Morgunblaðið - 20.01.1976, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JANUAR 1976
35
F’ eigátan Brighton á Islandsmiðum
— Brezku herskipin burt
Framhald af bls. 1
bandaiagsins f heild. Hann kvaðst
vera mjög vonsvikinn með
ákvörðun íslenzku ríkissljórnar-
innar um stjórnmálaslit og hún
hefði gert starf hans „mun erfið-
ara“ og „flóknara". Hann sagði,
að yfirlýsing fslenzku stjórnar-
innar um slit á stjórnmálasam-
bandi við Breta hefði komið sér f
opna skjöldu „og sett Breta upp
við vegg“, eins og hann orðaði
það. „Ég varð fyrir miklum von-
brigðum, bæði sjálfs mín vegna
og Atlantshafsbandalagsins,"
sagði dr. Luns.
SKYNDIFUNDUR I
FASTARAÐINATO
Viðræður dr. Luns og Callag-
hans fóru fram yfir kvöldverði á
heimili brezka sendiherrans í
Brussel, Sir Donald Maitland, og
segir í Reuter-fréttinni að Luns
hafi hringt í Geir Hallgrímsson á
meðan á fundinum stóð til að lýsa
óánægju með yfirlýsingu íslenzku
ríkisstjórnarinnar i gær. Callag-
han sagði fréttamönnum eftir á,
að brezka ríkisstjórnin hefði
óskað eftir skyndifundi í fasta-
ráði NATO til að fjalla um fisk-
veiðideiluna. Yrði fundurinn
haldinn kl. 7.30 að isl. tima í dag,
þriðjudag.
Brezkir embættismenn sögðu
að ákvörðun um að bjóða Geir
Hallgrímssyni til London hefði
verið tekin áður en íslenzka ríkis-
stjórnin hefði sett Bretum úrslita-
kosti um slit stjórnmálasam-
bands.
StMTAL LUNS VIÐ GEIR
I AP-skeyti í gærkvöldi er haft
eftir Callaghan að það hefði verið
eftir sfmtal dr. Luns við Geir Hall-
grímsson að hann hefði tjáð þeim
fyrrnefnda ákvörðun sína um að
kalla herskipin út fyrir 200 mílna
mörkin og bjóða Geir til London.
Hann bætir við að honum hefði
skilizt af því sem Luns hefði sagt
honum, að ekki yrði um að ræða
frekari áreitni varðskipa við tog-
—Leiðtogafundur
Framhald af bls. 1
hinum norðlægari löndum
Evrópu skildu ekki til fulls við-
horfin f S-Evrópu, þar sem
kommúnistar hefðu mikil ítök.
Á fréttamannafundinum, sagði
Kalevi Sorsa, forsætisráðherra
Finnlands, þar sem kommúnistar
eiga aðild að rfkisstjórn, að
finnskir jafnaðarmenn væru fúsir
til samvinnu við kommúnista
þegar aðstæður leyfðu, en þó ekki
á hugmyndafræðilegum grund-
velli.
Anker Jörgensen, forsætisráð-
herra Dana,, sem er mjög and-
vígur nánum tengslum jafnaðar-
manna og þeirra kommúnista,
sem eru í beinu sambandi við
Moskvu, lýsti því yfir að fundin-
um loknum, að mikill ágreiningur
hefði ríkt á fundinum um að hve
miklu leyti jafnaðarmenn ættu að
taka upp samvinnu við kommún-
ista. Búizt er við þvf, að Jörgen-
sen muni fjalla um leiðtogafund-
inn við Henry. Kissinger, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, er
hann kemur við í Kaupmanna-
höfn á leið sinni til Moskvu á
morgun.
Morgunblaðið ræddi við Gylfa
Þ. Gíslason að fundinum loknum í
gær. Gylfi sagði, að miklar um-
ræður hefðu orðið um stjórnmála-
lega þróun á Spáni og í Portúgal.
Felipe Gonzales, leiðtogi
spænskra sósíalista, hefði gert að
umræðuefni sveitarstjórnarkosn-
ingar á Spáni á næstunni. Hefði
hann talið, að framkvæmd þeirra
kosninga mundi óhjákvæmilega
gefa vísbendingu um þróun mála
á Spáni á næstunni. Flokkur
Gonzalesar er ólöglegur á Spáni,
en þrátt fyrir það fékk Gonzales
leyfi yfirvalda til að fara til
fundarins í Danmörku.
ara. Ef um slíkt yrði að ræða þá
yrði flotinn sendur á ný til
verndarstarfa innan 200 mílna,
sagði Callaghan.
