Morgunblaðið - 03.02.1976, Side 1
40 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
26. tbl. 63. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRUAR 1976.
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Portugalskir smá-
bændur létu undan
Lissabon 2. febrúar — Reuter
LEIÐTOGAR hersins f Portúgal
hafa borið sigur úr býtum í viður-
eign við þúsundir smábænda sem
höfðu hótað að byrja að stöðva
matvælaflutninga til Lissabon í
dag. A fimm útifundum um
landið allt í gær samþykktu
bændurnir að hætta við „fæðu-
umsátrið" til að gefa byltingar-
ráði hersins tóm til að gera um-
bætur á landbúnaðaráætlun fyrri
ríkisst jórnar, sem hliðholl var
kommúnistum, og gerð var fyrir
níu mánuðum.
En smábændurnir, sem flestir
eru íhaldssamir, áskiidu sér rétt
til að grfpa til „róttækra aðgerða"
ef ekki yrði komið til móts við þá
fljótlega, og þjóðnýtingaráform-
um varpað fyrir róða. Hins vegar|
komu hundruð leiguliða saman í
borginni Oporto í Norður-
Portúgal í gær og skoruðu á
stjórnvöld að gera hið gagnstæða,
— þ.e. að framfylgja stefnu fyrri
ríkisstjórnar og afnema „léns-
skipulag“ það sem þeir segja að
ríkt hafi í landareignamálum
Portúgals, fyrir 31. mars n.k.
Átök í Sahara:
Marokkó vill skióta mál-
inu til SÞ, OAU og
Arababandalagsins
Lundúnum — 2. febr.
— Reuter.
MIKLAR deilur eiga sér nú stað
milli Alsfr, Máritaniu og Mar-
okkó vegna tilrauna til að drage
úr spennu þeirri, sem rfkir vegna
yfirráða yfir Vestur-Sahara og
fosfatnámunum þar.
Alsfrmenn halda þvf fram, að
þeir hafi drepið um 400 manns úr
liði Marokkómanna í þriggja
daga bardaga f eyðimörkinni í
síðustu viku, en Marokkómenn
segja þetta staðleysu eina og
halda því fram á móti, að þeir
hafi unnið á um 200 Alsfrmönn-
um áður en þeir hafi rekið lið
þeirra á flótta.
Forsætisráðherra Saudi
Arabíu, Said A1 Feisal, hélt til
Máritaníu i dag til fundar við
Moktar Ould Daddah, forseta
landsins, um málið.
Einingarsamtök Afríkurikja
(OAU) hafa lagt til að skipuð
verði sáttanefnd með aðild Araba
og fulltrúa frá samtökunum, að
því er sagt var í Kairó í dag.
Marokkó og Maritanía hafa tek-
ið við stjórn Sahara með sam-
þykki Spánverja, sem hafa nú lát-
ið af stjórn landsins i andstöðu
við Alsír, sem krefst þess að íbúar
Sahara eigi að hafa sjálfsákvörð
unarrétt um framtið landsins.
Þjóðarflokkur Máritaníu, sem
er eini stjórnmálaflokkurinn þar i
landi, gaf út þá yfirlýsingu í dag,
að væringar í Sahara að undan-
förnu hefði komið Maritaníu i
varnaraðstöðu en þrátt fyrir það
mundu Máritaníumenn halda
Framhald á bls. 14
Vetur konungur leikur sér að reykvfskum vegfarendum eins og köttur
að mús þessa dagana. Þegar bjartsýnisfólk er farið að halda að hlákan
sé komin, potar hann f það með hrammi sfnum, svona til að minna á
hver það er, sem hefur völdin á þorranum.
Berlinguer, leiðtogi
ítalskra kommúnista:
Þátttaka
kommúnista
óhjákvæmileg
Róm 2. febr. Reuter.
ÞATTTAKA kommúnista f ríkis-
stjórn er óhjákvæmileg, ef Italfa
á að komast yfir stjórnarkrepp-
una og efnahagsörðugleika þá,
sem við er að stríða, segir Enrico
Berlinguer, leiðtogi ftalska
kommúnistaflokksins, f viðtali,
sem birt verður á morgun. Um
leið lýsir hann þeirri skoðun
sinni, að þátttaka kommúnista
muni ekki leiða til kraftaverks f
sjálfu sér, en segir jafnframt, að
samvinna við flokk, sem hafi um
þriðjung fylgis allra kjósenda f
landinu og hafi þar að auki innan
vébanda sinna meirihluta verka-
fólks, sé óhjákvæmileg, eigi að
takast að fleyta landinu í gegnum
þann vanda, sem við sé að etja.
I viðtalinu, sem birtist i fylgiriti
ýmissa stórblaða i Evrópu, segir
Berlinguer m.a. að flokkur hans
hafi ekki áhuga á að ítalía dragi
sig út úr Atlantshafsbandalaginu,
þar eð það gæti stofnað „détente“
i hættu, en leggur um leið áherzlu
á, að kommúnistar hafni öllum
erlendum áhrifum á lif fólks i
landinu og á ákvarðanir í innan-
landsmálum.
Peart, sjávarútvegsmálaráðherra Breta, við togarasjómenn eftir klippinguna í gæn
Sýnið stiUingu og farið að fyrir-
mælum íslenzku varðskipanna
Lundúnum — 2. febr. — einkaskeyti AP til Mbl.
