Morgunblaðið - 02.03.1976, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 02.03.1976, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 197fi Guðfinna Björnsdóttir: Hún er á níræðisaldri og vinnur enn fullan vinnudag og þó rlflega það, en það sem er enn forvitnilegra, hún vinnur á trésmíðaverkstæði almenn störf og hefur gert það síðastliðin 30 ár, 9—10 tíma á dag. Guðfinna Björnsdóttir heitir þessi galvaska kona, sem þó hefur átt við heilsufarsleg vandamál að stríða allan sinn starfstíma í trésmiðinni, en slikt lítur hún smáum augum og forsjóninni er hún þakklát fyrir lífstréð. Mitt í allri skipulagningunni vestur í bæ þar sem mannlifið fær að njóta sin i þægilegu umhverfi, dólar lítið trésmiðaverkstæði í fbúðarhúsi og það hefur dólað þarna sfðustu áratugina og sannað að ekkert er eðlilegra en saman fari á einhvern hátt sambúð atvinnuhúsnæðis og heimila. Hagamelur 47 heitir húsið samkvæmt götuskránni, en upp á gamla mátann heitir það Mávahlfð og þar sem fyrrum var fjós og hlaða þarna i Vesturbænum er nú trésmíðaverkstæðið sem Guðfinna átti og rak ásamt manni sínum Magnúsi F. Jónssyni um árabil og þar vinnur hún dag hvern, en húsið Mávahlfð reisti upphaflega Hólmfríður Gfsladóttir. Árið 1948 hlaut hún slæmt lærbrot og síðan hefur hún átt í þvi meira og minna, þvi fóturinn styttist og siðustu 6 árin hefur hún gengið við staf úti og inni, en vinnuna stundar hún eins og unglamb, þótt hún sé á nfræðisaldri. „Æ, ég hef ekki frá neinu að segja, þetta hefur allt gengið svo ágætlega og ég hef aldrei hitt nema gott fólk", sagði Guðfinna þegar ég rabbaði við hana stundarkorn vestur i Mávahlíð. Fædd er hún 18. júlí 1895 i Núpsdalstungu i Núpsdal í Fremri Torfustaðahreppi i einum af Mið- fjarðardölum. Þar var hún til 24 ára aldurs er hún fluttist á næsta bæ og giftist Magnúsi F. Jónssyni. Þau bjuggu saman i 55 ár, en hann lézt á s.l. ári. Þar bjuggu þau siðan til 1 944 er hún lenti í lærbrotinu og veður skipuðust. Þau höfðu átt um 100 kindur, en eitt árið í kreppunni drápust 40 þeirra úr árans mæðiveik- inni og það var dýrt, þvi litlar voru bæturnar. Þegar Guðfinna lenti i slysinu varð hún að liggja í 16 mánuði á sjúkrahúsi, fyrst á Hvammstanga, siðan Á níræðisaldri og vinnur fullan vinnudag á tré- smíðaverkstæði og hefur gert í 30 ár____ Oll gæruskinnsmerkin eru stimpluð í þess- ari gömlu prentvél og Guðfinna sér um það. Merkjafjöldinn sem þau búa til þarna á verkstæðinu er um 1 milljón á ári og hver stimplun þarf eitt handtak. Þarna er Guð- finna að taka eitt af sínum milljón handtök- um á ári sem fara aðeins í þennan lið framleiðslunnar. Horft á sjónvarpið að loknum vinnudegi. „Þótt ég sé örþreytt að kvöldi er égstáislegin aðmorgni” á Landakoti. Um þetta leyti brugðu þau Guðfinna búi og fluttu suður. Magnús hafði áður fengist nokkuð við smiðar hjá Sigfúsi i Fjölni í Reykjavík. en þegar þau komu suður byrjuðu þau með tvær hendur tómar og meira en það. En Magnús kom af stað smíðaverkstæði í hlöðukompu á Bjargi á Seltjarnarnesi þar sem þau fengu inni fyrst um sinn hjá Jóhönnu systur Guðfinnu og ísak Vilhjálmssyni mági hennar. Þau urðu nú í rauninni að byrja upp á nýtt. Veturinn 1919 hafði verið þeirra fyrsti búskapar- vetur nyrðra, þá voru þau i húsmennsku, en allir lentu i skuldum eftir þennan erfiða vetur og það var ekki hægt um vik til athafna, en búskaparbaráttan stóð i 24 ár „og þar var lánið okkar," sagði Guðfinna, „eins og alltaf, að við höfðum gott fólk með okkur." Húsið Mávahlið við Hagamel er eitt af fáum húsum á þessu svæði sem er inni i skipulaginu