Morgunblaðið - 20.03.1976, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 20.03.1976, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MARZ 1976 17 een us, duced, from our lips. of a million footballs f a nation jr narrow mouths day like a record-arm, ís in goals, groove Það eru rikjandi fordómar gegn ljóðlistinni, og þá þarf að brjóta niður. Þessir fordómar stafa annars vegar af hinum akademisku viðhorfum og hins vegar af þurri bókmennta- kennslu í skólunum. Hún hefur verið bundin f viðjar ljóða meistaranna, sem fólk hefur verið neytt til að læra í svo og svo stórum skömmtum — og fengið sig fullsatt af. Núna er- um við að reyna að brjóta niður þessa múra innan skólanna. Við förum þangað og lesum upp, reynum að sýna að það er til lifandi ljóðlist fyrir utan skólana, reynum að sýna krökkunum fram á hvernig ljóð verði til, hvetjum fólk til að reyna að tjá sig.sjálft í orðum. Við reynum að ná til allra, ungra sem gamalla. Við förum meira að segja út á strætin og torgin og lesum þar upp úr verkum okkar í von um að ná eyrum einhverra. En fyrst og fremst reynum við að gera þetta þannig að fólk hafi gaman af og fái það inn í sig að ljóðlist þurfi ekki að vera leiðinleg. Við neytum allra bragða — við lesum upp úr verkum okkar undir hljóð- færaslætti hljómlistarmanna, komum fram í þjóðlagaklúbb- um sem eru allnokkrii; heima, og oft og tíðum er heilmikið ,,show“ í kringum þetta hjá okkur. Við eigum það til að syngja ljóðin, segjum brandara og gerum ýmsar aðrar kúnstir. Við reynum að komast að í út- varpinu eins oft og við getum, því að sem fjölmiðill hentar það ákaflega vel fyrir flutning af þessu tagi. Það þarf ekki endilega að vera ljóðaupplestur eingöngu heldur getur þetta allt eins verið heimildadagskrá með ljóðaívafi. Aðalmarkmiðið > er að ná sambandi við fólkið, að ikoma ljóðinu út til þess.“ „Bylting Ijóðs felst í kraft- birtingu þess" • PETER Mortimer er 32 ára að aldri, rauðskeggjaður og rauðhærður, gengur í síðum frakka og með svart kaskeiti. Hress og glaðhlakkalegur ná- ungi. Borinn og barnfæddur ! borginni Nottingham í Mið- iöndunum, sinnti lítt bókiðju lengi framan af, vann til að mynda fvrir fæði og klæðum með því að selja falskar tennur og fínar blúndubuxur á kven- mannsbotna um nokkurra ára skeið, fékk nóg af því um síðir, nam hagfræði við Sheffield- háskóla og tók þar skáldskapar- bakteríu, gerðist að námi loknu fréttamaður í London og síðar í Newcastle, þar sem hann hefur búið s.l. sex ár og starfað sem listablaðamaður og gagnrýn- andi útbreiddasta héraðsdag- blaðs Norðaustur-Englands, The Journal i Newcastle. Þar er hann jafnframt virkur liðs- maður skáldagrúppunnar The Tyneside Poets og ritstýrir einu af þremur bókmennta- tímaritum sem sá hópur gefur út — Iron. Ljóðaborgin Newcastle: „Jú, mér virðist svo sem í uppsigl- ingu sé ný og aflmikil alda ljóðaáhuga í Newcastle og héraðinu umhverfis, og mér er raunar nær að halda að áhug- inn sé meiri og almennari en viðast hvar á Bretlandi. Astæðan fyrir þessu er kannski ekki sízt sú að Newcastle hefur alla tíð verið fremur afskekkt, einangruð borg. Þetta er nyrzta meiriháttar borgin i Englandi og munar litlu að við værum i Skotlandi raunar. Við erum þannig langa vegu frá London sem er tiltölulega luktur og þröngur skáldaheimur, erum mikið til laus við áhrif höfuð- borgarinnar. Newcastle verður að miklu leyti að vera sjálfri sér nóg menningarlega og því er hún sennilega jafn rik af grósku og lifi og raun ber vitni. Yfirleitt er hins vegar hagur og staða ljóðskáldsins í Bretlandi fremur