Morgunblaðið - 20.01.1976, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 20.01.1976, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JANUAR 1976 Minnismerki Ólafíu Jóhannesdóttur af- hjúpað á ný í Osló ÁRIÐ 1930 var reist í Vaterland f Ósló minnismerki um fslenzku konuna Olaffu Jóhannesdóttur til að minna á hið merka mannúðar- starf sem hún innti af hendi meðal kvenna sem höfðu lent á villigötum þar f borg. Kristinn Pétursson myndhöggvari gerði styttuna. Árið 1971 var ákveðið að flytja styttuna á annan stað vegna skipulagsbreytinga á Vaterland- borgarhlutanum og var styttunni komið fyrir til geymslu í Vige- landsafninu um tima. Nú hefur styttunni verið komið fyrir á nýj- um stað, í Sofienbergparken, en þar nálægt starfaði Ölafía. Myndastyttan var afhjúpuð við hátíðlega athöfn að nýju seinni- part ársins 1975, og gerði það hinn þekkti Öslóarbúi Rolf Stranger, núverandi formaður listaverkanefndar Óslóarborgar og borgarstjóri um árabil. Flutti hann við það tækifæri lofsamleg ummæli um Ölafiu og störf henn- ar. Fyrir nokkrum árum voru rit Ólafiu Jóhannesdóttur gefin út á tslandi f tveimur bindum og skrifaði dr. Bjarni Benediktsson ævisögu hennar framan við útgáf- una. Tónlistarverð- laun Norður- landaráðs á næsta leiti DÖMNEFNDIN um tónlistarverð- laun Norðurlandaráðs 1976 kem- ur saman til fundar f Kaup- mannahöfn nk. þriðjudag til að ákveða hvaða tónverk skuli hljóta verðlaun. Verðlaunin eru 50 þús- und danskar krónur. Af hálfu tsland er lögð fram Konsert fyrir flautu og hljómsveit eftir Atla Heimi Sveinsson og „Angelus domini“ fyrir sópran, einleik og kammerhljómsveit eft- irLeif Þórarinsson. Af hálfu Danmerkur eru lögð fram verk eftir Palle Gudmund- sen-Holmgreen — einleiksverk fyrir rafmagnsgítar og Ib Nör- holm — 3ja sinfónía „Day’s night- mare“ 1. k’rá Finnlandi: Einar Englund — píanókonsert nr. 2 og Aulis Sallinen — óperan „Ratsumies". Frá Noregi: Anton- io Bibalo: kammeróperan Fröken Julie of Káre Kolberg: „Hakena anit“. Frá Svíþjóð: Lars-Gunnar Bodin — Syner — af hljómbandi og Svend-David Sandström „Trough and trough“ fyrir hljórh- sveit. Tónlistarverlaununum var út- hlutað fyrsta sinn árið 1965. I upphafi var ákveóið að veita þau þriðja hvert ár, en 1969 var því breytt í annóa hvert ár. Til þessa hafa hotið þau eftirtalin tónskáld fyrir tilgreind tónverk: 1965: Karl-BirK«*r Blomdahl: Operan „Ani- ara“. 1968: Joonas Kokkonen: ll. sinfónían. 1970: Lars Johan Werle: Kammeróperan „Drömmen om Therese4*. 1972: Arne Nord- heim: „Eeo“ (lónverk fyrir hljómsveil og kór). 1974: Fer Nörgaard: „Oilgamesh** (kammerópera). Verðlaununum verður nú út- hlutað í sjötta skipti. Rarik 1974: Orkuaukning 15% Heíldaraukning orkuöfl- unar hjá Rafmagnsveitum rfkisins var 15% á árinu 1974 eða aðeins meiri en á árinu á undan. Var framleiðsla eigin orkuvera á árinu 130 gígawattstundir, borið saman við 118 gígawattstundir fyrra ár en 310 gígawattstundir aðkeyptar. Þetta kemur fram í nýútkominni skýrsiu Rafmagns- veitnanna. Hreinn rekstrarhalli var veru- legur á árinu 1974. Rekstrargjöld voru 1.351 millj. kr„ þar með tald- ar 190millj. kr. afskriftir, en tekj- ur 1.066 millj. kr. án stofnfram- lags. Hreinn rekstrarhalli er því 285 millj. Stofnframlög