Morgunblaðið - 02.03.1976, Page 33

Morgunblaðið - 02.03.1976, Page 33
ffiorjjiimXiInftifr MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1976 17 [ Iprðttlr 1 Þórunn Alfreósdóttir setti nýtt Islandsmet I fjórsundi og með- fylgjandi mynd RAX sýnir þessa bráðefnilegu sundkonu í bak- sundinu. Ægir fékk 2 Islands- met í afmælisgjöf Þórunn Alfreðsdóttir setti nýtt íslandsmet I 400 metra fjórsundi kvenna á afmælismóti Ægis sem lauk i Sundhöllinni í gær. Þá setti sveit Ægis sömuleiðis nýtt met i 2 x 200 metra skriðsundi karla. Unga fólkið sýndi margt sinar beztu hliðar og þar var fremstur i flokki Ármenningurinn Brynjólfur Björnsson. sem setti fjögur ungl- ingamet. Yfirleitt var árangur allgóður á mótinu og árangur sundfólksins ætti að geta orðið enn betri á næstunni, en innan skamms er t.d. bikarkeppni Sundsambands- ins á keppnisskránni og siðar inn- anfélagsmót t.d. hjá Ægi, þar sem reynt verður við Ólympiulágmörk- in. Þórunn Alfreðsdóttir synti 400 metra fjórsundið á 5.31.7 og bætti eldra met sitt um 4 sekúndubrot. Boðsundsmetið var hins vegar enn glæstara þvi það var bætt um tæpar tiu sekúndur. —Þetta var að sjálfsögðu gott, en við eigum enn eftir að bæta metið um tiu sekúndur á næstu mótum, sagði Guðmundur Harðarson þjálfari Ægis að sundinu loknu. Metið i 4 x 200 metra skriðsundi karla er nú 8:36.5 og i sveitinni sem setti metið voru Sigurður Ólafsson, Bjarni Björnsson, Hafliði Halldórs- son og Axel Alfreðsson. Drengjamet sin setti Brynjólfur Björnsson i 400 m fjórsundi (5 09.9), 1500 metra skriðsundi (17:57.9), 200 m skriðsundi (2:10.1) og 800 m skriðsundi (9:22.3). Er Brynjólfur mikill keppnismaður og á örugglega eftir að láta mikið að sér kveða ef hann sinnir æfingum I framtiðinni af kappi. Það sama má reyndar segja um margt annað sundfólk sem keppti á mótinu, t.d. Ingibjörgu Jensdóttur, sem vann bikar Geirs Þórðarsonar fyrir sigurinn i 100 m skriðsundinu og Þórunn Alfreðs- dóttur — sem þó er að visu orðin meira en efniteg. Ferðalnið laniSsliðið lenti Vegna verkfallanna komst is- lenzka landsliðið ekki af stað i ferð sina fyrr en á sunnudagsmorguninn, og kom það til Luxemburgar um hádegisbilið. Leikurinn fór svo fram um miðjan dag, og má geta nærri hvort það hefur ekki setið í íslenzku landsliðsmönnunum að fá engin tækifæri til hvildar eftir ferðalagið. Liðið var lika lengst af ekki sjálfu sér likt — alltof óákveðið sérstaklega i sóknarleiknum, enda sætir það nokkrum tiðindum að það skuli ekki skora nema 18 mörk gegn slöku liði Luxemburgara. Skýrt er þó að taka það fram, að markvarzla Luxemburg- aranna i leiknum var mjög góð allt frá upphafi til enda, en það var hún lika i leik Luxemburgar og Júgóslav- iu á dögunum, en þann leik unnu júgóslavarnir 27—11. Sögðu þeir eftir leikinn að markvörður Luxem- burgar hefði hreinlega bjargað liði sinu frá miklu stærra tapi. íslendingar náðu forystu i leiknum á sunnudaginn þegar úr fyrstu sókn- inni með marki Ólafs Einarssonar, en Luxemburgararnir jöfnuðu og aftur var jafnt á tölunni 3:3. Eftir það náði islenzka liðið svo heldur betur tökum á leiknum og fór að siga fram úr. Um miðjan fyrri hálfleikinn var staðan 7:3 fyrir island og mátti slikt teljast eðlilegt. En það sem eftir var hálf- leiksins skoraði islenzka liðið ekki eitt einasta mark, og Luxemburgur- unum tókst að jafna við mikinn fögn- uðu heimamanna sem fylgdust með leiknum og fóru þar með að gera sér vonir um sigur sinna manna. Á þess- um leikkafla var islenzka liðið rétt eins og miðlungs annarrar deildar lið. og ráðleysi einkenndi allan sókn- arleik þess. Virtist með öllu vera háð tilviljunum hvað út úr spili þess kom, og Luxemburgurunum, sem börðust með miklum ágætum, tókst að stöðva sóknirnar, eða þá að hinn ágæti markvörður þeirra varði frem- ur lin skot islenzku skyttnanna. I seinni hálfleiknum var hið sama upp á teningnum til að byrja með. Islendingar breyttu reyndar vörn sinni nokkuð og léku hana svipað þvi og þeir gerðu i seinni hálfleik i leikn- um i Reykjavik með góðum árangri. Farið var fram og reynt að trufla sóknir Luxemburgaranna og stela frá þeim knettinum. Heppnaðist þetta bærilega. en sóknir islenzka liðsins nýttust illa, sem i fyrri hálfleiknum og erfiðlega gekk að ná afgerandi forystu. Var staðan þannig 10—8 fyrir Island þegar 10 mínútur voru af hálfleiknum. En þá tóku dómararnir