Morgunblaðið - 02.03.1976, Page 25

Morgunblaðið - 02.03.1976, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1976 29 fclk í fréttum Glaðir endurfundir. Orestes (t.h., Richard Johnson) kemur heim eftir langa f jarveru og er fagnað innilega af Elenu og eiginmanni hennar (t.v., Frank Wolff). Það þvrmir yfir Elenu og sektarkenndin er óbærileg, eftir að elskhugi hennar hefur ráðið eiginmanninum bana. + Raquel Welch fór með hlut- verk ungu konunnar Elenu I kvikmyndinni „The Beloved", sem gerð var eftir leikriti stjórnandans, George Pan Cosmatos. Myndin var tekin á Kýpur. Elena er óánægð I hjónabandinu og leitar til æskuvinar slns, þegar hann kemur heim til eyjarinnar eftir 15 ára fjarveru erlendis. Aðal- leikendur I The Beloved auk Raquel Welch eru Richard Johnson, Flora Robson, Jack Hawkins og Frank Wolff. + Menn voru ekki sem ánægðastir með Anthony Perkins I hlutverkinu sem hann fór með á Broadway I leikritinu Equus. Hann fékk u.þ.b. fimm og hálfa milljón kr. fyrir að hafa sig á braut, og Richard Burton var fenginn f hans stað. + ANDREYKINGAMENN: Roy Bushfield (t.v.) og Ted Best, sem sitja I fræðsluráði Ottawaborgar, bera hér gas- grímur á fræðsluráðsfundi I mótmælaskvni við reykinga- fólk I fræðsluráðinu. Á fund- inum var rædd sú hugmvnd Bushfields að banna revkingar á fundum ráðsins. + OVENJULEGUR POPPARI. Roy Wood (Move, Electric Light Orcestra, WiZard) þykir frábær hljómlistarmaður, laga- höfundur og útsetjari. En hann virðist aldrei hafa frið I sínum beinum. Ef til vill er það af þvf að hann er að upplagi tengdari klassfskri hljómlist en poppi eins og hans aðalhljóðfæri, sellóið. Hann spilar hins vegar á hvaða hljóðfæri sem er og hefur gert mörg lög sem náð hafa miklum vinsældum, bæði fyrir eigin hljómsveitir og aðrar. BO BB & BO </02-11' w Una Pétursdóttir Amœliskveöja I sálarþroska svanna býr sigur kynslóðanna. Frú Una Pétursdóttir, Kambs- vegi 3, verður 80 ára þann 16 þ.m. Vegna fjarlægðar get ég ekki heimsótt hana á afmælisdaginn, en sendi henni örstutta þakk- lætiskveðju. Við biðjum henni blessunar á þessum tímamótum og þökkum meira en 40 ára kynni. Reynum öll að meta og muna minninganna sjóð, gott er við þann eld að una, eignin/ú er góð. Eins og Austur- Húnvetningurinn sagði. Una er mjög vel gefin kona og umfram allt vel gerð. Hún ólst upp við kröpp kjör eins og flestir af henn- ar aldursflokki, en hún lét ekki baslið smækka sig. Hún stóð uppi ung ekkja með þrjár dætur, átti þá kost á að sundra fjölskyldunni en vissi að það er öllu lífsböli ömurlegra. Hélt því hópnum sín- um saman þó örðugt væri. Hún giftist haustið 1934 ung- um, fátækum, heilsulitlum en viljasterkum málarasveini, Ingþóri Sigurbjörnssyni. Þau hafa síðan borið byrðar lífsins saman, „tekist þá tveir vilja“. Una er óvenjulega nærgætin við sjúka, og athugul á því sviði sem mörgum öðrum, þegar eigin- maður hennar lá sjúkur heima mikinn hluta úr vetri var það henni að þakka öllum fremur, að hann gat sagt: úr litlu eins og bóndi hennar orð- aði það einhvern tíman í ræðu, að húsmæðraefnum íslensku þjóðar- innar yrði kennt. Skarfakál og jafnvel