Morgunblaðið - 20.01.1976, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JANUAR 1976
5
FRA hinum fjölmenna fundi áhugamanna um virkjun Blöndu, sem haldinn var á Blönduósi s.I.
laugardag. Um 400 manns sóttu fundinn. Ljósmynd Unnar Agnarsson.
Frumvarp um heimild
til virkjunar Blöndu
Unnið að undirbúningi málsins,
segir iðnaðarráðherra
AHUGAMENN um virkjun
Blöndu boðuðu til almenns fund-
ar um virkjunarmálin og var
hann haldinn á Blönduósi 17.
þ.m. Fundinn sóttu um 400
manns, alls staðar að úr Húna-
vatnssýslu, en einnig nokkrir úr
Skagafirði. 1 upphafi fundarins
bar Stefán A. Jónsson, bóndi á
Kagaðarhóli, fram ályktun
fundarboðenda, sem birt er hér
siðar f fréttinni.
Morgunblaðið hafði samband
við Gunnar Thoroddsen iðnaðar-
ráðherra i gær og innti álits hans
á fundinum.
Gunnar sagði: „Ég tel mikil-
vægt fyrir framgang þessa merka
máls að svo fjölmennur fundur j
hefur lýst svo eindregnu fylgi við j
málið.
I iðnaðarráðuneytinu er nú
unnið af kappi við undirbúning
frumvarps um heimild til að
virkja Blöndu og gerð itarlegrar
greinargerðar um málið til þess
að leggja fyrir rfkisstjórnina á
næstunni."
Jakob Björnsson orkumála-
stjóri sagði í samtali við Morgun-
blaðið I gærkvöldi að möguleikar
á virkjun í Blöndu hefðu nokkuð
verið kannaðir, en mikið væri
eftir í því efni. Kvað hann nú
komið að því að taka ákvörðun um
það hvort leggja ætti meira fjár-
magn í rannsóknir t.d. til að hefja
borun á svæðinu til að kanna
undirstöður, jarðlög o.fl. en
áframhaldandi rannsóknir kvað
hann mun kostnaðarmeiri en þær
sem hefðu verið gerðar. Kvað
hann lfklegt að frekari rannsókn-
ir á svæðinu myndu kosta um 100
millj. kr., en kostnaðaráætlun
virkjunar í Blöndu væri hins
vegar um 10 milljarðir króna og
væri þá miðað við 800 gígavatta
virkjun eða 135 MW. Sigalda er
150 MW og Hrauneyjarfoss um
210 MW eða 925 GWH og Krafla
er áætluð 70 MW eða 580 gíga-
vattsstundir. Kostnaðaráætlun
við Kröflu er 6—7 milljarðar.
Jakob kvað virkjun i Blöndu
mundu duga fyrir allt Norðurland
eins og orkuþörfin væri í dag.
Jakob taldi að ljúka mætti við
botnsrannsóknir á svæðinu á
næstu tveimur sumrum ef ákvörð-
un yrði tekin fljótlega og að þvi
loknu ætti að vera unnt að hefja
undirbúning að hinum ýmsu
þáttum í virkjunargerð, en Jakob
taldi byggingu slikrar virkjunar
taka um 6 ár.
Samkvæmt upplýsingum frá
Birni Bergmann fréttaritara Mbl.
voru aðrir framsögumenn á fund-
inum sem hér segir: Kristófer
Kristjánsson bóndi í Köldukinn
og formaður Búnaðarsambands
Austur-Húnavatnssýslu, Lárus
Ægir Guðmundsson sveitarstjóri,
Skagaströnd, Brynjólfur Svein-
bergsson oddviti, Hvammstanga,
og Sigurður Þorbjarnarson bóndi,
Geitaskarði.
Alls tóku 17 manns til máls á
fundinum og 15 þeirra lögðu ein-
dregið til að Blanda yrði virkjuð.
Fundurinn stóð f nær 4 klukku-
stundir.
Ályktunin var samþykkt með
227 atkvæðum gegn 6. Margir
voru þá farnir af fundi og nokkrir
greiddu ekki atkvæði.
Hér fer á eftir ályktun fundar-
boðenda:
Ályktun lögð fyrir fund áhuga-
manna um virkjun Blöndu í
Félagsheimilinu á Blönduósi 17.
janúar 1976.
Rannsóknir hafa sýnt, að virkj-
un Blöndu sé hagkvæmasti og
öruggasti virkjunarmöguleiki á
Norðurlandi vestra og því lýsir
fundurinn eindregnum stuðningi
við virkjun Blöndu.
