Morgunblaðið - 10.04.1976, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. APRlL 1976
13
Rangæingar vilja Hraun-
eyj ar íossvir kj u n fljótt
VERKALVÐSFÉLÖGIN, sveitastjórnir og sýslunefnd Rangárvalla-
sýslu gengust fyrir almennum borgarafundi í Rangárvallasýslu 3.
aprfl s.l. f Hellubíói. Fundinn sóttu hátt á annað hundrað manns
vfðsvegar að úr héraðinu.
Gunnar Thoroddsen, félags- og
orkumálaráðherra, allir þing-
menn Suðurlandskjördæmis,
nema þingmaður Alþýðubanda-
lagsins, mættu á fundinum.
1 fréttatilkynningu, sem
Morgunblaðinu barst, segir, að í
framsöguerindi Sigurðar Oskars-
sonar hafi komið fram, að heima-
menn teldu, að þegar unnið væri
að stórframkvæmdum eins og
virkjunum þyrfti verkhraðinn að
vera minni, því með þvi myndu
Pétur Jónsson
TóHlistarskólinn í Görðum
brautskráir fyrsta nemandann
TÓNLISTARSKÓLINN f Görðum
(áður Tónlistarskóli Garða-
hrepps) efnir til tónleika I Nor-
ræna húsinu laugardaginn 10.
apríl kl. 14.
Tónleikarnir eru þáttur i burt-
fararprófi Péturs Jónassonar frá
Tónlistarskólanum í Görðum.
Pétur er fyrsti nemandinn, sem
brautskráður er frá þeim skóla.
Kennari hans er Eyþór Þorláks-
son gitarleikari. Pétur hóf nám í
gítarleik í Tónlistarskóla Garða-
hrepps árið 1969 og hefur stundað
þar nám síðan. Á efnisskránni eru
verk, sem eru lítt kunn hér á
landi, og hafa sum þeirra ekki
verið flutt hér áður.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis.
Lista- og menningar-
vika á Höfn í Hornafirði
Höfn, 8. apríl.
LISTA- og menningarvika hefst
hér á Höfn n.k. sunnudag 11.
april og stendur til 16. aprfl,
föstudagsins langa.
Á sunnudag verður opnuð
myndlistarsýning á verkum sem
listasafn Alþýðusambands Is-
lands lánar og um kvöldið verður
kynning á verkum Jónasar Árna-
sonar og lýkur henni með sýningu
á leikritinu Táp og fjör. Á mánu-
daginn verða hljómleikar Karla-
kórsins Jökuls. Listaskáldin
vondu og Spilverk þjóðanna koma
síðan fram á þriðjudaginn og á
miðvikudag syngur kór Mennta-
skólans i Hamrahlíð. Kórinn mun
einnig syngja með kirkjukórnum
hér við guðsþjónustu I kirkjunni
á skírdag. Á föstudaginn verða
hljómleikar Lúðrasveitar Horna-
fjarðar og um kvöldið verður upp-
lestur.
Arni Stefánsson hótelhaldari
hefur að mestu séð um uppsetn-
ingu og skipulagningu lista- og
menningarvikunnar.
Gunnar.
hinir miklu álagstoppar verða
hverfandi. Páll Flygenring frá
Landsvirkjun tók í sama streng
og Landsvirkjun stefndi að hinu
sama.
Ingólfur Jónsson alþm. tók í
sama streng og þeir félagar og
minnti á, að Rangárvallasýsla
væri fyrst og fremst landbúnaðar-
hérað, og lýsti þeirri skoðun
sinni, að með skynsamlegum að-
gerðum mætti skapa í héraðinu
nægan og traustan vinnumarkað
fyrir Rangæinga.
Gunnar Thoroddsen orkuráð-
herra sagði að áætlanir Lands-
virkjunar varðandi virkjun við
Hrauneyjarfoss lægju fyrir og
mjög fullkomnar rannsóknir
hefðu verið gerðar. Taldi ráðherr-
ann allan undirbúning og áætl-
anagerð Landsvirkjunar til fyrir-
myndar.
I lok fundarins voru lagðar
fram tvær tillögur og þær sam-
þykktar. Önnur þeirra er áskorun
til orkumálaráðherra um að taka
ákvörðun um virkjun Hraun-
eyjarfoss næst á eftir Sigöldu, en
hin tilmæli til félagsmálaráð-
herra um að skipa atvinnumála-
nefnd fyrir Rangárvallasýslu.
