Morgunblaðið - 25.09.1976, Síða 1
32 SIÐUR OG LESBOK
222. tbl. 63. árg.
LAUGARDAGUR 25.SEPTEMBER 1976
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Stj órn Ródesíu féllst á
meirihlutastjóm svartra
Salisbury 24. september — Reuter.
IAN Smith, forsætisráð-
herra Rhödesfu, sagði í
kvöld að stjðrn landsins
hefði fallizt á bandarfskar
og brezkar tillögur um að
svarti meirihlutinn fengi
völdin f landinu innan
tveggja ára. Sagði hann f
ræðu, sem útvarpað var og
sjðnvarpað, að það hefði
verið vegna þrýstings frá
Bandaríkjamönnum, Bret-
um og öðrum vestrænum
þjððum, sem gengið hefði
verið að kröfum um meiri-
hlutastjórn.
Ein af hreyfingum
blökkumanna f landinu,
annar armur Afrfska þjóð-
arráðsins, en leiðtogi hans
er Joshua Nkomo, hefur
lýst yfir að hann geti fall-
izt á tillögurnar.
Ian Smith, sem hefur verið leið-
togi hvlta minnihtutans I Ródesfu
siðan landið sagði sig úr tengslum
við brezku stjórnina fyrir 11 ár-
um, sagði að fallizt hefði verið á
tillögurnar sem Henry Kissinger,
utanrlkisráðherra Bandaríkj-
anna, færði honum, með tveimur
skilyrðum.
1. að alþjóðlegu viðskiptabanni
á Ródesfu yrði hætt.
2. að öll starfsemi skæruliða
gegn rlkisstjórninni hætti.
Sagði Smith að Kissinger hefði
sannfært sig um að gengið yrði að
þessum skilyrðum.
Smith sagði að stjórn sln ætlaði
að hitta leiðtoga Afríkumanna I
landinu eins fljótt og auðið yrði
til að ræða myndun bráðabirgða-
stjórnar, sem á að stýra landinu,
þar til öll völd hafa verið fengin I
hendur sex milljónum svartra
fbúa landsins. Hvftir fbúar eru
270.000.
Ræða Smiths f kvöld var há-
punktur tveggja vikna dipló-
matískra athafna Kissingers og
svartra og hvítra leiðtoga Afrfku.
Smith fór til Pretóríu, höfuðborg-
ar Suður-Afrfku á sunnudag til að
ræða tillögurnar um meirihluta-
stjórn við Kissinger og forsætis-
ráðherra Suður Afrfku, John
Vorster. Sagði Smith I ræðu sinni
f kvöld, að „tillögurnar, sem við
fengum f Pretórfu, fólu ekki f sér
það sem I okkar hugum hefði ver-
ið bezta lausn Ródesfuvandans.
En þvf miður fengu hugmyndir
okkar ekki hljómgrunn, þó að við
hefðum fengið fram nokkrar
breytingar á þeim. Stjórnir
Bandarfkjanna og Bretlands
ásamt öðrum vestrænum rfkjum
hafa ákveðið hvernig þær vilja
leysa Ródesfumálið og þær hafa
ákveðið að framfylgja ákvörðun
sinni.“
Sfðan Smith og stjórn hans
brutust undan yfirráðum Bret-
lands 11. nóvember 1965, eftir
deilur um meirihlutastjórn f land-
inu, hafa Bretar gert þrjár alvar-
legar tilraunir til að finna lausn á
Ródesfuvandamálinu. Allar hafa
þær misheppnazt. Fyrir fjórum
AP-sImamynd
SJÓNVARPSRÆÐAN — Ian
Smith, forsætisráðherra Ródesfu,
flytur ræðu sfna f gærkvöldi þar
sem hann lýsir fyrir þjðð sinni
þeirri áætlun sem hann og stjórn
hans hafa fallizt á um valdatöku
svarta meirihlutans f landinu.
árum hófu skæruliðasveitir þjóð-
ernissinna baráttu sína gegn
hvftu stjórninni. Segja yfirvöld I
Ródesfu að á þessum fiórum árum
hafi 1.600 skæruliðar fallið en 160
hermenn Salisburystjórnarinnar.
Smith, sem er 57 ára gamall,
sagði f ræðu sinni að hann hefði
sent skilaboð til Kissingers, þar
sem hann samþykkti tillögur hans
Framhald á bls. 18
Svíþjóð:
FAGNAÐ — Svartir og hvítir íbúar I Salisbury fagna tilkynningu Ians Smith um að
hann fallist á tillögur Henry Kissingers um meirihlutastjórn í landinu. AP símamynd
Óvíst um þriggja
flokka ríkisstjórn
Hearst fékk 7
ára fangelsi
San Fransisco 24. september — Reuter
Dagblaðaerfinginn Patricia
Hearst var f dag dæmd f sjö
ára fangelsi fyrir þátttöku f
vopnuðu bankaráni. En hún
mun fá það eina ár sem hún
hefur verið f haldi til
frádráttar hegningunni.
