Morgunblaðið - 23.01.1976, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1976
Gylfa þáttur
Gíslasonar
Alþýðublaðið fjallar I
leiðara I gær um fund 18
evrópskra jafnaðarmanna-
flokka, en forystumenn
þeirra þinguðu I Hel-
singjaeyri um sl. helgi.
Blaðið segir:
„Gylfi Þ. Gíslason var
fulltrúi Alþýðuflokksins á
þessum fundi, og notaði
hann tækifærið til að
ræða landhelgismálið við
Wilson og Callaghan (full-
trúa brezkra jafnaðar-
manna), auk ráðamanna
annarra landa. Lagði Gylfi
megináherzlu á einingu
þjóðarinnar I þessu máli
og rökstuddan ótta ís-
lendinga við eyðileggingu
fiskstofna, svo og þýðingu
þess fyrir afkomu þjóðar-
innar. .
„ Vafalaust hafa viðræð-
ur við Gylfa styrkt Wilson
og Callaghan í þeirri
ákvörðun, sem tilkynnt
var eftir fund þeirra og
Joseph Luns í Brussel,
þess efnis, að Bretar
Gylfi Þ. Gfslason
mundu draga herskip sfn
út úr 200 mflna fiskveiði-
lögsögunni. Þessi ákvörð-
un þeirra er, eins og
brezka útvarpið sagði,
„móralskur sigur" fyrir ís-
lendinga, þótt enn sé of
snemmt að spá um fram-
hald málsins."
Brezka jafnaðarmanna-
stjórnin hefur verið ís-
lendingum óþægur Ijár í
þúfu í viðleitni til vernd-
unar þverrandi fiskstofna
og skynsamlegrar nýting-
ar þeirra auðlinda, sem
velferð þjóðarinnar f bráð
og lengd er undir komin.
Ekki vefst fyrir neinum,
sem þekkir framvindu
mála, að afskipti Joseph
Luns og Atlantshafs-
bandalagsins, samhliða
markvissum og grunduð-
um aðgerðum fslenzkra
stjórnvalda, hafa mestu
ráðið um sfðustu viðbrögð
Breta, heimköllun her-
skipa og beiðni um nýjar
viðræður, og er illskiljan-
legt hvers vegna Alfreð
Þorsteinsson getur ekki
viðurkennt það f Tfman-
um f gær, eða er hann Ifka
orðinn viðhlægjandi
kommúnista? Engu að
sfður ber að fagna þeim
afskiptum, sem Alþýðu-
blaðið segir Gylfa Þ.
Gfslason hafa haft af
þessu máli. Ekki skal f efa
dregið, að hann hefur gert
sitt til að hafa jákvæð
áhrif á flokksbræður sfna,
Wilson og Callaghan. Af-
skipti Gylfa Þ. til lausnar
deilunni vekja þvf verð-
skuldaða athygli.
Ábyrgur
málflutningur
Magnúsar
Torfa
Vlsir segir I leiðara sl.
þriðjudag: „Stjórnmðla-
spennan hér innanlands
sfðustu vikurnar hefur
eðlilega komið ýmsum úr
jafnvægi. stjórnmála-
mönnum jafnt sem öðr-
um. Yfirleitt hafa stjórnar-
andstæðingar. hverjir sem
þeir eru. reynt að hagnýta
sér sllkt ástand með þvl
að ala ð æsingum. Sam-
kvæmt lögmáli stjóm-
málallfsins hefur það
verðið talið vænlegast fyr-
ir stjórnarandstöðu að
bregðast þann veg við.
Það vekur þvl óneitanlega
nokkra athygli. þegar
stjórnmálamenn I stjórn-
arandstöðu láta ekki
beygja sig undir þetta
hefðbundna lögmál. Visir
v i II I þessu sambandi
benda á yfirlýsingu Magn-
úsar Torfa Ólafssonar I út-
varpinu sl. sunnudags-
kvöld.. . . Það er vert sér-
stakrar eftirtektar, að
hann taldi ekki rétt að
hlaupa til og segja landið
út Atlantshafsbandalag-
inu, vegna landhelgis-
átaka við Breta. Rétt er
að taka fram, að hann
itrekaði andstöðu slna við
aðild fslands að þvl. og
þar greinir hann á við
þetta blað. En hann vildi
að afstaða til þess yrði
tekin út frá öðrum for-
sendum en landhelgis-
átökum."
Rök- og
háttvísi
Þjóðviljans —
eða „drullu-
, kökubakstur”
Alkunn háttvfsi og rök-
hyggja Þjóðviljans kemur
einkar glöggt fram f leið-
ara blaðsins f gær, þar
sem segir m.a.: „Geir
Hallgrfmsson er einhver
óheiðarlegasti og óheil-
asti stjórnmálamaður sem
setið hefur f ráðherrastóli
á íslandi og er þá langt til
jafnað. En hann stendur
með dyggum stuðningi
samráðherra sinna úr
Framsóknarf lokknum
jafnt sem Sjálfstæðis
flokknum."
Það er nú svo. Það er
e.t.v. munur á að eiga til
samanburðar slfka Pravda
(„sannleikans") menn
sem Lúðvfk Jósepsson og
Ragnar Arnalds! Þau
málefnalegu rök, sem í
þessum orðum Þjóðviljans
felast, tala skýru máli,
hrópa raunar átakanlega
staðreynd, sem óþarfi er
að undirstrika frekar. Hér
er sum sé kominn dæmi-
gerður Þjóðvilja
málflutningur og „drullu-
kökubakstur."
Það er hægt að
gera stórkostleg ^
kaup á
útsölunni í
Herrabúðinni
næstu
4 daga.
Lítið við
og takið
konuna
með.
Buxur frá 650.—
Blússur frá 990.-
Peysur frá 800.-
Herraskyrtur frá 700.-
Sloppar frá 900.-
Náttkjólar frá 595.-
Handklæöi frá 345.-
Regnkápur frá 1 1500.—
Flauelsjakkar frá 995.-
BUTASALA
Mhuð
IISK
SKEIFUNN115
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
to
Þl Al'GLYSIR l'M ALLT LAND ÞEGAR
Þl AIT.LYSIR I MORGLNBLAÐIM
Aðalstræti 9,
sími 14470
Rýmingarsala
Verið að rýma fyrir nýjum vörum.
Opið föstudag til kl. 10 e.h.
Siðasti dagur laugardagurinn 24. janúar.
Allt nýlegar, fallegar vörur.
Komið, gerið góð kaup.