Morgunblaðið - 20.03.1976, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.03.1976, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MARZ 1976 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10 100. Aðalstræti 6, sími 22 4 80. Áskriftargjald 800,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 40,00 kr. eintakið. Rekstraröryggi fyrirtækja og atvinnuöryggi borgarbúa tvær hliðar sama hlutar IMorgunblaðinu í gær er bírt í heild ræða borgar- stjóra, Birgis Isleifs Gunnars- sonar, er hann flutti við aðra umræðu um frumvarp að fjár- hagsáætlunum borgarsjóðs og borgarstofnana 1976 Þá er í leiðara blaðsins þann dag fjallað sérstaklega um fjárhags- áætlunma í heild og þann út- gjaldaauka, sem annars vegar stafar af verkefnatilfærslu frá ríki til borgar og hins vegar af verðlagsþróun í landinu og nýj- um kjarasamningum Hér verður lítillega drepið á fjórar borgarstofnanir, sem allar hafa veruleg áhrif í dag- legu lífí borgaranna: Hitaveitu Reykjavíkur, Rafmagnsveitu Reykjavíkur, SVR og BÚR, og rekstrarstöðu fyrirtækja i borg- inni almennt Helzta breytingin á fjárhags- áætlun Hitaveitu Reykjavíkur, sem gerð var við aðra umræðu, var lækkun á tekjuáætlun um 93 m kr Gert hafði verið ráð fyrir 32% hækkun hitaveitu- gjalda í fyrri áætlun en nú þykir sýnt, að þessi hækkun verði aðeins 27% Þessi hækkun mun þó gera Hitaveitunni kleift að halda áfram þeim fram- kvæmdum, sem þegar eru hafnar eða verksamningar hafa verið gerðir um Þegar tekið hefur verið tillit til útgjaldaauka hjá Hitaveitunni, vegna nýrra kjarasamninga, sem nemur um 31 m kr , og hækkunar greíðslubyrði vaxta og afborg- ana erlendra lána, vegna gengissigs, 570 m kr , verða eftir um 570 m kr til fram- kvæmda á árinu. Þessu fjár- magni verður ráðstafað tíl virkj- ana að Reykjum, íaðveituæðar þaðan, í dreifikerfi í borginni og framkvæmdi r í nágranna- sveitarfélögum. Samvinnan við nágrannasveitarfélögin færir þeim fyrr en ella ódýrari húshit- un en stofnuninni stærri og traustari markað er dreifir stofnkostnaði og gerir rekstur hennar hagkvæmarí og öruggari í framtíðinni Helztu breytingar á fjárhags- áætlun Rafmagnsveitu eru, að launahækkanir nema 41 5 m. kr., vegna nýrra kjarasamn- inga, og lækkar yfirfærsla á eignabreytingareikningi sem því nemur. Framkvæmdír hjá Rafmagnsveitu eru helztar fyrirhugaðar: lögn þrýstivatns- pípu fyrir Elliðaárstöðina, þ.e. efniskaup til þeirrar fram- kvæmdar, spennistöð við Korpu og aukning veitukerfis, aðallega í Reykjavik en að nokkru í nágrannabyggðum Fjárhagsáætlun Strætis- vagna Reykjavíkur helzt óbreytt, þrátt fyrir fyrirsjáanleg- an kostnaðarauka, enda í henni gert ráð fyrir 35% hækkun gjaldskrár Er það er í samræmi við markaða stefnu, þess efnis, að stefnt verði að því í áföng- um að þessi þýðingarmikla borgarstofnun geti staðið undir rekstrarkostnaði sínum að fullu, eigi siðar en árið 1978. Framlag borgarsjóðs til strætis- vagnanna á yfirstandandi ári er áætlað 255 m kr og hefur ekki áður verið hærra. Framlag borgarsjóðs til Bæjarútgerðar Reykjavikur var hækkað við siðari ui,. æðu um fjárhagsáætlun úr 100 i 130 milljónir króna. Gert er ráð fyrir því að mikill hluti þessa fjár- styrks verði varið til að brúa beinan rekstrar- og greiðslu- halla fyrirtækisins. Rekstrar- staða hinna stærri togara hefur verið og er mjög erfið og aðstaða til fiskvinnslu hjá fyrir- tækinu óhæg. Útgerðarráð fjallar þessa dagana um auknar fjárfestingar. Því hefur verið heimilað að hefja viðræður um kaup á litlum skuttogara. Og nauðsyn á endurbótum fisk- móttöku í landi er knýjandi