Morgunblaðið - 16.10.1976, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1976
Fluguköst
Leiðbeiningar í fluguköstum verða
á sunnudögum frá
1 0.30— 1 2.00 f.h. í íþróttahúsi
kennaraskólans við Bólstaðar-
hl. / Háteigsveg.
Lánum tæki. Hafið með inniskó.
Öllum heimil þátttaka.
Fræðslunefnd.
%
Kaffisala
Sunnudaginn 17. október kl. 3 verður kaffi-
sala, kerta og kökubazar í Dómus Medica, hver
kaffimiði gildir sem happdrætti.
Allir velkomnir.
Kvennadeild Barðstrendingafélagsins í Rvk.
Stjórnin.
Listasafn ís/ands auglýsir:
Fræðs/uhópur um
húsagerðarfíst í 20. öld
hefst 20. október
Leiðbeinandi verður Hrafn Hallgrímsson, arki-
tekt. Þátttökugjald er kr. 800 og skal tilkynna
þátttöku ti/ Listasafns /slands í síma 10665
eða 10695. ,
Listasafn /s/ands
Alger bylting í gerð myndlampa. Línukerfið
gefur miklu skarpari mynd, jafnvel í birtu.
Litstilling er auðveldari. Ánægjan að horfa á
þessi nýju NORMENDE litsjónvörp er
margföld.
V----------------------------------------------------------
------------------------------------■—.
Eigum til örfá litsjónvörp.
1800 tommu — Verö 210.430,9
1400 tommu — Verö 168.350,—
>__________________________________—~J
BUÐIRNAR
NÓATÚNI, SÍMI 23800,
KLAPPARSTÍG 26, SÍMI 19800.
Kostnaðarhækkanir 3
greina í fiskvinnslu nema
8.6 milljörðum á árinu
„Spáð er allt að 35% verðmæta-
aukningu útfluttra sjávarafurða á
yfirstandandi ári 1 tslenzkum
krónum talið. En á sama tfma er
gert ráð fyrir að hráefni hækki
um 37%, laun og tengd gjöld fisk-
vinnslustöðvanna um 27% og
annar breytilegur kostnaður um
25%. Þetta samsvarar útgjalda-
aukningu f frystingu, sem nemur
5650 millj. króna og f söltun og
herzlu um 2920 milljónir króna.
Um aðrar greinar fisk-
vinnslunnar skortir nægjanleg
gögn. Áætlað er að útflutnings-
verðlag sjávarafurða f þessum
þremur greinum muni hækka
sem nemur 11.2 milljörðum
króna á þessu ári. En þær
kostnaðarhækkanir sem nefndar
eru að ofan nema einar sér sam-
tals um 8.6 milljörðum króna
miðað við sama tímabal." Þetta
kemur fram 1 fréttatilkynningu
sem Morgunblaðinu hefur borist
frá Sambandi fiskvinnslustöðva.
Fréttatilkynningin er á þessa
leið:
Að undanförnu hafa birzt í fjöl-
miðlum fréttir og frásagnir um
mikla hækkun á útflutningsverð-
mæti íslenzkra sjávarafurða. Hef-
ur komið fram, að samkvæmt
spám megi gera ráð fyrir allt að
13.7 milljarða króna verðmæta-
aukningu útfluttra sjávarafurða á
þessu ári miðað við árið 1975.
Sökum þess hve fréttir af spám
þessum hafa verið einhliða túlk-
aðar og vegna þeirra alröngu hug-
mynda sem sú túlkun gefur hag
og afkomu fiskvinnslunnar í land-
inu, vill Samband fiskvinnslu-
stöðvanna taka fram eftirfarandi:
Af Af fréttum um hækkandi
verðlag útfluttra sjávarafurða
hefur mátt ráða, að um hreinan
hagnað fiskvinnslunnar væri að
ræða. Þetta er þvi miður á mis-
skilningi byggt. 1 fyrsta lagi stafa
verðhækkanirnar að nokkru leyti
af gengissigi íslenzku krónunnar.
1 öðru langi hafa kostnaðarhækk-
anir hér innanlands, orðið slikar,
að hækkandi verðlag hefur varla
dugað til að brúa bilið. í þriðja
langi veldur magnaukning
nokkru um heildarverðmæta-
aukningu útfluttra sjávarafurða.
Skal nú leitazt við að bregða ljósi
á hvort tveggja í senn tekju- og
gjaldahlið rekstursreiknings fisk-
vinnslunnar.
Spáð er allt að 35% verðmæta-
aukningu útfluttra sjávarafurða á
yfirstandandi ári í íslenzkum
krónum talið. En á sama tíma er
gert ráð fyrir að hráefni hækkí
um 37%, laun og tengd gjöld fisk-
vinnslustöðvanna um 27%, olía og
rafmagn um 23%, umbúðir um
15%, viðhald um 24% og annar
breytilegur kostnaður um 25%
(sbr. meðfylgjandi töflu). Þetta
samsvarar útgjaldaaukningu i
frystingu sem nemur 5650
mílljónum króna og i söltun og
herzlu um 2920 milljónir króna.
