Morgunblaðið - 20.01.1976, Síða 13

Morgunblaðið - 20.01.1976, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JANUAR 1976 13 Karami-varð að gef ast upp Beirut 19. janúar — Reuter. RASHID Karami, fyrrum for- sætisráðherra Lfbanons, sem f gær sagði af sér embætti I ör- væntingu yfir borgarastyrjöld- inni í landinu, hefur verið aðal- fulltrúi þess hluta landsmanna, sem er múhameðstrúar, í meir en 20 ára deilum við kristna menn. Karami, sem er 55 ára gamall piparsveinn, hafði áður verið forsætisráðherra sjö sinn- um á tveimur áratugum og var kvaddur til sfðasta sumar til að vera f forsæti fyrir „björgunar- stjórn“ til að reyna að stöðva hinn vaxandi klofning f Lfbanon. Það var erfitt verk og í gær viðurkenndi hann að hann hefði ekki valdið því, þrátt fyrir þá stefnu að reyna að fara meðalveg milli deiluaðila — kristinna hægri manna annars vegar og múhameðstrúar- manna, vinstri sinna, arabískra þjóðernissinna og Palestínu- skæruliða hins vegar. Á sex og hálfs mánaðar löngum valdatíma sínum átti Karami stöðuga fundi með fulltrúum beggja, og fulltrúum annarra Arabaríkja. Hann gekk eitt sinn meira að segja svo Rashfd Karami langt að taka þátt í átökunum á vígvellinum. I nóvember í fyrra, er götu- bardagarnir voru í hámarki, dvaldi hann í átta sólarhringa samfleytt á skrifstofu sinni og skoraði á helztu stjórnmálaleið- toga landsins að koma þangað til samninga unz friður væri komin á. Karami varð yngsti forsætisráðherra í Líbanon fyrr og síðar árið 1955, þá 34 ára að aldri. Skipstjóri Ross Resolution: Á refsingu i vændum SKIPSTJÖRINN á Hull togaranum Ross Resoulution, sem varðskipið Ægir skar togvírana af fyrr i þessum mánuði mun verða yfirheyrður af útgerðarmönnum skipsins þegar hann kemur heim að því er blaðið Hull Daily Mail segir. Skipstjórinn, Jackie Trip, óhlýðnaðist að sögn varnarmála- ráðuneytisins i London tilmælum verndarskipanna á miðunum og Framhald á bls. 34 Aðeins tvö lík fundust Nýju-Delhó 19. janúár — Reuter. FYRSTU björgunarmennirnir, sem komust inn í Casnalla- námurnar i Norðaustur-Indlandi, þar sem óttazt er að séu lík 400 námamanna eftir að vatn flæddi inn í námurnar í sprengingum fyrir þremur vikum, fundu í dag aðeins tvö hrörnuð lík og eina höfuðkúpu. Miklar skemmdir hafa orðið á námunum og m.a. hefur hluti þaksins hrunið og loft er af skornum skammti. Málið var rætt í þinginu í dag, en frekari umfjöllun um orsök slyssinS bíður nú niðurstöðu sérstaks rannsókn- arréttar. Eim grípur Spánarkon- ungur tu herkvaðningar Madrid 19. janúar — AP JUAN Carlos, konungur Spánar, kvaddi 200,000 spánska verka- menn til viðbótar í herinn I dag í þeim tilgangi að stemma stigu við Ritstjóridæmdur fyrir að móðga lögreglustjóra Krít 19. janúar — Reuter DÓMSTÖLL á grísku eynni Krít dæmdi í gær ritstjóra blaðs á staðnum i 11 mánaða fangelsi fyr- ir að gagnrýna lögregluna á Krit. Manas Haris, sem er ritstjóri dag- blaðsins Alithia, sem merkir „sannleikur“, lýsti sig saklausan af ákæru um að hafa móðgað lög- reglustjórann. Hann var ennfrem- ur sviptur rétti til að flytja inn tollfrjálst hráefni til blaðsins í næstu þrjá mánuði. nýjum átökum á vinnumarkaði og í stjórnmálum og koma í veg fyrir allsherjarverkfall járnbrautar- starfsmanna. Andstæðingar stjórnarinnar, allt frá kommún- istum til hægfara lýðræðissinna, brugðust við með þvf að fara f mótmælagöngu þar sem þeir kröfðust almennra kosninga um framtfðarstjórnarfar í landinu. Talsmenn ríkisstjórnar og lög- reglu sögðu að mótmælaaðgerð- irnar væru ólöglegar og vrðu bannaðar. Carlos Arias Navarro, forsætis- ráðherra, sakaði undirróðurshópa um ólguna f landinu og sagði að stjórn sfn væri þess reiðubúin að beita öllu valdi sínu til að brjóta óeirðir á bak aftur. Herkvaðning konungs, sem gerð var að ósk Manuel Fraga, innanríkisráðherra, setur járn- brautarstarfsmenn af báðum kynjum, 18 ára og eidri, undir heraga. Starfsmennirnir eiga þannig yfir höfði sér dóm fyrir herrétti ef þeir mæta ekki til Framhald á bls. 34 Ah'-mynd. VERZLUNARFERÐ — Þannig lauk verzlunarferð konu í Belfast. Hún varð fyrir barðinu á sprengjutilræði sem kostaði fjóra lífið. 