Morgunblaðið - 20.01.1976, Síða 26

Morgunblaðið - 20.01.1976, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JANUAR 1976 Guðrún Gísladótt- ir—Minningarorð F. 19. ágúst 1901. D. 12. jan. 1976. Foreldrar Guðrúnar voru Gísli Björnsson frá Elliðarvatni og Jóhanna Þorsteinsdóttir, ættuð úr Landeyjum. Gísli andaðist 1956 en Jóhanna 1961. Þau voru mestu myndarhjón. — Til æviloka var þetta einkabarn þeirra með þeim. Dásamlegra fjölskyldulíf hef ég ekki séð; væri því nokkurs vant, ef ég gengi fram hjá þeim gróður- reit er þessi æskuvinkona mín er vaxin úr. Vegna vináttu milli heímila okkar var mér komið fyrir hjá foreldrum Guðrúnar er ég fór í skóla í Reykjavík. Hjá þeim var ég í tvo vetur, en þá veiktist Guðrún, svo ekki gat orðið fram- hald á veru minni þar meðan ég var í skóla. Þessi samvera okkar varð þó til þess að kynnin rofnuðu ekki í áratugi, og alltaf reyndi ég hana að því traustara vini, sem árum fjölgaði; þar var trölla- tryggð og traustleiki, sem er viða- mikill þáttur í persónuleika ein- staklingsins. Heima undi húnglöð við sitt bæði sem unglingur í skini ljóss og skugga, þegar heilsan Ieyfði henni ekki að stíga léttléika spor með jafnöldrum sínum. Hún varð að hætta námi og fara á Vífilsstaðahæli, vegna berkla í nýrum. Þeir voru ekki auð- læknaðir. Læknir taldi hana hel- veika. Foreldrar hennar voru sterkefnuð og vildu auðvitað allt fyrir hana gera. Þau áttu Reykja- torfuna í Ölfusi, eins og hún var kölluð, margar jarðir. Þar byggðu þau sérstaklega skemmtilegan sumarskála á Reykjum, árið 1922. Hann stóð við hver, sem nefndist Litli-Geysir. Hveravatninu var veitt inn í skálann og var það haft til allskonar nota. Nú tóku þau Guðrúnu þangað. Man ég vel eftir því, að hún drakk hveravatnið eins og það kom fyrir úr hvern- um, þótt óbragð væri að því, og hikaði ekki við það. Þetta var föst regla. Skálinn nefndist Guðrúnar- skáli og var hitaður með vatninu úr hvernum. Nokkuð af austur- hlið hans var samfellt gler og öll suðurhlið var úr gleri. Ég lýsi þessu svona gerla, vegna þess að ég er ekki i vafa um, að góð aðbúð skapar heilbrigði. Hér var það íslenskt alþýðufólk, sem tók til sinna ráða. Hún fékk alveg fulla heilsu eftir veru sína í Ölfusi, svo að ekki varð henni misdægurt af þessum sjúkdómi meir. Ekki má gleyma móðurhöndum Jóhönnu og þeirri mjög svo góðu greind, sem hún var gædd. Hún hafði lært ljósmóðurfræði og þar með hjúkrun, en auk þess hafði hún mikinn áhuga á heilsurækt t.d. hollu fæði og heilsusamlegum venjum. Hún aflaði sér bóka og fróðleiks um þau efni. Margir nutu góðs af kærleika hennar. Það óeigingjarna líferni munum við sem nutum þess og verður hugsað til þess, að hreinn og góð- ur innri maður skapar fegurð lífsins. Þar bregður bjarma yfir samveruna með foreldrum Guðrúnar og hana sjálfa, þann góða félaga og vin. Ekkert er ákjósanlegra þegar unglingurinn fer úr heimahúsum, en að hitta fyrir gott heimili, þar sem holiráð eru gefin, er bregða upp skýrum myndum þess besta á lífsleiðinni. Þau hjón, Jóhanna og Gísli voru mjög samhent og heimilislífið til fyrirmyndar eins og áðurer sagt. Gísli var ráðhollur og