Morgunblaðið - 03.02.1976, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1976
/
t Morgunblaðinu f dag er
greint ftarlega frá þeim um-
ræðum, er farið hafa fram f
fjölmiðlum og á Alþingi um
ásakanir á hendur dómsmála-
ráðherra og ráðuneyti.
Á baksfðu blaðsins eru um-
mæli Olafs Jóhannessonar o.fl.
um að engin f járhagstengsl séu
á milli Framsóknarflokksins og
aðila að sakamálunum.
Hér á bls. 3 eru birt ummæli
Ólafs Jóhannessonar úr þættin-
um „Bein lfna“ um „Vfsis-
maffuna" og svör forsvars-
manna Vfsis við þeim ummæl-
um.
A bls. 10—11 er birt ræða
Sighvats Björgvinssonar al-
þingismanns, er hann flutti á
Alþingi f gær.
Umrœður á Alþingi
og tengd mál
Á bls. 12—13 er birt ræða
Ólafs Jóhannessonar dóms-
málaráðherra, er hann svaraði
Sighvati Björgvinssyni á Al-
þingi.
A bls. 26 er birt yfirlýsing
Vilmundar Gylfasonar, sem er
svar við greinargerð dómsmála-
ráðuneytisins, sem birtist í
Morgunblaðinu á sunnudag.
Á bls. 38 eru birt ummæli
Ölafs Jóhannessonar úr þættin-
um „Bein lfna“ um stjórnar-
samstarfið við Sjálfstæðis-
flokkinn.
Á bls. 38 eru birt ummæli
Jóns Eysteinssonar, sýslu-
manns í Gullbringusýslu og
bæjarfógeta í Keflavfk um
túlkun á bréfi dómsmálaráðu-
neytisins frá 11. marz 1975.
A bls. 38 eru einnig ummæli
Halldórs E. Sigurðssonar um
skatta og innheimtuaðgerðir
gegn Klúbbnum.
Dómsmálaráð-
herr a og V í sir
I UTVARPSÞÆTTUNUM
„Beinni lfnu“ á sunnudags-
kvöldið sagði Ólafur Jóhannes-
son dómsmálaráðherra að það
væri ekki við Vilmund Gylfa-
son að eiga vegna skrifa hans f
Vfsi heldur þá mafíu, sem að
baki honum stæði, sem hann
nefndi Vfsismafíuna. Er ráð-
herrann var að þvf spurður
hvort þarna ætti hann við
glæpahring, svaraði hann: „Það
horfir þannig frá mfnu sjónar-
miði að það sé glæpahringur
sem æ ofan í æ kemur með
aðdróttanir f minn garð.“ 1 for-
síðufrétt í Vfsi í gær eftir rit-
stjóra blaðsins, Þorstein Páls-
son, er Ólafi Jóhannessyni gef-
inn kostur á þvf að draga um-
mæli sfn til baka, að öðrum
kosti verði hann að bera ábyrgð
á þeim að réttum lögum. t ræðu
á alþingi f gær endurtók Ólafur
ummæli sfn um „Vfsismaff-
una“. Hér á eftir fara ummæli
Ólafs Jóhannessonar f útvarpi
og á alþingi, svar Þorsteins
Pálssonar um málið við Morg-
unblaðið, yfirlýsing Gunnars
Thorcddsen félagsmálaráð-
herra um afskipti sfn af mál-
efnum Vísis og svar Þorsteins
Pálssonar við yfirlýsingu
Gunnars.
EKKI VILMUNDUR
HELDUR „VlSIS-
MAFIAN"
Hér fara á eftir ummæli
Ólafs Jóhannessonar um Vísi
og Vilmund Gylfason í þættin-
um „bein lína“:
„Annars er þaó ekki Vii-
mundur, sem þarna er við að
eiga heldur auðvitað sú mafía
sem stendur á bak við þessi
skrif og henni mun ég svara
siðar. Nú spurði fréttamaður
hvaða mafíu ráðherrann ætti
við. Svaraði hann þá: „Það er
Vísismafían."
