Morgunblaðið - 03.02.1976, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRUAR 1976
Initei! heldnr enn forystu
en Leeds fékk óvæntan skell
k.:r , ,:.;S 1. DEILD
L HEIMA Uti STIG
Manchester United 27 11 2 0 25—8 5 4 5 19—17 38
Liverpool 27 8 5 1 28—16 5 6 2 16—7 37
Derby County 27 12 0 2 31—20 3 6 4 12—14 36
Leeds United 26 10 1 3 28—12 5 4 3 17—14 35
Queens Park Rangers 28 10 4 0 22—6 2 6 6 14—16 34
West Ham United 27 10 2 3 21—15 3 3 6 16—23 31
Manchester City 27 8,5 1 27—8 2 4 7 14—17 29
Middlesbrough 27 6 6 1 15—5 4 3 7 14—20 29
Stoke City 27 6 4 3 18—15 5 3 6 15—17 29
Ipswich Town 27 6 5 3 20—15 2 7 4 12—14 28
Everton 27 5 6 2 25—17 4 4 6 19—33 28
Newcastle United 27 7 4 1 33—10 3 3 9 16—27 27
Leicester City 27 6 6 2 21—18 1 7 5 9—19 27
Tottenham Hotspur 27 3 7 3 17—21 4 5 5 21—22 26
Norwich City 27 6 4 3 21—14 3 3 8 19—27 25
Aston Villa 27 8 4 2 26—14 0 5 8 6—23 25
Coventry City 27 4 5 4 13—14 4 4 6 15—23 25
Arsenal 27 7 3 4 22—13 1 4 8 9—20 23
Wolverhampton Wand. 27 4 5 6 15—17 2 2 8 13—23 19
Birmingham City 27 6 3 4 21—18 1 1 12 ! 16—36 18
Burnley 27 3 4 5 14—16 2 3 10 14—28 17
Sheffield United 27 1 4 8 10—22 0 2 12 8—33 8
L 2. DEILD
L HEIMA uti STIG
Sunderland 26 13 1 0 32—7 3 3 6 9—15 36
Bolton Wanderes 26 8 3 1 24—8 6 5 3 19—16 36
Bristol City 27 8 4 1 25—7 5 5 4 18—16 35
Notts County 26 8 4 1 22—5 5 2 6 14—18 32
Southampton 26 12 1 1 34—10 2 3 7 13—22 32
West Bromwich Albion 27 4 7 1 12—8 7 3 5 15—17 32
Luton Town 27 8 4 2 24—12 4 2 7 14—18 30
Oldham Athletic 27 10 3 1 25—14 2 3 8 15—27 30
Bristol Rovers 27 6 5 3 16—11 3 6 4 12—15 29
Fulham 26 5 5 3 19—11 4 4 5 14—18 27
Blackpool 27 5 6 2 17—18 4 2 7 9—13 26
Orient 25 7 4 2 14—7 1 5 6 8—16 25
Plymouth Argyle 27 9 2 2 25—12 0 4 10 9—25 25
Chelsea 27 5 4 4 17—14 4 3 7 16—23 25
Charlton Athletic 26 7 1 4 23—18 3 4 7 12—25 25
Notthimham Forest 27 5 1 7 15—14 3 7 4 14—14 24
Carlisle United 27 6 5 3 17—14 2 3 8 8—20 24
Hull City 27 6 3 5 18—14 3 2 8 11—21 23
Blackburn Rovers 27 4 5 5 15—15 2 5 5 10—15 22
Oxford United 26 3 4 6 13—17 2 4 7 12—20 18
York City 27 4 1 7 13—20 1 4 10 8—27 15
Portsmouth 27 1 5 7 6—14 3 1 10 11—27 14
KnattspyrnuúrslH
EFTIR umferð þá er leikin var I
ensku knattspyrnunni á laugar-
daginn heldur Manchester
United eins stigs forystu sinni I 1.
deildinni. A laugardaginn lék
United við eitt af botnliðunum,
Birmingham City, og vann örugg-
an sigur. Liverpool tók svo annað
sætið í deildinni með stórsigri
sfnum yfir West Ham United, en
Leeds United sem var I öðru sæti
fyrir umferðina féll hins vegar
niður I fjórða sæti eftir óvæntan
ósigur sinn f leik sfnum við Nor-
wich sem þó fór fram í Leeds.
