Morgunblaðið - 02.03.1976, Síða 31

Morgunblaðið - 02.03.1976, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1976 35 — Meiri hluti loðnu- flotans farinn á veiðar Fulltrúar sjómanna bíða eftir ákvörðun yfirnefndar um nýtt fiskverð. Ljósm öi.k.m Framhald af bls. 36 atkvæðagreiðslu um sjómanna- samningana var léleg. Má sem dæmi nefna, að í Sandgerði greiddu aðeins 12 menn tkvæði, en þaðan eru gerðir út milli 30 og 40 bátar og á þessum flota eru um 300 menn. 1 Reykjavík greiddu aðeins 50 menn atkvæði, en í báta- deild Sjómannafélags Reykja- víkur er talið að séu 300—400 menn. Atkvæðagreiðsla um samninga hófst sums staðar í gærmorgun. 1 Hafnarfirði voru þeir felldir með 40 atkvæðum gegn 12, í Gerða- hreppi voru jpir felldir með 5 atkvæðum gegn 3, í Reykjavík með 37 gegn 9, í Sandgerði með 8 gegn 3 og f Keflavík voru þeir felldir með þorra atkvæða. Þess má geta að sjómenn í Keflavik skáru á landfestar Helgu Guðmundsdóttur BA þegar skip- verjar ætluðu að landa fullfermi af loðnu í Njarðvík í gærkvöldi. Hins vegar voru samningarnir samþykktir i Vestmannaeyjum með 45 atkvæðum gegn 37, á Akranesi voru þeir samþykktir með 56 atkvæðum gegn 15 og i Þorlákshöfn með 17 atkvæðum gegn 2, í Grindavík með 26 gegn 24 og á Eyrarbakka með 11 gegn 5. Mismunandi launahækkun Miklar kerfisbreytingar áttu sér stað með nýju kjarasamningunum hjá sjómönnum. Stafar það fyrst og fremst af miklum niðurskurði sjóðakerfisins með því að fella niður olíusjóð og hluta vátrygg- ingasjóðs. Launahækkun sjó- manna er mjög misjöfn, en á bátum undir 60 rúmlestum verður 16—20% launahækkun, á bátum sem eru 100 rúmlestir er hækkun- in 10% og síðan lækkar hækkunin niður í 6—8% á stærstu bátunum. Á minni skuttogurum nemur hækkunin ekki nema um 2%. Þessar launahækkanir koma að hluta af niðurfellingu olíusjóðs og vátryggingasjóðs og fiskverðs- hækkun allt að 24% sem stafar af lækkun útflutningsgjalda. Fiskverðshækkun, sem er meiri en 24%, bætist síðan ofan á þessar prósentutölur. Stór þorskur hækkaði t.d. um 36% eins og fyrr getur og fá þvi þeir sjómenn, sem fá mikið af stórum þorski, 12% hækkun til viðbótar. Umtalsverð breyting hefur orðið á kauptryggingu sjómanna. Nú fá sjómenn kauptryggingu og að auki aflahlut. Kauptryggingin hækkar eins og almennt kaupgjald og verður nú 90—100 þúsund krónur. Síðan er það ákvæði í samningun- um, að á aflahlut, sem er umfram hálfa kauptryggingu, greiðist 25% álag, þannig að þeir sjómenn sem eru komnir yfir hálfa kauptrygg- ingu í hlut fá sérstaka uppbót. Þegar aflahlutur kauptryggingar nær orðið 90 þús. krónum, fá sjó- menn 10 þús. kr. álagsbætur og getur kauptryggingin hæst komizt i 105 þús. kr. Ráðstafanir gerðar á vettvangi V erð jöf n unars jóðs Þó svo að sjómannasamningarn- ir hafi tekizt á sunnudaginn, voru þeir ekki undirritaðir fyrr en í gærmorgun, er nýtt fiskverð lá fyrir enda voru þeir bundnir um- talsverðri fiskverðshækkun. Það var svo um kl. 5 i gærmorgun, sem nýtt fiskverð lá fyrir frá yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins. Samkomulag varð í nefndinni um nýja verðió, en ákvörðunin var tekin á þeirri forsendu „að ríkis- stjórnin beiti sér fyrir ráðstöfun- um á vettvangi.Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaóarins eða með öðrum hætti, sem fullnægjandi getur tal- izt til að tryggja rekstur veiða og vinnslu". Fiskverð hækkar um 13—36% Nýja fiskverðið gerir ráð fyrii mestri hækkun á stórum þorski, þ.e. 70 sm og stærri. Minnst verður hækkunin á löngu og keilu, urr 13%. Eins og fyrr segir verða nú greiddar kr. 63.30 fyrir hvert kg. af þorski en áður en kr. 47. Stór ufsi hækkar úr kr. 26.50 kílóið i 32.90 kr. eða um 24%. Ýsan hækkar um 33%. Verða nú greidd- ar kr. 55.50 fyrir kilóið í stað kr. 38. Að öðru leyti verður prósentu- hækkunin þessi á helztu fiskteg- undum: Þorskur, 43 að 54 sm, 25%, þorskur, 54 að 70 sm, 31%, þorsk- ur 70 sm og yfir, 36%, ýsa 33%, steinbítur um 36%, ufsi um 24%, karfi um 26%, langa um 13%, keila um 13%, lúða, 'A til 3 kg. um 25% lúða yfir 3 kg um 30%, grá- lúða um 25%, skarkoli um 25%, skata um 25%, háfur um 25% hrogn um 25% og lifur um25%. I frétt frá yfirnefndinni í gær segir, að þegar slægður fiskur eða óslægður karfi sé ísaður í kassa í veiðiskipi og fullnægir gæðum í 1. flokki, greiðist 8% hærra verð en að framan greinir. Samagildi fyrir slægðan og óslægðan þorsk, ýsu, steinbít og löngu, sem veitt sé á línu og fullnægi 1. flokki, þótt ekki sé ísað i kassa um borð. Ennfrem- ur muni ríkissjóður greiða kr. 0,90 á hvert kg framangreinds línu- fisks. Þá segir: „Verðákvörðunin er tekin í framhaldi af setningu nýrra laga um lækkun útflutnings- gjalda og gjalda til Stofnfjársjóðs fiskiskipa. Til þessarar breytingar á sjóóum sjávarútvegs má rekja nærri 24% hækkun á fiskverði. Frávik frá þessari hundraðstölu ræðst af öðru tilefni." Stiglækkandi loðnuverð Yfirnefndin ákvað einnig í gær verð á loðnu til bræðslu frá 16. febrúar til 22. marz n.k. Fyrir vikuna frá 16.—22. feb. áverðið að vera kr. 3.70 pr. kg., frá 23. feb. til 29. feb. kr. 3.40, frá 1. marz til 7. marz kr. 3.10, frá 8. marz til 14. marz kr. 2.80, frá 15. marz til 21. marz kr. 2.50 og frá 22. marz til loka loðnuvertíðar kr. 2.25. Að auki eiga kaupendur að greiða kr. 0.10 fyrir hvert kg i loðnuflutningasjóð frá 16.—29. febrúar og kr. 0.05 frá 1. til 14. márz. Oddamaður nefndarinnar, sem var Ölafur Davíðsson, hagfræð- ingur, lét bóka eftir sér, að ákvörð- un þessi væri tekin á þeirri for- sendu að rikisstjórnin beitti sér fyrir ráðstöfunum á vettvangi verðjöfnunarsjóðs eða með öðrum hætti, sem fullnægjandi gæti talizt til að tryggja rekstur veiða og vinnslu. Fulltrúar kaupenda létu bóka: „Meirihluti yfirnefndar hefur við verðákvörðunina sniðgengið þau meginatriði, sem lögð skulu til grundvallar hverri verðákvörðun samkvæmt lögum um Verðlagsráð sjávarútvegsins, en þess í stað samþykkt kröfur sjómanna og út- vegsmanna um ákveðið lágmarks- verð á loðnu til bræðslu, er þeir hafa sett sem skilyrði fyrir undir- ritun kjarasamninga. Verður að vita slíka málsmeðferð meirihluta yfirnefndar, er starfar sem fjöl- skipaður dómur. Við mótmælum eindregið þess- ari verðákvörðun þar sem enn er aukið á rekstrartap verksmiðjanna og fjárhagsaðstöðu þeirra stefnt i algjört öngþveiti, nema þær úr- bætur sem stjórnvöld hafa gefið fyrirheit um verði verulegar og komi skjótt til frantkvæmda." 24 kr. fyrir loðnu til frystingar Þá var ákveðið i gær, að lág- marksverð á loðnu til frystingar skyldi vera kr. 24 pr. kíló til loka vertiðar og á loðnuhrognum kr. 50. Eftir að ljóst varð i gær, að búió var að fella sjómannasamningana í Reykjavik, hafði Morgunblaðið samband við Hilmar Jónsson hjá Sjómannafélagi Reykjavíkur og spurði hann hvort stjórn félagsins myndi ekki fjalla um málið. Hann sagði, að stjórnin kæmi saman til fundar árdegis í dag og þá yrði tekin afstaða til atkvæðagreiðsl- unnar, sem skammarlega fáir hefðu tekið þátt i. 15 millj. kr. veiðitap Þá hafði Mbl. samband við skip- stjórana Björn Jónsson á Asbergi RE og Harald Agústsson á Sigurði RE og spurði þá hvernig þeim lit- ist á að þurfa að liggja i höfn meðan önnur skip mokuðu upp loðnu. Haraldur Ágústsson sagði, að það væri ægilegt, að menn skyldu þurfa að liggja í höfn og horfa upp á tekjumöguleika sína sigla fram hjá sér. „Loðnuflotinn er við bryggju á kostnað annarra, þvi tapið er hvergi raunverulegt nema hjá okkur, sem þessar veiðar stundum. Ætli veiðitapið hjá okkur á Sigurði sé ekki orðið einar 15 millj. kr. ef allt hefði gengið eins og verið hefur.