Morgunblaðið - 03.02.1976, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 03.02.1976, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRUAR 1976 Matti vitgranni hans var ekki blíð, hún bæði reifst og stundi og andvarpaði, en samt átti nú að efna til brúðkaups. Og móðir Matta sagði honum, að hann yrði nú að haga sér kurteislega við borðið, hann mætti ekki glápa of mikið á brúðina, heldur gjóta til hennar auga við og við. Erturnar mátti hann borða einn, en varð að gefa kon- unni sinni af eggjunum. Leggina úr steikinni mátti hann ekki leggja á borðið, heldur á diskinn sinn. Jú, Matti gerði það, sem móðir hans bað hann um, já gerði það heldur en ekki bókstaflega. Hann tók augun úr hausun- um af fiskunum, sem átti að borða í veislunni, sat svo og snéri baki við brúði sinni en kastaði til hennar fiskauga við og við. Eggin át hann öll einn, en lét konuna hafa nokkuð af baunum. Svo ÞETTA er teikning af einu mesta Buddhamusteri sem byggt hefur verið. Er það á eyjunni Java f Indónesfu og er talið ein mesta bygging f heiminum. t musterinu eru yfir 400 Buddhastyttur og öll er byggingin skreytt hundruðum lágmynda og munu þær ekki vera færri en 1500. kórónaði hann allt saman með því að setja ekki aðeins beinin á borðið, heldur og lagði hann bífurnar upp á diskinn. Um kvöldið, þegar háttatimi kom, var brúðurin í heldur slæmu skapi eftir öll axarsköft brúðgumans og var farin að finnast það heldur lítil framtíðarvon að eiga svona aula fyrir mann. Svo sagði hún honum, að hún hefði gleymt dálitlu og þyrfti snöggvast út. En Matti vildi endiiega fara með, annars fengi hún ekki að fara fet, því hann var hálf smeykur um að hún myndi ekki koma unn aftur. „Nei, vertu kyrr“, sagði brúðurin. „Hér er langt snæri, það bind ég utan um mig og skal svo láta dyrnar standa opnar og svo getur þú haldið í endann. Og ef þér finnst svo ég verða of lengi, þá geturðu bara togað í spottann, þá dreg- urðu mig inn aftur“. Já, þetta var Matti ánægður með, en þegar Salvör kom út á hlaðið, mætti hún geithafri, leysti af sér snærið og batt það utan um hafurinn. Þegar Matta fannst frúin vera of lengi í burtu, togaði hann í snærið af öllum kröftum og þar sem hann var háttaður, endaði það með því, að hann dró hafur- inn upp í rúmið til sín. Eftir nokkra stund kallaði hann. „Mamma, mamma, konan mín er með horn“. „Hvaða þvættingur er í þér strákur“, svaraði móðir hans. „Það eru auðvitað flétturnar hennar, sem þú heldur í“. Allt í einu æpti Matti aftur. „Mamma, mamma, konan mín er loðin eins og geit“. „Vertu ekki að þessu bulli strákur“, svaraði móðir hans. En það varð enginn friður, því Matti stagaðist alltaf á að konan sín væri eins og geithafur. Þegar leið að morgni, sagði móðir hans. „Komstu nú upp sonur minn og kveiktu upp eldinn“. Matti klifraði þá alveg upp undir þak og kveikti þar í hálmi, sem stóð niður úr þekjunni, en þá kom svo mikill reykur að hann þoldi ekki við inni og varð að hraða sér út og eins fór fyrir móður hans, en hafurinn kom kumrandi á eftir. Og þegar hersingin var komm út, logaði upp úr þekjunni. Þegar Matti sá að bærinn brann, hróp- aði hann. „Til hamingju, til hamingju", honum fannst þetta besta brúðkaups- skemmtunin. váw MORödKi KAFFINU Karlmaóur spyr aldrei stúlku að þvf, hvort hún elski sig, fyrr en hann er nærri viss um að svo sé. Konan spyr karlmann aldrei að þvf, hvort hann elski sig, fyrr en hún er nærri viss um að svo sé ekki. Hann: — Ástin mfn, ég hefi misst alla mfna peninga. Eg á ekki eyrisvirði eftir. Hún: — Það gerir ekkert tii, vinur minn. Eg mun alltaf eiska þig, jafnvel þó við sjáumst ekki framar. X Tveir blökkumenn voru fyrir rétti í Bandarfkjunum ákærðir fyrir brot á umferðarlögunum. — Hafið þið fengið ykkur iögfræðing? spyr dómarinn. — Nei, svaraði annar, við höfum ákveðið að segja satt og rétt frá öllu. X — Hvernig stóð á þvf að þú fórst að kaupa fiðlu nágrann- ans. Ekki getur þú spilað á hana. — Nei, en það getur hann ekki heldur eftir að ég er búinn að kaupa hana. X Gfsli var f fæði hjá frú Jensen og borgaði 6000 krónur á viku. Hann borðar stöðugt meira og meira, þar til frú Jensen segir: — Nú má ég til með að hækka fæðið f 6500 krónur, Gfsli minn. — Nei, f guðanna bænum gerðu það ekki, ég á nógu erfitt með að borða fyrir 6000 krónur. X Kennarinn: — Hvernig fer með gull, ef það er látið liggja undir berum bimni? Nemandinn: — þvf verður stolið. Moröíkirkjugaröinum Mariu Lang Jóhanna Kristjóns- dóttir þýddi 37 hann getur sjálfsagt staðfest að ég vek ekki frá allan daginn. — Hvenær lokar verzlunin? — Klukkan hálf se*. Ég reyni alltaf að komast aðeins fyrr af stað á þriðjudögum. En ég býst ekki við að þið munið trúa mér.. . Við skulum athuga málið, Drury. — Ég veit að þið trúið mér ekki, en konan mín getur staðfest það og frændi minn lika. Eg fer alltaf tii Flagford á þriðjudögum að sækja grænmeti fyrir konuna mfna. Það er garðyrkjustöð við Clusterwell Road. Þar er lokað klukkan hálf sex, og þess vegna reyni ég að fá að fara fyrr, svo að ég nái þvf. Stundum get ég lagt af stað klukkan fimm en ég geri ráð fyrir að klukkan hafi vcrið orðin kortér gengin f sex á þriðjudag- inn, þegar ég komst af stað. Þegar ég kom á staðinn var enginn þar og enda þótt ég gegni á milli gróðurhúsanna og kallaði sá ég engan mann. — Svo að þér fóruð heim án þess að hafa náð í grænmetið? — Nei, það gerði ég ekki. Jú, ég gerði það reyndar. En ekki alveg strax. Þetta hafði verið mjög annasamur dagur og ég varð hálffúll yfir þvf að búið var að loka, svo að ég gekk inn f „Svan- inn“ og fékk mér drykk. Það var ung stúlka við afgreiðslu þar og ég hef ekki séð hana áður. Segið mér annars, er nauðsynlegt að konan mfn fái að vita þetta aflt. Eg er meðþódisti og eins og þér vitið þá er ekki gert ráð fyrir að við smökkum vfn. Burden dró andann djúpt. Morðmál á ferðinni og hér stóð maður og hafði áhvggjur af því að hann hefði laumast tii að fá sér glas af vfni! — Ókuð þér þjóðvegínn til baka? — Já. Og ég hef farið framhjá þeim stað þar sem skógarvegur- inn liggur upp f lundinn, þar sem hún er sögð hafa fundist. Drury reis á fætur og þreifaði fyrir sér á arinhillunni eftir síga- rettum. — En ég stansaði ekki. Eg ók rakleitt til Flagford. Eg þurfti að flýta mér eins og þér skiljið. Og svo skal ég segja ykkur annað. Mér hefði aldrei dottið f hug að gera Minnu mein. Hún var góð og indæl manneskja. Mér þótti vænt um hana. Eg gæti aldrei drýgt annað eins og þetta. Eg gæti aldrei drepið neinn! — Vitið þér hvort einhverjir fleiri kiilluðu hana Minnu? — Nei, bara þessi Doon. Eftir þvf sem ég veit bezt. Hún hefur aldrei sagt mér hans rétta nafn. En eins og ég sagði fannst mér háift f hvoru eins og hún blygðað- ist sfn fyrir hann. Ekki veit ég hvcrs vegna. Ég veit að hann var ríkur. Hún sagði líka að hann væri duglegur. Svo rétti hann úr sér og horfði ögrandi á lögreglumennina tvo: — En hun kaus mig heldur, sagði hann og var ekki laust við að örlaði á stolti f röddinni. Hann settist niður aftur og Wexford gaf Burden merki og þeir gengu fram. — Hringið í Svaninn og athug- ið hvort stúikan vill staðfesta frásögn hans um heimsökn þangað, sagði Wexford. Hann kom aftur von bráðar. Þá hafði Wcxford skoðað sig um og rekið augun í regnhettu sem var svipuð þeirri sem sagt var að Margaret Parsons hefði verið með þegar hún fór f sfðasta innkaupa- leiðangur sinn. — Konan mfn keypti þetta f fyrri viku, stamaði Drury þegar Wexford hélt regnhettunni upp að nefninu áhonum. — Hvers vegna spyrjið þér að þvf? — Vegna þess að hún er sam- kvæmt lýsingu nákvæmlega eins og sú regnhetta sem Margaret Parsons var með þegar hún sást sfðast. Og regnhettan hefur ekki fundist. Drury hneig saman f þögulli örvæntingu. — Ég vildi fá leyfi til húsrann- sóknar, sagði Wexford, og síðan var hafist handa og Bryant og Gates kallaðir á vettvang. — Stúlkan í Svaninum heitir Janet Tipping, sagði Burden. — Hún var ekki að vinna núna. Hefur ekki sfma, en ég er með heimilisfangið hennar. — Við biðjum Martin að fara og tala við hana. Þegar við höfum kembt húsið hér ætla ég að gera aðra tilraun til að ræða við Fabiu Quadrant. Hún hefur viðurkennt að hún og frú Parsons hafi verið vinkonur og hún er eiginlega sú eína sem hefur viðurkennt það ef frá er talinn vinur vor Dudley Drury. Burden dró fram skúffur og rótaði þvf sem þar var. — Haldið þér að hann sé Doon? sagði hann efins í svip og rómi. — Ég veit það ekki, sagði Wex- ford eftir nokkra þögn. — Það gæti sumt bent til þess, en við höfum ekkert áþreifanlegt til að fara eftir. Þetta kemur ekki heim og saman við kenningar mfnar, en þar sem við getum ekki leyft okk- ur að láta þær taka af okkur ráðin. Hann gáði f hverja einustu bók

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.