Leikirnir á laugardaginn fóru
annars flestir fram við fremur
erfið skilyrði. Kalt var f veðri og
vellirnir sums staðar ísi lagðir.
Af þessum ástæðum voru líka
færri áhorfendur en oftast áður,
þótt þannig sé reyndar f Englandi
að áhorfendur láti það Iftt á sig fá
þótt kalt sé í veðri.
Sigur Liverpool yfir West Ham
á laugardaginn var það sem mesta
athygli vakti. Liverpool-liðið náði
þarna frábærlega góðum leik, og
sýndi sannkallaða meistaratakta.
Voru leikmenn West Ham-liðsins,
sem þó eru þekktir fyrir annað en
að láta sinn hlut baráttulaust,
nánast sem „statistar" á vellinum
oftsinnis. Atkvæðamestur allra
leikmanna Liverpool-liðsins var
hinn hávaxni John Toshack sem
skoraði þrennu og skapaði sér að
auki nokkur önnur tækifæri sem
hann hefði átt að skora úr. Fjórða
mark Liverpool í leik þessum
gerði Kevin Keegan.
Um 50.000 manns fylgdust með
viðureign Manchester United og
Birmingham City og var það lang-
mesti áhorfendafjöldi að leik á
laugardaginn. Aðdáendur United
á Old Trafford urðu heldur ekki
fyrir vonbrigðum með sitt lið, þar
sem það hafði töglin og hagld-
irnar í leiknum við Birmingham
allt frá upphafi til enda. Mörkin
fyrir United skoruðu Alex For-
syth, Lou Macari, og Sammy Mcll-
roy, en Tony White skoraði mark
Birmingham. Birmingham-liðið
er nú óneitanlega í töluverðri fall-
hættu, er þriðja neðst með einu
stigi minna en Ulfarnir og 5 stig-
um minna en Arsenal en þessi tvö
lið eru í fjórða og fimmta sæti
neðanfrá.
Tap Leeds United fyrir Nor-
wich á laugardaginn kom veru-
lega á óvart og kann að hafa af-
drifaríkar afleiðingar fyrir Leeds
í baráttunni á toppnum þar sem
hvert stig vegur mjög mikið. Ted
MacDougall skoraði tvö mörk í
þessum leik og er nú markhæsti
leikmaðurinn í ensku 1. deildinni
og þriðja mark Norwich skoraði
svo Mike McGuire. Norwich hefur
reynzt beztu liðunum erfitt í
vetur, þar sem það er eina liðið
sem hefur unnið Liverpool á
Anfieid Road í Liverpool.
Derby County hreppti . bæði
stigin í viðureign sinni við Cov-
entry. Atti Derby mun meira I
þeim leik og hefði jafnvel verð-
skuldað stærri sigur. Það var
Charlie George sem skoraði bæði
mörk Derby, og hann átti þarna
mjög góðan leik, eins og oft áður
að undanförnu.
Queens Park Rangers vann á
laugardaginn sinn fyrsta sigur á
útivelli siðan í ágúst er liðið bar
sigurorð af Aston Villa. Mörk
Q.P.R. f leiknum gerðu John
Hollins og enski landsliðsfyrirlið-
inn Gerry Francis.
EKKI þótti leikur Arsenal og
Sheffield United til þess að hrópa
húrra fyrir. Það var um að ræða
endalaust þóf hjá báðum liðum og
mátti ekki í milli sjá hvert var
slakara. Arsenal átti þó öllu fleiri
færi í leiknum, en markvörður
Sheffield United, Jim Brown,
varði oftsinnis mjög vel. Markið
skoraði Lieam Brady þegar fimm
mínútur voru til leiksloka, og með
þvi bjargaði hann miklu fyrir
Arsenalliðið sem enn er ekki
sloppið úr fallhættunni.
