Morgunblaðið - 16.10.1976, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1976
Brúðuleik-
hús í Kjar-
valsstöðum
SÚ NYBREYTNI.verður á i Kjar-
valsstöðum um þessa helgi, 16. og
17. okt., að Jón E. Guðmundsson
mun hefja sýningar með brúðu-
leikhúsi í austurgangi hússins og
verða sýningar tvisvar á dag.
I stuttu spjalli við biaðamenn
Morgunblaðsins, sagði Jón E.
Guðmundsson að brúðuleikhúsið
á Kjarvalsstöðum væri tilraun af
hálfu UNIMA, sem er alþjóðafé-
lagsskapur brúðuleikhúsmanna
og ætti að athuga hvernig sýning-
araðstaða fyrir brúðuleikhús væri
á Kjarvalsstöðum.
Brúðuleikurinn, sem Jón ætlar
að sýna á Kjarvalsstöðum um
helgina er hið víðfræga ævintýri
H.C. Andersen, Eldfærin. Jón
hefur gert allar brúðurnar sjálf-
ur, en hann á nú orðið safn með
um þrjú hundruð brúðum.
Jón E. Guðmundsson með „góða
dátann" úr Eldfærunum, eftir
H.C. Andersen. „Fyrir mér eru
brúðurnar lifandi fólk og mitt lff
og yndi,“ segir Jón.
Lýst eftir manni
RANNSÓKNARLÖGREGLAN i
Reykjavik lýsir eftir Gunnari
Eyjólfi Guðnasyni, 36 ára að aldri,
en hann hvarf frá Kleppsspitalan-
um miðvikudaginn 29. fyrra mán-
aóar, og hefur ekkert til hans
spurst siðan.
Gunnar er meðalmaður á hæð,
þrekinn með dökkskollitað hár og
gráblá augu. Var klæddur I brún-
an jakka, ljósköflótta vinnu-
skyrtu, bláar vinnubuxur og
svarta skó.
Þeir sem geta gefið upplýsum
Gunnar vinsamlegast geri lögregl-
unni viðvart.
Attavitanámskeið fvTTr
rjúpnaskyttur og aðra
HJÁLPARSVEIT skáta I Reykja-
vlk gengst I ár eins og undanfarin
10 ár fyrir námskeiði I meðferð
áttavita og landabréfa fyrir
rjúpnaskyttur og ferðamenn. Á
námskeiðum þessum verða einnig
veittar upplýsingar um ferðafatn-
að og ferðabúnað almennt.
Ætlunin er að halda 2 námskeið
ef næg þátttaka fæst. Hið fyrra
verður 20.—21. október en hið
siðara 27.—28. október. Hvort
námskeið er tvö kvöld. Fyrra
kvöldið er meðferð áttavita og
landabréfa kennd og notkunin
æfð innandyra. Siðara kvöldið er
veitt tilsögn i ferðabúnaði og síð-
an farið í stutta verklega æfingu
rétt út fyrir bæinn. Þátttakendum
verður ekið til og frá æfingasvæð-
inu í bifreiðum HSSR. Námskeið-
in verða haldin i kennslusal
Rauða kross íslands, Nóatúni 21,
og hefjast klukkan 20 bæði kvöld-
in. Þátttökugjald er kronur 500.
Nánari upplýsingar eru gefnar i
skátabúðinni við Snorrabraut.
Jafnt hjá Austfirð-
ingum og Landsbanka
TÍU MANNA skáksveit frá
Landsbanka Islands keppti við
sveit frá Skáksambandi Austur-
lands um síðustu helgi. Föstudag-
inn 8. okt. var keppt í hraðskák á
Eskifirði og fóru leikar svo að
Landsbankamenn sigruðu með
105 vinningum gegn 95 vinning-
um Austfirðinga. Á laugardegin-
um var svo keppt á Norðfirði i
hægri skák og sigraði þá sveit
Austfirðinga, sem hlaut 6 vinn-
inga gegn 4.
Dregið hjá Hjartavemd
DREGIÐ hefur verið í Happ-
drætti Hjartaverndar og féllu
vinningar á eftirtalin númer:
Mazda 929, 4 dyra Station nr.
37796, Litsjónvarp nr. 54798,
Ferðavinningur eftir vali fyrir
150.000,- nr. 947.
Vinninga má vitja á skrifstofu
Hjartaverndar, Áusturstræti 17,
6. hæð.
Billínn ffyrir ísland
Peugeot hefur orðið sigurvegari í erfiðustu þolaksturskeppnum
veraldar oftar en nokkur önnur gerð bíla. Þetta sýnir betur en
nokkuð annað, að Peugeot er bíllinn fyrir íslenzka staðhætti.
Gerð 504 kostar frá 2.200.000
HAFRAFELL HF. u«boð a akureyri vÍKINGUR SF.
CRETTISGOTU 21 SIMI 23511 FURUV0LLUM II SÍMI 21670
GOOD
YCAR
HJOLBARÐA
ÞJÓNUSTAN
Laugavegi 172 — símar 28080 — 21240.
SNJÓHJÓLBARÐAR
fyrir VÖRUBIFREIÐAR fyrirliggjandi
STÆRÐIR:
1000x20/14 kr. 60.600.-
900x20/14 kr. 50.851.—
HEKLA HF.
Laugavegi 170—172 — Sími 21240
HLUTA VEL TA
r
/ Idnadarmannahúsinu kf. 2 á morgun, til ágóda
fyrir Barnadeiid Sjúkrahúss Akureyrar.
Margt góðra muna og engin núll. Ey(i[4ing.fé„gi8