hinn skemmlilegasti maður á heimili, honum var óhætt að treysta sem sönnum vini. Við unglingarnir, sem hjá þeim vor- um, gátum átt hann að félaga, vegna glaðlyndis; sama mátti segja um Jóhönnu. Eitt sinn var okkur um og ó að segja frá atviki, sem gerðist. Það fór svo að vió trúðum þessum hollvinum okkar fyrir því, samt gátum við átt á hættu aó fá ekki að fara út að kvöldlagi, sem þó var ekki títt. Eitt sinn meiddist ég svo á fæti, að ég varð að liggja þrjár vikur, rétt fyrir próf. Þá vék Gísli úr rúmi og Jóhanna tók mig í rúm hans, af því að ég gat ekki gengið stiga, sem ég annars hefði þurft að fara. Þetta eru dæmi, sem ég tek af ásettu ráði um heimilið. Svona samhentir voru allir í fjölskyld- unni. Guðrún bað mig eitt sinn að skrifa um móður sína. Það hefði mér verið ljúft að gera, en aðstæð- ur gengu á móti því. Vona ég að mér fyrirgefist því það sem ég segi um heimilið. Bregði upp dæmi um það. Guðrún var góð dóttir og ástríki mikið milli hennar og foreldr- anna. Þar heyrði ég aldrei annað en háttvisi í orðum, og tilsvör voru alltaf svo hlý að einstakt var á að hlýða. Þar var sannarlega ekki allt í uppnámi út af óhollu geðslagi. „Glaður og reifur skyli gumna hverr uns sinn bíður bana.“ Eftir þessu spaklega orði lifði Guðrún gerði sér lífið að góðu og var án hugarvíls. Alltaf sagði hún við mig, að allt væri í lagi og það lika eftir að hún tók dauðamein sitt, sem maður áttaði sig ekki á hversu fljótt fór með hana. Hún var alla tið heimakær, vinnusöm, nostursöm og gest- risin. Gamlir heimilisvinir héldu tryggð við hana, því sá andi lá t Móðir okkar, tengdamótir og amma ÞÓRDÍS ÓLAFSDÓTTIR, Bólstaðarhlíð 32, lézt í Landakostsspftala 17 þ m Ólafur Magnússon, Guðmunda Magnúsdóttir, Guðmundur Jensson, Magnús Marteinsson, Þorbjörg Möller Marteinsson. og barnabörn. t Bróðir okkar MATTHÍAS MATTHÍASSON frð Grlmsey. fyrrv. deildarstjóri I Kron, andaðist í Landspltalanum 1 5 janúar Jarðarförin verður auglýst slðar Anna Matthlasdóttir, Guðmundur Matthlasson, Rannveig Matthlasdóttir. Agnes Matthlasdóttir. t Móðir okkar ÞÓRBJÖRG JÓNSDÓTTIR Ásvallagötu 29, andaðist 1 7 janúar á Ellih Grund Hulda Karlsdóttir, Heinrich. Hörður og Þórir Karlssynir. fyrr og síðar I loftinu, að þeir væru velkomnir, enda mörgum veitt þar skjól. Guðrún vann sitt starf innan veggjá heimilisins og það var vel af hendi leyst, því að hún annaðist foreldra sína á þeirra elli- og sjúkdómsárum. Fyrst föður sinn og síðar móður sfna. Ekki er sama hvernig verkin eru af hendi leyst. Hér álít ég að um afrek hafi verið að ræða. Gott áttu þau skilið, en vel voru líka launin af hendi leyst af dóttur- inni. Ég fylgdist meira með þar þegar Jóhanna lá sfna síðustu legu: hún kallaði oft í Guðrúnu og svörin voru alltaf hin sömu, frá því fyrsta til hins síðasta: „Já, ég kem mamma mín.