Morgunblaðið - 20.01.1976, Síða 36
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JHargunbUbib
Fékkst þú þér
tfmjttlfiI&feUk TRPP'EANA
ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1976
í pósti til varnarliðsmanns:
Sjö kíló af
marihuana
Merkt manni, sem situr í varðhaldi
Sjö kíió af ffkniefninu mari-
huana fundust í gær í póstsend-
ingu merktri varnarliðsmanni á
Keflavíkurflugvelli, en maðurinn
er einn þeirra þriggja varnarliðs-
manna, sem sitja nú I gæzluvarð-
haldi vegna smygls á hassi og
öðrum fíkniefnum inn í landið.
Var maðurinn handtekinn fyrir
nokkrum dögum þegar hann kom
til landsins.
Sævar Lýðsson fulltrúi lög-
reglustjóra á Keflavíkurflugvelli
tjáði Morgunblaðinu i gærkvöldi
að þetta mál væri framhald af
stóra fíkniefna smyglmálinu, sem
hefði verið í rannsókn af fullum
krafti síðan i haust en skömmu
fyrir jól voru tveir menn settir í
gæzluvarðhald vegna málsins og
þar sitja þeir enn auk þess þriðja
sem fyrr getur. Sævar kvað þessa
þrjá menn hafa staðið að smygli á
fíkniefnum.
Auk Sævars hafa séð um rann-
sókn þessa máls þeir Kristján
Pétursson deildarstjóri hjá toll-
gæzlunni, en hann hefur stjórnað
rannsókn málsins, og Haukur
Guðmundsson rannsóknar-
lögreglumaður í Keflavík. Sagði
Haukur i sarrttali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi að rannsókn
þessa máls hefði hafizt í desem-
ber, en væri framhald af rann-
sókn sém hófst i okt. s.l. „en þá,“
sagði Haukur, „var mönnunum
Framhald á bls. 35
t hrfðarkófinu á Hafnar-
fjarðarveginum f gær þurfti að
kippa mörgum bílum út af
akbrautunum, þvf þeir
stöðvuðu umferðina þar. Þegar
kófinu linnti hófu menn sfðan
Ljósmynd Mbl. RAX.
að koma bflum sfnum aftur á
rétta braut eins og sjá má á
myndinni.
Jarðskjálftarnir nyrðra:
Innheimta
fyrirfram-
gjalda 60%
7% lækkun frá
frá fyrra ári
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefur gefið út reglugerð um að
fyrirfram innheimta gjalda í
ár skuli nema 60% af gjöldum
síðasta árs og er hér um lækk-
un að ræða þvi s.l. ár nam
innheimta fyrirframgjalda
67% af gjöldum fyrra árs.
Að sögn Þorsteins Geirs-
sonar í fjármálaráðuneytinu er
ástæða fyrir lækkuninni sú, að
tekjubreyting milli ára nú er
minni en áður enda er skatt-
vísitalan 125 stig nú en var 151
stig i fyrra.
Stórauknar rannsóknir
á öllu svæðinu
„Reynum að búa okkur sem
bezt undir að mæta eldgosi,”
— segir Jón Illugason oddviti
Reynihlfð 19. jan.
frá Ingva Hrafni Jónssyni blm. Mbl.
„ÉG tel líkurnar fyrir þvf að eld-
gos haldi áfram hafa stóraukizt
vegna hinna þrálátu jarð-
skjálfta," sagði Guðmundur Sig-
valdason jarðfræðingur og for-
stöðumaður Norrænu eldfjalla-
stöðvarinnar f samtali við
Morgunblaðið í Reynihlfð f kvöld,
en hann kom hingað í gær til að
fylgjast með framvindu mála.
Svaraði hann aðspurður að hér
kynni að vera upphafið að nýju
Mývatnseldatfmabili. „Það er
ekki hægt að útiloka þann mögu-
leika.“
Stöðugar jarðhræringar hafa
verið á Kröflu- og Mývatnssvæð-
inu alla helgina, en minna um
stóra skjálfta. Að sögn Ragnars
Stefánssonar jarðskjálftafræð-
ings nú i kvöld virtist sem upptök
stóru skjálftanna hefðu færzt
suður og suðvestur en væru þó
enn nær Kröflusvæðinu en
Mývatni. Virkni smáskjálfta í og
við Leirhnjúk er ennþá mjög
mikil. Mjög snarpur kippur kom í
morgun, sem mældist 4,9 stig og
gekk jörðin við Kröflu þá i bylgj-
um, en hús í Reynihlíð nötruðu og
hristust, hlutir féllu úr hillum og
færðust til. Setti sá skjálfti nokk-
urn óhug í sumt fólk. Gerðar hafa
verið ráðstafanir til að stórauka
rannsóknir á svæðinu og er m.a.
byrjað að smiða hallamæla til að
fylgjast með jarðvatnsbreyting-
um við Leirhnjúk og tæki til efna-
greiningar eru væntanleg. Koma
þeir Karl Grönvold og Eysteinn
Tryggvason norður næstu daga.