voru 58 millj. kr. af heimtaugagjöldum notenda og 91 millj. ef framlögum Orkusjóðs til sveitarafvæðingar. Segir Valgarð Thoroddsen í skýrslunni, að rekstrarhallinn stafi svo sem árið á undan af auknum tilkostnaði án jafnhliða hækkunar á söluverði raforkunn- ar. Meðalhækkanir milli áranna 1973 og 1974 voru 44% launa- hækkanir, 50% hækkanir á al- mennu efni, 165% hækkanir á olíu og 55% á aðkeyptri raforku. Hins vegar var hlióstæð hækkun seldrar raforku um 51 %. Mannvirki Rafmagnsveitna ríkisins voru í árslok 1974 þessi; vatnsaflsvirkjanir i rekstri 11.050 kw og olíustöðvar í rekstri 29.780 kw. I byggingu voru 13200 kw vatnsvirkjanir og 360 km af háspennulínum. í skýrslunni segir m.a.: Aukning í dísilframleiðslu er um 11%, en hefur á undanförnum árum verið drjúgum meiri. Þetta stafar að mestu vegna tengingar Norður- lands vestra við kerfi Laxárvirkj- unar. Á árinu 1975 verður sam- dráttur í framleiðslu dísilstöðva vegna tengingar Snæfellsness við Landsvirkjunarkerfið og lúkning- ar Lagarfossvirkjunar, segir í skýrslunni fyrir 1974, og enn verður samdráttur árið 1976 meó tilkomu Mjólkárvirkjunar II og miðlunar fyrir Lagarfossvirkjun. Ljósmynd Mbl. Ólafur Ólafssun Ein af graffkmvndunum þar sem gamalkunn englamynd er f öndvegi. Listaverk til útlána í Norræna húsinu Ljósmynd Mbl. Kristjðn Valsson. Mannsmyndin f slðlslautnum er speglun af myndinni sem slauturinn stendur á. FYRSTA sýning ársins 1976 I sýningarsölum Norræna hússins var opnuð laugardaginn 17. janúar sfðastliðin — og verður hún jafnframt kynning á nýrri starfsemi hússins: LISTLÁNA- DEILD A sýningunni eru 180 grafík- verk eftir listamenn frá öllum Norðurlöndunum, og verða myndirnar síðan til útlána endur- gjaldslaust í Bókasafni Norræna hússins. Myndir þessar voru valdar á norrænni grafiksýningu í Björgvin I maí 1975 og gefnar Norræna húsinu. Norræni menningarsjóðurinn veitti styrk til listaverkakaupanna og til þess að standa straum af kostnaði við að koma á fót listlánadeildinni, þ.e. gerð skrár, ljósmyndun á verkunum og innrömmun. Félag- ið Islenzk grafík hefur aðstoðað Norræna húsið við að setja upp sýninguna og koma á fót listlána- deildinni Myndirnar valdi norræn dóm- nefnd. Þetta eru samtals 180 verk eftir 75 listamenn frá öllum Norðurlöndunum, þ.á m. eru 12 tslendingar: Anna Sigríður Björnsdóttir, Arnar Herbertsson, Barbara Árnason, Björg Þor- steinsdóttir, Einar Hákonarson, Elías B. Halldórsson, Jens Krist- leifsson, Jón Reykdal, Ragnheið- ur Jónsdóttir, Valgerður Bergs- dóttir, Þorbjörg Höskuldsdóttir og Þórður Hall. Myndirnar verða svo lánaðar endurgjaldslaust gegn láns- skírteini frá bókasafni Norræna hússins, og verða þá rammaðar inn i létta skiptiramma. Væntan- lega verður nokkuð af myndunum einnig lánað út frá öðrum íslenzk- um bókasöfnum, er hafa munu samvinnu við Norræna húsið. Á sýningunni í Norræna húsinu er unnt að taka frá myndir fyrir væntanleg heimalán. Sýningin verður opin til 25. janúar 1976 — kl. 13:00—19:00 daglega. Aðgangur er ókeypis. 