Morgunblaðið - 20.01.1976, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JANUAR 1976
11
Nú er sá tími liðinn er tvöfalt bók-
hald átti einna helzt við tvær vasa-
bækur i sitt hvorum rassvasanum, -
önnur fyrir innborganir og hin fyrir
skuldir og útborganir.
Nú er líka horfin sú trú, að tvöfalt
bókhald merki eina dagbók í
fyrirtækinu, en aðra heima í skrif-
borðsskúffu.
Sannleikurinn er sá, að notadrjúgar
upplýsingar, til aðstoðar við stjórn-
un fyrirtækis, koma aðeins i Ijós,
þegar notaðar eru aðgengilegar
bækur á réttan hátt.
Réttu bókhaldsbækurnar fást
hjá Pennanum.
HAFNARSTRÆT118
LAUGAVEGI 84
HALLARMÚLA 2
Úr A-Skagafjarðarsýslu
t janúar1976
Eftir á margan hátt misviðra-
samt ár, held ég að við Skagfirð-
ingar megum dável við una. Árið
1975 byrjaði þó ekki vel því að
hríðarhamur gekk yfir og snjó-
flóð með miklum sköðum voru
óvenju mikil. T.d. fór snjóflóð á
Ljótsstöðum og olli miklum skaða,
einnig á 4 km breiðu belti í Ós-
landshlfð, en slfkt snjóflóð hefir
ekki farið þar síðan 1648. I Stýfiu
í Fljótum tók hús og hlöðu af
grunni. Hér eru talin aðeins fá
tilfelli af mörgum. Veturinn var
yfirleitt misviðrasamur mjög oft
10 til 15 gráða frost, sem gekk
mjög nærri útigangshrossum.
Urðu á nokkrum stöðum nokkur
vandræði með þau.
Mikil eftirspurn var eftir
heyjum þegar á leið vetur og var
það selt á 12 til 15 krónur kg.
Tólfta maí voru Siglfirðingar
hríðtepptir inni í Skagafirði og þá
voru sumstaðar í Austur-Fljótum
aðeins um eins metra bútar af
símastaurum upp úr fönn. Upp úr
þessu fór þó heldur að hlýna, þó
frost væri sumar nætur. 15. júní
snjóaði í fjöll en var rigning á
láglendi sem hjálpaði mikið
gróðri sem var talinn mánuði
seinni en venjulega enda var ís þá
inn með Skaga.
Sláttur byrjaði 14.—17. júlí.
Um mánaðamót júlí—ágúst var
orðið vel sprottið. Gekk hey-
skapur vel úr því a.m.k. á úthér-
aði. Nokkuð bar þó á skúrum í
dölum fram. Hey náðust mikil inn
en heysýnishorn, sem rannsökuð
hafa verið, gefa ekki æskilegt
fóðurgildi. Fyrsta frostnótt kom
5. september og 9. september
byrjaði éljagangur og snjókoma.
Þá þurfti að taka kýr á gjöf, og
var september það erfiður að fé
fennti í dölum fram og erfiðlega
gekk að koma fé til slátrunar. En
október og fyrri hluti nóvember
var svo mildur og hagstæður að
elztu karlar og kerlingar mundu
varla slíka blíðu tíð. Þá voru jafn-
vel kýr látnar út aftur til beitar,
og heyskapur hafinn á stöku bæ.
Seinni hluta nóvember var þó
vetur kominn og árið endaði með
hríðargusum og nokkrum snjó,
sérstaklega var það þó í útsveit-
um.
Búendaskipti hafa ekki orðið
mikil á árinu. Ahyggjum veldur
þó að nokkur höfuðbýli gömul eru
ekki í ábúð eins og er, og má þar
til nefna Hofstaði, Gröf á Höfða-
strönd, Fell í Sléttuhlíð og Ysta
Mó í Fljótum. Kotbæirnir gömlu
verða að höfuðbólum og þannig
þróast lifsins saga.