1 AVARPI sfnu til brezkra togarasjómanna á Islandsmiðum eftir
togvfraklippinguna f gær, ráðlagði Fred Peart, landbúnaðar- og sjávar-
útvegsmálaráðherra Breta, sjómönnum að sýna stillingu, fara að
fyrirmælum fslenzku varðskipanna og hffa, þegar og ef slfk fyrirmæli
bærust frá varðskipunum. Hann bað sjómenn að halda ró sinni þar til
svar fslenzku rfkisstjórnarinnar við tilboði Breta til lausnar deilMnni
hefði borizt, — slfkt væri jafnt f þágu þeirra sjálfra sem brezku
þjóðarinnar.
I annarri yfirlýsingu ráðherr- I Austin Laing, framkvæmda-
ans kom fram, að togvíraklipping- stjóri samtaka brezkra útgerðar-
in drægi enn úr horfum á sam- manna, sagði, að atburðurinn á
komulagi í fiskveiðideilunni. | miðunum í gær, bryti f bága við
hið óskrifaða samkomulag um að-
gerðarleysi meðan á samkomu-
lagstilraunum stæði. Hann taldi,
að víraklippingin kynni að fela í
sér óformlegt svar við samnings-
tilboði brezku stjórnarinnar.
Þá sagði Austin Laing:
„Þetta virðist heldur vonlítið
ástand. Síðustu atburðir kunna að
vera vísbending um synjun ts-
lendinga á tillögum okkar og að
þeir vilji heldur nota varðskip en
venjubundnar diplómatískar
Gervihnettir notaðir við
gæzlu 200 mílnanna í USA?
Washington 2. febrúar.
Einkaskeyti til Mbl. frá AP:
FRAMKVÆMD 200 mflna fisk-
veiðilögsögu undan ströndum
Bandarfkjanna krefst notkunar
skipa, þyrla og flugvéla, og
hugsanlega er fram Ifða stund-
ir gervihnatta, að þvf er yfir-
maður bandarfsku strandgæzl-
unnar segir. Flugvélar, m.a.
hæfar til langflugs, munu hafa
eftirlitsflug yfir fiskimið og
gera skipum strandgæzlunn-
ar viðvart um staðsetningu
fiskiskipa. Þyrlur frá skipun-
um könnuðu sfðan veiðarnar og
loks kæmu varðskipin á vett-
vang og farið yrði um borð f
fiskiskipin ef þurfa þætti til
leitar og jafnvel töku. Auk þess
héldu flugvélar uppi eftirlits-
flugi yfir allri 200 mflna lög-
sögunni til að fylgjast með
skipum á leið inn fyrir mörkin
og breytingum á veiðiháttum.
Sfðar kynnu gervihnettir að
verða notaðir til eftirlits og
sambands.
Þetta kom fram í vitnisburði
Owen T. Silers, flotaforingja og
yfirmanns bandarísku strand-
gæzlunnar, fyrir viðskipta-
nefnd öldungadeildarinnar á
síðasta ári í yfirheyrslum sem
voru undanfari atkvæða-
greiðslunnar um 200 mflurnar,
og fram fór i síðustu viku.
Framkvæmd útfærslunnar
verður að mestu í höndum
strandgæzlunnar, sem gæti með
samþykki leitað til allra ann-
arra ríkisstofnana um þjónustu
og útbúnað, þ.á.m. til flotans.
Starfsmenn strandgæzl-
unnar hafa heimild til að fara
um borð og rannsaka öll fiski-
skip innan lögsögunnar, hand-
taka hvaða mann sem er með
eða án handtökuheimildar og
gera allan fisk og veiðarfæri
upptæk. Héraðsdómstólar i
Bandaríkjunum munu hafa lög-
sögu í öllum slíkum málum og
geta aðilar ef fundnir sekir átt
yfir sér allt aó 100,000 dollara
sekt og árs fangelsi.
Siler sagði í yfirheyrslunum,
að strandgæzlan væri að kanna
nýjar aðferðir og ný tæki til
notkunar við gæzluna, m.a. af-
kastabetri skip, og hugsanlega
fjarstýrðar flugvélar. Til að
byrja með yrði að taka sex varð-
báta úr geymslu og fá sex lang-
flugsvélar og fjórar aðrar til
gæzlustarfanna og myndi það
kosta um 65 milljónir dollara.
leiðir. En svo getur líka verið, að
dómsmálaráðherrann sé að þessu
upp á eigin spýtur. Hann er yfir-
maður varðskipanna. Hann sagð-
ist i gær ekki telja miklar líkur á
samkomulagi. Við verðum að bíða
þar til brezka stjórnin fær svar
frá hinni islenzku, en þetta lítur
ekki vel út.“
Tom Nielsen, talsmaður sam-
taka yfirmanna á brezkum togur-
um, sagði: „Við vissum hvað ger-
ast mundi allan tímann. Þetta er
ekkert, sem kemur okkur á óvart.
1 stað þess að segja hreint út að
þeir vilji ekki semja, eða að þeir
ætli ekki aó ræða samkomulag,
hefja íslendingar áreitni. Þetta er
fjandanum fáránlegra. Það er
ekki nema ein leið og hana
höfum við bent á frá upp-
hafi, — að senda herskipin inn-
fyrir og láta skipin okkar
veiða. Við skiljum vel, að stjón-
málamenn verði að fá að
reyna, en nú er fullreynt að
þeir fá engu áorkað. Það, sem við
viljum, er að fá ótviræða yfirlýs-
ingu islendinga um, að engir
samningar séu i bfgerð, og þá er
komið að flota hennar hátignar."
„TROLLIN FARA INN OG UT,
INN OG tJT...“
Lundúnablaðið Daily Mail
sagði í gær, að „eftir yfirlýsingu
Ölafs Jóhannessonar virðast litlar
líkur á (að brezku tillögurnar fái)
samþykki".
The Sun sagði í leiðara: „Ríkis-
stjórnin hefur verið að hika í
þorskastríðinu alveg síðan það
Framhald á bls. 14