Ennfremur fagnar fundurinn
þeirri yfirlýsingu iðnaðarráð-
herra að lagt skuli fram frumvarp
um Blönduvirkjun og leggur
þunga áherslu á, að þingmenn
kjördæmisins fylgi því máli fram
af festu og einhug.
Þá telur fundurinn mikilvægt,
að sem fyrst verði gengið frá
samningum við þá hreppa, sem
eiga það land, sem fer undir uppi-
stöðulón og þeir fái sinn hlut
varanlega bættan með raforku og
uppgræðslu beitilands að megin-
stefnu til eins og samningsdrög
milli oddvita og iðnaðarráðu-
neytis gera ráð fyrir þannig að
framtiðaraðstaða búskapar sé
tryggð.
Fundurinn leggur á það höfuð-
áherslu að orka Blönduvirkjunar
verði notuð til alhliða iðnaðarupp-
byggingar smærri og stærri þétt-
býlisstaða norðurlands vestra og
skorar á sveitarstjórnir þeirra að
hefja nú þegar samstarf til þess
að koma upp orkufrekum iðnaði
af viðráðanlegri stærð i þessum
sveitarfélögum í samvinnu og
samráði við þingmenn kjördæmis-
Framhald á bls. 35
Nær 300
manns leitiiðu
að týndum
manni
Maðurinn fannst
heill á húfi
TÆPLEGA fimmtugur Kópavogs-
búi, Páll Bjarnason að nafni, villt-
ist af réttri leið er hann var á
gangi í Bláfjöllum á sunnudag-
inn. Hófst víðtæk leit að Páli um
kvöldið og leituðu tæplega 300
manns að honum um kvöldið og
nóttina. Um klukkan 5,30 á mánu-
dagsmorgun fundu félagar úr
björgunarsveit SVFÍ Fiskakletti í
Háfnarfirði Pál heilan á húfi i
Geitafelli nálægt Þrengslavegi.
Var þá Páll orðinn mjög slæptur
og hafði lagzt fyrir. Mátti ekki
tæpara standa með björgun Páls,
að sögn leitarmanna. Páll var á
góðum batavegi í gær. 30—40 vél-
sleðar voru notaóir við leitina og
reyndust þeir mjög vel.
Páll sagði i samtali í gær að
hann hefði hugsað um það allan
tímann að sofna ekki heldur
þrauka til morgjuns. Bað hann um
sérstakt þakklæti til allra þeirra
sem tóku þátt í hinni umfangs-
miklu leit við erfiðar aðstæður.
Agætur afli
línubáta
fyrir vestan
Isafirði 19. jan.
AGÆTUR afli var hjá línubátum
við Djúp í seinustu viku og gaf til
róðra alla vikuna, sem hefur verið
heldur fátítt að undanförnu. Var
afli hæstu báta um og yfir 60 tonn
eftir vikuna og eru þeir nú komn-
ir með 100 tonna afla frá áramót-
um. Er það óvenjulega góður afli
á línu.
Afli togaranna hefur aftur
á móti verið sáratregur seinustu
daga.
— Fréttaritari.
Meðmæli
í starfi mínu, sem skrifstofustúlka, þarf ég
nauðsynlega að nota fljótvirka reiknivél, sem skilar
útkomu á strimli, og hefur tvö samlagningarverk, sem
geta unnið saman eða sitt í hvoru lagi.
Ég hefi ekki fundið vél í
neinum verðflokki, sem ég
hef verið fyllilega ánægð
með — fyrr en ég reyndi
Ricomac. Ricomac er lip-
ur, fljótvirk og örugg.
-4adJor
RICOMAC
1. Upphækkun
2. Mínus margföldun
3. Skiftitakki
4. Prentun
5. Hreinsun
6. Kommusetning
7. Minni I: Frádráttur
8. Minni I: Samlagning
9. Minni I: Total
10. Minni I: Subtotal
11. Pappírslosari
12. Aukastafaveljari
13. Minni II: Safntakki
14. Minni II. Total
15. Minni II: Subtotal
16. Minni II: Frádráttur
17. Minni IhSamlagning
18. Minni I: Safntakki
19. Pappírsfærsla
20. Sjálfv. prósentureikn.
21. Venjulegur pappír
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
\ + Hverfisgötu 33
Sími 20560
Sölumenn okkar veita fúslega allar upplýsingar um Ricomac,
sem hæfir starfi yðar.