I vöxt fer að búskapur er
gerður einhæfari, þ.e. að annað-
hvort er búið með sauðfé eða
nautpening. Veldur það ef til vill
nokkru að nú er rætt um tank-
væðingu í héraðinu, en þar finna
margir bændur vanmátt sinn því
að víða vantar góð fjós og rör-
mjaltakerfi sem hvorttveggja
kostar mikia fjármuni. Á þessu
hausti var gert mikið átak í Hofs-
hreppi þar sem flestar heim-
keyrslur voru byggðar upp og
ofaníkeyrðar. Er það einn liður í
undirbúningi að tankvæðingu.
Nokkuð var gert að byggingum
í sveitum og jarðrækt fram-
kvæmd næstum á hverjum bæ. A
Hofsósi var mikið byggt af fbúð-
um og lokið við hafnargarð
sunnan við höfnina. Ennþá
vantar þó lengingu á hafnar-
bryggju og dýpkun inni í höfn-
inni. Félagsmál voru með svip-
uðum hætti og áður. Lionsklúbb-
urinn Höfði starfaði vel að líknar-
málum og hyggst nú safna til
tækjakaupa í læknastofu á Hofs-
ósi. Félagsheimilið Höfðaborg á
Hofsósi er mikið notað sem mið-
stöð fyrir félagslíf á Hofsósi og
nærliggjandi sveitum. Vegir hafa
verið taldir góðir í héraðinu, enda
erum við Skagfirðingar heppnir
með vegaverkstjórn. Unnið er nú
að nýjum vegi á Siglufjarðarleið
sem liggja á af aðalvegi sem nú er
um Narfastaði yfir austurvatnaós
þar sem nú er verið að byggja
volduga brú. En vegur liggur
norður undir sjó og yfir Hegranes
utanvert.
Sjósókn. Allir skuttogarar
Skagfirðinga voru gerðir út og
björguðu þeir alveg atvinnulífi
verkafólks ef frá er talin. mikil
byggingarvinna. Rekstur togar-
anna er þó talinn erfiður. Trillu-
bátar, sem gerðir voru út frá
Hofsósi í sumar, öfluðu sára lítið,
og þurftu að sækja á fjarlæg mið
það lítið sem fékkst. Nokkrir
netabátar stunduðu veiðar á
Skagafirði i sumar, nokkrir af
þeim frá Eyjafirði og víðar að.
Talað er um að togveiðibátar
stundi ólöglegar veiðar á firð-
inum og eyðileggi ungfiskamið.
Björn í Bæ.
Fréttir frá
Patreksfirði
Gjöf til
Hvamms-
tanga-
kirkju
Á Þorláksmessu barst
Hvammstangakirkju gjöf
til minningar um frú
Elsu Bjarnadóttur á
Hvammstanga. Gjöfin er
tveir kristalsblómavasar,
sem kvenfélagið Björk
gaf.
Frú Elsa var mikil
dugnaðarkona í félags-
málum og vann m.a.
mikið starf hjá Kvenfé-
laginu. Var hún formað-
ur þess um arabil og
kvennabandsformaður á
árunum 1964—1970.
Meðfylgjandi mynd
var tekin við afhendingu
gjafarinnar. Á henni eru
talið frá vinstri: Anna
Guðmundsdóttir, Ásdís
Pálsdóttir og Sigurbjörg
Guðmundsdóttir stjórn-
arnefndarkonur í Björk,
Ríkharð Guðmundsson
eiginmaður Elsu heitinn-
ar og Birna dóttir henn-
ar. 1 aftari röð eru Krist-
ján Björnsson sóknar-
nefndarmaður, Sigurður
Tryggvason safnaðarfull-
trúi sr. Gísli H. Kolbeins
sóknarprestur og Bjarni
Þorláksson faðir Elsu
heitinnar.
Patreksfirði 12. jan.
AÐ VANDA kom hingað um jólin
f jöldi fólks til að halda hátlð með
ættingjum og vinum. Flestir
komu með flugvélum og reyndist
það mjög torsótt sökum mikilla
umhleypinga og óvenjulega óhag-
stæðs tfðarfars, var ekki hægt að
fljúga dögum saman vegna veð-
urs, en að lokum rættist þó úr á
síðustu stundu, þar sem bæði var
hægt að fljúga á Þorláksmessu og
aðfangadag.
Lætur nærri að mun 200 manns
hafi komið hingað um hátiðirnar.
