Morgunblaðið - 15.04.1976, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. APRlL 1976
65
Hæsta virkjun, sem Energoprojekt hefur byggt er í
Mratinje í Júgóslavíu. Stíflan þar er 220 metrar á hæö,
en stíflan við Sigöldu er 40 metrar á hæð og 926 metrar
á lengd, asfaltklædd. Hún mun framleiða 150 megavött
af rafmagni í þremur vélasamstæðum, en gert er ráð
fyrir, að unnt sé að bæta við þeirri fjórðu, þó að vatn
verði ekki alltaf nægilegt, en bæta má vatni i lónið ofan
úr öræfum og ná 200 megavatta rafmagnsframleiðslu á
mesta álagstímanum.
Stærsta virkjun, sem Júgóslavarnir hafa átt aðild að,
Sjá næstu sföu
Rifið utan af fyrsta hverflinum I Sigöldu.
Þetta virðist ætla að heppnast. . .
Júgóslavarnir halda því fram, að ástæðan til þess, að
ekki hafi betur til tekizt I Sigöldu en raun ber vitni sé
sú, að fleiri vatnsæðar hafi opnazt við sprengingar en
búizt var við; þetta séu ekki mistök Landsvirkjunar, því
að alltaf megi búast við sliku. En tæknideild Energopro-
jekt, sem sér um tilboðin, hafi að öllum líkindum ekki
farið nógu gætilega í sakirnar og hefði átt að reikna
með meiri áföllum, ef von hefði átt að vera á hagnaði.
„Enginn fer í fangelsi," sagði skrifstofustjórinn. „Við
deilum vandræðum, og skiptum hagnaði.“
Það er m.a. þetta, sem kallað er títóismi; sérstök
tegund af sósíalisma.
Svo ólik eru kerfin i Sovétríkjunum og Júgóslavíu,
segja hinir siðar nefndu, að ekki er hægt að bera þau
saman. Nú hefur sænska stjórnin ákveðið að reyna
þetta júgóslavneska kerfi. Hún hefur keypt einkafyrir-
tæki I Svíþjóð handa verkamönnum og hyggst kanna,
hvort Svíar geti ekki farið eigin leiðir í þessum efnum,
en jafnframt byggt á reynslu Júgóslava.
Séð yfir stærstu virkjun sem Energoprojekt hefur gert við Járnhliðið I Dóná. Byggingu þessarar
virkjunar lauk 1970.
Mratinje, hæsta virkjun sem Energoprojekt hefur ráðist i. Hæð hennar verður 220 metrar en virkjunin er
enn I byggingu.