Morgunblaðið - 25.09.1976, Page 32
LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1976
63 krónur fyrir kg
af stærstu síldinni
Síldveiðar með herpinót hefjast í kvöld:
SII.DVEIÐAR með herpinót
byrja á miðnætti f nótt og Mbl. er
kunnugt um að einhverjir bátar
eru þegar komnir á miðin, en alls
hafa 52 bátar leyfi til veiðanna f
haust og hefur hver bátur heim-
ild til að veiða um 200 lestir, en
alls má veiða 10 þús. lestir með
nót. 1 gær var verð á sfld til loka
vertfðar ákveðið og verður skipta-
verð fyrir stærsta flokkinn, þ.e.
Loðnan:
Sigurður og
Börkur fengu
yfir 700 tonn
LOÐNUAFLINN á sumrinu er nú
kominn vel yfir 70 þúsund lestir
og f gær tilkynnti Börkur um 750
lesta afla og Sigurður um 730
lesta afla. Fór Börkur til Nes-
kaupstaðar og Sigurður til
Reykjavfkur.
Skipin fá nú frekar smá köst á
miðunum og tók það Börk 4 daga
að ná þessum afla og Sigurð 5
daga. Gert er ráð fyrir að skipin
fái 8 krónur að jafnaði fyrir hvert
kíló, þannig að verðmæti aflans er
um 6 milljónir króna hjá hvoru
skipi og hásetahluturinn því yfir
100 þúsund.
Hákon ÞH og Guðmundur RE
eru enn á miðunum úti af Straum-
nesi og vitað er að Guðmundur og
Börkur ætla að halda þessum
veiðum eitthvað áfram.
5% launa-
hækkun
flugliða
Flugleiða
-vegna rýmkunar á flug- og
vaktatímum i leiguflugi
FLUGLEIÐIR og Flugfreyju-
félag Islands hafa gert viðauka-
samning um sams konar rýmkun
á flug- og vaktatfma f leiguflugi
og flugmenn og flugvélst jórar
samþykktu á s.l. vori, en flug-
menn fengu þá 5% kauphækkun
vegna þessa og var sú hækkun
innifalin f þeim samningi sem
Framhald á bls. 14
sfld 33 sm og stærri 63 krónur pr.
kfló, en stærðarflokkar verða nú
þrfr.
Á fundi í Verðlagsráði sjávarút-
vegsins í gær varð samkomulag
um lágmarksverð á síld til söltun-
ar. Eins og fyrr segir þá verður
skiptaverð pr. kg. fyrir stærstu
sfldina kr. 63. Fyrir millisild, 30
sm að 33 sm, verða greiddar 49 kr.
pr. kíló og fyrir smásfld, undir 30
sm. verða greiddar 37.00. Hér er
aðeins um skiptaverð að ræða og
ofan á það bætist stofnfjárgjöld
sem eru 10%, útflutningsgjöld
o.fl.
Á sfðastliðnu ári var skiptaverð
fyrir síld 40 kr. pr. kfló fyrir
stærri flokkinn og 26 kr. fyrir
minni flokkinn.
Morgunblaðið frétti í gær að
mikil sfld fyndist nú undan Suð-
austurlandi, en væri ljónstygg að
þvf er virtist.
Lgsmynd Mbl. Aml Johnsen.
ÞAÐ var margt um manninn f Undirfellsrétt I Vatnsdal þegar bændur komu með fé sitt af fjalli, alls
35—40 þús. fjár, og myndin sýnir nokkrar broshýrar yngismeyjar sem létu ekki sinn hlut eftir liggja f
drætti f hinni nýju og glæsilegu rétt f Vatnsdalnum og allar kváðust þær vera f járglöggar.
Fjórir einstaklingar „burð-
arásar ávísanastarfseminnar”
HRAFN Bragason umboðsdómari
f ávfsanamálinu hélt fund með
blaðamönnum f gær, þar sem
hann gerði grein fyrir gangi rann-
sóknarinnar á málinu. Kom þar
fram að allir þeir reikningshafar,
sem Seðlabanki Islands kærði
með bréfi dagsettu 9. ágúst s.l.,
hafa verið yfirheyrðir. Ennfrem-
ur hafa verið yfirheyrðir tveir
menn, sem ekki eru skráðir
reikningshafar, en segjast I raun
eiga reiknlnga, sem aðrir eru
skráðir fyrir. 1 greinargerð, sem
Hrafn Bragason afhenti blaða-
mönnum á fundinum f gær, sagði
m.a.: „Þar sem þetta fólk hefur
allt komið fyrir dóm, þvf hafa
Nafnbirting enginn
mælikvarði á sekt
eða sakleysi,
— segir Hrafn Braga-
son umboðsdómari
verið kynntar sakargiftir og hef-
ur fengið að tjá sig um þær, eru
nöfn þess ekkert leyndarmál
rannsóknarinnar vegna. Fjöl-
miðlar geta þvf ef þeir vilja birt
nöfn þeirra, en það er alfarið
þeirra mál. Hitt skal undirstrik-
að, að þótt fjölmiðlar birti þessi
nöfn er það enginn mælikvarði á
það hvort fólkið er sekt eða sak-
laust. Rannsóknin, sem ekki er
lokið, á einmitt að skera úr um
það.“
NAFNALISTINN
Hér fer á eftir listi yfir þá, sem
yfirheyrðir hafa verið fyrir meint
ávísanamisferli:
1. Jón Ó. Ragnarsson, veitinga-
maður og framkvæmdastjóri
Hafnarbíós.