VIDBRÖGÐ I HULL
Talsmaður samtaka brezkra
togaraeigenda sagði í Hull í nótt,
að þess væri vænzt, að brezka
ríkisstjórnin hefði fengið ein-
hverja visbendingu um, að íslend-
ingar myndu hætta áreitni við
brezka togara áður en ákvörðun
var tekin um að kalla herskipin af
tslandsmiðum.
„Við höfum ekki þá trú, að
brezka ríkisstjórnin myndi tefla
lifi brezkra sjómanna i tvisýnu,“
sagði talsmaðurinn. „Fyrstu við-
brögð okkar eru áhyggjur af því,
að togararnir verði skildir eftir án
verndar. Við verðum að gera ráð
fyrir því, að rikisstjórnin hafi
fengið einhverja visbendingu um
að togararnir verði látnir af-
skiptalausir. Guð veit hvað gerist,
ef togararnir verða skildir eftir á
valdi varðskipanna,“ sagði tals-
maður samtaka brezkra togaraeig-
enda.
TILKYNNING ISL.
RlKISSTJÓRNARINNAR
Hér fer á eftir tilkynning ís-
lenzku ríkisstjórnarinnar sem
gefin var út eftir fund hennar
síðdegis í gær:
„Samkvæmt samþykkt, sem
gerð var á fundi ríkisstjórnar ís-
lands í dag litur rfkisstjórnin svo
á, að ef brezk herskip og Nimrod
þoturnar eru ennþá innan 200
mflna fiskveiðilögsögu Islands kl.
12 á miðnætti samkvæmt Green-
wich meðaltíma hinn 24. janúar
1976, sé stjórnmálasambandi milli
Islands og Bretlands slitið og að
loka verði sendiráði Breta í
Reykjavík og diplómatiskir starfs-
menn þess kvaddir heim.“
— Krafla
Framhald af bls. 36
virknin tók að vaxa mjög mikið
þann 15. s.l. Ég veit ekki hvernig
hraunkvikunni verður ágengt, en
ég tel mig hins vegar vita almennt
séð, að hún sé að ólmast við að
yfirvinna þann þrýsting sem er
ofanfrá í jarðskorpunni, en þess
ber að gæta að við höfum oft áður
orðið varir við slíkt án þess að gos
hafi komið upp á yfirborðið. Við
getum ekkert sagt um hvort það
gerist nú í þessari atrennu."
„Er þessi hrina að einhverju
leyti frábrugðin þeim hrinum
sem þú hefur í huga?“
„Stóra atriðið er að hér er um
að ræða svæði þar sem mikið er af
fólki og þvi er það sem við bein-
um athygli okkar svo eindregið að
þróun hrinunnar."
„Telur þú að sú viðvörun um
hættuástand sem þú gafst út fyrir
helgi sé enn í gildi?“
„Hún er ennþá f fullu gildi að
því leyti sem eldgos geta talizt
hættuleg. Hins vegar veit ég að
það er álit margra að hugsanlegt
hraungos á sjálfu Leirhnjúks-
svæðinu þurfi ekki að vera hættu-
legt fólki sem statt er við Kröflu.“
„Hverjir eru helztu erfiðleikar í
svona stöðu þegar beðið er eftir
gosi?“
„Það er augljóst mál, að þær
miklu hamfarir, sem verið hafa á
svæðinu frá Kröflu og norður í
Axarfjörð, gefa tilefni til að
miklu meiri gaumur sé gefinn að
hættu er kann að fylgja í kjölfar
þessarar hrinu á ýmsum stöðum á
svæðinu. Það þarf að fara 250 ár
aftur í tímann til þess að finna
sambærilegt ástand í jarðskorp-
unni hér á þessu svæði. Þetta
gefur tilefni til nýrra kannana,
sem m.a. byggjast á reynslu, sem
þegar hefur fengizt í þessari
hrinu, með könnunum sem hafa
farið af stað og þurfa að fara af
stað.
Til þess að vísindamenn geti
gefið skýrari svör við þvf sem er
að gerast og gæti gerzt á Kröflu-
svæðinu þurfa þeir meiri tíma og
það er m.a. vegna þess sem ég tel
nauðsynlegt að doka við fram
framkvæmdir við Kröflu um
sinn.“
Þá hittum við að máli Guðmund
Sigvaldason sem sagði:
„Ég tel stórauknar lfkur fyrir
því að gosið í Leirhnjúk haldi
áfram þar sem jarðskjálftavirkn-
in er svona þrálát. Hitt er svo
annað að það er alls ekki víst að
gosið komi fyrr en eftir mánuð,
eða jafnvel ár ef við eigum að
dæma eftir reynslunni 1729.