Sagði Guðmundur Sigvaldason að
hér væri um einstæðan viðburð
að ræða, að vísindamenn fengju
tækifæri til að fylgjast með
aðdraganda hugsanlegs eldgoss. í
dag var unnið af fullum krafti við
Kröflu og er áætlað að steypa um
200 rúmmetra næstu daga að sögn
Gylfi rœddi landhelgismálið
við Wilson og Callaghan
„ÉG ATTI einkaviðræður við
Wilson og Callaghan á sunnu-
dagskvöldið og snerust þær nær
eingöngu um landhelgisdeil-
una við Breta. Ég notaði tæki-
færið og skýrði þeim mjög
rækilega frá málstað okkar Is-
lendinga og vona ég að þessar
viðræður hafi komið okkur að
gagni þvf þetta eru menn sem
koma til með að ráða miklu um
framþróun landhelgismálsins“,
sagði Gylfi Þ. Gíslason alþm. f
samtali við Morgunblaðið f
gærkvöldi. Gylfi sat um helgina
Gylfi Þ. Gfslason og Harold Wilson á fundinum
fund jafnaðarmannaleiðtoga f
Evrópu sem haldinn var f Hels-
ingör f Danmörku og gafst
honum á fundinum tækifæri til
að ræða landhelgismálið við
nokkra leiðtoga, þar á meðal
Harold Wilson forsætisráðherra
Breta, James Callaghan, utan-
rfkisráðherra, Walter Schmidt,
kanslara Vestur-Þýzkalands,
Hans-Jiirgen Wischewski, að-
stoðarutanrfkisráðherra Þjóð-
verja, og jafnaðarmannaleið-
toga Norðurlanda.
Gylfi sagði í samtali sínu við
Morgunblaðið, að Wilson og
Callaghan hefðu hlustað á þau
rök sem hann hefði fært fram
fyrir málstað Islendinga. Þeir
hefðu einnig fært fram sin rök í
málinu og á eftir hefðu orðið
nokkur skoðanaskipti. Gylfi
sagði, að sumt af því sem hann
hefði nefnt málstað okkar til
framdráttar hefðu þeir Wilson
Framhald á bls. 35
Þorgeirs Axelssonar byggingar-
stjóra. Veður á þessu svæði fór
mjög versnandi í kvöld og spáð
var norðaustan stormi og hrfð.
I samtali við blm. Morgunbiaðs-
ins sagði Ragnar Stefánsson er
hann var spurður um þróun hrin-
unnar sem nú hefur staðið í 5
daga: „Ég hef svipað um það að
segja og áður. Mér virðist að þetta
gangi þannig fyrir sig að land hafi
gliðnað aðeins í suðurátt og upp-
tök meiri jarðskjálfta hafi flutt
sig sunnar, en þeir eru þó enn
nær Kröflu en Mývatni. Hins
vegar er mikil smáskjálftavirkni
við Leirhnjúk og mér finnst ýmis-
legt benda til að þar smeygi sér
hraunkvika nær yfirborðinu. Það
hafa þó ekki orðið áberandi breyt-
ingar á þessu frá því að skjálfta-
Framhald á bls. 35
Loðnubræðsl-
an olíulaus
Fyrsta loðnan til
Vopnafjarðar
Vopnafirði 19. jan.
GULLBERG VE og Hrafn GK
komu til Vopnafjarðar síðdegis á
sunnudag með 400 tonn af loðnu
hvort skip. Er þetta fyrsta loðnan
sem berst til Vopnafjarðar á
þessari vertfð. Loðnubræðslan á
Vopnafirði er nú tilbúin að hefja
bræðslu að öðru leyti en þvf að
verksmiðjuna skortir svartolíu.
Tafir hafa orðið á afgreiðslu
svartolfu til verksmiðjunnar
vegna óhapps sem m/s. Skaftafell
varð fyrir við Breiðdalsvík s.l.
föstudag. Af þeim sökum getur
verið að bræðsla hefjist seinna en
gert var ráð fyrir. Þróarrými
verksmiðjunnar hefur verið
aukið um 2500 tonn og er nú
þróarrými fyrir tæplega 10 þús.
tonn alls. Afkastageta verksmiðj-
unnar er 500 tonn á sólarhring.
— Gunnlaugur.