Morgunblaðið - 20.03.1976, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 20.03.1976, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MARZ 1976 31 „Að ganga ákveðin til leiks” TVEIR neiíiendur Tónlislar- skólans í Reykjavík leika ein- leik í Háskólabíói í dag með skólahljómsveit Tónlistarskól- ans, en það er liður í námi þeirra. Ein leikararnir eru Hrefna U. Eggertsdóttir, sem leikur á píanó, og Inga Rós Ingólfsdóttir, sem leikur á sellö. Við litum inn á æfingu í Háskólabíói þar sem skóla- hljómsveitin og einleikarar voru að æfa fyrir tónleikana í dag, en á efnisskránni eru verk eftir Mozart, þ.e. forieikur að óperunni „Brottnámið úr kvennabúrinu". Þá er konsert nr. 3 í A-dúr fyrir selló og hljómsveit eftir Carl Ph. E. Bach. en þar leikur Inga Rós einleik. Einnig leikur skólahljóm- sveitin litla sinfóniu fyrir blásara eftir C. Gounod og i verkinu Variations Symphoniques eftir César Franck leikur Hrefna einleik á píanó. Við röbbuðum við þær skóla- systur um starfið. I Skóla- fólk hjá Morgun- blaðinu „HEF HALDIÐMIG AÐ SELLOINU SlÐAN" Inga Rós sat hin salla- rólegasta á hljómsveitarpall- inum með sellóið sitt, klædd venjulegum táningaklæðnaði, gallabuxum og tilheyrandi. en í Eftir Drífu Kristjáns dóttur í starfsfræðslu á Morgunblaðinu frá Gagnfræðaskólanum í Vestmannaeyjum Spjsillað við tvær stúlkur úr Tónlistarskólunum æfingahléi hittum við hana að máli. Hún kvaðst hafa lært á selló I 8 ár. „Eg byrjaði að læra á fiðlu," sagði hún, ,,en svo þótti mér það ekkert spennandi vegna þess að ég á tvær eldri systur sem báðar voru í fiðlu- leik og komnar mun lengra en ég og mér likaði ekki að vera eftirbátur þeirra með fiðluna Svo varð það úr að ég prófaði selló og fannst það nieira spennandi og síðan hef ég haldið mig við það". Aðspurð um frekara nám kvaðst hún hafa hugsað sér að halda til Þýzkalands næsta vetur og dvelja þar 3—4 ár við framhaldsnám eða kennslu. „4 KLST. A DAG VIÐ PlANOlD" Hrefna kvaðst vera búin að læra á píanó s.l. 10 ár og hún ságðist æfa minnst 4 klukku- tima á dag. Síðastliðið vor tók hún píanókennarapróf. en í dag lýkur hún einleikaraprófi á píanó. Hún kvaðst ávallt hafa haft sérstakan áhuga á píanó- leik og ekki hafa haft áhuga á að læra á önnur hljóðfæri. Við lögðum fyrir hana þá samvizkuspurningu hvort hún væri ekki taugaóstyrk eða spennt þegar hún ætti að koma fram opinberlega. Hún hrosti við og kvaðst ekki viðurkenna slíkt' fyrir sjálfri sér þegar á hólminn væri kornið þótt hún vissi ef til vill svolítið betur, „en," hélt hún áfram, „það þýðir ekkert annað en vera sjálfsörugg ogganga ákveóin til leiks." Aðspurð kvaðst Hrefna hafa hug á að halda til Austurríkis ti 1' frekara náms, en þó kvað hún óráðið hvernig þvi yrði háttað. Við þökkuðum þeint stölium spjallið og öskuðum þeim góðs gengis. Inga Rós Ingólfsdóttir og Hrefna U. Eggertsdóttir Veislumatur við vægu verði Réttir helgarinnar í kvöld: Roast Beef með bordelous-sósu og bök- uðum kartöflum. Verð kr. 750.00 I hádegi á morgun: Glóðarsteikt lambalæri með bernaissósu og steiktum kartöflum. Verð kr. 650.00 í kvöldmat á morgun: Fylltur grísahryggur með rjómasósu, maukuðum ananas, ristuðum eplum og rauðkáli. Verð kr. 800.00. Þaö er ódýrt aö boröa hjá okkur Verið velkomin EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU W Al (ÍLVSINGA- SÍMINN ER: 22480 GOLFTEPPI Ullarteppi — Nylonteppi Ryateppi — Acrylteppi Stök teppi — Mottur Sem sagt teppi fyrir alla Gæði í hverjum þræði Við sníðum, tökum mál og önnumst ásetningu Verð fyrir alla — Teppi fyrir alla rr \A TEPPAVERZLUNIN FRIÐRIK BERTELSEN, LÁGMÚLA 7, SÍMI 86266 t.i tt I í ttli I l i !"l '<(4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.