Morgunblaðið - 20.03.1976, Page 22

Morgunblaðið - 20.03.1976, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MARZ 1976 t Móðir okkar. KRISTÍN ÞÓRÐARDÓTTIR Frá Súðavlk andaðist í Landspítalanum 18 marz Kristjana Einarsdóttir Þórunn Einarsdóttir Guðrún Einarsdóttir. t Eigmkona min og móðir okkar GUÐRÚN GUÐNADÓTTIR húsfreyja að Þverlæk í Holtum andaðist 15 þ.m. Útför hennar fer fram miðvikudaginn 24 þ m kl 1 3 30 frá Fossvogskirkju Guðmundur Þorleifsson, Guðni Guðmundsson, Þorleifur Guðmundsson. t Faðir okkar, fósturfaðir og tengdafaðir ÓLAFURHÁKONARSON andaðist á heimili sínu Efstasundi 88 Rvk þann 18 marz Þorbjörg Ólafsdóttir Valur Benediktsson Hákon Jónsson Agnes Ingólfsdóttir t Útför eigmkonu minnar ÞORBJARGAR MATTHILDAR EINARSDÓTTUR Norðurbraut 39, Hafnarfirði fer fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði, þriðjudaginn 23 marz kl 2 e h Blóm og kransar afbeðnir Fyrir hönd vandamanna Ágúst Jónsson. t Útför eigmmanns míns, föður tengdaföður og afa, GUÐNA ELÍSSONAR Njálsgötu 34 fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 22 marz kl 1 30 Guðrún Halldórsdóttir, synir tengdadætur og barnabörn. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi ÓLAFUR B. ÓLAFSSON Hringbraut 1 36 áður Hafnargötu 50, Keflavlk verður jarðsungin i dag laugardag Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju kl 2 e.h Blóm og kransar afþökkuð. en þeir, sem vilja minnast hins látna, láti líknarstofnanir njóta þess Fyrir hönd vandamanna Guðrún Ólafsdóttir Lúlla Marla Ólafsdóttir Jóna Þ Ólafsdóttir Ólafur B. Ólafsson Bergþóra Hulda Ólafsdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför móður okkar tengdamóður og ömmu EVLALÍU JÓNSDÓTTUR Hofsvallagötu 1 7 Elfar Sigurðsson Jóna Jóhannesdóttir Einar Sigurðsson Sigrfður Einarsdóttir. Hörður Sigurðsson og barnaborn + Þökkum ínnilega auðsýnda samúð við andlát og útför STEINUNNAR JÓNSDÓTTUR Hrafnistu Sérstakar þakkir til læknis og hjúkrunarliðs á Hrafnistu Aðatbergur Stefánsson Ragnheiður Gísladóttir Sigurður Stefánsson Margrét Jónasdóttir Erla Stefánsdóttir Emil Jónsson Jón Stefánsson Katrin Guðjónsdóttir Halla Stefánsdóttir Baldvin Guðjónsson Rögnvaldur Stefánsson Sólveig Stefánsson Kristbjörg Stefánsdóttir Róbert Jensson Stefán Vilbertsson Halldóra Kristmundsdóttir barnaborn og barnabarnabörn. Sigríður Kristjánsdóttir frá Borgarnesi - Minning Fædd 14. október 1893 Iláin 12. mars 1976. I daK kveójum vió frá Borf»ar- nA'sskirkju SÍKriði Kristjáns- dóttur, fyrrum saumakonu, en hún lést á Akranesspítala hinn 12. mars s.l. Hún fæddist í Síðumúla á Hvítársiðu 14. októher 1893. Foreldrar hennar voru Kristján Kristjánsson og Þuríður flelga- dóttir er bjuj’í'u um árahil í (irisa- tunpu en siðast i Borgarnesi. Ars- gömul fór Sigríður í fóstur að Sámsstöðum, til hjónanna Guðmundar Guðmundssonar og (iuðrúnar Þorsteinsdóttur, en árið 1909 flytur hún að Fröða- stöðum, og þar átti hún heima til ársins 1917 hjá Brandi Daniels- syni og konu hans, Sigríði Halldórsdóttur. A þeim árum nam hún barnafræðslu hjá sr. Magnúsi Andréssyni á Gilshakka, og árin 1911 til 1915 annaðist hún harna- kennslu i Hvítársíðu. Þá lærði hún og fatasaum hjá (iuðrúnu Sveinbjarnardöttur á Hurðar- haki, verður nánar vikið að því siðar í þessari grein. 