Morgunblaðið - 20.01.1976, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1976
VELVAKAINIDI
Velvakandi svarar í sima 10-100
kl. 1 4— 1 5, frá mánudegi til föstu-
^ags
0 Gamla fólkið
Til Velvakanda hringdi kona,
sem kvaðst alls ekki vera ánægð
með athugasemd Velvakanda við
bréf „Grétu litlu“ i dálkunum s.l.
föstudag. Sér hefði að minnsta
kosti ekki orðið hún til hugar- ;
hægðar.
„Það er staðreynd", sagði kon- I
an, „að flestir að minnsta kosti
vilja gera öldnum ættingjum lífið
eins létt og þeim er mögulegt, en
aðstaðan til þess er mjög misjöfn
— og gamla fólkið er líka mjög
misjafnt. Ég tala nú ekki um, ef
þáð á við andlega hrörnun að
stríða."
„En nú er ég með hugmynd,
sem ég vildi gjarnan koma á fram-
færi,“ sagði konan. „Til munu
einkaheimili, þar sem börn eru
tekin til gæzlu á daginn eða hluta
úr degi, að sjálfsögðu gegn borg-
un. Nú var ég að velta því fyrir
mér, hvort ekki væri reynandi að
kanna, hvort ekki væru til
heimili, sem vildu taka að sér
„gæzlu" eldra fólks ákveðinn
tima á dag. Það gæti orðið gamla
fólkinu mikil tilbreyting, það
kæmist i nýtt umhverfi, eignaðist
nýja félaga — og þá væri bezt að
saman veldist fólk með svipuð
áhugamál."
0 Greiðum skuldina
„Enginn getur neitað þvi, að
þjóðfélagið stendur í skuld við
gamla fólkið — og á fundum og í
umræðum eru allir sammála um
að fyrir það verði að gera mikið.
En svo þegar til framkvæmdanna
kemur verður minna úr þeim.
höfðu heðið bana í loftárás á
Balham árið 1942 og þá hafði
Margaret farið til frænku sinnar,
Ethel Marv Ives, sem var gift
flugmanni, Geoffrey Ives, og þau
bjuggu á St. Johns Road 42 I
Balham. Þá hafði einnig verið á
heimilinu dóttir Iveshjónanna.
Anne Mar.v, sem fædd var 1.
febrúar 1932.
Ives hafði sfðan verið fluttur til
flugstöðvarinnar f Flagford f
Sussex 1949 og fór eiginkona
hans, dóttir og stjúpdóttir með
honum og húsið f St. Johns var
leigt. Geoffrev Ives hafði dáið af
blóðtappa f hjarta árið 1951 og
fluttust þá mæðgurnar og
Margaret aftur til Balham og
bjuggu þar. Frá því í september
1951 og þar til f júlf 1953 var
Margaret á Albert Lake mennta-
skólanum f Stoke Newington f
Loffdon.
Þann 15. ágúst 1952 giftist
Anne Ives og skömmu seinna fór
hún með eiginmanni sínum, sem
hét Wilbur Katz, til Bandaríkj-
anna.
Margaret Godfrey var skipaður
kerjnari við forskóladeild f Bal-
ham f september 1953.
Persónulega þekki ég þó — t.d.
hjá Reykjavíkurborg — að fólk,
sem um þessi mál fjallar, gerir
allt, sem það getur til að leysa
vandræði þeirra, sem verst eru
settir. Þá hafa og nokkrir ein-
staklingar og félagasamtök sýnt
lofsvert framtak. En þegar á
heildina er litið gerum við
skammarlega lftið.“
„Kannski fylgist ég ekki með
gangi tímans," sagði konan, „en
oft hefur hvarflað að mér, þegar
ég hefi lesið kröfur hópa æsku-
fólks um meiri lán og hærri
styrki, að þarna væru peningarn-
ir, sem við ættum að nota til þess
að greiða gömlu skuldina við þá,
sem lögðu grundvöllinn að þjóð-
félagi okkar."