“ Tónninn var ljúfur og gaf til kynna umburðar- lyndi og jafnaðargeð. Hér var unnið verk af heilum huga. Guðrún gekk ekki til verks með hálfum huga, heldur með því hreinlyndi, skapfestu og þeirri sönnu dyggð, sem hún átti. Mörg- um fannst hér þurfa á andlegu og líkamlegu þreki að halda, mann- kostir voru hér ótvíræðir og ást til foreldra. Ekki höfðu foreldrar Guðrúnar verið lengi með hana í sumar- bústaðnum, þegar þau tóku til fósturs sjö ára telpu. Hún var systurdóttir Gísla: Bergþóra Halldórsdóttir og kom af Vífils- staðahæli. Hún fékk fullan bata. Fastlega minnir mig, að þau hjón hafi haft samráð við dóttur sína um þetta, og hún alla tíð slegið sínum verndarvæng yfir þessa frænku sína. Betra hefði ekki get- að orðið, þótt hún hefði verið dótt- ir Guðrúnar. Ég man vel eftir þessum litla, Ijóshærða og skemmtilega telpuhnokka. Hún var mjög geðþekk og hefur nú goldið sín fósturlaun með sömu ástúðinni og henni var sýnd í upp- vexti sínum, enda sami fjöl- skyldumeðlimur og Guðrún. Hún er gift Erlendi Steinari Ólafssyni byggingafræðingi og búa þau í Danmörku. Þau eiga fjögur börn. Tvær dætur þeirra búa hér. Mátti segja, að Guðrún væri sem amma allra þessara barna. Allt þetta ágæta fólk hefur reynst henni mæta vel, svo að einstæðingur var hún ekki, þótt hún byggi ein, en því undi hún, vegna rólegs skaps og yfirleitt góðrar heilsu, því ekki telst langur tími, sem hún þurfti á annarra hjálp að halda. Hún var þakklát dætrum Bergþóru fyrir ljúflega af hendi leysta hjálp, sem þeim fannst sjálfsögð, og öðrum sem lögðu henni lið. Vorkunn er Bergþóru að geta ekki, vegna vanheilsu, verið við útför frænku sinnar, svo elskar sem þær voru hvor að annarri. Ræktarsemi manns hennar lýs- ir sér í komu hans nú. Ég sendi Bergþóru og/manni hennar, ásamt börnum þeirra, innilegar samúðarkveðjur. Döprum augum lít ég dimmu í gluggum á Laugavegi 80 og þögn- ina þar, sem áður ríkti glaðlyndi. En i vinar huga er þakklæti og björt minning um Guðrúnu Gísla- dóttur. Aslaug Gunnlaugsdóttir. Þegar ég sit og velti fyrir mér kveðjuorðum til Guðrúnar, þá kemur yfir mig sú tilfinning að ég sé að færast of mikið i fang. Hvernig á ég að geta skrifað kveðjuorð, þar sem ég hef ein- ungis þekkt Guðrúnu í tæp sex ár og þekki að auki sáralítið til ættar hennar og uppruna. Ég vil samt nú á kveðjustund þakka fyrir sér- lega góða viðkynningu og lýsa þvi hver áhrif þessi merkilega kona hafði á mig. Þegar fólk kemst á miðjan aldur, þá hlýtur það oft að velta fyrir sér ókomnum elliárum og hljóta þær vangaveltur oft að vera kvíðablandnar. Hvernig skyldi heilsan verða, andlega og líkamlega? Ætli maður verði fóta- fær og á eigin heimili eða ef til vill á elliheimili eða bundin við sjúkrasæng? Ef ég ætti óskastein og mætti segja hvernig ég óskaði mér að lifa síðustu árin, þá myndi ég án I suðri Stóllinn vió sólu horfir. Sjálfur Kaldbakur rfs við austur. Rárurnar faðma fjarðarströnd. I félagsskap ykkar, fornu vinir, fagnar mitt hjarta af innsta grunni. Þar vildi ég una Iffs og liðinn. Hinn 3. janúar síðast liðinn lést á Borgarspitalanum í Reykjavik tengdafaðir minn, Kristján E. Jónsson frá Nýjabæ á Dalvik. Hann kom hingað suður fyrir jól- in ásamt eiginkonu sinni og ætluðu þau að dveljast hjá börn- um sínum og tengdabörnum hér syðra um tíma. En Kristján hafði ekki gengið heill til skógar um langt árabil og eftir hetjulega baráttu, fyrst heima og sfðan á sjúkrahúsi, varð hann að lúta