Mjög kom á óvart að næst
neðsta liðið, Burnley, sigraði
Everton á útivelli. Burnley-liðið
sýndi þarna verulega góðan leik,
og átti Everton allan tímann und-
ir högg að sækja. Fyrsta markið
skoraði Peter Noble með fallegu
skoti, en Bryan Hamilton jafnaði
síðan fyrir Everton. Brian Flynn
skoraði sfðan annað mark Burn-
ley, en aftur náði Everton að
jafna með marki Hamiltons. En
Burnley-liðið gafst ekki upp og í
seinni hálfleik náði Derek Scott
að skora sigurmarkið. Þessi sigur
Burnley ætti að gefa liðinu byr
undir vængi, en óneitanlega hlýt-
ur þó róðurinn að verða erfiður.
Ulfarnir létu ekki sinn hlut eft-
ir liggja á laugardaginn og unnu
Stoke. Fyrsta mark leiksins skor-
aði Willie Carr úr vítaspyrnu, en í
seinni hálfleiknum jafnaði Terry
Conroy fyrir Stoke. Höfðu leik-
menn Stoke rétt lokið við að
fagna markinu, er knötturinn lá í
marki þeirra eftir skot Normann
Bell og urðu úrslitin þannig 2—1
fyrir Úlfana.
Tottenhamliðið' var í miklum
ham á laugardaginn og vann sigur
yfir Ipswich og það á útivelli.
Sýndi liðið góðan leik og hefði átt
að vinna stærri sigur. Fyrra mark
Lundúnaliðsins skoraði Ralp
Coates en Keit Osgood úr víta-
spyrnu. Þegar langt var liðið á
leikinn tókst Ipswich að rétta sinn
hlut svolítið með marki David
Johnson, og á lokamínútunum
átti Ipswich hættulegar sóknir,
sem þó gáfu ekkert af sér.
Leicester vann sigur í viðureign
sinni við Manchester City, þar
sem hart var barizt og bæði liðin
áttu góð tækifæri. Leicesterliðið
hefur náð mjög athyglisverðum
árangri á heimavelli að undan-
förnu, eftir mikla erfiðleika f
haust.
Eina mark leiksins á laugar-
daginn skoraði Bob Lee.
Middlesbrough fékk á laugar-
daginn fleiri mörk á sig á heima-
velli en Iiðið hafði fengið samtals
fram að því. Snemma f leiknum
náði David Mills forystunni fyrir
Middlesbrough, og stóð þannig í
hálfleik, en strax í byrjun seinni
hálfleiks tókst Alan Gowling að
jafna fyrir Newcastle. Staðan var
þó ekki lengi þannig þar sem
Willie Maddern bætti öðru marki
við fyrir Middlesbrough og New-
castle-Ieikmaðurinn Glen
Keeley skoraði sjálfsmark. Þar
með virtust úrslitin ráðin, en
Newcastle-menn voru þó á öðru
máli og áður en leiknum lauk
höfðu þeir sent knöttinn tvívegis í
mark Middlesbrough. Þar voru að
verki Alan Kennedy og Irvin
Nattrass.
