Morgunblaðið - 05.08.1976, Page 2
M()l<(il.'.NMI,.\f)IÐ. FIM.MTUDAdUK 5. ACL'ST 197«
Aðskilnaður
ríkis og kirkju?
MlUIMNA hiskupafuiid-
inum var l'ram haldid í
H('\kja\ík í tíH'i'. I lía'i-
mormin voru flutlir fyrir-
lcslrar um cfnin skírn, trú
ojí u|)|)fra'úslu oj; voru þar
f ramsonumcnn Ilcnrik
( ln islianscn frá l)an
miirku o.n Yr.jo Sariola frá
I innlandi. I.llir hádcj;iú
hcldu I vrii lcslrarnir
álram o« \ar nú tckiú fvrir
cfnirt ríki oj; kirk.ja. l m
j);irt II ii 11 ii fyrirlcstra
norski hiskupinn I’cr ,Iu\ k-
am Irá Ucrncn oj; S\íinn
\rnc l’alm(|tiisl frá \'cst-
eras. Samspil rfkis og
kirkju cr nú m.jo” til um-
ru’rtu á Norrturlöndum,
ckki sízt í N’orefíi <>K Dan-
miirku. t mra-rtur áttu art
fara fram cltir þcssa fyrir-
lcstra cn ckki j>afsl mikill
tími til þcirra þar scm dafí-
skráin cr þctt.
Sírtdc^is í Kicr vac hisRu'piinuni
l»>rtirt ásaml Rnnuin lii'irra lil
Hissasl arta |iar scni forsdi Is-
lanils. ilr Kristján Kld járn. lók á
nirtli |)cini I IiilIi Iorsolinn slull
á\arp i Mi ssaslartakirk.ju þar scin
hann haiirt ucslina vclkonma o”
kvart hann scr |>art ylcrtiiTni art s já
svo marja kirkjulcirtloj;a l'rá
Moirtiirlönilimiini sanian koinna
|>ar líakli forsclinn nokklirt söyu
startarins o” öskarti hann hiskup-
111111111 j>css art vörtur áranuur
nucUi hl|ólast al' fiinduni |)cirra.
Sírtan |)áuti ucslir vcilinuar for-
s(Tati.jr>nanna.
I da« Ivkur fiindiini á jicssu
áljánda |>in”i norncnna hiskupa
cn ái niorvun fara |>cir lil I>in«-
valla o.u Skálholls |>ar scm |>inu-
inu vcrrtur slitirt. I'ndirhiíninu <>u
ski|>iilaunin«u dauskrár hiskupa-
Innuanna annast fundir Inskupa i
hvi'iju landi.cn |>ctla cr f fyrsta
sinn sciii jhnuirt cr haldirt hcr á
landi
I' orscti Islands ITiilti áiarp i kirkjunni o>> haurt ucsti \clkomna
Síbrotapiltur úrskurð-
aður í gæzluvarðhald
19 ÁRA síbrotapiltur var á
þriðjudaginn úrskurðaður
Rannsóknarlög-
reglumaðurinn
laus úr gæzlu
Rannsóknariögreglumaðurinn,
sem nýlega var handtekinn fyrir
stórfellt ávfsanafajs, var látinn
laus úr gæzluvarðhaldi í gær-
kvöldi. Hann hafði setið inni f 10
daga. Guðmundur Jðhannesson
dðmari við bæjarfógetaembættið
í Hafnarfirði sagði við Mbl. f gær-
kviildi, að rannsðkn málsins væri
vel á veg komin. Hins vegar hefðu
ekki allar ávfsanir skilað sér
ennþá, og væri þvf ekki ennþá
hægt að segja um það nákvæm-
lega hve miklar fjárhæðir maður-
inn sveik út úr hankakerfinu.
Jafntefli hjá
íslandi á NM
FVRSTU leikirnir í unglinga-
mðti Norðurlanda I knatt-
spyrnu fóru fram f gærkvöldi.
Á Laugardalsvelli gerðu Is-
land og Finnland jafntefli 1:1,
en í Keflavfk vann Danmörk
Vestur-Þýzkaland 2:0.
IVIark tslands gerði Helgi
Helgason frá Húsavfk. t kvöld
leika Svfþjóð og Danmörk f
Kðpavogi klukkan 19 og á
sama tfma leika á Akranesi
Noregur og Finnland.
