Morgunblaðið - 02.03.1976, Síða 7

Morgunblaðið - 02.03.1976, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1976 7 Samskipti APN og íslenzkra fjölmiðla Þegar Þ'ng kommúnistaflokks Sovét- rikjanna hófst á dögunum flutti Leonid Brezhnev ræðu þar sem hann gerði grein fyrir stefnu Sovét- ríkjanna i utanrikis- og innanríkismálum næstu fimm árin, auk þess sem hann túlkaði hina opin- beru sovézku skoðun á at- burðum siðustu fimm ára. Fjöldi erlendra frétta- manna var viðstaddur flokksþingið og flutti fregnir af þvi, m.a. starfs- menn þeirra fréttastofn- ana, sem islenzkir fjöl- miðlar leita heimilda hjá að staðaldri. Það hefur vakið athygli, að Tíminn hefur að þessu sinni ekki séð ástæðu til að hafa fregnir af flokks- þinginu og ræðu Brezh- nevs eftir hinum hefð- bundnu heimildum, heldur er eina heimild Timans hin opinbera áróðursstofnun Kreml- stjórnarinnar, APN. Áróðursstofnun þessi eða dreifimiðstöð getur að sjálfsögðu ekki kallazt fréttastofa, þar sem hún stundar ekki eiginlega fréttamennsku eins og þá, sem tiðkast í lýðræðisrikj- um. Frjáls blaðamennska þekkist ekki í Sovétrikjun um, frekar en öðrum ein- ræðisrikjum. Fjölmiðlar eru þar undir oki ríkis- valdsins, eins og öll önnur starfsemi, og ritskoðun er þar alger. í samræmi við þetta er hlutverk APN ekki að flytja fréttir, held- ur að dreifa efni, sem sovézk stjórnvöld telja sig þurfa að koma á framfæri. Þetta er í megindráttum ástæðan fyrir þvi, að Morgunblaðið hefur ekki séð sér fært að taka til birtingar efni, sem APN- útibúið hér á landi otar stöðugt að því og öðrum fjölmiðlum. Morgunblaðið býður lesendum sinum ekki upp á það að flytja þeim lesefni frá hrein- ræktaðri áróðursmiðstöð, er hefur það eitt að mark- miði að útbreiða viður- kenndar skoðanir ein- hverrar ríkisstjórnar. Sakleysi eða auðsveipni? Morgunblaðið hefur blessunarlega haft minni ama af ýtni APN en átti sér stað á tímabili, en áð- ur en flokksþingið í Moskvu hófst, spurðist það, að APN hefði gert fréttastofu útvarpsins margítrekuð tilboð um milliliðalausar frétta- sendingar af flokks- þinginu. Þessu tilboði sá fréttastofan sér að sjálf- sögðu ekki fært að taka. Tímanum þykir slíkur þrýstingur hins vegar ekki mjög hvirnleiður, ef marka má af því, að dag- inn eftir að þingið hófst, birti blaðið formála- og athugasemdalaust fjögurra dálka langhund yfir þvera baksíðu. Þar var kominn úrdráttur úr ræðu Brezhnevs, beint úr verksmiðjunni, og óspjallaður af ,,andsovézkum" öflum. Pistill þessi var að sjálf- sögðu ein samfelld lof- gjörð um óskalandið Sovét, með stöku krydd- korni innan um, þar sem kvartað var undan ,,heimsvaldastefnu", maóisma, áhrifaöflum, fjandsamlegum „détente" og öðru i líkum dúr. Þjóðviljinn hafði frásögn sina eftir APN, en helgaði henni mun minna rúm en Tíminn, og þótti ekki við hæfi að flenna hana út á útsíðum. APN- pistill Þjóðviljans var að því leyti trúverðugri en út- gáfa Timans, að þar birtist vísir að alvörufrétta- skýringu, þannig að viður- kennt málgagn kommúnista virðist ekki vera jafnsólgið i hráan áróður Kreml- stjórnarinnar og málgagn Framsóknarflokksins, hvort sem ástæðan er sakleysi eða auðsveipni hins siðarnefnda. Þetta er að vísu ekki ný bóla. Tíminn hefur verið allra blaða iðnastur við að gleypa hrátt og birta efni það, sem berst i striðum straumum frá dreifingar- miðstöðinni APN. Þetta kjarnmeti er að jafnaði flatt út um viðáttur Timans. Oft í viku gefur að lita þar mergjaðar lýsingar á Sovétsælunni, — jafnt í Spegli timans sem i virðingarsessi við hliðina á forystugrein blaðsins. Þannig birtist itarlegur úrdráttur úr „fréttaskýringu" APN um flokksþingið sama dag og ofangreind frásögn birtist' á fréttasíðu blaðsins. Fréttaskýrandi Tímans gerir ekki minnstu tilraun til að tjá þar skoðun sina á hinni opinberu sovézku skoðun, en skrifar undir boðskapinn eins og hann kemur af skepnunni. Höfundur forystugrein- ar og fréttaskýringar er hinn sami ritstjóri Timans, Þ.Þ. Þegar formaður utan- rikismálanefndar Alþingis, þingmaður Reykvíkinga, formaður útvarpsráðs og ritstjóri málgagns Fram- sóknarf lokksins, sem er einn og sami maðurinn, var fjarverandi vegna setu á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, brá svo við, að langt hlé varð á birtingu efnis frá APN. Máttarstoðum Fram- sóknarf lokksins úr bændastétt og samvinnu- hreyfingu er ekki láandi þótt urgur sé í röðum þeirra vegna þessara sér- kennilegu tengsla flokks- málgagnsins við Kreml- stjórnina, sem vinnur ötullega að því, Ijóst og leynt, að kollvarpa þjóð- skipulagi þvi, sem tíðkast i lýðræðisrikjum, og lýð- ræðisflokkar, eins og t.d. Framsóknarflokkurinn, hafa átt þátt i að móta. Mafíuskór skulu þeir heita ítalskir leðurskór m/hrágúmisóla. Svartir og brúnir; 7400. kr Póstsendum SKÓBÚÐIN SUÐURVERI GRÁFELDUR HF Stigahlíö 45 sími 83225 Ingólfsstræti 5 sími 26540 EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Al (iI,VSIN(;.\- SIMINN F,R: 22480 Þrýstimælar Hitamælar i_L SfliyirDaQiyisxuir Vesturgötu 16, sími 13280. Vesturgötu 1 6, sími 1 3280. <g@ SKIPAUTC.CRÐ RIKISINS m/s Esia fer frá Reykjavík miðvikudaginn 3. mars vestur um land til ísafjarðar. Vörumóttaka: Mánu- dag og þriðjudaq. Hver er hvað? Þegar þú þarft aö finna rétta viðskiptaaðilann til þess að tala við, þá er svarið að finna í uppsláttarritinu ”ÍSLENSK FYRIRTÆKI” Þar er að finna nöfn og stöður þúsunda stjórnenda og starfsmanna í íslenskum fyrirtækjum, hjá stofnunum og félagasamtökum og auk þess starfsmenn stjórnar- ráðsins og sveitarstjórnar- menn. Sláið upp í ’ISLENSK FYRIRTÆKI” og finnið svarið. FÆST HJÁ ÚTGEFANDA. | OTSOLU- er að ■KjSSWgS.; ENN BETRI KJOR, ENÁ VETRAR ÚTSÖLUNNI □ ALLT NÝJAR OG NÝLEGAR VÖRUR □ ÓTRÚLEGT VÖRUÚRVAL □ LÁTIÐ EKKI HAPP ÚR HENDI SLEPPA Laugavegi 66, sími 28155

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.