„Ertu á móti menntun æsk-
unnar? hrópar ef til vill einhver.
Nei, það er ekki — ekki menntun,
en fara allir þessir peningar, sem
heimtað er, til menntunar. Sumar
ályktanirnar bera þess ekki vott.
Ég vil menntun en enga gervi-
menntun."
„Nú er víst nóg komið," sagði
konan. „Eg vona að þú hafir náð
þessu og birtir það.“
• Rjúpan—
litla systir
okkar
Ingvar Agnarsson skrifar:
Fálkinn, sá grimmi ránfugl,
veiðir rjúpur sér til matar. Hon-
um er það ill nauðsyn. Af ein-
hverju verður hann að nærast,
eins og aðrir, til að halda lifi.
En þjóðtrúin segir, að þegar
hann hefur rifið hana á hol og
kemur að hjartanu, þá skynjar
hann, að þetta er systir hans og
tekur þá að væla hátt og ámátt-
lega.
Hvernig er þessu varið með
okkur mennina? Höfum við á til-
finningunni, að „blessuð rjúpan
hvíta" er einnig okkar systir með
nokkrum hætti? Á hún ekki rétt á
að lifa frjáls og óáreitt í heim-
kynnum sfnum á heiðum og fjöll-
um? Við menn teljum okkur hafa
rétt til að drepa öll dýr lands og
sjávar, sem við þurfum að nota
okkur til matar, eða hafa af ein-
hverjar nytjar. Þessi skoðun er
oft á rökum reist, en oft einnig
notuð sem skálkaskjól. Þvi við
drepum oft og eyðum miklu
meira af lífi en við þurfum á að
halda okkur til Iifsframfæris.
Svo er með þann fagra fugl,
rjúpuna. Segja má, að algjör
óþarfi sé að drepa hana, því við
höfum nóg af öðrum mat. Hvers
vegna erum við þá að drepa hana?
Ég held, að þar komi drápsgirni
mest til greina. Við drepum hana
sjálfum okkur til ánægju og hirð-
um eigi, þótt mikill fjöldi rjúpna,
sem við ekki náum, særist illa, og
kveljist til dauða á löngum tíma.
Mig langar til að segja þetta:
Hættum öllu rjúpnadrápi. Látum
okkur skiljast, að rjúpan hvíta, er
litla systir okkar, og að við eigum
að halda hlifiskildi yfir henni, en
ekki ofsækja hana. Leyfum henni
að lifa í friði f faðmi fjalla og
heiða. Förum okkur til ánægju og
heilsubótar á hennar slóðir, njót-
um þess að sjá hana hvíta og
lifandi, en ekki blóðuga og
sundurskotna. Látum okkur skilj-
ast að allt, sem lifir í náttúrunnar
ríki er tengt lifi okkar mannanna,
og að við getum haft miklu
sannari gleði af að vernda þetta
lff en að spilla því.
HÖGNI HREKKVISI
,Hann er ofsalegur þessi litli í kattargervinu!4
Til sölu
Húseignin Bárugata 11. Húsið er tvær hæðir,
kjallari og ris, ásamt stórum bílskúr. Eignarlóð.
Nánari upplýsingar í síma 15653 hjá húsverði
og Tómasi Guðjónssyni í síma 23636.
SNOW-TRAC
SNJÓBÍLAR
Útvegum með litlum fyrirvara hina vinsælu sænsku
snjóbila Snow-Trac og Trac-Master. Leitið nánari
upplýsinga.
Ghbust
Lðgmúla 5. Sími 81555
ENNFREMUR HENTUGIR
í GANGA, STOFUR,
SVEFNHERBERGI
OG UTAN DYRA
SENDUM í PÓSTKRÖFU
LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL
LJÓS & ORKA
SucHirlandsbraut 12
sími 84488
VERDLÆKKUN
VEGNA TOLLALÆKKUNAR
NÝ SENDING
AF LOFT- OG
VEGGLJÓSUM
í BÖÐ OG ELDHÚS
4