Hlustandi sá, sem bar fram
spurningar um mál þetta við
ráðherra spurði nú hvort ráð-
herrann gæti annað en krafizt
rannsóknar á ásökunum þeim,
sem bornar hafa verið fram á
hann. Svaraði þá Ólafur: „Ég
mun svara þeim. Þeim hefur
verið svarað og ég mun halda
áfram að svara þeim. Eins og ég
segi er það ekki Vilmundur
sem þarna er við að eiga. Hann
er alltof lítill til að vera að
skjóta á hann. Það eru aðrir,
ANorlegv
r ó hentíur
.«««w£t"ví 'ssasw
br» »* ***.,!! al*k'P“
nfytmo. nl6knom
►3.«— -sss
-srja. b**“'
- ‘"k"
£t
r&ö swo^'o"1 ',e9no
UOTÍn >r\99Í« mann°
Þ óT 'og'œrS"!
KreUtronnsókn2I
i, banko5i\í>fo '
T^Bonkaróornwou
þeir stóru sem standa á bak við
hann.“
Hlustandi hringdi og bar m.a.
fram þá spurningu hvort ráð-
herrann hefði sönnun fyrir því
að Vísismafían stæði að baki
skrifum Vilmundar samkvæmt
ummælum ráðherrans fyrr í
þættinum, að enginn teldist sek
ur fyrr en sekt hans væri sönn-
uð. Svaraði ráðherrann þá: ,,Ég
tel það, þar sem ritstjóri er
ábyrgðarmaður að blaðinu og
hann ræður því sem er skrifað í
blaðið og birt í blaðinu.“
Hlustandí hringdi og spurði
hvort ráðherrann ætti við að
Vísismenn væru i þeirri mafíu
sem æði uppi í Bandarikjunum
og Italiu og væri alheimsglæpa-
hringur. Hann svaraói: Ætli
það séu ekki ýmiss konar teg-
undir til.“ Hlustandinn sagði
þá, að hann vildi fá svar við
spurningunni. Þá svaraði ráð-
herrann:
„Það horfir þannig frá minu
sjónarmiði að það sé glæpa-
hringur sem æ ofan í æ kemur
með aðdróttanir i minn garð.
„Hlustandinn spurði þá hvort
það væri álit ráðherrans að það
væri glæpahringur sem ætti
Forsíða Vísis hinn 30. janúar, daginn sem grein
Vilmundar Gylfasonar birtist í blaðinu og fjallað
var um málið á forsfðu.
Vísi í dag. Þá svaraði ráðherra:
„Ja þeir sem eru þar í meiri-
hluta stjórnar bera ábyrgð á
sinum ritstjóra náttúrulega."
Hlustandi spurði þvi næst,
hvernig ráðherrann gæti sann-
að að það væri glæpahringur
sem ætti Vísi. „Við skulum sjá
hvernig,“ svarði þá ráðherrann.
■Næst spurði ráðherrann hvort
hlustandinn væri eitthvað við-
riðinn Vísi. Svaraði þá hlust-
andinn: „Nei, nei ég kaupi og
les Visi eins og þú.“ Ráðherr-
ann spurði nú hvaða sjálfboða-
mennska þetta væri og hvort
hlustandinn vildi ekki láta þá
stórlaxa sem eiga Vísi svara
þessu. „Ég má spyrja, er þetta
ekki bein lína til þín,“ sagði
hlustandinn. „Nú, já, já gjörðu
svo vel svaraði ráðherrann."
Hlustandinn sagði: „Þegar þú
segir að Vilmundur sé of lítill
til að svara, er hann og allur
almenningur of lítill til að
verða að svara. „Ráðherrann
sagði þá: „Nei, nei, nei, nei, nei,
nei, nei, það á að beina skeytun-
um þangað sem rétt er að beina
þeim. Þeir sem bera ábyrgð á
blaðinu það eru þeir sem eiga
að svara til saka.“
UM ÞUFUTITTLINGA;
NULL OG MAFlUR
Um skrif Vilmundar Gylfa-
sonar í dagblaðinu Vísi, varð-
andi meint afskipti dómsmála-
ráðuneytisins af rannsókn svo-
nefnds „Klúbbmáls“, sagði
Ólafur Jóhannesson á Alþingi i
gær:
„Ég ætla mér ekki að nýta
þennan dag til að skjóta á þúfu-
tittlinga. Vilmundur Gylfason
er i þessu sambandi ekki nema
stórt núll. Gildi hefur núllið
ekkert, standi það út af fyrir
sig. Gildi þess ræðst af þvi,
hvaða afstöðu þaó hefur til
annarra talna. Vilmundur
Gylfason skrifar til að lifa.