Prófasturinn, séra Þórarinn Þór,
messaði hér bæði á aðfangadags-
kvöld og gamlárskvöld og var
kirkjusókn góð. Ennfremur hafði
hann guðsþjónustur í Tálknafirði,
stóra-Laugardal, Haga, Brjánslæk
og i Rauðasandshreppi og enn-
fremur á sjúkrahúsinu hér.
Leikfélag Patreksfjarðar hafði
3 sýningar á „Ertu nú ánægð kerl-
ing“ við góða aðsóks.
Körfubolti er mikið stundaður
hér á Patreksfirði og fóru margir
leikir fram hér um jólin milli
heimamanna og gesta. Stúlkur
æfa hér einnig körfubolta af
kappi, en eins og kunnugt er eiga
Patreksfirðingar Islandsmeistara
í 2. fl. kvenna. íþróttasalur okkar
er of lítill til handknattleiks, en
blak og badminton er einnig
stundað.
SJÓSÓKN OG AFLABRÖGÐ:
Sjósókn hefur verið með ein-
dæmum erfið sl. 3 vikur. Stöðugar
ógæftir hafa verið og afli rýr,
enda veður oft mjög slæmt þó róið
hafi verið. 7 bátar eru gerðir héð-
an út og allir á línu. Nýr bátur
hefur bæst við vertíðarflotann
hér, en það er Birgir GK, sem hét
áður Hannes Hafstein, hið þekkta
aflaskip frá Dalvík. Von er á m/b
Maríu Júlíu heim nú í þessum
mánuði eftir gagngerða viðgerð,
sem hún hefur fengið eftir brun-
ann á sl. vetri, en hún varð þá
fyrir miklum skemmdum eins og
kunnugt er þegar hún sökk eftir
bruna, hér í höfninni.
Byggingaframkvæmdir 1975,
Samkv. uppl. Ólafs Helgas. bygg-
fltr.: 1 smíðum eru 10 einbýl-
ishús, fjölbýlishús með 6
fbúðum. Hraðfrystihús Patreks-
fjarðar við Patrekshöfn sem er
stórbygging um 3000 ferm., er
komið undir þak; tvö trésmíða-
verkstæði. Lokið er við að múr-
húða innan 2. áfanga félagsheim-
ilisins. Kaupfél. Patreksfjarðar
hefur tekið í notkun stóra vöru-
skemmu við höfnina, sem reist
var á árinu.
BYGGINGAFRAMKVÆMDIR
SEM FYRIRHUGAÐAR ERU A
ÞESSU ARI:
Úthlutað hefur verið lóðum
undir 7 einbýlishús, 4 parhús,
ennfremur er áætlað að byrja á
dagvistunarheimili fyrir börn.
Læknamiðstöð: Menn eru orðn-
ir langeygðir eftir að byrjað verði
á læknamiðstöðinni, sem byrja
átti að byggja á sl. ári og treysta
því að bygging hennar hefjist af
fullum krafti á árinu sem nú er
hafið.
Hraðfrystihús Patreksfjarðar
h/f hefur selt byggingar sínar á
Geirsnesi og er áformað að breyta
þeim í sláturhús.
Bygging nýja hússins við höfn-
ina átti samkv. áætlun að vera
tilbúin um þessi áramót, en hefur
tafist mikið sökum fjárskorts. Það
væri mikill skaði fyrir byggðar-
lagið ef bygging þess drægist svo
að til rekstrarstöðvunar kæmi ef
það yrði ekki tilbúið til vinnslu,
þegar slátrun hefst i gamla hús-
inu.
Nýtt blað hefur göngu sfna: Nú
um hátíðirnar hófu Junior
Chambers á Patreksfirði útgáfu
blaðs, sem þeir gáfu nafnið Pat-
rekur. Fyrir rúmum 20 árum var
gefið út hér á Patreksfirði blað
með sama nafni og kom það út i
nokkur ár. Aform útgefenda er að
blaðið komi út fyrst um sinn á
mánaðar fresti. Blaðið á að vera
almennt fréttablað fyrir byggðar-
lagið og vera vettvangur hvers
konar umræðna, sem stuðlað geta
að framförum og betra mannlífi í
héraðinu. Páll
Tvöfalt bókhald...