2. Asgeir H. Eiríksson, fram-
kvæmdastjóri.
3. Magnús Leópoldsson, fram-
kvæmdastjóri Klúbbsins.
4. Sigurbjörn Eiríksson, veitinga-
maður Klúbbsins.
5. Guðmundur Þorvar Jónsson,
framkvæmdastjóri verzlunar-
innar Kópavogur.
6. Ásgeir H. Magnússon, fram-
Framhald á bls. 18
Sjónvarpsdeilan leyst:
Starfsfólk býðst til að vinna
kauplaust sex fimmtudaga
SJÓNVARPSUTSENDING hófst
f gærkveldi, en þá hafði útsend-
ing fallið niður f 6 daga. Sam-
komulag tókst milli deiluaðila f
þessari deilu f gærmorgun með
þvf að sætzt var á nefndaskipun.
Forsætisráðherra
ræddi við Crosland
GEIR Hallgrfmsson, forsætis-
ráðherra, átti f fyrradag stuttar
viðræður við Anthony Cros-
land, utanrfkisráðherra Breta, f
London. Forsætisráðherra hef-
ur verið f sumarleyfi erlendis
og er væntanlegur heim á
morgun. Morgunblaðinu barst f
gær svohljóðandi fréttatil-
kynning frá forsætisráðu-
neytinu:
„GEIR Hallgrímsson, forsætis-
ráðherra, kemur heim úr
sumarleyfi á sunnudag. Á
heimleið stanzaði hann í Lond-
on og átti síðdegis í gær ásamt
Sigurði Bjarnasyni, sendiherra,
stuttar viðræður við Anthony
Crosland, utanríkisráðherra
Breta, að ósk hans. Var skipzt á
upplýsingum og sjónarmið
aðila skýrð varðandi fiskveiði-
samning Islands og Bretlands
og stefnu Efnahagsbandalags
Evrópu i fiskveiðimálum."
Reykjavfk. 24. september 197S.
sem fjaila skyldi um stöðu starfs-
manna sjónvarps innan rfkis-
kerfisins. Eiður Guðnason, for-
maður luanamálanefndar sjón-
varpsstarfsmannanna, sagði f gær
að með yfirlýsingu menntamála-
ráðherra væri deilunni lokið,
starfsfólkið væri ekki fullkom-
lega ánægt, hefði vænzt betri
niðurstöðu — en „við sættum
okkur við þetta og gerum okkur
Ijóst að ekki verður að sinni
lengra náð“.
Launamálanefnd og talsmenn
starfsmannafélags sjónvarps boð-
uðu til blaðamannafundar, þar
sem skýrt var frá sáttunum. Yfir-
lýsingin, sem leysti málið, er svo-
hljóðandi:
„Menntamálaráðherra skipar
þriggja manna nefnd með fulltrú-
um tilnefndum af Rikisútvarpinu,
Starfsmannafélagi sjónvarps og
fulltrúa frá menntamálaráðuneyt-
inu.
Hlutverk nefndarinnar er að
gera samanburð á stöðu starfs-
manna sjónvarpsins f launakerfi
íslenzka ríkisins og stöðu sjón-
varpsstarfsmanna í Danmörku og
Noregi miðað við aðra opinbera
starfsmenn f þeim löndum að því
er varðar laun og starfskjör. Jafn-
Framhald á bls. 18
Gœsirn-
argáfu
sig fram
TILRAUNAGÆSIRNAR sem
hurfu frá Rannsóknastofnun
iandbúnaðarins f Þormóðsdal f
Mosfellssveit f sl. viku og
Morgunblaðið greindi frá að
talið væri að hefði verið stolið,
eru nú komnar f leitirnar.
Skytta var á ferð í Miðdal og
varð þar var við gæsir. En í
þann mund sem hann miðaði
byssunni, komu gæsirnar
hlaupandi á móti honum með
miklum bægslagangi og
vængjaslætti og þótti mannin-
Framhald ð bls. 14.
Frá starfsmannafundi sjónvarpsins f sjónvarpssal I gærmorgun, er
ákveðið var að hef ja aftur útsendingar. — Ljósm.: RAX