Vegna þeirrar niðurstöðu er eðli-
legt að jarðvísindarannsóknir
verði stórefldar hér á svæðinu og
allt gert til að kanna breytingar á
gossprungunni og umhverfi
hennar. Þetta er sama gossprung-
an og 1725—1729 og ólíklegt að
gosupptök verði nálægt byggð, en
sprungan liggur hins vegar frá
Leirhnjúk gegnum Bjarnarflag
að Hverfjalli.“
„Þú talar um stórauknar rann-
sóknir?“
„Við höfum í dag sett i gang að
koma upp hallamæli til að mæla
jarðlagsbreytingu við Leirhnjúk
og sömuleiðis að staðsetja hér
tæki til efnarannsókna á gasút-
streymi og verða menn væntan-
lega hér næsta mánuð til daglegra
mælinga.“
„Er hér ekki um að ræða
einstakt tækifæri fyrir visinda-
menn til að fylgjast með gosað-
draganda?"
„Þetta er í fyrsta skipti sem
menn bíða eftir eldgosi og ef við
getum fylgzt með atburðarásinni
núna fáum við geysilega mikil-
væg gögn i hendurnar til að segja
fyrir um eldgos á svipuðum svæð-
um.“
„Hvert er álit þitt á áframhald-
andi starfsemi við Kröflu?"
„Það er að sjálfsögðu matsatriði
þeirra sem ráða framkvæmdum
hversu mikla áhættu þeir vilja
taka. Ef við lítum á jarðskjálfta
eins og þann sem varð í morgun,
tæp 5 stig, hlýtur það að vera
þeirra mat hvort stöðvarhúss-
byggingin er i þvi ásigkomulagi
að áhættulaust sé að starfa þar.
Varðandi eldgos hef ég ekki veru-
legar áhyggjur af öryggi starfs-
manna, svo fremi, að full árvekni
sé viðhöfð og ætíð tryggt að koma
fólki burt með nánast engum
fyrirvara."
„Er hér um að ræða hugsanlegt
upphaf nýrra Mývatnselda?“
„Það er ekki hægt að útiloka
þann möguleika, en telja má að
það goshlé sem nú er liðið sé
eðlilegt, en meðalhlé milli gosa
s.l. 10 þús. ár er talið þótt
ónákvæmt sé, vera 250—330 ár.“
Þá hittum við að máli Jón
IHugason oddvita Skútustaða-
hrepps og spurðum hann hvernig
staðan væri hjá þeim Mývetn-
ingum og hvernig hugur væri í
fólki.
„Við reynum að búa okkur sem
bezt undir það að mæta eldgosi og
höfum verið að vinna að því að
útfæra einstök atriði i okkar
áætlunum nánar. Ég held að fólk
beri sig yfirleitt vel og taki þessu
með þolinmæði, en auðvitað er
nokkuð misjafnt hvernig menn
þola þessa jarðskjálfta og ég veit
að sumir eru viðkvæmir fyrir
þessu og hætt við að ef þetta
ástand verður langvarandi geti
það haft slæm áhrif á einstakl-
inga.“
„Þú talar um undirbúning,
hefur að þínu mati verið unnið
nóg að því að undirbúa ykkur sem
bezt undir að mæta hugsanlegu
eldgosi?“
„Nei, það hefði þurft að sinna
því betur. Við gerðum tillögu um
það i almannavarnanefndinni að
þessar rannsóknir yrðu samhæfð-
ar, að settur ylði upp samstarfs-
hópur sérfræðinga, en ég á von á
því nú aó þessari hugmynd verði
hrint í framkvæmd og veit að
verið er að vinna að því.“
„Hér eru nú staddir verkfræð-
ingar til að huga að gerð varnar-
garða ef til goss kæmi?“
„Já, það er rétt. Strax og gosið
varð í Leirhnjúk var byrjað að
huga tð því og verkfræðingar frá
Verkfræðiskrifstofu Sigurðar
Thoroddsen voru fengnir til að
gera frumdrög að gerð garða, en
nú eru komnir hingað verkfræð-
ingar frá Fjarhitun sem annast
verkfræðistörf fyrir hreppinn til
að vinna nánar að þessari áætlun
á ykkar vegum og Almannavarna
ríkisins. Við höfum í dag verið að
athuga með hugsanlegt hraun-
rennsli hér í nágrenninu, en það
er svo stutt á veg komið að vart er
hægt að segja meira um það á
þessu stigi."
