Morgunblaðið - 23.01.1976, Side 12

Morgunblaðið - 23.01.1976, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JANUAR 1976 Undanhald frá Angola Lusaka, 21. janúar. AP. SUÐUR-afrískir hermenn og hermenn frelsishreyfinganna FNLA og Unita, sem eiga f höggi við marxistahreyfinguna MPLA, eru á undan- haldi f Angola eftir vfðtæka árás MPLA samkvæmt heimildum f Zambfu. Bæirnir Cela, Santa Como og Amboiva í miðhluta landsins hafa fallið fyrir herliði MPLA undan- farna daga samkvæmt fréttum, sem hafa borizt frá Angola, og liðssveitir hreyfingarinnar munu nú vera um 150 km frá bænum Nuambo, sem áður hét Nova Lisboa og hefur nýlega verið valin höfuðborg andstæðinga MPLA. Talið er að MPLA hyggi á stór- fellda sókn suður á bóginn og ætli með henni að gersigra Unita sam- kvæmt þessum fréttum. Bandarfskir leyniþjónustu- starfsmenn segja, að þeir hafi í „Yfir- leitt hvergi nema yinsemd og skiln- mgur — segir Pétur Thorsteinsson PtTUR Thorsteinsson ráðu- neytisstjóri skýrði frá því í samtali við Morgunblaðið í gær, að í viðræðum sfnum í þeim löndum, sem hann hefur heimsótt til að kynna málstað lslands, hefði komið fram „mjög mikil vinsemd og skiln- ingur — yfirleitt hvergi nema vinsemd og skilningur“. Hann kvaðst hafa átt viðtal í gær ásamt sendiherra Islands í Paris við Sauvignac, utanríkis- ráðherra Frakklands, fyrir há- degi og síðari hluta dags við ráðuneytisstjórann í franska utanrikisráðuneytinu, de Cour- sel, og fara í dag, föstudag, til Luxemborgar til viðræðna við forsætis- og utanríkisráðherr- ann þar. Síðan kvaðst Pétur Thor- steinsson halda heimleiðis á laugardag og ekki fara til þeirra landa sem eftir væru, Belgíu og Hollands, vegna þeirrar breytingar, sem hefði orðið þegar Bretar ákváðu að kveðja herskipin burtu af Is- landsmiðum. Til Parísar kom Pétur frá Portúgal þar sem hann sagði að málstaður ís- lands hefði fengið mjög góðan hljómgrunn eins og i öllum þeim löndum sem hann hefur heimsótt í ferðinni. „Ég get ekki annað sagt en að alls staðar rikir mjög mikill skilningur á málstað okkar. Ýmsir þeir utanríkisráðherrar, sem ég hef talað við, hafa sagt að þeir muni gera það sem þeir geta í þessu máli,“ sagði Pétur Thorsteinsson. dag fengið fréttir um að suður- afriskum hersveitum hafi verið skipað að hörfa frá Angola og telja ástæðuna þá, að almenn- ingur í Suður-Afríku vilji ekki að Suður-Afríka dragist meir inn i borgarastríðið. 1 Suður-Afríku er talið að tefla verði fram mjög öflugu herliði í Angola ef takast eigi að vega upp á móti þeim þúsundum kúb- anskra hermanna, sem berjast við hlið MPLA, sem auk þess ræður yfir fjölda skriðdreka, eldflauga og þyrlna, sem hafa auðveldað sókn herliðs hreyfingarinnar. Tálið er að verðmæti þeirra her- gagna, sem MPLA hefur fengið frá Rússum, nemi talsvert meira en 100 milljónum dollara og að alls berjist um 10.000 hermenn frá Kúbu með hreyfingunni. Umtalsverður árangur hjá Kissinger og Brezhnev Moskvu 22. jan. AP — Reuter. BANDARlSKIR embættismenn skýrðu frá þvf f Moskvu f kvöld, að umtalsverður árangur hefði orðið f viðræðum Henry Kissingers utan- rfkisráðherra Bandarfkjanna og Leonids Brezhnevs aðalritara sovézka kommúnistaflokksins undanfarna tvo daga um nýtt samkomulag f SALT-viðræðunum, um takmörkun kjarnorkuvopna. Hins vegar mun Kissinger hafa mistekizt að ná markmiði sfnu um grundvallarsam- komulag um lausn allra deilumála, sem standa f vegi fyrir staðfestingu bráðabirgðasamkomulagsins, sem gert var 1974 milli þjóðanna. hafi byggt nýjar eldflaugar af SS 19 gerð í staðinn fyrir minni flaugarnar áf SS 11 gerðinni og þannig stækkað eldflaugar sínar um 40%, þótt byrgjum hafi aðeins fjölgað um 15%. Þetta framferði Sovétmanna hafði sætt harðri gagnrýni á Bandaríkjaþingi og Kissinger sakaður um að hylma yfir brot Sovétmanna á samkomu- laginu frá 1974. Fundur þeirra Kissingers og Brezhnevs stóð i 7 klst. A morgun ræðir Kissinger við Grómýkó utanríkisráðherra Sovétrikjanna um ýmis mál, áður en hann heldur til Brússel til að sitja þar fund utanríkisráðherra NATO-ríkjanna. Sagði háttsettur bandarískur embættismaður, sem var við- staddur viðræðurnar, að samningamenn þjóðanna við SALT-viðræðurnar i Genf myndu nú hefjast handa við að ganga frá atriðum samkomulagsins. Sagði hann að Kissinger og föruneyti myndu nú snúa heim til Washing- ERLENT ton til að skýra Ford forseta frá gangi mála og sagði hann að óvíst væri hvort nauðsynlegt yrði að halda annan fund með Brezhnev til að ganga frá samkomulaginu. Sagði embættismaðurinn, að Kissinger og Brezhnev hefðu náð samkomulagi um skilgreiningu á „þungri eldflaug", en ekki var kveðið á um slíka skilgreiningu i samkomulaginu frá 1974, þar sem samþykkt var að hvor aðilinn um sig mætti ekki búa yfir fleiri en 2400 slíkum eldflaugum og sprengjuþotum. 