Morgunblaðið - 20.03.1976, Page 1

Morgunblaðið - 20.03.1976, Page 1
32 SÍÐUR OG LESBÓK 62. tbl. 63. árg. LAUGARDAGUR 20. MARZ 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Ródesía: Viðræður stjórnar- innar og leiðtoga þel- dökkra út um þúfur Arabar kynda bál á göru f elzta hluta Jerúsalem til að lýsa andúð sinni á sambúðinni við Israelsmenn. • • Oryggisráð SÞ heldur fund um ástandið í Jerúsalem Átök við A1 Aqsa-bænahúsið í gær New York. Jerúsalem 19. marz Heuter — AP. Salisbury, 19. mars Reuter VIÐRÆÐUR STJORNAR Ródesíu og leiðtoga blökkumanna fóru út um þúfur í dag. Joshua Nkomo, leiðtogi Afríska þjóðar- ráðsins (ANC) sagði, að Ian Smith forsætisráðherra hefði neitað að verða við kröfum um að blökkumenn tækju stjórn lands- ins i sínar hendur nú þegar. Ian Smith sagði ástæðuna fyrir því að upp úr viðræðum hefði slitnað, einkum þá að hlökkumenn hefðu ekki viljað taka tilboði stjórnar- innar um aukna þátttöku blökku- manna í stjórn landsins. Þeir hefðu krafizt þess, að stjórn Ródesíu iéti tafarlaust af völdum og vrði jafnmörgum ráðherrum stjórnarinnar og fuiltrúum þel- dökkra falin stjórn landsins til Callaghan enn sigur- stranglegur Lundúnum 19. marz Reuter. JAMES CALLAGHAN utanrfkis- ráðherra stjórnar Wilsons hefur enn forystu f samkeppninni um formannssætið f Verkamanna- flokknum og um leið forsætisráð- herraembættið. Samkeppin hefur þó harðnað, þvf að Michael Foot atvinnumálaráðherra og Rov Jenkins innanrfkismálaráðherra eru farnir að sækja á. Þá hefur yfirlýsing Denis Healeys um að hann gefi kost á sér minnkað líkurnar á þvi, að Callaghan verði kosinn formaður flokksins í fyrstu atrennu. Umhverfismálaráðherrann, Anthony Crosland, og Tony Benn orkumálaráðherra eru ekki taldir hafa mikið fylgi. Roy Jenkins er í hægri armi Verkamannaflokksins, en Michael Foot tilheyrir vinstri árminum. Callaghan er talinn fá langmestan hluta atkvæða óákveðinna innan flokksins og hefur enn yfirburði í baráttunni. bráðabirgða undir stjórn odda- manns, sem brezka stjórnin tilnefndi. Þá kvað Smiih stjórnina ekki reiðubúna til að verða við þeirri kröfu, að skilyrði um atkvæðarétt í kosningum yrðu rýmkuð, en slíkt yrði óhjákvæmilega til þess að þeldökkir fengju hreinan meirihluta á þingi, þegar er kosið yrði. Eftir að upp úr viðræðum slitnaði sagði Ian Smith enn- fremur að brezka stjórnin ætti ekki lengur að skorast undan þeirri ábyrgð, sem hún teldi sig bera á málefnum Rðdesíu, heldur ættu Bretar nú að láta málið til sín taka. Joshua Nkomo var að því spurður, hvaóa afleiðingar slit viðræðnanna mundu hafa. Sagði Ian Smith Joshua Nkomo hann að framvinda mála mundi skera úr um það, en bætti siðan við: „Við erum að reyna að út- rýma styrjaldarorsök, en þessir menn neita að útrýma styrjaldar- orsökinni." Forsætisráðherra Suður- Afríku, John Vorster, sagði i dag, að enn væru leiðir opnar til að áframhaldandi viðræður gætu átt sér stað, og gaf þar með í skyn, að viðræðunum væri enn ekki lokið endanlega. Hann vildi ekki tjá sig frekar um málið, því að það gæti orðið til þess, að erfiðara yrði að taka viðræður upp að nýju. j Viðræður hvitra manna og þel- dökkra, sem höfðu þann tilgang að veita hinum síðarnefndu aukna hlutdeild í stjórn Ródesíu hófust i janúar. Blökkumenn í landinu eru sex milljónir, — tuttugu sinnum fleiri en hvítir. ARABAR hafa óskað eftir tafar- lausum aðgerðum Örvggisráðs- Sameinuðu þjóðanna i því skyni að binda endi á ófremdarástand það, sem ríkt hefur á vesturbakka Jórdan, síðan dómstóll felldi þann úrskurð, að Gvðingar hefðu jafnan rétt og