Morgunblaðið - 25.09.1976, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1976
21
| smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
smáauglýsingar
3,5 — 4,5 tonna trillubát.
Vinsamlega hringið í síma
93—1510 eftir kl. 8 á
kvöldin.
Kennsla
Námskeið i grófu og finu
myndflosi. Úrval af myndum.
Ellen Kristvins, simi 81747
— 84336.
Ford G—X—L '76
4ra dyra glæsilegur bíll til
sölu, mætti borgast með
2 — 5 ára skuldabréfi. Skipti
á ódýrari bil koma til greina.
S—36081 — 19032.
Munið sérverzlunina ”með
ódýran fatnað.
Verðlistinn, Laugarnesvegi
82, sérverzlun, simi 31 330.
Bang & Olufsen
hljómflutningstæki, mjög vel
með farin 1 árs, Beomaster
2000 og Beogram 3000 til
sölu. Simi 1 8558.
Reglusöm stúlka
óskar
eftir góðri atvinnu. Bezt væri
að geta byrjað strax. Er vön
afgreiðslustörfum. Tilboð
sendist Mbl. fyrir 1. okt.
merkt: „reglusöm—2886”.
Eldri kona óskar
eftir 1 —2 herb. ibúð strax.
Uppl. í sima 23528.
Húsmæðrafélag
Reykjavíkur
heldur fund 27.sept, að
Baldursgötu 9 kl. 20:30.
Hrafnhildur Halldórsdóttir
húsmæðrakennari sýnir
grænmetisrétti og leiðbeinir
með frystingu grænmetis.
Allir velkomnir. Stjórnin
Hjálpræðisherinn
Laugardagaskóli í Hóla-
brekkuskóla kl. 14.00.
Sunnudag.
Kl. 11.00 helgunarsam-
koma.
Kl. 1 4.00 sunnudagaskóli.
Kl. 16.00 útisamkoma.
Kl. 20.30. hjálpræðissam-
koma.
Allir velkomnir.
Laugardagaskólinn i
Hólabrekkuskóla
Laugardagaskóli Hjálpræðis-
hersins er kl. 2.00 í dag.
Hólabrekkuskóla. Öll börn
velkomin.
SIMAR. 11798 og 19533.
Laugardagur 25.sept.
kl. 13.00
Fjöruganga við Hvalfjörð:
Hugað að steinum, (bagga-
lútum-
holufyllingum-seolítum) og
lifi í fjörunni. Leiðsögumaður
Ari T. Guðmundsson, Jarð-
fræðingur. Verð kl. 1000.
gr.v/bílinn.
Sunnudagur 26.sept.
kl. 13.00
Helgadalur-
Grímmannsfell-Seljadalur.
Létt ganga. Fararstjóri: Finn-
ur Fróðason. Verð kr. 800.
gr.v/bilinn.
Lagt af stað í báðar ferðirnar
frá Umferðarmiðstöðinni (að
austanverðu.
Ferðafélag íslands.
Fíladelfía
Sunnudagaskólar Filadelfiu
að Hátúni 2 og Herjólfsgötu
8, Hafn. byrja á morgun kl.
10.30 f.h. Öll börn velkom-
in. Svanur Magnússon, Hín-
rik Þorsteinsson.
Heimatrúboðið
Almenn samkoma að Óðins-
götu 6 a á morgun kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Kristinboðssambandið
Samkoma í húsi KFUM og K
við Amtmannsstíg annað
kvöld kl. 20:30. Fagnaðar-
samkoma vegna heimkomu
kristinboðahjónanna Kjell-
rúnar og Skúla Svavarssonar.
Tekið verður á móti gjöfum til
krisinboðsins.
Allir velkomnir.
K.F.U.M.
Fagnaðarsamkoma fyrir
kristinboðana Kjell Run og
Skúla Svavarsson verður í
húsi félagsins við Amtmanns-
stíg 2 b, sunnudagskvöld kl
8.30.
Tekið verður á móti gjöfum til
kristinboðsins.
Allir velkomnir.
Knattspyrnudeild Vík-
ings
Innanhússæfingar í Réttar-
holtsskóla Laugard. kl. 1 3 —
14.40, 4 flokkur. kl. 14.40
— 16.20. 3. flokkur.
Sunnud. kl. 13 — 14.30, 5.
flokkur A og B kl. 14.30, 5.
flokkur C kl. 16.00 —
17.25 meistara og I. flokkur
kl. 1 7.25 — 18.50 a. flokk-
UTIVISTARFERÐIR
Útivistarferðir
Laugard. 25.9.kl.13
Heiomörk.gengið um i
haustlitaskrúði merkurinnar í
fylgd með Gísla Sigurðssyni.