bágborinn. Skáldið er utangarðsmaður. Fyrir nokkr- um árum var uppi ljóðlistar- bylgja í Newcastle með mönn- um eins og Tpm Pickard, sem flestir einbeittu sér að þvi að skrifa á mállýzku þessa héraðs. Og ég held að megi líta á Tyneside Poets sem nýja bylgju." Starf Tvneside Poets: „Ætli megi ekki segja að Tyneside Poets hafi myndazt fyrir svona þremur árum. Það voru í New- castle ýmis ljóðskáld að puða hvert í sínu horni. Eg var t.d. farinn að ritstýra bókmennta- tímariti. Síðan gerist það að nokkrir taka sig til og setja sig i samband við hina með það fyrir augum að hefja samvinnu og sameina kraftana. Og í þessu var Keith Armstrong, félagi minn, einn af upphafs- mönnunum. Tyneside-skáldin eru vissulega af ólíku sauða- húsi og vinna að mismunandi hlutum, en segja má að það séu um 16 skáld sem taka virkan þátt í starfi hópsins. Við störf- um einkum með þeim hætti að við höldum reglulega ljóða- lestra, starfrækjum t.d. eins konar ljóðaverkstæði í gömlum turni sem er partur af fornum varnarvegg umhverfis New- castle, Mordenturninum. Þar gefst ungum og óreyndum skáldum tækifæri til að koma einu sinni í viku og flytja verk sín og fá gagnrýnin viðbrögð frá áheyrendum." Ljóð undir píluspili: „Við höfum lagt sérstaka áherzlu á að finna ljóðum greiðan og eðli- legan farveg að venjulegu fólki, hinum vinnandi manni sem að öðru jöfnu hefði aldrei dottið í hug að eyða tíma í ljóð og skáld- skap. Enginn okkar er atvinnu- skáld að sjálfsögðu. Það er ekki hægt. Og enginn okkar er af hinum akademíska skóla í skáldskap. Við erum satt að segja lítt hrifnir af þeim fírum. Þeir hafa átt stóran þátt í að einangra ljóðið, — gert það frá- hrindandi og framandi. Við höfum til dæmis gert mikið af því að fara með ljóðin inn í bjórkrárnar og verkamanna- klúbbana. Við höfum gert dag- skrár fyrir héraðsútvarps- stöðvarnar og farið í skólana. Eg hef sjálfur t.d. haft afar gaman af þvi að flytja Ijóð í bjórkrám. Það er að vísu erfitt að flytja ljóð með karla í pilu- spili allt um kring og bjórkollu- glamri. En það er engu að síður skemmtilegt verkefni. Og við höfum jafnframt beitt tónlist í talsverðum mæli með skáld- skapnum, einkum af þjóðlaga- ættinni, og sum skáldin eru sjálf hljóðfæraleikarar. Það er reynslan aó tónlistin eykur mjög aðdráttaraflið." Hlutverk tímaritanna: „Við gefum út þrjú bókmenntatíma- rit, Ostrich, sem Keith ritstýrir, og Iron, sem ég ritstýri, og loks Poetry North East, sem er hinn opinberi ljóðavettvangur Tyne side Poets, og birtir eingöngu ljóð höfunda úr héraðinu. Bæði Ostrich og Iron birta hins vegar nýjan skáldskap úr ýmsum áttum. Iron hefur t.d. birt verk skálda frá einum 19 löndum, t.d. Kúbu, Japan, Nýju Guineu, Afríkuríkjum, auk Bandaríkj- anna og fleiri vestrænna landa Það er einmitt mikilvægur partur í tilgangi þessarar ferðar til Islands fyrir mig, að fá til birtingar verk íslenzkra höfunda í enskri þýðingu. Þessi tímarit okkar reynum við svo að selja sem víðast, t.d. á götum úti, en einnig fara þau til sölu í London, og þá eru erlendir háskólar, m.a. í Banda- ríkjunum, í hópi áskrifenda. Það er lika rétt að geta þess, að útgáfan og önnur starfsemi okkar nýtur fjárhagslegs stuðn- ings stofnunar sem nefnist Northern Arts, sem ríki og sveitarfélög eiga aðild að, og til dæmis njótum við góðrar prentunaraðstöðu. Af öðrum liðum starfs Tyneside Poets get ég nefnt Ieiksýningar, einkum úr sögu og bókmenntum héraðsins, og þá höfum við tekið þátt í listahátiðum og skáldaþingum, m.a. erlendis. Það var slíkt mót í Mölle í Sviþjóð sem varð rótin að