-' Björn Jónsson sagði, að þetta væri ægilegt ástand, en sjómönn- um virtist ekki litast á samning- ana. Taka þyrfti upp annað kerfi í samningaviðræðum sem þessum, og ennfremur á atkvæðagreiðsl- unni. — Ef við komumst ekki til veiða á næstu dögum, verður ekki farið meir i vetur, sagði Björn. - Sigurfyrirísland Framhald af bls. 1 bani verði, sem við vonum að verði ekki. Við á íslandi höfum því ekki önnur úrræði en að halda áfram okkar baráttu, því að um er að ræða baráttu fyrir efnahagslegu sjálfsstæöi okkar. Við metum skilning okkar norrænu vina og frænda mikils og væntum þess aó fá stuðning frá þeim.“ Vinstri sósialistar frá Noregi, Sví þjóð, Danmörku og Finnlandi höfðu lagt fram tillögu, sem gerði ráð fyrir því, að Norðurlandaráð lýsti yfir stuðn- ingi við baráttu íslendinga með svo- hljóðandi yfirlýsingu: „Norðurlandaráð harmar það, að Stóra-Bretland beiti vopnavaldi í fiskveiðideilunni við ís- lendinga og styður baráttu íslendinga fyrir því að tryggja tilverugrundvöll sinn og vernd fiskauðlinda í hafinu.” í greinargerð með tillögunni sagði: „Viðleitni íslendinga til að tryggja lífs- afkomu sína og vernda fiskstofnana, á Islandsmiðum hefur leitt til hörmulegr- ar deilu við Stóra-Bretland, sem ógnar samstarfi landa við Norður-Atlantshaf og sem síðar meir stefnir tilraunum til að vernda náttúruauðæfi fyrir komandi kynslóðir í hættu. Þau sjónarmið, sem liggja að baki því, að íslenzka stjórnin og alþingi hafa stigið það skref, sem raun ber vitni, eiga einnig við um hin Norður- löndin, sem öll eiga lífshagsmuna að gæta við verndun náttúruauðæfa A sama hátt hafa öll Norðurlöndin ástæðu til að harma þær aðgerðir sem Bretar hafa gripið til í fiskveiðistríðinu og sem stofna gömlu og vinsamlegu sambandi á milli Bretlands og Norður- landanna í hættu Formsatriði réðu þvi að ekki var hægt að bera þessa tillögu upp til atkvæða í ráðinu. Hún hafði komið of seint fram, en auk þess segir í lögum um Norðurlandaráð að það skuli ekki gefa frá sér yfirlýsingar, heldur aðeins beina tilmælum til rikisstjórna Norður- landa. Þar sem almennur vilji virtist meðal fulltrúa á þinginu fyrir þvi að á einhvern hátt væri reynt að styðja við bakið á íslendingum, ákvað forsætis- nefndin að gefa út eigin yfirlýsingu um málið í stað þess að þurfa að vísa tillögu sósíalistanna frá eða hætta á það að hún yrði felld í ráðinu, en það getur veitt undanþágur til afbrigði- legrar afgreiðslu mála ef tveir þriðju hlutar fulltrúa eru því samþykkir Eftir r^ðu Geirs Hallgrimssonar skýrði Trygve Bratteli, fyrrverandi for- sætisráðherra Noregs, sem var í for- sæti á fundinum, frá því að forsætis- nefndin hefði, til að koma á framfæri þeim sjónarmiðum sem komið hefðu fram i almennum umræðum, samþykkt einróma svohljóðandi yfirlýslngu „Forsætisnefnd Norðurlandaráðs lýsir þvi yfir, að hinar norrænu þjóðir hafi með miklum áhyggjum fylgzt með þeirri deilu sem komið hefur upp milli Stóra-Bretlands og íslands um veiðar fyrir innan 200 mílna fiskveiðimörkin. Forsætisnefndinni er það Ijóst að til- vera íslendinga byggist á auðæfum hafsins og að nauðsynlegt er að gripa til aðgerða svo að koma megi i veg fyrir að þessum auðæfum verði eytt Forsætisnefndinni er Ijóst að vera brezkra herskipa á íslandsmiðum kem- ur í veg fyrir að friðsamleg lausn geti náðst, og því ber að kalla þau heim svo að grundvöllur skapist fyrir því að deiluaðilar