í lægra haldi fyrir þeim sem allir verða að beygja sig fyrir að lok- þess að hika segja, eins og hún Guðrún. Guðrún barðist i æsku við mikil veikindi. Langan tíma var henni vart hugað líf. Hún sigraðist á veikindum sínum, en þau áttu tví- mælalaust þátt i því að móta sterka og ákveðna skapgerð. Hún var sjálfstæð i hugsun, fylgdist vel með og lét sér fátt vera óvið- komandi. Hefði hún tekið ákvörð- un þá varð henni ekki svo létt haggað. Enda voru allar niður- stöður byggðar á góðu viti og langri reynslu. Guðrún var styrk grein á sterkum stofni aldamótar- kynslóðarinnar. Þeirrar kynslóð- ar sem mótað hefur ísland dags- ins í dag og unnið hörðum hönd- um myrkranna á milli til að búa okkur börnum nútiðar allt í hag- inn. Guðrún Gísadóttir var barn borgarinnar. Hún bjó í 48 ár við Laugaveginn og sat hún drjúgum stundum við gluggann og horfði á mannfjöldann og bílana líða hjá. Borgarniðurinn var sem fagur hljómur í hennar eyrum. Við Laugaveginn vildi hún lifa og deyja. Guðrún varð þeirrar gæfu að- njótandi að eignast óvenju trygga vini. Hún ræddi aldrei mikið um sjálfa sig, en tíðrætt varð henni um vini sína og hún bar hag þeirra alltaf mjög fyrir brjósti. Þegar ég nefndi óskasteininn og þá ósk mina að ævikvöld mitt yrði sem Guðrúnar, þá átti ég við það að hún fékk að ríkja á heimili sínu fram á siðasta dag og hún fylgdist alltaf jafnvel með. Nú er ekki lengur hægt að skjótast inn á Laugaveginum og hlýja sér við kaffi og hressilegar umræður, en eftir stendur minn- ingin um merka konu sem hafði mætt ýmsu á lffsleiðinni og tekið því með reisn og dugnaði. Sveinn H. Skúlason um. Hann var jarðsettur frá Dal- vfkurkirkju laugardaginn 10. janúar síðast liðinn. Þar hafði hann kosið að vera lagður til hinstu hvíldar. Kristján var fæddur að Nýjabæ á Dalvík hinn 24. september árið 1896 og hefði þvf orðið áttræður á þessu ári. Foreldrar hans voru hin mikilhæfu hjón, Jón Stefáns- son og Rósa Þorsteinsdóttir, sem bjuggu að Nýjabæ. Kristján var yngstur og lifði lengst af sjö syst- kinum. í þann tíma áttu ungir menn ekki margra kosta völ, síst af öllu ef systkinahópurinn var stór. Þótt hugurinn stæði til mennta og hæfileikar væru fyrir hendi var sú braut torsótt og Kristján varð að sætta sig við að bíða og sjá hvort ekki gæfist betra tækifæri síðar. En sjórinn var nærri og hann hafði lika sitt aðdráttarafl og sína töfra. Kristján mun tæp- lega hafa verið fermdur þegar hann fyrst hóf sjóróðra frá Dalvík og á fimmtánda ári réðst hann á t Eiginkona min, ÞÓRA GUÐRÚN KRISTJÁNSDÓTTIR, Austurgötu 45, HafnariirSi, lést á heimili sínu, laugardaginn 1 7. janúar Helgi Ólafsson. t Bróðir okkar BJÖRN FR. JÓNSSON, hagfræSingur. andaðist í Landspltalanum 1 7. janúar GuSrún Jónsdóttir, Halldór H. Jónsson, Selma Jónsdóttir. + Föðursystir okkar, GUÐLAUG H. BERGSDÓTTIR, Birkimel 10, Reykjavlk, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 21 janúar kl. 3 e.h. Fyrir hönd vandamanna. KonráS Adolphsson, Magnús Jónsson. Kristján E. Jóns- son — Minning útfaraskreytingar blómouol Groðurhusió v/Sigtun simi 36770

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.