1 samkomulaginu var kveðið á um, að ekki mætti auka fjölda byrgja, sem geyma eldflaugar, um meira en 15%, en bandariska leyniþjónustan heldur því fram, að Sovétmenn Níels P. Sigurðs- son sendiherra: „Reutersfrétt ekki alls kostar rétt eftir höfð” London 22. janúar. Reuter. NÍELS P. Sigurðsson, sendiherra Islands i Lundúnum, sagði 1 sam- tali við fréttamenn hér í Lundúnum í dag, að Islendingar gætu ekki undir nokkrum kring- umstæðum hækkað tilboð sitt frá þeim 65 þúsund lestum, sem upp- haflega hefði verið boðið 1 við- ræðum við Breta um veiðiheimildir fyrir brezka fiski- menn á lslandsmiðum á árs- grundvelli, en nærri allur þeirra afli er þorskur. Hins vegar sagði sendiherrann, að möguleiki væri á að komast að málamiðlun um að Bretar fengju að veiða meira af öðrum fisk- tegundum en þorski. Ef brezki markaðurinn tæki ekki við þess- um tegundum, væri hægt að selja aflann í Þýzkalandi og íslend- ingar myndu siðan sjá Bretum fyrir þeim þorski, sem Bretar þyrftu á að halda auk þorskafla eigin skipa. „Hvað það varðar að auka þorskkvóta Breta, er slíkt útilokað, það er ekki meiri þorsk að hafa,“ sagði sendiherrann. Þá sagði sendiherrann, að nýtt sam- komulag gæti gilt í að minnsta kosti 2 ár, en eftir það væri hugsanlegt að hækka 65 þúsund tonna markið, en þá myndu Bretar hafa fengið eigin 200 míl- ur og hugsanlegt væri að íslend- ingar biðu upp á auknar veiði- heimildir á gagnkvæmum grund- velli. En gagnkvæmt samkomulag., þyrfti ekki að vera einskorðað við fiskveiðar, Bretar gætu t.d. hjálpað Islendingum við að auka fjölbreytni efnahagslífs þeirra. Framhald á bls. 31. ísland vann — segir Arbeiderbladet Frá Guðmundi Stefánssyni, Asi í Noregi. „tSLAND vann“ hljóðar fyrir- sögn á forystugrein 1 Arbeider- bladet, málgagni norska Vcrka- niannaf lokksins, og er þar tekin afstaða með tslendingum 1 landhelgisdeilunni. Norsku blöðin hafa fjallað mjög ítarlega um gang málsins stðustu daga og skrif þeirra hafa yfirleitt verið vinsamleg og hagstæð tslcndingum. Ahugi manna f Noregi á land- helgismálinu er meiri en áður eftir sfðustu atburði og samúð almennings með tslendingum hefur greinilega aukizt. Arbeiderbladet segir i for- ystugrein sinni: „Fyrra þorskastrfði tslend- inga og Breta 1973 lauk með sigri tslendinga, takmörkunum á veiðikvóta Breta og raunveru- legri viðurkenningu á 50 mflna fiskveiðilögsögu tslands. A þriðjudagskvöld unnu tslend- ingar aðra þorskastrfðslotu þegar James Callaghan utanrfkisráðherra tilkynnti, er fslenzka rfkisst jórnin hafði formlega ákveðið að slfta stjórnmálasambandi við Breta, að nýjar samningaviðræður gætu hafizt milli lslendinga og Breta. Þær viðræður munu án efa hafa f för með sér skerð- ingu á veiðikvóta Breta og raunverulega viðurkenningu Breta á 200 mflna fiskveiðilög- sögu tslands. Brctar sögðu 24. nóvember þegar þeir ákváðu að veita togurunum herskipavernd, að þeir gerðu það með harm f huga eins og togararnir höfðu boðið um með gleði f huga og ákafa. Nú hafa Bretarnir kvatt freigáturnar burtu en þeir eru vonandi reynslunni rfkari. Fiskurinn er tslendingum langtum mikilvægari en Bret- um — þar er beinlfnis um til- veru Islcndinga að tefla.“ Bandaríkin og Spánn gera nýjan herstöðvasamning Madrid 22. janúar Reuter AP. BANDARlKtN og Spánn náðu f dag samkomulagi um nýjan samning varðandi herstöðvar Bandarfkjanna á Spáni. Gildir samningurinn til 4 ára og er að sögn spánskra stjórnvalda sfðasti samningur þessarar gerðar, þar sem Spánverjar vonast til að hafa fengið inngöngu í Atlantshafs- bandalagið innan f jögurra ára. Henry Kissinger utanríkisráó- herra Bandaríkjanna er væntan- legur til Spánar á laugardag til að undirrita samkomulagið, en síðan munu þing beggja landa fjalla um það til endanlegrar staðfestingar. Skv. samkomulaginu munu Spán- verjar fá 1,2 milljarða Banda- ríkjadollara í hernaðaraðstoð á gildistíma hins nýja samkomu- lags. Bandarikjamenn eru nú með 4 herstöðvar á Spáni og hafa þær Framhald á bls. 31.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.