án þess að vera sett þar á teikniborðinu og það er jafnframt eitt af fáum húsum sem setur sérlega mannlegan svip á umhverfið. Við austurhlið þess er fjölbýlishús og annað er að rísa við vesturhliðina. Ég spurði Guðfinnu hvort hún væri ekkert orðin fyrir i skipulaginu: „Kannski húsið fái að tóra meðan ég tóri, annars veit maður aldrei hvað blessuð yfirvöldin gera," svaraði hún. „Hvað réð því upphaflega að þú fórst í smíðarnar?" „Það var til að reyna að vinna eitthvað og um leið til að styrkja mig eftir leguna. Því fór ég nú í dútlið, en það er nú ef til vill ekki hægt að kalla það smiðar, ég spila svona inn i og hérna höfum við Salómon unnið. Hann er Hafliðason, uppeldisbróðir Magnúsar heitins og það vil ég segja án þess að niða nokkurn að betri starfsmann en Salómon er ekki hægt að hafa. Það getur verið hægt að hafa eins góðan starfsmann, en ekki betri. Hann er á áttræðisaldri og hefur unnið liðlega 20 ár hér á verkstæðinu. Sjálf er ég búin að vera 30 ár í trésmiðinni og alltaf réttindalaus að öllu leyti. Ég skal segja þér, ég held að ég hafi verið léleg húsmóðir, við höfðum litið heimili og það var alltaf fátækt meðan við bjuggum, við komumst svona af og það var ekki sultur." Þarna vissi ég að Guðfinna hafði skrökvað að mér, þvi mér var kunnugt um myndarskap hennar og dugnað i heimilishaldi, enda oft gestkvæmt hjá henni þótt henni þyki aldrei neinn lita inn. Á borðinu var hangikjöt, kleinur, pönnukökur og súkkulaði. É spurði hana um vinnudaginn. Ég hef alltaf unnið fullan vinnudag frá kl. 7.30 og til klukkan 5 og geri enn. Ég er nú kannski ekki seinust á verkstæðið. en það er nú ekki til að hafa orð á ." Hins vegar hafði Salómon sagt mér að ávallt þegar hann liti út um gluggann kl. 7 á morgnana, en hann býr i næsta húsi, þá væri búið að kveikja Ijós á verkstæðinu oft löngu fyrir sjö og Guðfinna væri tekin til starfa af fullum krafti þegar þeir karlmennirnir kæmu siðan á venjulegum vinnutima. „Ég vinn svona almenn verkstæðisstörf," svaraði Guðfinna, „við bútsögina, bandsög, heflun og slíkt, en það er ein vél sem ég hef ekki unnið við og það er stóra vélsögin. Við vinnum mikið af alls konar kúst- sköftum, rimlum og ýmislegt, t.d. burstatré fyrir Burstagerðina og Blindravinnustofuna, gærumerki fyrir allt landið og s.l. ár smiðuðum við upp undir milljón gærumerki úr tré. Fyrr smíðuðum við ákaflega mikið amboð, hrífur og orf, en það hefur minnkað í seinni tið þótt við bregði. Afköstin hafa ekki alltaf verið mikil, en þetta hefur verið dægrastytting. Maður hefur verið hjálparkokkur við það sem lítils þarf með. Æ, nú er þetta orðið blessað raup, maður má aldrei segja neitt á þessum aldri, það verður raup. En það er líka satt að mér hefur líkað öll ævin vel, hef ekki haft yfir neinu að kvarta og allt hefur einhvern veginn slampast af. Að slepptu því sem fótameinið hefur bagað mig hef ég alltaf verið ákaflega heilsugóð og þótt ég sé dauðþreytt að kvöldi eftir vinnudaginn, er ég stálslegin að morgni og til í tuskið. Það er þó ekki mér að þakka með heilsuna, auðvitað þeim sem hjálpar manni alltaf og það veizt þú nú IFklega hver er, en góði, eigum við nú að vera að hafa þetta meira, það er af svo litlu að smíða. Ég skil ekkert F þér að vera að þessu, það eru svo Framhald á bls. 25 Texti: Ární Johnsen ‘Myndir: Friðþjóður Helgason Guðfinna Björnsdóttir með trésmiðaverkstæðisskupluna. Það þarf einnig öryggi til að nota bandsögina. Salómon Hafliðason er á áttræðisaldri og hefur unnið á verkstæðinu í um það bil 20 ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.