20 særðust. Sprengjan sprakk án viðvörunar frá hryðjuverkamönnum. The Observer í forystugrein: Ofbeldið gegn íslendingum hættulegt og skammsýnt London 19. janúar — AP VIKUBLAÐIÐ The Observer seg- ir f forystugrein í gær, að ofbeldi Breta gegn tslendingum sé í senn hættulegt og skammsýnt. „Vegna nokkurra mánaða fiskveiða innan 200 mílna marka Islendinga virð- ist ríkisstjórnin vera reiðubúin að siíta vináttutengsl, komast í andstöðu við eigin stefnu varð- andi auðlindaréttindi á hafsbotni Um Sir John Troup — yfirmann flotaaðgerða Breta við Island SIR John Anthony Troup, vara- flotaforingi, sem er yfirmaður aðgerða brezku herskipanna við togaraverndina á Islands- miðum, er fæddur árið 1921. Hann hefur verið yfirmaður brezka flotans á Skotlandi og Norður-Irlandi, og yfirmaður NATO-flotans á Norður- Atlantshafi frá árinu 1974. Faðir hans var skipstjóri í flotanum og hann fór sjálfur til náms við Royal Naval College í Dartmouth, sem er útungunar- staður fyrir upprennandi flota- foringja. Hann innritaðist í flota hennar hátignar árið 1936 og var í síðari heimsstyrjöld- inni að mestu á kafbátum, eða frá 1941 til 1945. Kom hann á striðstímunum alloft við sögu í fréttum og hlaut fyrir frammi- stöðu sfna þriðju mestu viður- kenningu Bretlands fyrir hetju- dáðir — the distinguished service cross. Eftir strið var hann tvö ár við frekara nám og frá árinu 1955 til 1959 yfir- maður á flugmóðurskipinu HMS Victorius. Skömmu síðar varð hann aðstoðarmaður æðsta yfirmanns flotans en eftir tvö ár hóf hann að nýju störf um borð í kafbátum sem yfirmaður þriðju kafbátadeildarinnar. Arið 1961 varð hann yfirmaður herskipsins HMS Intrepid og 1971 varð hann yfirmaður brezka flotans í Austurlöndum fjær. Árið eftir varð hann yfir- maður kafbátadeildar NATO á Austur-Atlantshafi og gegndi því unz hann tók við núverandi stöðu. Hann varð varaflotafor- ingi árið 1972. Hann er tvíkvæntur, á tvo Sir John Troup. syni og dóttur frá fyrra hjóna- bandi og tvo syni í hinu siðara. Áhugamál hans eru siglingar, skíðaiðkanir, veiðar og málara- list. og stofna mannslffum í hættu að óþörfu.“ Þá segir blaðið að 200 milurnar hafi þegar áunnið sér sess og muni halda velli. Fiskveiðar Breta ættu eftir erfiðleikatímabil er að því kemur að beinast að þeim fiski, sem verður innan 200 mílna marka Bretlands eða reyna að fremsta megni að semja um veiðar á tslandsmiðum. „Þetta kann að verða basl fyrir togaramenn, en hjá því verður ekki komizt,“ sagði blaðið. „Hin þunglamalega afstaða sem Bretar hafa tekið mun ekki auðvelda samkomulag." Hegðun Breta er „hræsnisfull“. „Bretland mun bera meir úr býtum við útfærslu í Brezkir útgerðarmenn: 200 mílur en flest önnur lönd, en við getum ekki vænzt þess að fá allan ávinninginn án þess að taka á okkur eitthvað af kostnað- inum." Milliganga Joseph Luns gæti þó “ komið vitinu fyrir Breta. ERLENT Deila á seinagang ríkisstjórnarinnar Hull 19. janúar. Frá fréttaritara Mbl. Mike Smart: SAMTÖK brezkra útgerðarmanna fóru nýlega fram á fund með Fred Peart, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, vegna hinnar vaxandi óvissu um framtíð brezkra fiskiðnaðarins, og krefj- ast skýrrar yfirlýsingar um stefnu stjórnarinnar í málinu. Segjast forystumenn samtakanna hneykslaðir yfir seinagangi stjórnvalda sem sé í andstöðu við skjótar aðgerðir annarra Efna- hagsbandalagslanda. Samtökin hafa m.a. áhyggjur af stórauknum innflutningi fiskafurða á lágu verði, sem í sumum tilvikum er jafnvel lægra en löndunarverð á fiski i Hull. Á nýiiðnu ári hafi orðið 40% aukning á innflutningi frystra þorskflaka að magni til en verð hafi hins vegar fallið um næstum því 12%. Þá hafa sam- tökin kvartað yfir því að þorsk- flök hafi verið flutt til Bretlands undir því lágmarksverði, sem EBE mælir með, sem sé raunar of lágt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.