Morgunblaðið - 10.04.1976, Síða 36
\K.LYSINÍ,ASÍMINN ER:
22480
ALGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
Btorcunbte&iíi
LAUGARDAGUR 10. APRlL 1976
Saltfiskurinn:
280 þús. kr.
útborgunarverð
fyrir tonnið
13% hækkun frá því í fyrra
lltborgunarverð á saltfiski,
stórum fiski nr. 1, er nú krónur
280 þús. fyrir tonnið ok er þá
miðað við nýgerða sölusamninga
við Portúgali og Spánverja. Verð
það sem fæst fyrir blautfisk er
12—13% ha'rra f dollurum talið
Tefla Friðrik og
Guðmundur saman
á móti í HoIIandi?
BOf) HKFUR komið til (iuð-
mundar Sigurjónssonar um að
taka þátt f hinu geysisterka
IBM-skákmóti f Amstcrdam f
júlf. Friðrik Olafsson hefur
þegar fengið boð um að taka
þátt f þessu móti svo þarna
gæti rætzt langþráður draum-
ur þeirra beggja um að taka
saman þátt f skákmóti á er-
lendri grund, en það hefur
ekki gerzt áður.
,,Eg verð að taka mér um-
hugsunarfrest, ég á svo
skrambi erfiða dagskrá fram-
undan," sagði Guðmundur
þegar Morgunblaðið flutti hon-
um fregnirnar um boðið í gær-
kvöldi, en hann teflir nú í Las
Pal nas eins og kunnugt er.
Þegar mótinu þar lýkur fer
hann beint til Kúbu á mót, og
þaðan kemur hann ekki fyrr
Framhald á bls. 35
en það sem fékkst í fyrra. Að sögn
forráðamanna Sölusambands fsl.
fiskframleiðenda telst þetta verð
viðunandi og stendur undir fram-
leiðslukostnaði þó svo að ekki sé
hægt að taka af því í Verðjöfn-
unarsjóð.
Þeir Tómas Þorvaldsson,
stjórnarformaður S.I.F., Helgi
Þórarinsson, framkvæmdastjóri,
og Friðrik Pálsson, skrifstofu-
stjóri, sögðu er Morgunblaðið
ræddi við þá í gær, að eins og frá
hefði verið skýrt hefði tekizt að
selja um 26 þús. lestir af saltfiski.
Af þeim væru um 1000 lestir af
þurrfiski frá fyrra árs fram-
leiðslu og verðið fyrir þann fisk
stæði ekki undir framleiðslu-
kostnaði, þö svo að það væri
heldur hærra en það verö sem
fékkst íhaust. Þá væri ennfremur
gert ráð fyrir sölu á 1000 lestum
af flöttum og söltuðum ufsa og
væri það nýlunda.
Að sögn þeirra félaga fara tæp-
Framhald á bls. 35
Flugfargjöld
innanlands
hækka um 14%
RlKISSTJORNIN staðfesti f gær
samþykkt verðlagsncfndar um
14% hækkun flugfargjalda og
farmgjalda innanlands.
Morgunblaðið fékk þær upp-
lýsingar hjá Sveini Sæmundssyni
blaöafulltrúa Flugfélags Islands í
gær, að eftir hækkunina kostaði
far til Akureyrar 4000 krónur
aðra leiðina, til Vestmannaeyja
3590 krónur, til tsafjarðar 3720
krónur og til Egilsstaða 5370
krónur. Að auki bætist við 200
króna flugvallarskattur.
Ljósm. Varnarliðið.
FASTIR I ÍSNUM — Þessi mynd var tekin I gær af norsku hvalveiðibátunum tveimur, sem eru fastir
1 fsnum 530 mflur norður af lslandi. Um borð f öðrum bátnum er mjög veikur maður og er brezka
birgðaskipið Olven á leið til hjálpar. Sést það á minni myndinni, en hún var einnig tekin í gær. Sjá
nánar f frétt á bls. 2.
Geirfinnsmálið:
Gæzluvarðhald 3ja manna
framlengt um 30 daga
Bílstjóri hefur gefið sig fram
Gæzluvarðhaldsvist þeirra
þriggja manna, sem fyrst voru
hnepptir í varðhald við sfðari
rannsókn Geirfinnsmálsins, hef-
ur verið framlengd um 30 daga.
Gæzluvarðhald mannanna átti að
renna út i dag. Embætti ríkissak-
sóknara krafðist framlengingar á
gæzluvarðhaldi og var úrskurður
um framhald felldur af Sakadómi
Reykjavfkur. Réttargæzlumenn
mannanna þriggja lýstu þvf yfir
við dómsrannsókn í gær, að úr-
skurðinum yrði ekki áfrýjað til
Hæstaréttar til þess að valda ekki
töf á dómsrannsókninni.
