Morgunblaðið - 16.10.1976, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.10.1976, Blaðsíða 1
32 SIÐUR OG LESBOK 240. tbl. 63. árg. LAUGARDAGUR 16. OKTÓRER 1976 Prentsmidja Morgunblaðsins. Norðmenn semja við Rússa um fiskveiðar: Viðurkenning á 200 mílum segir Evensen Moskvu, 15. október. AP. NTB. NORÐMENN og Sovétmenn undirrituðu i dag samning um fiskveiðar, þar sem f reynd er viðurkenndur réttur hvors lands til að flytja fiskveiðilögsögu sfna f 200 sjómflur. Samningurinn, sem er sá fyrsti, sem Sovétrfkin gera um takmarkanir á fiskveið- um innan efnahagsfögsögu við önnar rfki, var undirritaður af Alexander Ishkov, sjávarútvegs- ráðherra Sovétrfkjanna og Jens Evensens, hafréttarráðherra Nor- egs, eftir meir en eins árs samn- ingaviðræður. Ekki náðist samkomulag um annað mikilvægt mál, sem er skipting landgrunnsins í Barents- hafi. Samþykktu ríkin að halda áfram viðræðum um það mál, en mikilvægi þess hefur aukist eftir að leit hófst þar að olíu og gasi. 1 texta samkomulagsins er ekki beint talað um viðurkenningu á efnahagslögsögum. Norðmenn hafa ákveðið að færa út í 200 mílur 1. janúar, en Sovétmenn ætla að bíða eftir niðurstöðum hafréttarráðstefnunnar á næsta Friðar- verðlaun ekki veitt Ósló, 15. október NTB. NÓBELSNEFND norska Stór- þingsins ákvað f dag að veita engin friðarverðlaun f ár. Að þessu sinni komu 50 menn til greina við veitingu verðlaun- anna, þar af margir sem stungið hefur verið upp á áður. Meðal þeirra sem stungið var upp á að þessu sinni voru Luis Echevarria Mexfkófor- seti, kaþóiska nunnan móðir Teresa f Kalkútta og Urho Kekkonen Finnlandsforseti. Eínnig var lagt til að skáta- hreyfingin fengi verðlaunin. Tfu sinnum áður hefur verið ákveðið að fresta veitingu friðarverðlauna til næsta árs, sfðast árið 1972. ári áður en þeir aðhafast nokkuð. En í 9. grein samkomulagsins stendur að hvor aðili skuli heim- ila hinum að veiða á sínum mið- um frá 12 mflna mörkum að 200 mílna mörkum. Nefnd Norðmanna og Sovét- manna mun hittast í næsta mán- uði til að ákveða veiðikvóta. 1 mai gerðu stjórnir Kanada og Sovét- rfkjanna samning þar sem Kana- damönnum er heimilt að tak- marka veiðar sovézkra skipa inn- an væntanlegrar 200 mflna fisk- veiðilögsögu Kanada. Samkomu- lagið við Norðmenn nær aftur á móti yfir veiðar.beggja þjóðanna. Jens Evensen sagði á blaða- mannafundi í Moskvu að samn- ingurinn væri í raun viðurkenn- ing á 200 mílna lögsögu og lýsti hann sig mjög ánægðan með hann. Sagði hann samninginn auðvelda lausn annarra vanda- máia. Ishkov leiddi hjá sér spurning- ar blaðamanna um hvort samn- Framhald á bls. 18 Carter Stórsókn Beirút 15. október — Reuter. SÝRLENSKIR skriðdrekar og stórskotalið börðust af hörku f dag við Palestfnuskæruliða f fjallahéraðinu Bhamdoun og tveim öðrum vfgstöðvum. Virðist borgarastrfðið, sem nú hefur stað- ið f 18 mánuði, vera f hámarki. Palestfnumenn og bandamenn þeirra búast við sýrlenskri sókn um allt land f þvf skyni að binda snöggan endi á stríðið. Sýrlendingar skutu með fall- byssum á hafnarborgina Sidon eftir hádegið og hröktu flutninga- skip út úr höfninni. Þeir hófu einnig öflugt umsátur um vestan- verða Beirút, sem vinstrimenn hafa á valdi sfnu. Sýrlendingar skutu einnig eld- flaugum og sprengjum inn í flóttamannabúðir Palestínu- Framhald á bls. 18 Simamynd AP BÓLUSETNING. Ford Bandaríkjaforseti lætur bólusetja sig gegn svinainn- flúensu á fimmtudaginn. Forysta Carters eykst Washington, 15. október. Reuter. JIMMY Carter, forsetaframbjóð- andi demókrata, dró fjölskyldu sína inn f kosningabaráttuna f dag þegar hann sagðist mundu nota fjölskyldumeðlimi sem sér- staka sendiherra ef hann nær kosningu f næsta mánuði. 