„Viðvaranir visindamanna um
að fólk verði ekki haft við stöu
við Kröflu i bráð virðast nokkuð
umdeildar, veldur þetta ykkur i
almannavarnaráði áhyggjum?"
„Þetta er auðvitað nokkuð
vandmeðfarið mál og það er öllum
ljóst að þarna er tekin nokkur
áhætta, en það er ekki i verka-
hring almannavarnanefndarinnar
að ákveða hvort þarna á að vinna
eða ekki. Hins vegar verður
nefndin að meta það á hverjum
tíma, hvort ástæða er til að fólk
yfirgefi einhver ákveðin svæði
eins og gert var á föstudagskvöld-
ið, að vísu i samráði við ýmsa
aðila, hvort um sé að ræða hættu-
svæði."
„Nú er hér í kvöld spáð norðan-
stormi og hríð, skapar það meira
hættuástand?"
„Það er auðvitað óhagstæðari
aðstæður þegar svona viðrar, en
það ber að hafa í huga að þarna er
mjög góður tækjakostur til að
opna veg fyrir bíla.“
„Ert þú sjálfur ánægður með
þær ráðstafanir sem gerðar hafa
verið við Kröflu?"
„Já, eftir atvikum er ég það, en
þó eru viss atriði, sem við viljum
láta huga betur að eins og t.d. að
dreifa fjölrituðum leiðbeiningum
til fólks um það hvernig eigi að
bregðast við og hugsanlega nám-
skeið í skyndihjálp. Annars er
mér sjálfum rórra nú eftir að hafa
gengið um svæðið með Guðmundi
Sigvaldasyni, því ef maður litur
til baka til Mývatnseldanna sér
maður að gosin voru öll í sömu
sprungunni og þetta gos er ein-
mitt á þeirri sprungu. Guðmund-
ur telur einnig hverfandi líkur á
að það gjósi utan þessarar
sprungu og eins er það að tiltölu-
lega stuttur tími er frá síðustu
Mývatnsgosum eða um 230 ár, en
meðaltalið siðustu 10 þús. ár milii
gosa er 250—330 ár, þannig að við
getum kannski frekar búizt við
minna gosi. Auk þess tel ég eftir
þessa ferð að litlar líkur séu á
hraunrennsli yfir byggðina, t.d.
úr Bjarnarflagi."
— Gylfi ræddi
Framhald af bls. 36
og Callaghan ekki heyrt áður,
og ekki sízt þess vegna vonaðist
hann til að viðræðurnar hefóu
verið gagnlegar. Gylfi kvaðst
hafa lagt sérstaka áherzlu á það
hve alvarlegt ástand fiskstofn-
anna við Island væri orðið og
þær alvarlegu afleiðingar sem
það hefði fyrir Islendinga ef
sóknin i þá yrði ekki minnkuð.
„Ég vona að málstaður okkar
hafi verið þessum tveimur for-
ystumönnum Breta ljósari eftir
fundinn en áður,“ sagði Gylfi.
Hann sagði að Callaghan hefði
verið mjög vel inni i málinu en
Wilson fylgdist með framgangi
þess og hefðu báðir t.d. vitað
um blaðamannafund Geirs
Hallgrimssonar forsætisráð-
herra í siðustu viku og hvað þar
kom fram.
Gylfi Þ. Gíslason sagði, að
hann hefði átt lauslegan fund
með Walter Schmidt, kanslara
V-Þýzkalands. Kvaðst Gylfi
hafa komið á framfæri við hann
og Wischnewski aðstoðarutan-
ríkisráðherra sjónarmiðum Is-
lendinga í landhelgisdeilunni
við Breta. Sagói Gylfi að
Schmidt fylgdist með þessu
máli og hefði þungar áhyggjur
af þvi að það gæti haft spillandi
áhrif á varnarsamstarf vestr-
ænna þjóða.
Loks sagði Gylfi frá þvi, að
hann hefði á laugardaginn rætt
við flokksleiðtoga jafnaðar-
mannaflokkanna á Norðurlönd-
um og kom landhelgismálið þar
einnig til umræðu. Gylfi sagðist
hafa sett þá rækilega inn i
málið og hefði komið fram, að
þeir hefðu allir fyllsta skilning
á okkar máistað.