Verð 600 kr.
Sunnud.26.9.kl.13.
Kræklingafjara við Hvai
fjörð og/eða göngur um
Brynjudal og Múla
fjall. Kræklingur steiktur á
staðnum. Fararstj. Magna
Ólafsdóttir, Einar Þ.
Guðjohnsen og Gísli Sigurðs-
son. Verð 1200 kr. frítt f.
börn m. fullorðnum. Brottför
frá B.S.Í. vestanverðu.
Útivist
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Framboðsfrestur
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar-
atkvæðagreiðslu um kjör fulltrúa Verzl-
unarmannafélags Reykjavíkur á 33. þing
Alþýðusambands íslands, sem hefst 29.
nóvember n.k.
Kjörnir verða 35 fulltrúar og jafn margir
til vara.
Framboðslistar þurfa að hafa borist kjör-
stjórn á skrifstofu Verslunarmannafélags
Reykjavíkur, Hagamel 4, fyrir kl. 12.00
mánudaginn 27. september n.k.
Kjörstjórnin.
Trúnaðarmannaráð
Trésmiðafélags
Reykjávíkur
hefur ákveðið að víðhafa allsherjar atkvæðagreiðslu um kjör
aðal- og varafulltrúa á 33. þing A.S.(. Tillögum um 7
aðalfulltrúa og jafnmarga til vara skulu sendar skrífstofu
félagsíns í síðasta lagi fyrir kl. 18 mánudaginn 27. þm. Hverri
tillögu skulu fylgja stuðningsmannayfirlýsing a.m.k. 80 full-
gildra félagsmanna.
Trúnaðarmannaráð
Trésmiðafélags Reykjavíkur.
Auglýsing frá
Landbúnaðarráðuneytinu.
Þar sem hætta er talin á, að sóttnæmi geti
borizt með reiðtygjum, sem notuð hafa
verið erlendis, er hér með, skv. heimild í
3. gr. laga nr. 1 1 /1928, lagt bann við [
innflutningi á hvers konar búnaði, sem
notaður hefur verið á hesta erlendis.
i Reykjavík, 23. september 1976.
i Flóamarkaður Félags
einstæðra foreldra
hefst í dag kl. 2 að Hallveigarstöðum.
| Glæsilegt úrval af nýjum fatnaði og
notuðum, listmunir, leikföng, lukkupakk-
ar, matvara, borðsilfur, barnastólar, hús-
gögn, barnavagn o.m.fl. Happdrætti með
glæsile.gum vinningum.
Allur ágóði rennur í húsbyggingasjóð
FEF A/
Nefndin.
óskast keypt |
Óska eftir prjónavél
af grófleika 2—4. Tilboð merkt „Prjóna-
vél. 21 67", sendist Mbl.
Frjóvgun
loðnuhrogna
eftir dælingu
AÐ undanförnu hefur, hér i
Morgunblaðinu, verið nokkuð
ritað um þann möguleika að
loðnuhrogn frjóvgist, sem fara
útbyrðis með dæluvatni, er fer
um skiljara loðnuskipanna.
Mér finnst vonum seinna að
tekið er til að ræða þetta merki-
lega mál, á opinberum vett-
vangi, og jafnframt mjög
ánægjulegt hversu skrif þessi
hafa vakið mikla athygli.
Allt frá þvl að farið var að
nota dælur til að dæla loðnu úr
nót, hafa sjómenn séð að gífur-
legt magn hrogna kreistist úr
loðnunni, og fer fyrir borð, með
dæluvatninu. Jafnlengi hafa
þeir velt því fyrir sér hvort
hrogn þessi muni ekki frjóvgast
og af verði seiði, sem komist á
legg, og ennfremur hvort þarna
sé ekki komin ein skýringin á
því, að þrátt fyrir verulegan
ágang veiðiskipa, virðist loðnu-
stofninn styrkjast hin siðustu
ár.
A vertiðinni 1974 hélt ég uppi
dálitlu starfi I Vestmannaeyj-
um fyrir Loðnunefnd. Starfsins
vegna hafði ég nokkur sam-
skipti við marga skipstjóra
loðnuskipa og þá bárust þessi
mál oft og iðlulega í tal. Segja
má að það hafi verið samdóma
álit skipstjóranna að máli þessu
væri allt of lítill gaumur gef-
inn. Einn þeirra, Guðjón Páls-
son á Gullbergi VE, sagði mér
að hann hefði tekið afrennslis-
sjó, frá skiljara, i föru, og að
skömmum tima liðnum hafi
orðið ljóst að meginn hluti
hrognanna hafði frjóvgast. Þeg-
ar ég skoðaði þetta voru mörg
hundruð sprækra 'seiða I föt-
unni.