Stjórnarráðsfólk óánægt með B.S.R.B. samningana:
Telur verkfalls-
réttinn lítils virði
Starfsmannafélag stjórnarráðs-
■ns hélt fund í Þjóðleikhús-
kjallaranum f gær um nýgerða
samninga B.S.R.B. og rfkisins. A
fundinum kom fram, að starfs-
menn stjórnarráðsins eru frekar
á móti verkfallsréttinum af
ýmsum ástæðum og telja hann
léttvægan.
Erlingur Hansson, fulltrúi í
stjórnarráðinu, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að fundurinn
hefði hafizt með því að Kristján
Thorlacius. formaður B.S.R.B.,
hefði útskýrt nýju samningana og
síðan hefði Örlygur Geirsson út-
skýrt þátt stjórnarráðsmanna í
samningunum. Að þessu loknu
hefðu verið almennar umræður.
I almennu umræðunum hefði
komið fram, að fólk væri almennt
á móti samningsdrögunum og
teldi að verkfallsrétturinn væri
léttvægur á móti þvi sem menn
hefðu misst. Það hefði komið
fram hjá fólki, að ekki nema 2—5
Framhald á bls. 35
Frá fundinum f gær.
Ljósm. Mbl.: RAX
Sakadómur Reykjavíkur lét sfð-
degis í gær fara frá sér eftirfar-
andi fréttatilkynningu:
Á morgun (laugardag) rennur
út gæzluvarðhaldstimi þriggja
þeirra manna sem úrskurðaðir
voru í gæzluvarðhald hinn 26. jan-
úar og 11. marz s.l. vegna rann-
sóknar á hvarfi Geirfinns Einars-
sonar.
Af hálfu ákæruvalds var á dóm-
þingi i dag krafizt, að gæzluvarð-
haldsvist þessara þriggja manna
yrði framlengd með úrskurði
dómsins í þágu dómsrannsóknar
hinna alvarlegu sakarefna máls
þessa, sem eigi er lokið, sbr. 1. og
4. tölulið 67. gr. laga nr. 74, 1974.
Var gæsluvarðhald framan-
greindra manna framlengt með
úrskurði dómsins um allt að 30
dögum frá 10. apríl 1976 að telja.
Af hálfu allra framangreindra
manna var því lýst yfir að úr-
skurðir þessir yrðú ekki kærðir til
Hæstaréttar Islands til þess að
valda ekki töf á dómsrannsókn á
sakarefni málsins.
Hinn 26. marz s.l. lýsti rann-
sóknarlögreglan eftir tveimur bif-
reiðastjórum sem ekið hefðu
ungri stúlku að morgni þess 20.
nóvember 1974, annar frá Kefla-
vík að Grindavikurafleggjara en
hinn þaðan og til Hafnarfjarðar.
Hinn 30. marz s.l. gaf sig fram
40% hækkun
hjá Ríkisskip
SAMÞYKKT hefir verið 40%
hækkun bæði á far- og farmgjöld-
um hjá Skipaútgerð rfkisins.
Að sögn Guðjóns Teitssonar,
forstjóra, var gert ráð fyrir því i
fjárlögum að þessi hækkun gengi
í gildi um áramót en dráttur
hefur orðið á þvi. Sagði Guðjón að
efamái væri að hækkunin nægði
vegna þess dráttar, sem orðið
hefur á gildistöku hennar.
maður sem kvaðst hafa tekið upp
í bifreið sína unga stúlku í Kefla-
vík og ekið henni að Grindavíkur-
afleggjara en stúlka þessi kvaðst
ætla til Grindavíkur. Maður þessi
sem ók Skoda-bifreiða með G-
númeri tók eftir því að stúlkan
tók sér ekki far með bifreið sem
stöðvaði hjá henni þrátt fyrir að
sú bifreið héldi áfram í átt til
Grindavíkur.
Maðurinn kveðst síðan hafa séð
þessa sömu stúlku í flutningabif-
reið sem ekið var fram úr hans
bifreið skömmu síðar á leið til
Hafnarfjarðar.
Hinn bílstjórinn hefur ekki gef-
ið sig fram.
Guðmundur
enn efstur
GUÐMUNDUR Sigurjónsson
stórmeistari gerði í gærkvöldi
jafntefli við vestur-þýzka stór-
meistarann Hiibner á skák-
mótinu I Las Palmas.
Guðmundur sagði við Mbl. í
gærkvöldi, að hann hefði allan
tlmann haft betra tafl en lent I
tfmahraki og ekki getað inn-
byrt vinninginn. Guðmundur
hafði hvftt, og varð skákin 26
leikir.
Sovétmaðurinn Geller gerði
jafntefli við Portisch en Dan-
inn Bent Larsen er að reyna að
ná vinningi gegn Spánverjan-
um Petron. Guðmundur og
Geller eru efstir með 314 vinn-
ing eftir 5 umferðir en Larsen
getur náð þeim að vinningum
ef hann vinnur skákina frá í
gærkvöldi.
I dag teflir Guðmundur með
svörtu gegn bandaríska stór-
meistaranum Robert Byrne, en
á morgun mætir hann
Fraguella frá Spáni og hefur
hvítt.