Morgunblaðið - 23.01.1976, Page 22

Morgunblaðið - 23.01.1976, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1976 Séra Einar Guðnason í Reykholti - Minning Fæddur 19. júlí 1903. Dáinn 14. janúar 1976. Ég ergöðum vini fátækari. Séra Einar (iuðnason er látinn og nú er honum þakkað allt hið göða, sem hann gaf og kenndi. Frá barn- æsku til fullorðinsára áttí ég sam- fylgd með séra Einari í Reykholti. Annríki hans var mikið á þeim árum, við prestsstörf og kennslu i Reykholtsskóla, en aldrei svo að hann gæfi sér ekki tíma til að spjalla við og uppfræða ungan svein, sem oft leitaði samvista við hann. Ilann hjó vfir miklum fröð- leik og minnið svo óskeikult að furðu gegndi. Ilann gaf svo mikið af sjálfum sér og frá honum fóru menn ríkari að mannkostum. Séra Einar var svo övenjulega góðm maður. Margar minningar frá samfylgdinni leita á hugann við fráfall hans, enda var hann nærri á flestum stundum gleði og sorgar. Með honum var gott að gleðjast og auðveldara að mæta sorginni. Með hljöðlátri virðingu og þakklæti minnist ég þessa góða manns og alls þess, sem hann var mér og mínum, frá fyrstu kynn- um í Reykholti. Frú Önnu, Bjarna, Steinunni Önnu og Guð- munji votta ég dýpstu samúð. Birgir Þorgilsson. Séra Einar Guðnason, pröfastur í Reykholti, lézt á Landspítalan- um 14. þ.m., 72 ára að aldri. Hann var fæddur að Öspaks- stöðum í Húnavatnssýslu 19. júlí 1903. Foreldrar hans voru hjónin Guðni bóndi Einarsson og Guðrún Jónsdóttir. Hann lauk embættis- prófi í guðfræði 1929. Ari síðar vigðist hann prestur að Reykholti í Borgarfirði og gegndi því emb ætti til 1973, er hann lét af störf- um vegna aldurs. + EINAR VESTMANN, lést í sjúkrahúsi Akraness aðfaranótt 2 1 janúar María Einarsdóttir og börn. + Móðir okkar, tengdamóðir og amma ÞÓRDÍS ÓLAFSDÓTTIR Bólstaðarhlíð 32 verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag kl 1 30 Óiafur Magnússon Guðmunda Magnúsdóttir Guðmundur Jensson Magnús Marteinsson Þorbjorg Möller Marteinsson og barnaborn + Jarðarför bróður okkar MATTHÍASAR MATTHÍASSONAR, frá Grímsey, fyrrv. deildarstjóra í Kron, fer fram frá Fossvogskirkju laugardaginn 24 janúar kl 10.30. Anna Matthiasdóttir, Guðmundur Matthíasson, Rannveig Matthíasdóttir, Agnes Matthlasdóttir. + Maðurinn minn, faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi okkar SIGURJÓN JÓNSSON, Borgarvegi 16, Ytri-Njarðvík, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju, laugardaginn 24 janúar kl 2 Blóm og kransar afbeðmr. Gunnar Sigurjónsson, Hafsteinn Axelsson, Hjördis Ólafsdóttir, Reynir Ólafsson, Ester Sigurjónsdóttir, Ingunn Ingvarsdóttir, Jóna Magnúsdóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir, Sigurpáll Aðalgeirsson, Lovisa Guðmundsdóttir, Haukur Helgason og barnabörn. + Þökkum hjartanlega sýnda samúð við andlát og útför ÁRNA ODDSONAR, frá Refsstöðum. Sérstakar þakkir til nágranna fyrir alla vinsemd á elliárum hans Einnig þakkir til starfsfólks sjúkrahúss Akraness fyrir góða umönnun Sigriður Árnadóttir, Dagbjartur Dagbjartsson, Jenný Franklinsdóttir og systkini hins látna. Lokað frá hádegi í dag vegna jarðarfarar GEIRS ÓLAFSSONAR, bakara, HNITBERG