sem allt frá til þessa höfðu látið það átölulaust þótt Luxemburgararnir spiluðu knettinum lengi á milli sin án þess að ógna. að dæma töf á þá, og varð það til þess að þeir fóru að missa enn frekar tök á leiknum. Nokkrum sinn- um náði islenzka liðið hraðaupp Ólafur Einarsson skoraði flest mörk (slenzku leikmannanna ( leiknum gegn Luxemburg. Meðfylgjandi mynd er úr landsleik frá þv( fyrr (vetur. hlaupum og munurinn tók að aukast. Undir lokin skoraði is- lenzka liðið svo nokkur mörk sem Luxemburgurunum tókst ekki að svara og bjargaði þannig andliti sinu eins og unnt var, en 18:12 sigur yfir Luxemburg þykir áreiðanlega ekki frásagnar- né hólsverður. Beztu menn islenzka liðsins i leiknum voru þeir Ólafur Einarsson og Jón Karlsson, og voru þeir raunar þeir einu sem léku af eðlilegri getu. Þá átti Árni Indriðason og Sigurberg- ur Sigsteinsson einnig allgóðan leik. MORK ISLANDS SKORUÐU Ólafur Einarsson 6. Jón Karlsson 3, Páll Björgvinsson 2, Jón Hjaltalin 2, Sigurbergur Sigsteinsson 2, Ólafur Jónsson 1, Friðrik Friðriksson 1, Ámi Indriðason 1. í Iröimi með Lnxembnrgara FEROLÚIÐ (slenzkt handknattleikslandslið lenti í hálfgerðum þrengingum í seinni leik sinum við Luxemburgara í undankeppni Ólympluleikanna I handknattleik, en sá leikur fór fram I Luxemburg á sunnudaginn. 18—12 fyrir ísland urðu úrslit leiksins, eftir að staðan hafði verið jöfn, 7—7, I hálfleik, og framan af fyrri hálfleiknum hafði verið um mikinn barning að ræða. Varð það ekki fyrr en úthaldið tók að bresta hjá Luxemburgurunum að íslendingum tókst að sigla sæmilega fram úr og tryggja sér sigurinn. Allir þeir beztn nú með í f\T*sta skipti í langan dma! islenzka landsliðið í körfuknattleik mun leika þrjá landsleiki við Portúgai hér á landi í byrjun næsta mánaðar og hefur nú verið valinn 17 manna landsliðshópur fyrir þá leiki. Úr þeim hópi verða síðan valdir 10 leikmenn tii keppni á Polar Cup, sem fram fer hálfum mánuði síðar. I viðtali við Gylfa Kristjáns- son formann landsliðsnefndar f g<er sagði hann að landsliðshöp- urinn sem nú væri valinn væri án efa sá sterkasti sfðan hann hefði byrjað að hafa afskipti af málum landsliðsins. —Allir þeir leikmenn, sem leitað var til gáfu kost á sér, að Þorsteini Hallgrfmssyni undanskildum. Venjan hefur verið sú undan- farin ár að 4—5 leíkmenn að minnsta kosti hafi ekki séð sér fært að leika með landsliðinu hverju sinni. Þeir leikmenn sem valdir hafa verið í landsliðshópinn munu allir leika gegn Portúgöl- um — einn leik hver að minnsta kosti. Landsliðshópur- inn er skipaður eftirtöldum: Bakverðir: Jón Sigurðsson Armanni, Kristinn Jörundsson IR, Kolbeinn Kristinsson IR, Kári Marisson UMFN, Guð- steinn Ingimarsson Armanni, Kolbeinn Pálsson KR. Framherjar: Þórir Magnús- son Val, Torfi Magnússon Val, Gunnar Þorvarðsson UMFN, Bjarni Jóhannesson KR, Agnar Friðriksson IR, Birgir Jakobs- son IR, Simon Ólafsson Ar- manni. Miðherjar: Jónas Jóhannes- son UMFN, Bjarni Gunnar IS, Jón Jörundsson IR, Jón Héðins- son IS. Af þessum leikmönnum eru þeir Agnar Friðriksson, Jón Héðinsson, Birgir Jakobsson og stórskyttan Þórður Magnússon nýir í landsliðshópnum — þ.e.a.s. þeir léku ekki gegn Bretum á dögunum. Celtic á toppn- um eftir toppleik Með snilldarleik gjörsigruðu leikmenn Celtic eina helztu and- stæðinga sfna f skozku „útvalsdeildinni" á laugardaginn. Urslit leiksins urðu 4:0 og það voru ekki ómerkari andstæðingar en leikmenn Hibernian sem að þessu sinni máttu hfta f súra eplið á Parkhead — heimavelli Celtic. Celtic hefur forystu i deildinni um þessar mundir — er með 38 stig að loknum 26 leikjum. Rangers er með einu stigi minna eftir t jafnmarga leiki. Þessi tvö lið virðast i nokkrum sérflokki i deildinni, en næstu lið eru Hibernian og Motherwell, sem hlotið hafa 32 og 31 stig. Jóhannes Eðvaldsson átti góðan leik með Celtic á laugardaginn eins og yfirleitt i leikjum liðsins i vetur. Hann skoraði þó ekki i leiknum, enda lék hann sem aftasti maður í vörninni. Um markaskorunina sáu þeir Bobby Lennox (2), Paul Wilson og Kenny Dalglish. Annað kvöld á Celtic að leika gegn a-þýzka liðinu Sachsenring Zwickau í Evrópukeppni bikarmeistara. Sagði þjálfari þess liðs að loknum leiknum á laugardaginn að það yrði erfitt að glima við jafn sterkt lið og Celtic á þeirra eigin heimavelli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.