11. október 1914 giftist Sigríður Sveini Skarphéðinssyni, ættuðum úr Húnavatnssýslu og hófu þau búskap á .Jarðlangsstöðum í Borgarhreppi 1917. Bjuggu þau þar of> síðar á Hvitsstöðum í Alfta- nesshreppi, en árið 1924 flytjast þau svo til Borgarness og áttu þar heima æ síðan. Þeim varð sex barna auðið og eru þau: Guðrún, Aslaug, Guðmundur, Þuríður Hukla , Þórey, en yngsta barnið, Agúst, misstu þau aðeins árs- gamlan. Sveinn stundaði jafnan litilsháttar búskap auk allrar almennrar vinnu. Þau byggðu sér hús ofarlega í plássinu og bjuggu þar alla tíð. Sveinn lést af slysförum i september 1955. En það átti eftir að bera ávöxt, saumanámið hjá Guðrúnu á Hurðarbaki, því alla tíð, sem Sigriður átti heima í Borgarnesi, stundaði hún heimasaum og saumaði flest það sem fatnaður hét. Má nærri geta, að á þessum tímum kom þessi þjónusta sér vel hjá mörgum, þvi ekki þekktist að sækja tilbúinn fatnað í næstu húð. Þá þóttu og mjög eftir- sóknarverð öll hennar verk, bæði hvað snerti verð og vandvirkni. Að saumum vann hún meðan hún enn hélt heimili, eða fram til ársins 1965. Eg, sem þessar línur rita, átti ekki því lání að fagna að kynnast Sigríði, fyrr en aldur og erfiði hafði sett sinn svip á fyrri reisn hennar og fríðleik, en því kynntist ég, að áhrifin frá þeim menningarheimilum, þar sem hún dvaldi sín æskuár, höfðu eftirlátið annan glæsileik, sem ekki var öllu alþýðufólki gefinn á fyrstu árum þessarar aldar. Baldur Guðbrandsson Ólafsvík - Vertu trúr allt til dauða, og Guð mun gefa þér lifsins kétrónu. Þannig hljóða eitt fyrirheita hins æðsta. Nýlega var héðan kvaddur einn þeirra sem haga lífi sínu á þann hátt að á kveðjustund kemur manni framanskráð ritnigargrein í hug. Einn þeirra sem var trúr í stóru og smáu og þá ekki sist boðorðum skapara síns. Baldur fædist í Olafsvík 9. des. árið 1898, sonur sæmdarhjónanna Jóhönnu Valentínusdóttur og Guðbrands Sigurðssonar. Olst hann upp hjá þeim og voru þau sex systkinin. Eins og títt var í þá daga þurfti fljótt að taka til vinnunnar til bjargar sér og öðr- um. Baldur stundaði sjó í 35 ár og var m.a. formaður á bátum. Arið 1940 varð hann fiskmatsmaður og tók viö þeim starfa af föður sínum. Einnig starfaði Baldur talsvert við sntíðar og þótti lag- hentur smiður. Baldur var kvæntur Þórunni Þórðardóttur frá Borgarholti, hinni mætustu konu. Lifir hún mann sinn. Attu þau heimili að Hvammi hér i Olafsvík. Þórunn var manni sinum góður lifsföru- Minning nautur og bjó honum og börnunum hlýlegt heimili. Regla og nægjusemi var þar í fyrirrúmi. Þau hjónin eignuðust eina dóttur, Önnu Þóru sem gift er Steinari Magnússyni. Einnig