Fyrsti leikurinn f Evrðpu-
keppni bikarmeistara fór fram
f gærkvöldi. Cardiff, Wales,
sigraði Servette frá Sviss, 1:0,
og gerði Alun Evans markið.
Leikið var f Wales.
í allt aö 30 daga gæzluvarð-
hald hjá Sakadómi Reykja-
víkur. Er þetta í annað
skiptið á árinu, sem hann
er úrskurðaður í gæzlu. í
febrúar s.l. var hann úr-
skurðaður í allt að 90 daga
gæzluvarðhald og sat hann
inni allan tímann. Piltur
þessi hefur að baki tugi
þjófnaða, innbrota og fals-
ana á s.l. 5 árum.
Um síðustu helgi var hann við-
riðinn tvö innbrot, fyrst hjá Ulrik
Falkner úrsmið, þar sem hann
stal nokkrum úrum. Einnig stal
hann lyklum frá sofandi Hafn-
firðingi á laugardaginn, en þeir
voru saman í samkvæmi, og fór
hann ásamt tveimur öðrum
kumpánum í íbúð mannsins og lét
þar greipar sópa. Tóku þeir félag-
ar m.a. 2 sjónauka, myndavél,
sýningarvél, skartgripi og ýmis-
legt fleira, samtals að verðmæti
um 200 þúsund krónur. Þetta inn-
brot hefur rannsóknarlögreglan í
Hafnarfirði upplýst.
ÞESSI gerfitunglamvnd var tekin
yfir landinu á hádegi í gær, og
bendir örin á skýjabakkann, sem
hélt vöku fvrir landsmönnum í
fyrrinótt.
Þrumuveður hélt vöku
fyrir fólki um vestan-
vert landið í fyrrinótt
Aurskriður lokuðu vegum á Vestfjörðum
MIKIÐ þrumuveður gekk vfir
vestanvert landið í fyrrinótt, og
að sögn Guðmundar Hafsteins-
sonar veðurfræðings varð þess
vart frá Vestmannaeyjum norður
um vestanvert landið og allt út á
Halamið, þar sem skip tilkvnnti
um þrumur og eldingar. Stóð
Heimilað að veiða
1115 hreindýr í haust
HEIMILAÐ hefur verið að veiða
1115 hreindýr á þessu hausti, að
sögn Birgis Thorlacius, ráðu-
neytisstjóra í menntamálaráðu-
neytinu. Að sögn Birgis mátti
byrja veiðarnar 1. ágúst og þær
má stunda fram til 15. september.
Engin sportveiði er leyfð frekar
en undanfarin ár, heldur er veið-
inni skipt milli 27 hreppa og eru
veiðarnar undir eftirliti sérstakra
hreindýraeftirlitsmanna. Birgir
sagði að hann hefði fregnað að
hreindýrastofninn væri allstór
um þessar mundir og ástand
hreindýranna væri með bezta
móti eftir góðan vetur og þokka-
þetta þrumuveður yfir frá þvf
klukkan hálf tvö í fyrrinótt og
fram undir hálf fjögur, nema
hvað þess varð vart í Vestmanna-
eyjum alveg fram á sjötta tlmann
um nóttina. Mestur varð gaura-
gangurinn á Vestfjörðum, þar
sem þrumurnar bergmáluðu í
fjöllunum og sagði fréttaritari
Mbl. á lsafirði, að ljós hefði verið
í nær öllum húsum á Isafirði
fram eftir nóttu og væntanlega
fáum komið dúr á auga. Mikil
rigning fylgdi veðrinu og féllu
skriður sums staðar, t.d. Iokuðu
tvær skriður veginum milli lsa-
fjarðar og Hnffsdals.
Þrumuveður er mjög sjaldgæft
á Vestfjörðum, að sögn Guðmund-
ar veðurfræðings, og í sama
streng tók Ólafur Þórðarson
fréttaritari Morgunblaðsins á ísa-
firði. — Ég hef rætt við allmarga
Framhald á bls. 17
Skilar loðnuveiðin 13-15 hundruð
milljónum kr. í útflutningstekjur?