1 við- tali við Los Angeles Times sagði hann að hann myndi ekki hika við að senda konu sfna Rosalynn til „Mexikó eða Suður- Amerfkulanda eða til svæða f Afrfku þar sem væru vandræði." Carter sagði að tilgangurinn með því að senda fjölskyldumeð- Framhald á bls. 18 Sendiráðs- menn rekn- ir úr landi Kaupmannahöfn, 15. október. Reuter. Danir ásökuðu f dag norðurkór- eanska diplómata f Kaupmanna- höfn um að hafa selt mikið magn af eiturlyfjum og hefur danska stjórnin farið fram á að sendi- herrann og þrfr starfsmanna hans verði sendir heim. Danska stjórnin sagði í kvöld að diplómatarnir hefðu gerst sekir um athæfi, sem bryti i bága við dönsk lög. Hefði hún því beðið stjórn Norður-Kóreu að kalla heim sendiherra sinn, Kim Hong Chul, og þrjá aðra diplómata fyrir næsta fimmtudag. Samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar er samband á milli að- gerða stjórnarinnar og handtöku sex manna, sem grunaðir eru um að hafa smygiað 147 kílógrömm- um af hassi með sendiráðspósti til Framhald á bls. 18 Ekkja Maos reyndi að fá herinn í lið með sér Belgrad, 15. október. Reuter. EKKJA Maos Tse-tung formanns, Chiang Ching, og þrfr aðrir úr hópi róttækra f Kfna, sem nú eru f fangelsi, reyndu að fá yfirmann herdeildarinnar f Peking f fið með sér til að fremja valdarán, en hann kom upp um þau, að þvf er fregnir hermdu hér f dag. Opin- bera júgóslavneska fréttastofan Tanjug, bar f fréttum frá Peking áreiðanlegar heimildir fyrir þvf að hún hefði árangurslaust reynt að fá hjálp leiðtoga flotans. Afþakka fé í flokkssjóði Stokkhólmi. 15. október NTB. ÍHALDSFLOKKURINN f Svf- þjóð, Hægfara einingarflokkur- inn, mun ekki taka við framlög- um frá sænskum atvinnufyrir- tækjum frá og með næsta ári að þvf er aðalritari flokksins, Lars Tobiasson, skýrði íTá f dag. Foringi flokksóls, Gösta Boh- man efnahagsráðherra, hafði áð- ur boðað þessa ákvörðun og sagt að viss umþóttunartimi væri nauðsynlegur til að gera flokkn- um kleift að afla nýrra tekna í stað þeirra fjögurra milljóna sænskra króna sem flokkurinn fengi á hverju ári. Þingið hefur farið fram á að allir stjórnmálaflokkar geri grein Framhald á bls. 18 Gösta Bohman Tanjug sagði einnig að ekkjan hefði verið virkust fjórmenning- anna og að hún hefði gert áætlun um valdarán á meðan Mao lifði. Sagði fréttastofan að fjórmenn- ingarnir hefðu verið þeir einu, sem lögðust gegn því að Hua Kuo- feng yrði flokksformaður eftir lát Maos. Gerðu þau tillögu um Wang Hung-wen varaformann sem for- mann að sögn Tanjug. Sagði i fréttinni frá Peking að Chiang Ching hefði sagt að Hua væri „óhæfur til að leiða flokk- inn“. Svaraði Hua þessu með þvi að segja að hann „skorti ekki hæfni" og að „hann vissi hvernig ætti að leysa vandamálin". Tanjug segir Hua hafa það einnig eftir Mao að hann myndi „sofna rólegur út af ef Hua Kuo- feng héldi áfram að starfa sem formaður miðstjórnar flokksins", sagði Tanjug. Fréttastofan sagði að engin niðurstaða hefði fengist á fundin- Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.