ólu þau upp frá tveggja ára aldri Jöhann Jónsson kaupmann í Olafsvík sem kvæntur er Ingi- björgu Gunnlaugsdóttur og + Alúðarþakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför JÓNS JÓNSSONAR bónda Fagurhólsmýri Guðný Aradóttir börn og aðrir vandamenn. t Alúðarþakkir færum við öllum þeim, sem sýnt hafa okkur samúð og vináttu við andlát og jarðarför eiginmanns mlns, föður okkar, sonar og afa, PÁLS S. PÁLSSONAR Geitlandi 39 Sérstakar þakkir færum við Matthíasi Á Mathiesen Sigrún Elfasdóttir, Arndfs Pálsdóttir Sigrún Pálsdóttir Páll R. Pálsson Sigrún Guðmundsdóttir Páll Ásmundsson Arnar Pálsson Guðmundur Páll. Hún hafði einlægan áhuga á listum og bókmenntum, og gat hver sá sem þeim unni, notið mikillar ánægju og gleði í viðræð- um víð hana. Henni lágu og jafn- an á tungu heilar setningar úr leikritum eða Ijóðum, er hún unni og átti það jafnvel við til síðustu tíma, þrátt fyrir margra ára erfið veikindi. Eg veit heldur litið um tilgang þessa lífs, eða möguleika á framhaldi þess, en það hefur lengi verið mín skoðun, að þegar fólk, sem hefur skilað þjóð sinni til framtíðarinnar, heilum hópi af góðum þegrtum, og unnið þeim af alhug um langa ævi, leggst til hvildar, þá hljóti það að deyja hamingjusamt. Þess vegna kveðjum við nú Sigríði Kristjánsdóttur með gleði og þakklæti fyrir allt hið liðna. II. dötturdóttur sína, Hafdísi Ara- dóttur. Asamt starfi sinu sem fiskmats- maður vann Baldur almenn fisk- vinnslustörf, síðustu árin hjá Hraðfrystihúsi Olafsvíkur. Þar gekk að starfi hógvært prúð- menni sem vann verk sín af ítrustu samviskusemi og hvorki vinnufélagar né aðrir áttu mis- jöfnu að mæta hjá Baidri. Er með fullum sanni hægt að segja að hann mátti ekki í neinu vamm sitt vita. Bróðir Baldurs, Skarphéðinn, hefir um langt skeið unnið við hlið hans að fiskmatsstörfum og öðru. Með þeim hræðrum ríkti djúp vinátta og bróðurþel svo að til fyrirmyndar mátti teljast. Hafa þeir sjálfsagt oft stutt hvor annan á lífsleiðinni. Fyrir nokkrum árum kenndi Baldur sjúkleika þess sem nú hefir lokið verki sínu. Hann gekk þó að störfum fram undir síðasta dag, en glöggt mátti sjá að hverju dró. Eg kynntist Baldri vel, enda vorum við vinnufélagar síðustu æviár hans. Er honum hér með þökkuð trúmennska í starfi og viðkynning öll. Nú hverfur hvert af öðru það fólk sem telst til aldamótakyn- slóðarinnar og hefir með hörðum höndum byggt upp það velferðar- þjóðfélag sem við hiji yngri búum nú við. Væri óskandi að við gætum sem flest hagað lífi okkar á þann hátt að við vistaskiptin ættum við líkt og Baldur von á efndum á fyrirheitinu góða: „Guð mun gefa þér lifsins kórónu". Aldraðri eiginkonu og öðrum aðstandendum færi ég innilegar samúðarkveðjur. H.K. + Eiginmaður minn ÓSKARM JÓHANNSSON bif reiðastjóri Ásvallagötu 69. Reykjavlk andaðist I Landspitalanum 18 marz Fyrir hönd eiginkonu dóttur tengdasonar og stjúpbarna Sigrún EiSsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.