H.F. Þegar sr. Einar hafdi verió eitt ár í Reykhoiti tók héraðsskólinn þar til starfa. Varð hann þegar kennari við skólann og var það alla sína embættistíð. Hann kenndi einkum sögu, enda var hann mikill sögumaðurog reyndar sjór af fróðleik á svo mörgum sviðum. Sýndi hann það m.a. i spurningaþáttum útvarpssins fyrir nokkrum árum, þegar hann og félagar hans gengu með sigur af hölmi eftir harða keppni. Eftirlifandi kona séra Einars er Anna Bjarnadóttir. dóttir dr. Bjarna Sæmundssonar, fiski- fræðings, hin mikilhæfasta kona. Hún var kennari við skólann eins og maður hennar, og samhentari og samrýmdari hjön hef ég ekki þekkt. Þau eignuðust 5 börn, tvö misstu þau kornung en hin þrjú eru Bjarni, bæjarstjóri á Akur- eyri, Steinunn Anna, ensku- kennari við Menntaskólann í Reykjavík, eins og móðir hennar hafði verið áður en hún giftist, og Gumundur viðskipta- fræðingur. Þau hjónin voru frábær- lega gestrisin. Það var föst venja hjá þeim að bjóða öllum kirkjugestum inn á heimili sitt eftir messu og veita rausnarlega. Mun slíkt vera fátítt nú á dögum. 1 Reykholti var mikill straumur ferðamanna á hverju sumri, inn- lendra og erlendra. Þá er það að prestshjónin gerast sjálfskipaðir sendiherrar f Reykholti, séra Einar var óþreytandi að fræða gestina um sögu staðarins og siðan var þeim ævinlega boðið inn á heimili þeírra hjóna og veiting- ar þegnar. Aldrei mun séra Einar hafa fengið neina umbun fyrir þennan höfðingsskap, enda ekki farið fram á slfkt, en margur hefur fengið fálkakross fyrir minna. Séra Einar var með afbrigðum vinsæll af sóknarbörnum sínum, enda var hann ávallt boðinn og búinn til að leysa hvers manns Barbara Norwieh, 1. janúar 1976. NÝTT ár hefur göngu sína. Það bregður skugga fyrir. Ég held á símskeyti í hendinni. Sfmskeyti frá íslandi boða alltaf harma- fregnir. í þetta sinn boðar það dánarfregn vinkonu minnar; Barbara Arnason listakona er dáin. Því meira sem ég hugsa um vanda ef hann mátti. Um það get- um við hjónin borið. Þegar yngsta barn okkar, nokkurra mánaða gamalt, lá fyrir dauðanum, hringdi séra Einar til okkar og sagóist hafa heyrt í útvarpinu að nýja meðalið penicellin væri komið til landsins og byrjað að reyna það á Landspítalanum. Þetta varð til að bjarga lifi sonar okkar og fyrir það stöndum við í ævinlegri þakkarskuld við sr. Einar. Margar ánægjustundir áttum við hjónin á heimili prests- hjónanna í Reykholti. Síðastliðið vor vildi svo til að vð vorum öll samtímis á Heilsuhæli NLFI í Hveragerði okkur til hvíldar og hressingar. Þá hittumst við venju- lega á hverju kvöldi, spiluðum bridge og rifjuðum upp gamlar endurminningar úr Borgarfirðin- um, þar sem kunningsskapur okkar sr. Einars hófst fyrir 45 árum. Konu hans og börnum sendum við hjónin innilegar samúðar- kveðjur. Magnús Ágústsson. Arnason það, því mun meira fullvissa ég mig um að Barbara getur aldrei dáið. List hennar lifir áfram. Um aldaraðir geta nýjar og nýjar kyn- slóðir notið verka hennar, en við sem þekktum hana erum ríkari; við geymum minninguna um ekki einungis einstæða listakonu, held- ur líka heilsteypta persónu, hógværa, prúða, gáfaðayndislega Geir Ólafsson bakari — Kveðja Fæddur 27. 