Um aðrar greinar fisk-
vinnslunnar skortir nægjanleg
gögn. Áætlað er að útflutnings-
verðlag sjávarafurða í þessum
þremur greinum muni hækka
sem nemur 11.2 milljörðum króna
á þessu ári. En þær kostnaðar-
hækkanir sem nefndar eru að of-
an nema einar sér samtals um 8.6
milljörðum króna miðað við sama
tímabil. Eru þær þó varlega áa-tl-
aðar. Þá er eftir að taka tillit til
gjaldaauka vegna magnaukningar
útflutnings og greiðslna í Verð-
jöfnunarsjóð og hækkunar vaxta.
Garðabær:
Lionsmenn
selja perur
LIONSKLUBBURINN í Garðabæ
og Bessastaðahreppi heldur ár-
lega perusölu á laugardag, í dag.
Ágóði rennur til líknar- og félags-
mála.
Auk þess má benda á, að tekju-
aukningin er að nokkru leyti til-
komin vegna aukinnar hlutdeild-
ar Bandaríkjamarkaðar í útflutn-
ingi og framleiðslu, en það eykur
einnig allan tilkostnað hlutfalls-
iega meira en rakið var hér að
framan. Um þessa siðasttöldu liði
skortir tölulegar upplýsingar, en
um er að ræða verulegar fjárhæð-
ir.
Stjórn Sambands fiskvinnslu-
stöðvanna telur óhjákvæmilegt að
vara við málflutningi sem einblin-
ir á krónutöluhækkanir útfluttra
sjávarafurða, en horfir fram hjá
þeim kostnaðarhækkunum sem
orðið hafa á sama tima. Má minna
á, að rikissjóður varð nýlega að
ganga í ábyrgð fyrir greiðslum úr
Verðjöfnunarsjóði allt að 400
milljónum króna til ársloka, þear
ákveðið var nýtt fiskverð. Mun
það samsvara um 2200 milljónum
króna á ársgrundvelli.
Vonandi heldur útflutnings-
verðlag áfram að hækka. En með-
an sú hækkun gerir varla betur
en að halda í kostnaðarhækkanir
hér innanlands, skortir fisk-
vinnsluna öll efni til að slá upp
veizlu.
Áætlaóar hugmyndir um breytingar nokkurra útgjaldaliða frystingar,
söltunar og herzlu frá ársmeðaltali 1975 til ársmeðaltals 1976.
I. Aætlaðar verð- breyt. frá ársmeðaltali 1975 til árs- Hrá- efni Laun og tengd gjöld Umb. rafm. Olía Annar breytil kostn. Við- hald
meðaltals 1976 2. Áætluð hækkun helztu útgjalda- liða vegna verð- +37% + 27% + 15% +23% +25% +24%
hækkana skv. 1. m.kr. m.kr. m.kr. m.kr. m.kr. m.kr.
2.1. Frysting 3.700 1.370 100 120 240 120
2.2. Söltun 2.200 421 0 160 100 40
2.3. Herzla 500 70 0 0 20 0
Vegna skorts á upplýsingum um rekstrarafkomu fiskmjölsvinnslu og
nokkurra annarra vinnslugreina, er þeirra ekki getið í þessari töflu.
Kristln Waage og Margrét Jónsdóttir I nýju verzluninni.
Verzlunin 17 opnar
NÝ VERZLUN var nýlega opnuð
á Laugavegi 46 og hefur hún hlot-
ið nafnið „Verzlunin sautján".
Eigandi verzlunarinnar er Kristin
Waage og sagði hú'n að hugmynd-
in væri að vera með á boðstólum
tízkufatnað fyrir táninga og einn-
ig eldri konur.
„Ég sel aðailega fatnað frá Lon-
don, París og Kaupmannahöfn,"
sagði Kristín, „og ætla að leggja
aðaláherzluna á franskar tizku-
vörur. Ég er t.d. með mjög góðar
blússur frá Michel Axel og vörur
frá Daniel Hechter, en þetta eru
franskir fataframleiðendur, sem
báðir eru þekktir fyrir vandaðar
og góðar vörur.“
GRAFlKSÝNING Ragnheiðar Jónsdóttur, sem nú stendur yfir I sýn-
ingarsal Norræna hússins og hófst 9. okt. stðastl., verður opin til
mánudagskvölds, 24. okt. — frá kl. 14—22. Meðfylgjandi m.vnd er af
Ragnheiði Jónsdóttur við tvö verká"sinna. Ljósm. Ól.K.M.