fíflablöð urðu hnossgæti í góðu salati, það get ég borið um. Nú býr afmælisbarnið við nokkuð batnandi heilsu, betri fjárhag og bestu umhyggju ástvina, veitandi sjálf af góðhug og rausn. Ég vona þvi að hún geti tekið undir með skáldinu: Ég hef glaða og létta lund ljóð og grín á vörum. Enginn sækir á minn fund angurs hreim í svörum I byrjun sambúðar þeirra byggðu þau sér lítið sveitabýli, þar sem nú er nær því miðborg Reykjavikur. Þá var fjárhagurinn mjög þröngur en húsfreyjan hlúði að ungum syni, vöxnum dætrum, eiginmanni og öllum mállausu vinunum sínum, allt frá kisunni og litlu hænuungunum til bjarg- vættarins í fjósinu, mjólkurkýr- innar. Og með óvenjulegri nýtni tókst að seðja marga munna, skylda og vandalausa, gera mikiö Jón Olgeirsson skipaður aðalræð- ismaður í Grimsby JÖN Olgeirsson hefur verið skip- aður aðalræðismaður Islands í Grimsby segir í frétt frá Mike Smartt, fréttaritara Mbl. Jón sem er lesendum Morgunblaðsins að góðu kunnur, hefur yerið vara- ræðismaður i Grimsby 's.l. 4 ár og hann var settur aðalræðismaður á dögunum þegar Carl Ross sagði starfinu lausu til að mótmæla að- gerðum íslenzkra varðskipa gegn brezkum togurum. Jón Olgeirsson er 31 árs gamall. Vilja frumvarp ráðherra óbreytt FUNDUR forsvarsmanna nokkurra almenningsbókasafna haldinn í Norræna húsinu 15. febrúar 1976 vekur athygli á þeirri óvissu, sem nú ríkir í bóka- safnsmálum þjóðarinnar. Starf- hæf lög um almenningsbókasöfn eru ekki lengur til. Fundarmenn telja mjög varhugavert, ef ríkið kippir algjörlega að sér hendinni með fjárframlög, einkum mundi það bitna illa á bókasöfnum í fá- mennari byggðarlögum. Þvi skor- ar fundurinn á Alþingi að sam þykkja nú þegar óbreytt frum- varp það um almenningsbóka- söfn, sem menntamálaráðherra lagði fram á fyrsta degi yfir- standandi þings. Elli þú ert ekki þung anda af guði kærum. Og ég vil undirstrika áframhaldið Göfug sál er ávallt ung undir.silfur hærum. Þau hjón eru félagslynd söng- vin og góð heim að sækja, hafa bæði næman smekk fyrir ljóð og létt mál. Það er með fáum jafn gaman að hlæja á gleðistund sem Unu Pétursdóttur. Þó hefur alvara lífsins að sjálf- sögóu markað spor þeirra sem flestra fullorðinna. Una hefur ferðast um landið sitt opnum aug- um svo sem ástæður þeirra hjóna hafa leyft. Hún ann blómum og gróðri og er minnug á örnefni og ættartengsl. Þau hjón hafa líka ferðast erlendis m.a. heimsótt dótturina sem er búsett í Noregi og hefur alltaf verið þeirra óskabarn, þó þau hafi notið meiri daglegra samvista við góð börn búsett hérlendis. Að endingu sendi ég og fjöl- skyldu mín afmæliskveðju með orðum fyrrnefnd Húnvetnings: Fegri gæfan fjölskyldunnar vegi fjölgi ættin þegar tímar líða. Brosi gieðin bjart á nótt og degi beri lýsigull til næstu hlíða. Örugg reynist ásta og vonavígin. varni engum geislum þoku skýin. G. Sigurlaug Gunnlaugsdóttir Kollafossi. Hverfasam- tök í Laugar- neshverfi HVERFASAMTÖK Sjálfstæðis- manna í Laugarneshverfi halda spila- og skemmtikvöld að Lang- holtsvegi 124, annað kvöld, fimmtudag 26. febrúar kl. 20.30.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.