Umræður í borgarstjórn við lokaafgreiðslu fjárhagsáætl- unar, varðandi Bæjarútgerð Reykjavíkur, voru sérlega lær- dómsríkar Borgarfulltrúar minnihlutans bentu annars vegar réttilega á erfiða rekstrar- stöðu bæjarútgerðarinnar og nauðsyn frekari fjárstyrks fyrir- tækisins úr borgarsjóði Hins vegar töldu þeir þá leið eina færa til aukinnar tekjuöflunar borgarsjóðs, að hækka veru- lega aðstöðugjöld og fasteigna- gjöld á atvinnurekstri í borg- inni, m.a. hliðstæðum bæjarút- gerðinni, sem greiðir skatta og skyldur af veltu sinni en nýtur engra opinberra framlaga Þessi atvinnurekstur er, með og ásamt bæjarútgerðinni, undirstaða atvinnu- og afkomu- öryggis borgarbúa, en býr yfir- leitt við versnandi rekstrar- stöðu, á sama hátt og bún Borgarfulltrúar meirihlutans lögðu hins vegar áherzlu á þá meginnauðsyn, að tryggja rekstrargrundvöll atvinnu- skapandi fyrirtækja í borginni, hvert sem rekstrarform þeirra er, og stemma stigu við þeim fyrirtækjaflótta, frá borginni til annarra byggða, sem nokkuð hefur gert vart við sig. Á tímum atvinnusamdráttar væri nauð- synlegt að halda vöku sinni i þessu tilliti og skapa heilbrigð- um atvinnurekstri möguleika til eðlilegs vaxtar, sem væri meginforsenda atvinnuöryggis í borginni og þeirra tekjumögu- leika borgarsjóðs, sem ætlað væri að mæta framkvæmdum hennar og þjónustu í þágu borgarbúa í framtiðinni Rætt viö brezku Ijóðská Mortimersem komafrs ## Áróðurs- maðuríljóð- listinni \WB % KEITH Armstrong er 28 ára art aldri og rótgróinn Norðaust- urlendingur. Mann fram af manni hafa áar hans verió bændur og verkamenn þar um slóðir, og sá jarðvegur sem Keith er sprottinn úr hefur markað lífsskoðun hans. Þegar Ijóðlistinni sleppir eiga mál- efni vinnandi fólks hug hans allan, og hann lagði jafnvel háskólanám sitt á hilluna til að geta helgað sig málefnum alþvðufólks. Starfar hann nú sem félagsmálafulltrúi í verka- mannahverfum Néwcastle. Iðu- lega speglast í Ijóðum hans reynsla hans og kvnni af högum alþýðunnar en öðrum þræði leitast hann við að birta f þeim fornar hefðir og lífs- viðhorf Norðausturlendinga. Hann andmælir akademiskum viðhorfum til Ijóðlistar og deilir þeirri Ijóðskoðun með öðrum félögum sínum innan Tyneside-hópsins að Ijóðið eigi að koma til fólksins úr því að fólkið komi ekki til Ijóðsins, það eigi að vera skemmtilegt og aðlaðandi, og höfundur skuli einskis láta ófreistað til að koma því áleiðis til fólksins. Kn gefum Keith Armstrong orðið: Um Tvneside-skáldin: „Þetta er óformlegur félagsskap- ur 15—20 manna, sem hafa það markmið að fara með ljóða- gerð sína út á meðal fólksins, við efnum til ljóðakvölda, komum fram í félagsheimilum og á listahátíð sem haldin er reglulega í heimaborg okkar, Newcastle. Eins gefum við út tímarit gerum útvarpsdagskrá og komum fram í sjónvarpi. Við eigum það yfirleitt sam- merkt að vera mjög uppteknir af heimaslóðunum og sækjum mjög efnivið í ljóð okkar í næsta nágrenni i kringum okkur, leggjum jafnvel töluvert upp úr því að yrkja á mállýzku landshlutans, sem litur töluvert öðru vísi út í stafsetningu en sú enska sem flestir þekkja, og kannski líkari norrænum málum. Samt erum við engir ein- angrunarsinnar — heldur þvert á móti. Vió lítum svo á, að ljóðlistin, þótt hún sé meira og minna bundin jafnvel hinum smæstu samfélögum landshluta eða landa, eigi erindi út fyrir endimörk þeirra, á sama hátt og við gerum töluvert af því að koma t.d. erlendri ljóðlist ýmiss konar á framfæri í tímaritum okkar heima fyrir. Til að mynda ritstýri ég dálitlu tíma- riti, sem er ætlað að halda uppi sambandi við