ENGLAND 1. DEILD:
Arsenal —-Sheff. LJniled 1—0
Aslon Villa — Q.P.R. 0—2
Derby County — Coventry 2—0
Everton—Burnley 2—3
Ipswich—Tottenham 1—2
Leeds — Norwich 0—3
Leicester — Manchester City 1—0
Manchester Utd. — Birmingham 3—1
Middlesbrough —Newcastle 3—3
West Ham — Liverpool 0—4
Wolves — Stoke 2—1
ENGLAND 2. DEILD:
Blackburn—Plymouth 3—1
Blackpool — Hull 2—2
Bristol Rovers — Portsmouth 2—0
Carlisle — Fulham 2—2
Charlton — York 3—2
Chelsea — West Brom wich I —2
Luton—Notthingham I—1
Southampton—Old.’iam 3—2
Bolton — Oxford frestað
Notts County — Orient frestað
ENGLAND3. DEILD:
Brighton—Mansfield 1—0
Cardiff — Aldershot I—0
Chesterfield—Gillingham 0—1
Hereford—Crystal Palace - 1—1
Millwall — Walsall 2—1
Peterborough—Preston 2—0
Port Vale — Shrewsbury 0—0
Rotherham —Colchester 2—0
Sheffíeld Wed — Chester 2—0
Swindon — Bury 2—1
Wrexham—Grimsby I—0
ENGLAND 4. DEILD:
Brentford — Northampton 2—1
Crewe — Workington 0—0
Darlington — Swansea frestað
Doncaster — Bradford 1—1
Exeter — Barnsley 2—0
Lincoln—Cambridge 3—0
Readíng — Newport frestað
Scunthorpe — Bredford frestað
Southport — Granmere 0—0
SKOTLAND (JRVALSDEILD:
Aberdeen—AyrUníted 2—1
Celtic — Dundee United 2—1
Dundee — Rangers 1—1
Hibernian — St. Johnstone 5—0
Motherwell — Hearts 2—0
SKOTLAND 1. DEILD:
Dunfermline — Clyde frestað
Falkirk—Airdrieonians 1 — 1
Kilmarnock — East Fife 2—1
Montroes — St. Mirren 2—1
Morton—Hamilton 1—4
Partick — Dumharton 0—0
Queen of the South—Arbroath 2—1
SKOTLAND 2. DEILD
Albion Rovers — Cowdenbeath frestað
Alloa — Brechin 0—0
Berwick—Stenhousemuír 1 — 1
Clydebank — Stranraer 2—1
East Stirling — Stirling Albion 0—0
Forfar — Meadowbank 1—1
Raith Rovers — Queens Park 0—2
V-ÞYZKALAND BIKARKEPPNIN
Bavern HOF — Hamburger SV 0—2
Schwarz-Weiss Essen — FC Köln 1—1
FC Kaiserslautern
— Eintracht Braunswich 2—0
FCHamburg — Darmstadt 3—0
Fortuna Diisseldorf
— Borussia Mönchengladbach 3—2
Hertha Berlín
— Eintracht Frankfurt 1—0
GRIKKLAND:
AEK — Yannina 1:0
Paok — Ethnikos 1:0
Panaitolikos—Panathinaikos 2:3
Olympiakos — Kastoria 2:0
Apollon—Aris 0:1
Panachaiki — Panionios 0:0
Pansezraikos — Atromitos 2:3
Heraclis — Pierikos 2:1
PORTÚGAL
Benfica—Acadomico 4:0
Estoril — Sporting 1:0
Porto — Farense 6:1
Setubal—Braga 3:0
Guimaraes—CUF 2:0
Tomar — Belenenses 3:1
Beira Mar — Lexioxes 0:1
Atletico — Boavista 0:0
ITALIA
Ascoli —Roma 0:0
Cagliari—Milan 1:3
Cesena—Torino 1:1
Inter — Bologna 1:1
Juventus—Perugia 1:0
Lazio — Como 3:2
Napoli — Sampdoria 0:0
Verona — Fiorent ina 1:2
BELGlA
Racing White Molenbeck
— FC Liegois 2:1
FC Malinois — La Loviere 2:4
Stai^dard Liege — Racing Malines 0:0
Antwerpen — Waregem 0:0
Þessir tveir kappar, Stuart Pearson og Lou Macari, leikmenn með
Manchester United, hafa ástæðu til þess að gleðjast þessa dagana. 1
fyrra unnu þeir lið sitt upp úr 2. deild og nú hefur það forystu f 2.
deildar keppninni.