Þessa vertið, 1974, starfaði i
Eyjum Eyjólfur Friðgeirsson
fiskifræðingur, að rannsóknum
á hrygningu nytjafiska, einkum
þorskfiska. Af sérstökum
ástæðum lágu leiðir okkar Eyj-
ólfs saman og spurði ég hann þá
hvert álit hann hefði á þvi að
möguleiki væri á því að loðnu-
hrogn, sem þrýstust úr loðnu
við dælingu og flytu með dælu-
vatninu fyrir borð, næðu til að
frjóvgast og klekjast út. Eyjólf-
ur sagði að um þetta gæti hann
ekki dæmt þar sem engar rann-
sóknir hefðu farið fram á þessu
atriði. Hins vegar sagði hann að
mjög liklegayrði erfitt að vinna
hrogn, sem hirt væru um borð i
skipunum. Tveimur mánuðum
eftir að við áttum þetta tal sam-
an, birtist i blaðinu Dagskrá,
sem gefið er út í Eyjum, litil em
mjög merkileg grein eftir Eyj-
ólf, sem ber yfirskriftina
„Loðnuhrogn frjóvgast í dæl-
ingu“.
Þar segir Eyjólfur:
„Menn hafa velt nokkuð fyrir
sér hvort hrogn, sem kreistast
úr loðnu við dælingu úr nót,
frjóvgist og hafi einhvern
möguleika á því að klekjast út.
Þegar þau lenda aftur I sjónum.
Til að sannreyna, hvað gerist
við dælinguna, var um daginn
tekin prufa af afrennslissjó úr
dælunni á m/s Gunnari Jóns-
syni, þegar hann var að veiðum
skammt frá Vestmannaeyjum.
Við athugun á hrognunum kom
I ljós, að yfir 90% af þeim voru
frjóvguð og höfðu þroskast eðli-
lega frá þvi þau voru tekin úr
dælunni, þrátt fyrir að það
hafði ekki verið skipt um sjó á
þeim i þrjá sólarhringa. Þetta
sýnir svo ekki verður um villst,
að frjóvgun á sér stað við dæl-
ingu loðnu úr nót. Eggin lenda
með frárennslisvatninu I sjóinn
og sökkva til botnsog limast við
botninn. Lendi þau á heppileg-
um botni á ekkert að verða þvi
til fyrirstöðu að þau klekist
eðlilega út.“
Ennfremur segir Eyjólfur í
þessari á£ætu grein,: (og bið ég
þá serstaklega, sem hvetja til
þess að útgerðin stofni til veru-
legs kostnaðar til að hægt verði
að hirða loðnuhrogn um borð í
skipunum, að lesa þetta með
athygli.) „Þó nokkurt magn af
hrognum mun fara í sjóinn með
frárennslinu frá dælunum og
hafa menn því eðlilega velt því
fyrir sér, hvort ekki sé hægt að
hirða þau. Guðmundur RE
gerði fyrir nokkru tilraun með
að hirða hrognin og kom með
þau hingað til Vestmannaeyja,
og þá reyndust þau vera límd í
einn kökk og eins og gúmmiaf-
steypa af pokunum, sem þau
voru I og ómögulegt að leysa
þau í sundur. Lendi fullþroskað
og lifandi loðnuhrogn í sjó,
burtséð frá þvi hvort það
frjóvgast, verður það þegar I
stað limkennt og helst iimeigin-
leikinn í 1 til 2 tima.
Óþroskuð og dauð egg hafa
ekki þennan eiginleika og því
hefur ekki verið neinum vand-
kvæðum háð að hirða eggin við
löndun, þegar það langt er liðið
frá þvi, að loðnan er veidd, að
eggin eru öll dauð. Mér er tjáð
að komið hafi fyrir, að eggin
rynnu i kekki við löndun, og er
það án efa af þvi að loðnan er
nýveidd og það fersk ennþá að
eggin eru ekki öll dauð.“
Ef það mikla magn hrogna,
sem kreistist úr loðnunni við
dælingu hennar úr nótunum
nær til að frjóvgast og klekjast
út, er hér á ferðinni svo stórt
mál að ekki kemur til mála að
leyfa hirðingu hrogna um borð
I skipunum, fyrr en nákvæm
rannsókn á þessu hefur farið
fram, og þá því aðeins leyft, ef
niðurstaða rannsóknarinnar
sýnir að þrátt fyrir að hrognin
frjóvgist hafi það ekki áhrif til
styrkingar loðnustofninum, og
ennfremur hvort hægt er að
vinna hrogn, sem hirt eru um
borð í skipunum.
Ingólfur Arnarson,
framkvæmdastjóri
(Jtvegsmannafélags
Suðurnesja.