Einleikarar ásamt stjórnendum
Tónleikar Tóntístar-
skólans íReykjavík
Tónlistarskólinn I Reykjavfk heldur tónleika f Háskólabíói laugar-
daginn 10. aprfl, og hefjast þeir kl. 17. A efnisskránni verður: Konsert
f A-dúr, L. 219 fyrir fiðlu og hljómsveit eftir Mozart, Introduction und
Allegro appassionato, op. 92 fyrir pfanó 0g hljómsveit eftir Beethovén.
Einleikarar verða þau Kolbrún Hjaltadóttir, Arni Harðarson og Kol-
brún Ösk Óskarsdóttir. Stjórnendur verða Marteinn Hunger Friðriks-
son og Stanley Hrynuik.
Kolbrún Hjaltadóttir iýkur ein-
leikaraprófi frá Tónlistarskólan-
um í vor, þetta er fyrrihluti prófs-
ins. Hún hefur verið nemandi
Björns Ölafssonar í 7 ár, en er nú
nemandi Guðnýjar Guðmunds-
dóttur konsertmeistara.
Kolbrún Öskarsdóttir tekur
píanókennarapróf í vor. Hún hef-
ur verið nemandi í tónlistarskól-
anum i Reykjavík í 12 ár. Kennari
hennar er Rögnvaldur Sigurjóns-
son.
Á tónleikunum leikur sem gest-
ur Árni Harðarson. Hann verður
fyrstur til að ljúka burtfararprófi
í píanóleik frá Tónlistarskóla
Kópavogs, en þar hefur hann
stundað nám i tólf ár. Auk þess að
leika með Hljómsveit Tónlistar-
skólans í Reykjavík mun hann
halda einleikstónleika í næsta
mánuði. Kennari hans er Kristinn
Gestsson.
Glæsilegur
kökubazar
að Hallveigarstöðum á morgun,
sunnudag kl. 2 eftir hádegi
Hvöt félag sjálfstæðiskvenna
Bátar til sölu
Hinn árlegi merkjasöludagur Ljósmæðratélags Keykjavikur er n.k.
sunnudag 11. apríl. — Eins og að undanförnu verður ágóða varið til
Ifknarmála. Agóði af sfðustu merkjasölu rann til barna með sérþarfir.
— Merkin verða afhent frá kl. 10 árdegis f Álftamýrarskóla, Arbæjar-
skóla, Breiðholtsskóla, Fellaskóla, Langholtsskóla, Vogaskóla og Mela-
skóla. — Myndin er tekin við undirbúning merkjasölunnar.
Blaka sýnir í París
GUÐRUN Jónsdóttir — Blaka —
sendiráðsritari f Parfs, á tvær
vatnslitamyndir á sýningu á veg-
um Société des Artistes
Indépendants, sem haldin er f
Grand Palais um þessar mundir.
A sýningu þessari er að finna
um 4600 málverk. Sérstök deild
er að þessu sinni helguð egypskri
nútfmamyndlist.
Blöku hlotnaðist og sá heiður að
fá að taka þátt f síðustu sýningu
hinna frjálsu listamanna er
haldin var á sama stað dagana
7.—27. marz í fyrra, og sýndi hún
þá tvær vatnslitamyndir. Var
önnur myndin i hópi sex litmynda
er birtust í sérstöku myndlistar-
timariti helguðu sýningunni.
Blaka sýndi og eina vatnslita-
mynd á sýningu er haldin var í
Grand Palais haustið 1975, en á
þeirri sýningu voru sýnd rúmlega
1000 olíumálverk og um 170
vatnslitamyndir. Dómnefnd gerir
þar mjög strangar kröfur að þvf
er segir í fréttatilkynningu sem
Mbl. hefur borizt.
Blaka hefur og tekið þátt i
smærri sýningum, en sýningin í
Grand Palais er sú 11. sem hún
hefur tekið þátt i í París. Þá hafa
Blöku borizt tilboð um að sýna
víða um heim, m.a. í Bandarfkjun-
um, Kanada, Japan og Þýzka-
landi.
18 tonna plankabyggður eikarbátur, endurbyggður.
17.5 tonn nýr plankabyggður eikarbátur í sérflokki
it 3.5 tonna trilla (Silla Nk 42)
if 3.7 tonna trilla (aðeins skrokkur nýsmíði)
gæti einnig fengist afhentur fullfrágenginn
1 1 tonna eikarbátur smíðaður 1 973
Upplýsingar gefur
Guðmundur Ásgeirsson
Melagötu 2, Neskaupstað sími 97-71 77
UJWkJ
GIIT
HÖFDABAKKA9
SiMI85411
í dag og næstu daga seljum
viö smágallað keramik.
Opið frá kl. 10— 12
og 13—16.
GLIT, Höfðabakka 9,
(austurenda)