Morgunblaðið - 03.02.1976, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1976
Viðvörun
vísindamanna
Síðla janúarmánuðar sl.
sendu fjórir sérfræðingar I
jarðvísindum við Raunvís-
indastofnun Háskóla Is-
lands bréf til iðnaðarráð-
herra, þar sem m.a. kem-
ur fram, að „verulegar lik-
ur séu á að eldgos taki sig
upp aftur á Mývatns-
svæðinu, og sé liklegast
að slikt framhald eldsum-
brota verði á gossprung-
unni sem liggur um Leir-
hnúk suður i Bjarnarflag.
Telja þeir óráðlegt að
halda áfram framkvæmd-
um við Kröflu öðrum en
þeim, sem stuðla að
verndun þeirra mann-
virkja sem fyrir eru. Sér-
fræðingarnir fjórir, sem
hér áttu hlut á máli,
eru: Sigurður Þórarins-
son. prófessor, Þorleifur
Einarsson, prófessor,
Eysteinn Tryggvason jarð-
skjálftafræðingur og Sig-
urður Steinþórsson jarð-
fræðingur.
Alitsgerðin
rædd og
kunngerð
Iðnaðarráðherra kunn-
gerði þegar þessa álits-
Sigurður Þórarinsson.
gerð rfkisstjórn, Almanna-
varnaráði, oddvita Skútu-
staðahrepps, orkumála-
stjóra, Kröflunefnd, Kísil-
iðjunni o.fl. viðkomandi.
Áður hafði ráðherra beðið
Kröflunefnd og Orku-
stofnun og fleiri aðila um
greinargerðir og tillögur
varðandi framkvæmdir
við Kröflu.
Framkvæmdir
þrátt fyrir
náttúru
hamfarir
Einn af miðlimum
Kröflustjórnar, Ragnar
Arnalds, ritar grein i Þjóð-
viljann, sl. sunnudag, þar
sem fjallað er um fram-
kvæmdir i Kröflu, þrátt
fyrir náttúruhamfarir.
Vitnar hann annars vegar
i forsendur jarðfræðinga i
skýrslum Orkustofnunar
frá þvi i júni 1972, þar
sem m.a. segir: ,,í Mý-
vatnseldum fyrir tæpum
250 árum, voru aðal gos-
in á Kröflusvæðinu. Þetta
var allmikið gos og má
e.t.v. álykta, að hlé verði
á gosum um nokkrar aldir
þar á eftir." Siðan er þess
getið, sem að framan er
sagt um viðvörun jarð-
fræðinga nú, eftir gos i
Leirhnúk og hugsanlegar
likur á framhaldi þess; og
síðan segir:
„Ennþá er þetta hús
aðeins fjórir veggir, 20 m
háir og 70 m langir á
annan veginn, svo og
hálfkarað þak. Meðan
þak, innveggir og milligólf
hafa ekki verið steypt er
húsið ekki nægilega
traustbyggt til að þola
allra hörðustu jarð-
skjálfta. Húsið hefur þó
ekki látið á sjá við þá
skjálfta sem enn hafa
komið. Þess vegna er
gifurlega mikilvægt, að
haldið sé áfram af fullum
krafti að vinna við
Ragnar Arnalds
stöðvarhúsið, en full-
steypt á húsið að þola
jarðskjálfta. sem eru
meira en 7 stig á Richter-
kvarða, en það munu vera
allra sterkustu jarð-
skjálftar, sem orðið hafa
hér á landi svo vitað sé."
í eldfjallalandi
Ragnar Arnalds segir að
f eldfjallalandi séum við
alltaf að taka vissa
áhættu og varla geti verið
ágreiningur um það
„meðal þeirra, sem til
þekkja, að rétt sé að
halda f ramkvæmdum
áfram við Kröflu fyrst um
sinn og styrkja stöðvar-
húsið, eins og unnt er."