geti náð slíkri lausn ” Danir mótmæla Tveir fulltrúar í ráðinu mótmæltu þessari meðferð málsins Ib Stetter, þingmaður danska íhaldsflokksins, sagði að yfirlýsing forsætisnefndar- innar kæmi Norðurlandaráði í erfiða aðstöðu „Enginn getur séð núna fyrir hvernig slikri yfirlýsingu verður tekið i Bretlandi,” sagði hann „Enginn veit hvaða afleiðingar það getur haft, að forsætisnefnd Norðurlandaráðs gefi yfirlýsingar um mál, sem snerta sam- bandið milli norræns lands og lands, sem ekki er norrænt. Burtséð frá orðalagi yfirlýsingarinnar verður litið á hana sem hvatningu og stuðning við islenzku þjóðina Hvaða áhrif mun það hafa á íslandi og í Bretlandi? Mun yfirlýsingin bæta samkomulagsmöguleika eða gera þá verri? Mun yfirlýsingin skaða varnar- samstarfið á Norður-Atlantshafi? Meðlimir forsætisnefndarinnar vita það ekki og fulltrúar i ráðinu vita það ekki Enginn veit það, því að einfald- lega er ekki reynt að svara þessum spurningum Með tilliti til þessa tek ég afstöðu gegn því að þessi yfirlýsmg verði lögð fyrir stjórnir Norðurlanda ” Kirsten Jacobsen, sem er þingmaður Framfaraflokksins í Danmörku, sagði „Ég verð i nafm flokks míns að harma og mótmæla þvi að forsætisnefndin gefi út yfirlýsingar um alvarleg vanda- mál, eins og fiskveiðideilu íslendinga og Breta Þetta segi ég án tillits til þess hvar samúðin i málinu kann að vera, því að um allan heim verður litið á yfirlýsingu frá forsætisnefnd Norður- landaráðs sem yfirlýsingu frá Norður- landaráði Norðurlandaráð er þing- ræðislegur vettvangur fyrir samnorræn mál, og Norðurlandaráð á að vera mjög varkárt og á alls ekki að hafa stefnu i utanrikismálum, sem hugsan- lega getur siðar meir gert aðstæður erfiðari, einnig fyrir ísland ” Ragnhildur Helgadóttir stóð þvi næst upp og sagði „Ég þakka fyrir að fá að koma hér upp með stutt svar Stetter varpaði nefnilega fram spurn- ingum, sem varða okkur íslendinga og sem okkur ber að svara Það er rétt sem herra Stetter sagði, að fulltrúum í ráðinu ber að vita hvaða áhrif þessi yfirlýsing mun hafa á það andrúmsloft sem fiskveiðideilan hefur skapað. Ég get sagt það hér og nú, að yfirlýsingin hefur haft mjög jákvæð áhrif á andrúmsloftið á allan hátt. sem snertir ísland og sambönd þess innan og utan Norðurlanda, og hún mun styrkja traust íslendinga á hinum nor- rænu þjóðunum og Norðurlandaráði Ég vil einnig lýsa þakklæti mfnu við félaga mína í forsætisnefndinni og aðra fulltrúa i ráðinu sem sýnt hafa stuðn- ing í þessu máli, sem snertir okkur öll, og einnig þjóðir utan Norðurlanda Það er hungraður heimur sem við lifum i og okkur ber siðferðisleg skylda til að vernda náttúruauðæfin.” Áhugi á fiskveiðideilunni Mikill áhugi rikir hér á fiskveiðideil- unni og eins og áður sagði hefur hún gengið eins og rauður þráður i gegnum umræðurnar Er óhætt að segja að hún sé mesta málið á þessu þingi Norðurlandaráðs. Geir Hallgrimsson mun halda blaða- mannafund á morgun kl. 1 5 þar sem fréttamenn hafa sótzt mikið eftir við- tölum við hann Kaupmannahöfn 1 marz Frá fréttaritara Morgunblaðsins Pétri J Eiríkssyni MORGUNBLAÐIÐ hafði tal af Odvar Nordli, forsætisráðherra Noregs í dag, en hann vildi ekkert láta hafa eftir sér um afskipti Norðmanna af fiskveiði- deilu Islendmga og Breta né yfirlýs- ingu forsætisnefndar Norðurlanda- ráðs „Ég held að það þjóni ekki hags- munum íslands að ég gefi út yfirlýs- ingar um þetta mál að svo stöddu,” sagði hann Hann staðfesti þó að hann hefði, ásamt utanríkisráðherra sinum, Km?t Frydenlund, átt fund með Geir Hallgrimssyni i gærkvöldi, en vildi ekki segja neitt nánar um þann fund

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.