umheiminn. Ostrich nefnist það og það hefur öðlazt svolitla alþjóðlega útbreiðslu, t.d. birtum við nýjar þýðingar á ljóðum Yevtus- henko í síðasta hefti, og næsta hefti verður helgað Vietnam. Er því ætlað að styrkja sjúkra- hús í Vietnam, sem ýmsir Bretar hafa einsett sér að reisa. Pólitik og Ijóð: „Eins og kannski má sjá af þessu er þetta rit mitt töluvert politískt og mjög vinstri sinnað. í því birtast viðhorf sem verður að telja mjög róttæk eða lengst á vinstra væng sjtórnmálanna. A sama tíma njótum við styrks frá listaráði ríkisins, og það er áreiðanlegt að ekki á allt það sem birtist í ritinu upp á pall- borðið hjá þeim sem ráða ríkjum í kerfinu, svo að við þykjumst geta átt það á hættu að missaþennan styrk. An hans er híns vegar útgáfa tímaritsins og annarra af þessum toga okkur fjárhagslega ómöguleg. Við leggjum einnig mjög míkið upp úr því að koma ljóð- um okkar á framfæri fyrst og fremst í þessum tímaritum eða ljóðabæklingum sem við gefum einnig út. A þann hátt finnst okkur auðveldara að koma ljóð- unum áleiðis til fólksins. við höfum líka algjöra stjórn á út- gáfunni og hvernig ljóð okkar eru þar sett upp auk þess sem við viljum ekkert undir stóru bókaútgáfunum eiga, þar sem þau eru fyrst og siðast auðvaldsfyrirbæri og hafa þar af leiðandi harla lítinn áhuga á ljóðum, sem telst ekki söluvara í Bretlandi." Sósíalismanum allt: Lífsskoð- un Keith Armstrong á rætur í uppruna hans. „Eg er kom- inn af alþýðufólki langt fram í ættir — faðir minn var skipa- smiður og forfeður móður Keith Armstrong National Tossing idle talk betw playing ball, life loses its bounce. Ourspeech, mass-prc lacks a centre, catches dust as it falls We move from day to counting our successt our needles set in the Hearts call the tune, the monotonous beat pounds in the chest o ENGLAN! ENGLAND! the worn-out cry of oi minnar voru bændur og náma- verkamenn. Ég vil því líta svo á að ég teljist til verkalýðsstéttar- innar, enda þótt ég hafi hlotið langskólanám. Eg fór í háskól- ann og nam þar bókasaf nsfræði allt þar til fyrir um ári siðan, að ég hætti námi og starfa nú sem félagsmálafulltrúi í verka- mannahverfunum. 1 þessu starfi hef ég kynnzt náið kjörum og högum láglauna- fólksins, og við þessa reynslu hef ég fengið hugmyndir og hluti til að skrifa um. Ég er til dæmis núna að vinna með og skrifa fyrir leikhóp um alls- herjarverkfallið 1926, sem til stendur að höpurinn fari með um landið og sýni sem víðast. Þetta er raunverulega áróðurs- verk og ég hef tilhneigingu til að líta á sjálfan mig sem áróðursmann i list minni. Ekki vil ég þó kalla mig sósíal- realista eins og hann er fram- kvæmdur í Sovétríkjunum (listastefna stjórnvaida þar hefur valdið mér vonbrigðum) heldur tel ég mig vera ein- hversstaðar á línu Gorkis." Ljóðið út til fólksins: „Hins vegar er rétt að taka fram, að við innan Tynesidehóps- ins erum ekki allir á sömu línu í pólitíkinni. Við höfum töluvert ólíkar skoðanir í þjóð- félagsmálum en það er sameig- inleg ljóðskoðun sem bindur okkur saman. Við viljum öll vinna að því að koma Ijóðlist- inni áfram til stærri hóps fólks en nú er, við viljum koma því inn hjá öllum að ljóðið sé ekki leiðinlegt, Það má kannski segja að í sameiningu séum við að berjast gegn hinum akademíska hugsunarhætti, sem svo lengi hefur verið allsráðandi innan ljóðagerðar, já, og berjast gegn doðanum sem því er samfara Það er fráleitt að loka sig inn í herbergiskytru og raða saman torræðum ljóðlínum, birta þær einhversstaðar og svo ekki sög- una meir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.