múhammeðstrúar- menn til bænahalds í Al Aqsa- Madrid, 19. marz. Reuter. AHRIFAMIKILL talsmaður hægri aflanna á Spáni, Jose An- tonio Giron þingmaður, sagði f dag að hann gæti þvf aðeins sam- þykkt áform rfkisstjórnarinnar bænahúsinu í Jerúsalem. Bæna- húsið stendur á fornhelgri hæð i elzta hluta borgarinnar, sem tsra- elsmenn náðu á sitt vald fyrir níu árum. Talið er, að efnt verði til fundar um málið i Örvggisráðinu í kvöld eða á sunnudaginn, og hefur Allon, utanríkisráðherra tsraels, látið að því liggja, að þar muni Israel eiga fulltrúa. Israels- menn hættu þátttöku i störfum um að aflétta hömlum á starfsemi nokkurra stjórnmálaflokka, að þau leystu ekki upp það stjórnar- far sem Franco sálugi einræðis- herra kom á. Ríkisstjórnin til- kynnti f gær að hún hygðist af- létta banni þvf sem gilt hefur f 37 ár á starfsemi flokka á borð við sósfalista og kristilega demó- krata, en kommúnistar, anarkist- ar og aðskilnaðarsinnar yrðu áfram bannaðir. Auk áðurnefndr- ar gagnrýni hægri sinna hafa vinstri öflin á Spáni tekið þessari tilkynningu með nokkurri tor- tryggni, og heimildir meðal stjórnarandstæðinga hermdu að áform þessi ættu enn eftir að hljóta samþykki hins fhaldssama þings landsins (cortes), sem einnig gæti gert breytingar á þeim. Giron þingmaður er forseti áhrifamikilla samtaka hægri manna, þar sem er aðeins sam- band gamalla hermanna úr borg- arastyrjöldinni, og lýsti hann áð- urgreindur skoðunum sínum á þingi þeirra i dag. „Við samþykkj- um aðeins yfirlýstar umbætur ríkisstjórnarinnar svo framarlega sem þær grafa ekki undan grund- velli (Franco-) stjórnarinnar og hljóta frjálsa viðurkenningu meirihluta Spánverja." Giron, Öryggisráðsins fvrir tveimur mánuðum, þegar PLO-hrevfingin hóf þátttöku í fundum ráðsins. Atök urðu í dag við A1 Aqsa- bænahúsið, þar sem ungir múhammeðstrúarmenn voru samankomnir. Töluðu leiðtógar múhammeðstrúarmanna til mannfjöldans og sögðu, að A1 Aqsa tilheyrði múhammeðstrúar- mönnum og yrði engin íhlutun i trúarlíf þeirra þoluð. Leiðtogar Framhald á bls. 18 sem er fyrrum verkalýðsmálaráð- herra, er einn af helztu talsmönn- um hægri aflanna og er sem fyrr segir þingmaður á Cortes og á sæti í stjórnarskrárnefnd, en báð- ar þessar samkundur geta brugð- ið fæti fyrir breytingar á stjórn- kerfi landsins. Framhald á bls. 18 Karami slapp með herkjum Beirút, 19. marz. AP—Reuter. lkveikjusprengja hæfði flugvél sem Rashid Karami forsætisráð- herra og tveir aðrir leiðtogar Ifbanskra Múhamcðstrúarmanna ætluðu mcð til Beirút f dag skömmu áður en hún átti að leggja af stað frá Beirút-flugvelli Framhald á bls. 18 Tilkynntum skiln- að Bretaprinsessu og lávarðarins London, Sidney, 19. marz. Reuter. AP. 1 STUTTRI tilkvnningu, sem gefin var út í dag frá heimili Margrétar Bretaprinsessu og Snowdons lávarðar, segir að þau hjónin hafi komið sér saman um að skilja að borði og sæng, en lögskilnaður sé ekki ráðgerður. Ekki var nánar kveðið á um hvort þau hefðu gert með sér samning varðandi forræði barnanna tveggja né annað sem að málinu lýtur. Eftir að tilkynningin hafði verið gefin út sagði talsmaður Bretadrottningar, að drottn- ingin væri skiljanlega mjög hnuggin vegna þess sem gerzt hefði, en hún hefði ekki á einn né neinn hátt reynt að beita áhrifum sínum í málinu. Erkíbiskupinn af Kantara- borg sendi út yfirlýsingu og sagði að „konungsfjölskyldunni yrði sýndur fyllsti skilningur á þessum erfiðu tímum.“ I yfir- Framhald á bls. 18 Spánn: Umbótaáformin sæta gagn- rýni frá hægri og vinstri

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.