Morgunblaðið - 20.03.1976, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MARZ 1976
13
Sóttu
lamb
á ör-
æfi í
vonzku
veðri
Sauðárkróki, 18. marz.
UPP úr siðustu mánaðamótum, er
Akureyringar voru á ferö upp að
Sandbúðum gengu þeir fram á
lamb i svonefndum Geldingsár-
drögum. Létu þeir Blöndhliðinga
strax vita þvi lambið reyndist
vera frá Stekkjarflötum í Akra-
hreppi í Skagafirði.
Var þegar brugðið við og lögðu
6 ungir og vaskir menn, þar af
tveir bændur af stað í bil fram i
Vesturdal og höfðu meðferðis 5
vélsleða. Þegar upp kom á fjallið
milli Vesturdals og Austurdals
reyndist veðrið slíkt að þeir urðu
að snúa við. Næsta dag, hinn 5.
þessa mánaðar, lögðu þeir svo
aftur upp, en völdu þá aðra leið,
það er Kaldbaksdalsleið innaf
Öxnadalsheiði. Hrepptu þeir enn
vonskuveður og hörkufrost, en
áfram var haldið fram í myrkur.
Um nóttina lágu þeir úti, með
morgninum var kbmið bjart
veður og náðu þeir áfangastað og
fundu lambið illa á sig komið
enda í algjöru hagleysi. Var síðan
haldið til byggða og komið niður
hjá Giljum í Vesturdal. Éinn af
leiðangursmönnunum, Sveinn
Árnason í Víðimel, skýrði mér svo
frá í dag, að gimbrarlambið væri
nú óðum að rétta við eftir sultinn
og vosbúðina uppi á hálendinu.
— jón.
Kvöldvaka
NORRÆNA FELAGIÐ I Kópa-
vogi efnir til kvöldvöku, sunnu-
Þjóðleikhúsið:
Aukasýning á
ballettunum
Akveðið hefur verið að hafa
aukasýningu á ballettum þeim
sem frumsýndir voru i Þjóðleik-
húsinu í bvrjun þessa mánaðar.
Sýningin verður á laugardaginn
kl. 15 og verður s.k. fjölskvldu-
sýning og er verð aðgöngumiða þá
það sama og á barnasýningar.
Hér er um þrjá balletta að
ræða: Ur borgarlifinu eftir Unni
Guðjónsdóttur við tónlist Þorkels
Sigurbjörnssonar, Dauðinn og
stúlkan eftir Alexander Bennet
við' tónlist Schuberts og nokkur
atriði úr Þyrnirósu í dansgerð
Bennets við tónlist Tsjaikovskís.
Ballettar þessir voru sýndir tví-
Svíþjóð:
Aukinn
styrkur
Stokkhólmi NTB.
GUNNAR Stráng, fjármálaráð-
herra Svíþjóðar, hefur lagt til að
rikisstyrkur við sænska blaðaút-
gáfu verði aukínn verulega á
næstu fjárlögunt og verði þá 196
millj. s.kr. á ári eða um það bil 7,8
milljarðar isl. króna. Ríkisstjórn-
in lítur svo á, að nauðsynlegt sé að
ríkið styrki blaðaútgáfu til að hún
geti verið sem fjölþættust og mest
vegis á dögunum við mikla hrifn-
ingu áhorfenda. I sýningunni
koma fram íslenzki dansflokkur-
inn og nemendur úr listdansskóla
Þjóðleikhússins.
Atta stúlkur eru nú í dans-
flokknum og dansa þær allar sóló
í sýningunni. Þær eru Auður
Bjarnadóttir, Asdis Magnúsdóttir,
Guðrún Pálsdóttir, Guðmunda H.
Jóhannesdóttir, Helga Bernhard,
Ingibjörg Pálsdóttir, Nanna Öl-
afsdóttir og Olafia Bjarnleifsdótt-
ir. Aðrir sólódansarar í sýning-
unni eru Örn Guðmundsson og
Randver Þorláksson leikari, en
alls koma um 30 dansarar fram í
sýningunni.
ríkis-
við blöð
alHliða. 1 frumvarpi Stráng er
lagt til að styrkurinn verði í ýmsu
formi og komi bæði til stofnstyrk-
ur, rekstrarstyrkur og fl. og tekið
er fram að rekstrarstyrkur verði
ákvarðaður meðal annars eftir
upplagi blaða. Fullur slíkur
styrkur verði veittur blöðum sem
hafa yfir tíu þúsund eintaka
upplag.
í Kópavogi
daginn 21. þ.m. kl. 8.30 síðd. í
Þinghól Hamraborg 9. Þar flytur
ólafur Jónsson bókmennta-
fræðingur spjall um bókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs og
Ölaf Jóhann Sigurðsson skáld.
Lesið verður úr ritverkum Ölafs.
Þorsteinn Gunnarsson leikari les.
Þá syngur kór Menntaskólans við
Hamrahlíð, undir stjórn Þor-
gerðar Ingólfsdóttur og kynnt
verða nýmæli i starfsemi
Norræna félagsins. (Fréttatii-
kynning)
Medfylgjandi mvnd tók Ijósmyndari Mbl. Fridþjófur af dönsurum
Dansflokksins í ballettinum „Ur borgarlífinu".
Stolið
NYLEGA var stolið sambyggðu
útvarps- og kasettutæki úr bíl, þar
sem hann stóð í bílskúr í Hafnar-
firði. Tækið er af Philips-gerð.
Ennfremur var stolið borvél og
fleira dóti úr skúrnum.
ÞÚ AUGLÝSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
Kinnasanp
OF SWEDENBl^
Vorum að fá
KINNASAND
veggfóöur í miklu úrvali
FRIÐRIK BERTELSEN,
LÁGMÚLA 7, SÍMI 86266
Stapi
PARAD ÍS
Dúndur stuð
með Paradís í Stapa.
Sætaferðir frá B.S.Í. og Hafnarfirði
StuðStuðStuðStuðStuðStuðStuðStuðStuðStuðStuðStuðStuðStuðStuðStuðStuðStuð