzlu á meðan á henni stóð. „Við vorum mjög ánægð með aðsóknina, og þá ekki sfður áheyrendur sjálfa, sem voru á ýmsum aldri, og stemmn- ingin var góð,“ sagði eitt lista- skáldanna, Pétur Gunnarsson, f samtali við Morgunblaðið í gær. Listaskáldin vondu eru átta talsins: Bigir Svan, Guðbergur Bergssson, Hrafn Gunnlaugsson, Megas, PéturGunnarsson, Sigurð- ur Pálsson, Steinunn Sigurðar- dóttir og Þórarinn Eldjárn. Kynnir var Sigurður Karlsson. Ungur drengur fótbrotnaði UMFERÐARSLYS varð á Rauða- læk skömmu eftir klukkan 18 í gærkvöldi. 7 ára drengur, sem þar var á ferð, hrasaði og lenti með fótinn undir hægra afturhjóli bif- reiðar sem ók um götuna. Drengurinn fótbrotnaði, að þvf er talið var. Ökumaðurinn stöðvaði ekki bíl sinn, hefur líklega ekki orðið þess var sem gerðist. Vitni voru að atburðinum, en þeim ber ekki saman um hvernig bíllinn var. Annað vitnið segir að þetta hafi verið gul Cortina með svörtum toppi, fjögurra dyra, en hitt vitnið telur gílinn hafa verið hvítan Peugot. ökumaðurinn er beðinn að gefa sig fram við slysadeild lögreglunnar. verð. Þetta nýja loðnuverð er 70 aurum hærra pr. kfló en var greitt f byrjun vertfðar í fyrra, en þá var verðið kr. 2,80 pr. kfló. 1 loðnuflutningasjóö voru þá greiddir 15 aurar pr. kíló. Nýja loðnuverðið var ákveðið af oddamanni og fulltrúum seljenda í nefndinni gegn atkvæðum full- trúa kaupenda, en þeir létu bóka eftirfarandi: „Með þessari verðlagningu er sýnt að margar verksmiðjur munu ekki hafa vínnslutekjur fyrir breytilegum kostnaði miðað við fyrri reynslutölur um nýtingu og miðað við þær sölur á toðnuaf- urðum, sem þegar hafa farið fram, og mótmæla því harðlega þessari verðákvörðun." Eftir að þessi ákvörðun var gerð heyrin kunn hafði Morgun- blaðið samband við nokkra verk- smiðjustjórnendur. Sögðu þeir að þeir vildu ekki tjá sig um málið fyrr en að afloknum fundi í Félagi íslenzkra fiskmjölsfram- Framhald á bls. 35 Leiðrétting I grein Ragnhildar Helgadóttur í Morgunblaðinu sl. sunnudag féll niður setning. Sá kafli, sem hér um ræðir, átti að vera svohljóð- andi: „Tilgangur landhelgisbarátt- unnar er annar en tilgangurinn með aðild að NATO. Menn þurfa að gæta þess vandlega, að barátt- an fyrir stækkun fiskveiðilögsögu okkar og verndun öryggishags- muna okkar vegna hugsanlegs ófriðar milli stórvelda í austri og vestri eru tvö óskyld mál. Hvort tveggja er okkur lífsnauðsyn, verndun öryggishagsmuna og stækkun fiskveiðilögsögu." Þetta leiðréttist hér með.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.