12. 1909 Dáinn 16. 1. 1976. Það skiptir aldrei máli hvort skyldur eða vandalaus á 1 hlut, þegar manni er sagt að valið góð- menni sédáið, hafi lokið ævistarfi sínu. 1 báðum tilvikum vekur slík fregn sársauka og trega allra er til þekkja. Ég veit að slik til- finning gagntekur alia þá mörgu, er lengri eða skemmri tíma þekktu og kynntust Geira bakara, eins og allflestir vinir og kunningjar hans kölluðu hanr dagiega. Þaó er ekki tilgangur minn að rekja æviferil Geirs Ólafssonar, en ég er viss um það að vandi er að finna þann mann. sem ekki samþykkir þá staðhæfingu mina, að hann var allt sitt líf og í starfi sínu öllu, hvaða viðfangsefni sem hann tók sér fyrir hendur, sér- stakur maður, sérstæður persónu- leiki einlægur svo af bar, heiðvirður og trúr í Iífi og starfi, hjálpsamur og fórnfús, hann hugsaði ávallt seinast um sinn eigin hag. Hann var valið góðmenni, hans líkar eru þvi miður alltof fáir meðal vor, þar sem heiðarleiki trúmennska og fórnfýsi eru höfuðþættir í lífi og starfi til síðasta andartaks. Geir Ölafsson vann undir minni stjórn síðustu tvö æviár sín, til síðasta ævidags. Hann sló ekki slöku við þá frekar en endranær, vistaskiptin fóru fljótlega fram. Við kvöddumst glaðlega að loknum starfsdegi, hinn 15. janúar s.l., sjávarfalli síðar var hann ekki lengur í lifenda tölu. Ég þakka sjálfur og í nafni fjölda annarra kunningja og vina Geira bakara fyrir ógleymanleg áratuga kynni, sem aldrei fyrnast. Ástvin- um Geira votta ég einlæga samúð við hið óvænta andlát hans. Sigurvin Össurarson. + Móðir okkar, GRÓA MARGRÉT JÓNSDÓTTIR. lézt að Elliheimilinu Grund, að kvöldi 20 þ m Fyrir hönd bræðra minna, Ástrfður Eyjólfsdóttir. + GUÐJÓN SIGUROSSON, Jónshúsi, Garði. lézt að Vífilsstaðaspitala 20 þ m Anna Vigfúsdóttir, Guðbergur Guðjónsson, Una Guðmundsdóttir. konu, sem auðgaði líf allra þeirra, sem hún þekkti. Það var gæfa Islands, að hún festi rætur þar, gæfa Magnúsar Árnasonar listamanns, að hún felldi ástarhug til hans og valdi hann sem lífsförunaut, gæfa Vífils að eiga hana sem móður, konu hans að eiga hana fyrir tengdamóður. Ég votta þeim öll- um mína dýpstu samúð, og mest af öllu litlu sonarbörnunum, sem fengu að njóta ömmu sinnar alltof, alltof stutt. Barbara stóð við hlið mina á sorgarstundum og veitti mér styrk og þrek. Ég þurfti aðeins að senda henni hugskeyti til þess að fá bréf frá henni. í þetta sinn dugði það ekki fyrir jólin, hún hefur þá háð sitt eigið stríð. Ég krýp fyrir skaparanum og þakka honum af alhug fyrir að hafa skapað svona fullkomna persónu. Forsjóninni er ég þakk- lát að leiðir okkar mættust. Braut- in er greið, framhaldið óhjá- kvæmilegt. Minning hennar getur aðeins boðað blessun. Kristín Boulton ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fvrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í sfð- asta lagi fvrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt nteð greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera f sendibréfsformi eða bundnu rnáli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með göðu lfnubili.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.