15 brunar og eitt bana- slys af völdum rafmagns A ÁRINU 1974 er líklegt að 15 brunar hafi orðið af völdum raf- magns, þar af brann eitt hús alveg, Valdastaðir f Kjós. Þetta kemur fram I nýútkominni skýrslu Rafmagnseftirlits rfkis- ins. Nfu slys urðu af völdum raf- magns á árinu, þar af eitt bana- slys að Svarfhóli f Dalasýslu. Auk þess fórust fjórar kindur af völd- um rafmagns undir Reykja- heiðarlfnu og einn hestur f Hveragerði en kýr urðu fyrir raf- losti f Vatnsdal. I skýrslunni kemur fram, að einkarafstöðvum sveitabýla fer stöðugt fækkandi, jafnframt því sem orkuveitusvæði almennings- rafveitna verða viðáttumeiri ár frá ári. Hins vegar fjölgar einka- rafstöðvum við ýmiss konar at- vinnurakstur og þjónustufyrir- tæki. I árslok 1974 var heildar- fjöldi einkarafstöðva 686 þar af 459 stöðvar fyrir sveitabýli, að meðtöldum 52 varastöðvum, 41 stöð fyrir skóla, félagsheimili o.fl. og 186 stöðvar fyrir atvinnutæki. Einn starfsmaður annast eftir- lit með einkarafstöðvum, auk annarra starfa á vegum Raf- magnseftirlitsins. Og á árinu 1976 störfuðu 6 menn að eftirliti með lágspennuvirkjum, þar af einn á Austurlandi. Tannlækningar 1 Vesturbænum BLAÐINU hefur borizt eftir- farandi frá Hagaskóla: Haustið 1974 hófust skólatannlækning- ar I nýrri tannlæknastofu I Hagaskóla. Tveir tannlæknar störfuðu við skólann, annar kl. 8—12 árdegis en hinn kl. 1—5 sfðdegis, alla virka daga. Nem- endur f 1. og 2. bekk voru tekn- ir til meðferðar og auk þess hluti af 6. bekk f Melaskóla. Reyndist þetta verkefni nægi- legt til eðlilegrar nýtingar ð tannlæknastofunni, og var þetta til mikils hagræðis fyrir íbúa Vesturbæjar. t seinni tlð hefur gengið erf- iðlega, að fá tannlækna til starfa við skóla borgarinnar og hefur því einungis verið unnið í stofunni árdegis, það sem af er þessu skólaári. Hins vegar hef- ur nýlega boðist tannlæknir til starfa síðdegis, og yrði stofan þá fullnýtt allan daginn eins og áður var. Nú hefur það hins vegar gerst, að borgarlæknir tilkynn- ir að tannlæknastofu I Haga- skóla skuli lokað og tækin flutt upp I Fellaskóla. Má þetta telj- ast furðuleg ráðstöfun, og ber margt til þess. I fyrsta lagi var stofan sett upp að vilja heil- brigðisyfirvalda borgarinnar. I öðru lagi hefur hún gegnt mikilvægu hlutverki í þágu skólanemenda og væri óeðlilegt afturhvarf að snúa aftur til fyrra skipulags. Síðast en ekki síst má minna á það, að engan veginn er hægt að sjá öllum skólanemendum I Vesturbæn- um fyrir tannlæknaþjónustu, ef aðeins einn tannlæknastóll er í skólum hverfisins. Það er sjálfsagt að fbúar Breiðholts njóti allrar þjón- ustu og heilsugæslu sem völ er á, en það á að gerast án þess að skerða hag annarra borgarbúa. Almennur kennarafundur í Hagaskóla, haldinn 14. janúar síðastliðinn, samþykkti eftir- farandi ályktun um þessi mál: Kennarafundur i Hagaskóla haldinn 14. janúar 1976 lýsir yfir megnri óánægju með þá ákvörðun Borgarlæknis að leggja-niður nýlega tannlækna stofu I Hagaskóla sem var I fullri notkun siðastliðinn vetur og telja verður nauösynlega þjónustu fyrir Vesturbæ. Erfið- leikar hafa verið á að fá tann- lækna til starfa i haust, og af þeim sökum var stofan aðeins notuð að hálfu en nýlega hefur tannlæknir lýst sig fúsan til starfa við skólann og yrði þá stofan fullnýtt. Er vandséð að flutningur á tannlæknatækjum milli skóla leysi erfiðleika borg- arinnar við að fá tannlækna til starfa í skólunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.