NÚ eru komin á land rúmlega 31.000 tonn af loðnu á loðnuvertfðinni í sumar. Alls
hefur loðnu verið landað á 11 stöðum og eru nú ýmsir gamlir og kunnir sfldarstaðir
s.s. Siglufjörður, Krossanes og Raufarhöfn sem óðast að klæðast sínum gamla
skrúða. Fiskifræðingar hafa látið í ljós þá skoðun að framhald eigi að geta orðið á
þessum veiðum á komandi sumrum en um væntanlegan afla er þó erfitt að spá, því
lítið er vitað um háttalag loðnunnar, auk þess sem hafís á veiðisvæðinu kann að
hindra veiðar þar. Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur sagði í samtali við Mbl. að
ekki væri fráleitt að geta sér til um að heildaraflinn í sumar yrði um 100 þúsund
tonn. Láta mun nærri að útflutningsverðmæti afurða þessara hundrað þúsund tonna
sé á hilinu 13 til 13 hundruð milljónir króna.
I.oðnuveiðin i sumar hófst með
leiðarigri rannsóknaskipsins
Bjarna Sæmundssonar óg til-
raunaveiðum fjögurra veiðiskipa
og var fyrstu loðnunni landað 7.
jt'ilí sl. Fram til 15. júlí voru
loðnuveiðar fyrir Norðurlandi
hannaðar. en eftir þann tíma hef-
ur lortnubátunum farirt fjölgandi
og um helgina voru komin 26 skip
á rnírtin. Eins og ártur sagði hafa
nú borizt á land rúmlega 31 000
lonn og fer hér á eftir listi yfir
löndunarhafnirnar ásamt upplýs-
ingum um þann afla, sem borizt
hefur til hverrar hafnar. Að sögn
Andrésar Finnbogasonar hjá
loðnunefnd eru tölur þessar ná-
kvæmar nema hvað snertir Siglu-
fjörð, þar liggja ekkí fyrir endan-
legar tölur um síðustu landanir.
tonn
Siglufjörður 16.282
Neskaupstaður 4.204
Reykjavík 2.088
Bolungarvík 2.009
Krossanes 1.772
Keflavík 1.650
Raufarhöfn 1.122
Vopnafjörður 1.060
Hafnarfjörður 483
Akranes 416
Ólafsfjörður 156
31.242
Aflahæsta skipið nú er Sigurð-
ur RE 4 með 5.058 tonn, en næst-
ur kemur Guðmundur RE 29 með
2.903 tonn. Næstu tvö skip eru
Súlan EA 300 með 2.700 tonn og
Gullberg VE 292 með 2.010 tonn,
en þessi fjögur skip, sem hér hafa
verið nefnd, eru búin að vera
lengst á miðunum og hófu til-
raunaveiðar í samfloti við Bjarna
Sæmundsson. Af þeim skipum,
sem hófu veiðar eftir l5. júlí sl.,
eru aflahæstir Börkur NK 122
með 1.780 tonn og Gísli Árni RE
375 með 1.736 tonn.
AFKASTAGETA VERK-
SMIÐJANNA KEMUR
TIL MEÐ AÐ
TAKMARKA
VEIÐARNAR
— Ég á von á því að framhald
geti oröið á loðnuveiðunum á
næstu sumrum og miðað við þá
reynslu, sem fengizt hefur í sum-
ar hlýtur að vera hægt að ná
nokkur hundruð þúsund tonnum
á hverri vertíð. Varðandi afla-
magnið yrði væntanlega það sama
upp á teningnum og á undanförn-
um vetrarvertíðum, að það yrði
afkastageta verksmiðjanna, sem
takmarkaði, sagði Hjálmar Vil-
hjálmsson fiskifræðingur, þegar
við spurðum hann um framtíð
loðnuveiðanna. Hjá Hjálmari kom
fram að enn liggur ekki fyrir
nægjanleg vitneskja um hvernig
loðnan hagar sér til að hægt sé að
ráða í framtíðina en Ijóst væri að
þessi sumarveiði kæmi ekki niður
á vetrarveiðunum. — Það er
aðeins um þriggja vikna bil, sem
einhver fjöldi skipa hefur verið á
miðunum og ég á von á því að
skipin verði við veiðar út ágúst og
bezta partinn af september. Það
er ekki fráleitt að geta sér þess til
að heildaraflinn í sumar verði um
100 þúsund tonn, sagði Hjálmar
að lokum.