— 3.50 kr.
Framhald af bls. 2
leiðenda, sem haldinn verður í
Reykjavík kl. 10.30 í dag. Hins
vegar gáfu þeir i skyn, að þetta
verð gæti engan veginn staðizt ef
ekki ætti fara illa fyrir verksmiðj-
unum, afurðaverð væri ekki í
neinu samræmi við hráefnis-
verðið.
Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands ísl. útvegsmanna,
sagði að lítið væri hægt að segja
um þessa verðákvörðun, þar sem
þetta verð hefði verið samþykkt
af fulltrúa útvegsmanna. Verðið
hefði komið á síðustu stundu, en
L.í.tJ. hefði óskað eftir því fyrir
nokkru að það yrði ákveðið fyrir
18. janúar ella stöðvaðist flotinn.
Það að verðið hefði ekki komið
fyrr hefði vissulega dregið úr
mönnum að halda af stað til vetða,
en núna héldu skipin til veiða í
stórum stíl.
Jón Sigurðsson, formaður Sjó-
mannasambands Islands, sagði,
að hann gæti ekki sagt annað en
það að málið hefði verið leyst, en
þvi væri ekki að neita, að tals-
verður munur hefði verið á því
verði sem samþykkt var og þvi
sem hráefniskaupendur buðu.
I yfirnefndinni, sem ákvað
loðnuverðið, áttu sæti þeir Ólafur
Davíðsson, sem var oddamaður
nefndarinnar, Páll Guðmundsson
fyrir útgerðarmenn, Tryggvi
Helgason fyrir sjómenn og Guð-
mundur Kr. Jónsson og Jón
Reynir Magnússon af hálfu loðnu-
kaupenda.
— Ægir
Framhald af bls. 2
skipið fyrr en það var komið inn i
togarahópinn. Eftir áreksturinn
kom freigátan Falmouth á vett-
vang og fylgdi hún varóskipinu
upp að 12 mílna mörkunum. Ægir
hélt til Reyðarfjarðar þar sem
franskir sjónvarpsmenn voru
settir i land, en þeir hafa verið i
nokkra daga um boró i varðskip-
inu. Þá er Vilhelm G. Kristinsson
fréttamaður um borð í Ægi. Peter
Fenty skipstjóri á Lord Jellicoe
sagði i samtalí við fréttamann
Reuters i gær, að þegar Ægir
hefði birzt hefðu þeir verið að
hífa inn veiðarfærin. Varðskipið
hefði reynt að komast að togaran-
um til að klippa en mistekizt og
þá reynt aftur með þeim af-
leiðingum, að það hefði siglt á
togarann, þar sem veiðarfærin
hefðu svo til verið komin inn á
dekk, en þessi klippingartilraun
hefði líka mistekizt.
— Blanda
Framhald af bls. 5
ins, Framkvæmdastofnun rikisins
og stofnanir iðnaðarins.
Það er álit fundarins að nauð-
synlegt sé, að nú þegar verði haf-
ist handa og dreifilinur styrktar
og endurbættar á næstu 5—6
árum, svo að þær geti flutt nægi-
lega orku til rafmagnsnotenda.
Síðast en ekki síst bendir
fundurinn á þá brýnu þörf
þjóðarinnar allrar, að byggð skuli
raforkuver á þeim svæðum lands-
ins, þar sem minnst hætta er talin
á eldsumbrotum og jarðhrær-
ingum. Virkjun Blöndu væri stórt
skref i átt til þjóðaröryggis á þvi
sviði, jafnframt þvi að vera sterk-
ur þáttur í byggðaþróun.
— Sjö kíló
Framhald af bls. 36
sleppt eftir yfirheyrslu á Kefla-
víkurflugvelli."
Haukur kvað Kristján Péturs-
son hafa borið hitann og þungann
af rannsókn þessara mála, en þess
má geta að s.l. ár fann tollgæzlan
um 40 kg af eiturlyfjum sem
reynt var að smygla inn í landið.
Megnió af þeim fikniefnum var
hass, en árið 1974 fundust aðeins
3—4 kg af fíkniefnum.
Þremenningar sem sitja nú i
gæzluvarðhaldi reyndu að smygla
yfir 20 kg af þeim 40 sem Toll-
gæzlan gerði upptækt s.l. ár en
með þessari siðustu sendingu er
enn um 30 kg alls að ræða sem
vitað er um á vegum þremenning-
anna.