komu okkar til Islands." Hin hræðilega bökmennta- kennsla: „Það sem við erum að reyna að gera er að eyða því sjálfkrafa viðnámi sem nútíma- ljóðlist og skáldskapur mætir hjá enskum almenningi. Venju- legt fólk les hreinlega ekki ljóð, hvað þá nútímaljóð. Við eigum í höggi við mikla fordóma og mikinn misskilning. Og þarna hefur skólakerfið leikið stórt hlutverk. Unglingar eru látnir læra Shakespeare og Words- worth frá orði til orðs utan- bókar í skólunum og þessi ítroðsla hefur haft hræðilegar afleiðingar. Fólk er tortryggið á ljóð. Það tekur langan tíma að komast yfir bókmenntakennsl- una i brezkum skólum. Sjálfur var ég lengi aó jafna mig.“ Falskar tennur og kvennær- buxur: „Ég byrjaði að skrifa i kringum 1965. Bakgrunnur minn er langt frá þvi að vera bókmenntalegur. Heima hjá mér i Nottingham las enginn í fjölskyldunni bókmenntir. I tvö ár vann ég fyrir mér með því að selja falskar tennur en í önnur tvö hlaut ég smá uppreisn æru við að selja nærbuxur og undir- föt fyrir konur. Þá fór ég að velta því fyrir mér hvern^ fjárann ég væri eiginlega að gera við lif mitt. Ég var orðinn tvítugur og innritaðist i hag- fræðideild Sheffieldháskóla. Eg gat ekkert í hagfræði. Eg lauk prófi, en get samt ekkert i hagfræði. En það var i skólan- um sem ég kynntist fólki sem fékkst við skáldskap og m.a ritstýrði ég ljóðatímariti þar um skeið. Eg hef verið að þessu allar götur siðan." Delluljóð: „Það er ótrúlega erfitt að fá ljóðabók útgefna í Englandi. Stóru útgefendurnir gefa kannski út einn til tvo höfunda á ári. Þess vegna birta flestir verk sín í tímaritum, eða hjá einhverrum smærri útgef- endanna. Þannig er þetta með mig. En síðla nú i sumar á ég von á því að út komi eftir mig bók hjá forleggjara í Sunder- land með ljóðum fyrir börn, — svonefndum „nonsense poems“ eða delluljóðum í ætt við Lewis Caroll og Edward Lear, og svo í dag Spike Milligan. Þessi bók heitir „The Incomplete Nonsense of Peter Mortimer” og verður myndskreytt af lista- mönnum úr héraðinu. Mér finnst afskaplega gaman að fást við delluljóð, og ekki siður að flytja þau fyrir börn, sem ég er oft beðinn um. Viðbrögðin eru svo spontan. Hláturinn kemur strax á móti manni og slíkt er upplífgandi. Skáldsögu á ég líka sem ég vona að verði gefin út á næstunni. En timarit eru okkar helzti vettvangur fyrir ljóð og smásögur, og ég get nefnt sem dæmi að á þeim þremur árum sem Iron hefur komið út höfum við birt verk 170 höfunda, sem margir hverj- ir hefðu annars ekki átt þess kost að koma skáldskap sínum á framfæri." Kraftbirting Ijóðsins: „Eg get ekki sagt að ég sé dæmigert Tyneside-skáld, — kannski fyrst og fremst vegna þess að ég er ekki ættaður úr héraðinu. Ljóð mín held ég aó megi segja að séu skrifuð flest út frá því sem kallað hefur verið firring. Ekki endilega minni persónu- legu firringu, heldur fremur þessu almenna einkenni á nú- tímalifi í Bretlandi, þar sem svo margir lifa vió einangrun og einmanakennd. Hinir ýmsu fletir þessa mannlega vanda eru viðfangsefni mitt. Og ég reyni að virkja ljóðin með myndmáli fremur en yfirlýsing- um, að skirskota fremur en æpa. Jú, ég geri ráð fyrir að í þeim séu pólitískir undirtónar. Eg er vinstri maður i pólitík, sósíalisti. En ég er dálítið vantrúaður á blákaldar póli- tiskar yfirlýsingar í ljóðum. Meiri pólitik þýðir oft þeirn mun minni póesíu. Mín ljóð eru fyrst og fremst mannleg. Sér- hvert ljóð er byltingarlegt fyrir mér ef það opnar nýjar dyr. Ljóð er bylting ef það hefur kraftbirtingu í för með sér.”

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.