„Hitt er svo annað mál,
að hæpið virðist að hefja
niðursetningu véla eða
vinnu við borun, fyrr en
jarðskjálftahrinunni hef-
ur slotað. Mikilvægustu
ákvarðanir um fram-
kvæmdir við Kröflu verða
því ekki teknar fyrr en
síðar í vetur eða með vori,
og verðum við að vona, að
þá hafi betur skýrst, hvort
úr þessu verður nýtt gos
eða ekki. Verði þessi um-
brot dottin niður í vor,
hljótum við að halda
áfram við virkjunina. Það
er sama áhættan og tekin
var í Vestmannaeyjum. |
Sumir segja að vísu, að
Mývatnseldar standi
lengi, eins og sjá megi af
seinasta gosi fyrir hálfri
þriðju öld. Hæpið virðist
þó að draga miklar
ályktanir af þessu eina
stóra gosi, sem orðið
hefur á þessum slóðum á
sögulegum tíma, en talið
er víst, að að á seinustu
3000 árum hafi aðeins
orðið fimm gos í grennd
við Kröflu."
í hugleiðingum um
hugsanlegt framhald goss
á þessu svæði vitnar
Ragnar í jarðvlsindamenn
og segir: „Margir jarðvfs-
indamenn telja, að Kísil-
iðjan og Bjarnarflagsfyrir-
tækin séu f meiri hættu
vegna jarðelda en Kröflu-
virkjun. Guðmundur Sig-
valdason eldfjalla-
fræðingur telur meiri
hættu af völdum jarð-
skjálfta en eldgoss á
Kröflusvæðinu."
STJORNUNARFÉLAG ÍSLANDS
Aðalfundur
Aðalfundur SFÍ verður haldinn 5. febrúar n.k. að
Hótel Sögu (Bláa sal) og hefst kl. 12:15. Á dagskrá
eru venjuleg aðalfundarstörf auk lagabreytinga.
Gestur fundarins verður Matthías Á.
Mathiesen fjármálaráðherra sem flytur ræðu
um hagræðingu í opinberri stjórnun. Félagar
eru hvattir til að fjölmenna og láta skrá nöfn
sín á skrifstofu félagsins.
Er reksturinn í lagi?
Stjórnunarfélagið gengst fyrir námskeiði í frumatrið-
um rekstrarhagfræði dagana 9. —13. febrúar. Nám-
skeiðið stendur yfir mánud. 9. febrúar kl.
14: —19:00, þriðjudaginn 10. febrúar kl.
15:30—19:00, miðvikudaginn 11. febrúar og föstu-
daginn 13. febrúar kl. 14:00 — 19:00.
Á námskeiðinu verður þátttakendum
gefin innsýn i undirstöðuatriði
rekstrarhagfræðinnar, sem fjallar um,
hvernig nota megi framleiðslutækin á
sem hagkvæmastan hátt. Gerð verður
grein fyrir kostnaðarhugtökum, eftir-
spurn og þáttum, sem hafa áhrif á
hana. Sérstaklega er sýnt, hvernig
finna má hagkvæmast verð og magn
við mismunandi skilyrði.
Leiðbeinandi er Brynjólfur Sigurðsson dósent
ÞÁTTTAKA TILKYNNIST í SÍMA 82930.
— tryggir nægan sogkrafl
★ Snúruvinda
— dregur snúruna inn
í hjólið á augabragði
* Sjálflokandi
— lætur vita þegar
pokinn ©r fullur
★ Sjálfvirkur rykhaus
rykhaus —- lagar sig að fletinum
sem ryksuga á
pokar — hreinlegt að skipta um þá.
Léttbyggö - Lipur - Stöðug
Verð kr. 42.900.—
(Gildir til 1. marz).
Sértilboð
Eignist slíka vél með aðeins
10.000 kr. útborgun og kr. 6.000
á mánuði í sex skipti.
V
Vörumarkaðurinn hf.
Ármúla 1A. Húsgagna- og heimilisd. S-86-112
Matvorudeild S-86-111. Vefnaðarv.d. S 86 113
J