Hann er verkfæri — í annarra
höndum. Ég eyði ekki frekar
Framhald á bls. 38
Minningartónleikar
um Inga T. Lárusson
Síðastliðinn laugardag voru
haldnir í Háskólabiói tónleikar til
minningar um Inga T Lárusson tón-
skáld. Var mjög fjölbreytt efnisskrá,
en á henni voru eingöngu verk eftir
Inga T Lár. Fyrir tónleikunum stóðu
austfirzk átthagafélög i Reykjavik og
viðar. Tónleikarnir . voru mjög
vel sóttir og tókust vel. Mbl. hafði
þvi samband við Þórarin Þórarins-
son, formann nefndar þeirrar er sá
um tónleikana af hálfu átthagafélag-
anna.
Þórarinn sagði að tónleikarnir hafi
verið haldnir til að kynna Inga T.
Lárusson tónskáld og list hans.
Einnig voru tónleikarnir haldnir til
að afla fjár til minnisvarða sem reisa
Ingi T. Lárusson tónskáld.
á honum á Seyðisfirði, I fæðingarbæ
Inga Eru það áðurnefnd átthaga-
félög er gefa minnisvarðann Sigur-
jón Ólafsson mun gera minnis-
varðann sem verður þriggja metra
hár á tveggja metra háum stöpli Á
minnisvarðann mun jafnframt verða
greypt kvæði Þorsteins Valdemars-
sonar um Inga Verður minnsvarð-
inn afhjúpaður 26 ágúst n.k á
afmælisdegi tónskáldsins.
Eins og áður segir var dagskrá
tónleikanna mjög fjölbreytt M a
flutti Kammersveit Reykjavlkur laga-
syrpu undir stjórn Páls P. Pálssonar
Jón Sigurðsson útsetti verkin fyrir
þessa samkomu Mun það vera
fyrsta útsetning á verkum Inga sem
gerð er fyrir hljóðfæri.
í lok tónleikanna voru sungin tvö
lög eftir tónskáldið, Átthagaljóð,
eftir Sigurð Arngrimsson og Blessuð
vertu sumarsól eftir Pál Ólafsson, en
lagið við hið siðarnefnda mun hafa
verið það fyrsta sem Ingi samdi
Að endingu gat Þórarinn þess að
allir er komu fram á tónleikunum
unnu verk sin endurgjaldslaust til
heiðurs tónskáldinu, og væri það
þakkarvert
Tónleikarnir voru allir teknir upp á
segulband og standa vonir til að
þeim verði útvarpað á næstunni.
Köln
Herratiskusýning
Brottför 24. febrúar
Verðfrá: 59.900.—
Frankfurt
Alþjóðleg vörusýning.
Brottför 21. febrúar
Verð frá: 60.500.—
Parfs
Prðt á Porter Féminin
Kventískusýning
Brottför 2. apríl
COSTA BLANCA — BENIDORM
Páskaferö, brottför 9. apríl
SPORTVÖRUSÝNtNG ISPO ‘76
MUNCHEN ~ KARNIVAL '76 á sama stað og sama tima
Af fjölda skemmtiatriða viljum við vekja athygli á:
26. febrúar
kl. 20.00
27. febrúar
kl. 19.30
kl. 20.00
28. febrúar
kl. 19.30
kl. 20.00
kl. 20.00
Söngur og dans I bjór-
kjallaranum Löwenbráu-
Keller
Dansleikur I hinu fræga
veitingahúsi Hofbráuhaus
Skemmtikvöld (ISPO
Gala '76) Deutsches
Theater
„Piparsveinaball" I
Hofbráuhaus
„Carneval I Rló" I Hotel
Bayerischer Hof
Listamannaskemmtun
I Schwabinger Bráu
29. febrúar Útikarnival
„Crazy Múnchen"
á göngusvæði Karstor
Marienplatz
„Footwarmer's Charleston
Ball" I Schwabinger Bráu
„Ski Totally Crazy"
Ball I Augustiner-kjallara/,
Lokadagur. Útiskemmtunl,,>?
á Viktualienmarkt fyrir
hádegi, I miðborg-
inni eftir hádegi.
Lokaball „Sópaðút" úr
Búrgerbráu-kjallaranum Ji
kl. 20.00
1. mars
kl.20.00
2. mars
kl. 20.00
Innifalið I verði er flugfar og hótel I 7 nætur með morgunverði, frá kr. 63.000.00_/i
Ferðamiðstöðin hf.
Aðalstræti 9 slmar 28133 og 11255