Dómarinn William Orrick
kvað upp þann úrskurð að
Hearst, sem er 22 ára fengi sjö
ára fangelsi fyrir vopnað
bankarán og tveggja ára
fangelsi fyrir að hafa notað
vopn í afbrotaskyni. Seinni
dómurinn mun ekki lengja
fangelsisvist hennar sem
verður því sjö ár.
Engar svipbreytingar sáust á
Hearst þegar dómarnir voru
lesnir yfir henni. Samkvæmt
alrfkislögum á hún möguleika
á náðun þegar hún hefur
Framhald á bls. 14
Danir verða að
minnka fiskveiðar
BrUssel 24. september — NTB
HÆTT er við að Danir lendi f
erfiðri aðstöðu þegar ráðherrar
Efnahagsbandalagsins hittast f
Luxemborg 18. október nk. til að
taka ákvörðun um sameiginlega
stefnu f fiskveiðimálum, sem
mun m.a. fela f sér útfærslu fisk-
veiðilögsögunnar f 200 mflur. Er
búizt við að lagt verði hart að
dönsku stjórninni að draga úr
fiskveiðum f Norðursjó. Vestur-
Þjóðverjar, Bretar, Hollendingar
og Frakkar álfta að Danir gangi
of nærri fiskstofnunum og setji
allt of mikið af neyzluhæfum
fiski f bræðslu.
Það var með herkjum að Danir
gátu komið f veg fyrir að stjórnar-
Vopnahlé
Beirut 24. september — Reuter
PALESTlNSKIR skæruliðar
sögðu í kvöld, að þeir virtu ein-
hliða vopnahléið, sem lofað var af
skæruliðaleiðtoganum Yassar
Arafat. Otvarpsstöðin Rödd Pale-
stfnu tilkynnti, að Palestfnumenn
virtu vopnahléið ' og styddu
tilraunir Sarkis forseta til að
friða landið.
nefnd EBE tæki beina afstöðu til
veiða þeirra á bræðslufiski f til-
Framhald á bls. 14
Stokkhólmi 24. september — NTB
ÞAÐ er ekki öruggt að mynduð
verði f Svfþjóð borgarastjórn
þriggja flokka, Miðflokksins,
Þjóðarflokksins og Hægfara
einingarflokksins, að þvf er orð-
rómur er um meðal stjórnmála-
manna f Stokkhólmi.
Er ekki talið útilokað að mynd-
uð verði stjórn Miðflokksíns eins,
eða þá að hann hafi Þjóðarflokk-
inn með sér f stjórn. Þær umræð-
ur sem farið hafa fram sfðan á
mánudag hafa aðallega miðað að
þvf að finna málefnagrundvöll
fyrir nýja rfkisstjórn.
Skipting ráðherrasæta verður
ekki til umræðu fyrr en eftir að
þing kemur saman þann 4. októ-
ber. Viðræðurnar hafa aðallega
verið á milli Thorbjörns Falldin
formanns Miðsflokksins og Per
Ahlmarks, formanns Þjóðar-
flokksins, en Gösta Bohman, for-
maður Hægfara einingar-
flokksins, mun hafa tekið minni
þátt f þeim.
Brezka stjómin sættir
sig ekki við 12 mílur
London 24. september — AP
BREZKA stjórnin hefur ekki f
hyggju að fallast á tillögur
Efnahagsbandalags Evrópu um
að einkafiskveiðilögsaga
aðildarlandanna verði tak-
mörkuð við 12 mflur, sagði
Bruce Millan, Skotlandsmála-
ráðherra f dag.
„Við álftum að fiskveiðar séu
Iffsnauðsynlegar Skotum og við
ætlum að verja hagsmuni
þeirra," sagði hann á ráðstefnu
í Aberdeen.
Samkvæmt tillögum stjórnar-
nefndar EBE, sem birtar voru í
gær, eru aðildarlöndin hvött til
að færa fiskveiðilögsögu sína út
f 200 mflur 1. janúar næst kom-
andi. Bretar og Irar höfðu kraf-
izt þess að innan þessara 200
mflna yrði 50 mflna einkafisk-
veiðilögsaga, sem ekki væri op-
in öðrum EBE-löndum. Hafa
talsmenn fiskiðnaðar og sjó-
manna f Bretlandi lýst mikilli
óánægju sinni yfir þvf að tillög-
ur stjórnarnefndarinnar gera
aðeins ráð fyrir 12 mflna einka-
lögsögu. Sagði utanrikisráðu-
neytið f London f gær að 12
mflur fullnægðu ekki þörfum
Breta og þvf væri ekki hægt að
fallast á tillögurnar.
Millan endurtók það sem
sagði f tilkynningu utanríkis-
ráðuneytisins og sagði „til-
lögurnar fullnægja engan veg-
inn þörfum Breta og sérstak-
lega Skota. Við höfum þvf
engar fyrírætlanir um að sam-
þykkja þær".
Bretinn George Thomson,
æðsti embættismaður EBE,
sem fer með byggðamál,
greiddi atkvæði f stjórnar-
nefndinni gegn tillögum henn-
ar og skýrði hann frá því i
Manchester í dag að hann hefði
gert svo vegna þess að hann
Framhald á bls. 14