Morgunblaðið - 16.10.1976, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1976
Önnur tenging
vid Salyut-5?
Moskvu, 15. oktíber. Reuter.
Sovézku geimfararnir Vyaches-
lav Zudov og Valery Rozhedest-
vensky hringsóluðu f dag um-
hverfis jörðina i geimfarinu
Soyuz-23 og virðast ætla að tengja
farið við geimstöðina Salyut-5.
Jafnframt er almennt gert rðð
fyrir að geimfararnir ætli að
setja nýtt sovézkt dvalarmet 1
geimnun. Núverandi met Rússa
er 63 dagar en bandarfska metið
er 83 dagar og ef til vill reyna
þeir að slá það lfka.
Rússar skýrðu ekki frá geim-
skotinu fyrr en geimfararnir voru
komnir á braut. Geimfararnir eru
báðir ofurstar í flughernum en
Havana, 15. október.
FIDEL Castro, forsætisráðherra
Kúbu, ásakaði f dag bandarfsku
leyniþjónustuna, CIA, um að hafa
átt beina aðild að sprengingu
kúbanskrar farþegaþotu f sfðustu
viku og rifti jafnframt samningi,
sem Kúba og Bandarfkin gerðu
1973, sem miðaði að þvf að koma f
veg fyrir flugrán.
Samkvæmt samningum skuld-
bundu Bandaríkin sig til að
hindra starfsemi samtaka kúb-
anskra útlaga í Bandarikjunum,
sem andstæðir eru Castro. Á móti
lofaði Kúbustjórn að veita flug-
ræningjum ekki pólitískt hæli.
Castro tilkynnti riftun samn-
ingsins á fjöldafundi á Byltingar-
torgi í Havana, sem haldinn var
til að minnast þeirra 73, sem fór-
ust með kúbönsku DC-8 þotunni
fyrir utan strönd Barbados. Sagði
Castro að CIA ætti beinan þátt í
skemmdarverki, sem unnið var á
flugvélinni og árásum að undan-
förnu á kúbönsk sendiráð, skip og
flugvélar.
Innanrfkisráðuneyti Vene2Uela
Siglufirði, 15. okt.
UM ÞESSAR mundir eru f smfð-
úm f Siglufirði 19 fbúðarhús auk
stórs og fullkomins fiskvinnslu-
húss og nýs trésmfðaverkstæðis.
Byrjað hefur verið á fjórum þess-
ara húsa nú fyrir skömmu, en
Jafntefli
hjá Friðrik
BIÐSKÁK þeirra Friðriks og
Matulovic var tefld í gær. Lyktaði
skákinni með jafntefli, en sem
kunnugt er hafði Friðrik heldur
lakari biðstöðu í þessari skák.
Mistök flug-
manns orsök
flugsiyss
Ankara 15. október —* JR**uter.
Talsmaður tyrka sam-
gönguráðuneytisi: að
mistök flugmanns hefðu valdið
flugslysinu þegar--fyrkticsk far-
þegaflugvél fó
með henni 154'mehn. Flugvélin,
sem var af gerðinni Boeing 727,
rakst á fjali nálægt Isparta Var
hún í leiguflugí með ferðafólk frá
Italíu til T.yrklands. Talsmaður
ráðuneytisins gaf það í skvn, að
flugmaðurinn hefði ekki farið að
fyrirmælum flueumferðarstjóra á
jörðu niðri en vil.di ekki skýra það
út nánar.
Rozhdestvensky var áður i flotan-
um og hefur reynslu sem kafari.
Vitað er að sovézkir geim-
vísindamenn hafa áhuga á líf-
fræðilegum og sálrænum áhrifum
langs þyngdarleysis og þessi
áhugi þerra virðist hafa aukizt á
undanförnum mánuðum.
Salyut-5 var skotið 22. júnf og
Tass skýri frá þvf nýlega að öll
tæki geimstöðvarinnar störfuðu
eðlilega. Tveir geimfarar dvöld-
ust í stöðinni í 48 daga þótt búizt
væri við að þeir mundu reyna að
setja nýtt dvalarmet í geimnum.
Sfðan hafa sovézk blöð mikið
skrifað um áhrif langra geim-
ferða á geimfara og gefið í skyn
að þeir hafi átt erfitt með að
aðlaga sig.
skýrði frá því í dag að lögreglan í
Caracas hefði handtekið einn
kúbanskan útlaga og fjóra
Venezúelamenn vegna flugslyss-
ins. Samtök í Miami í Florida, sem
kallast E1 Condor og eru andsnúin
Castro, hafa lýst sig ábyrg fyrir
eyðileggingu á flúgvélinni.
Castro hótaði fyrr á þessu ári að
rifta flugránssamningum vegna
árása kúbanskra útlagahópa frá
Bandarikjunum á kúbanska fiski-
báta. Einn kúbanskur sjómaður
var drepinn í velbyssuárás á
Floridasundi í apríl, og lýstu kúb-
anskir útlagar í Miami sig ábyrga.
Samningurinn, sem fyrr getur
var gerður fyrir milligöngu tékk-
neska sendiráðsins í Washington
15. febrúar 1973 í kjölfar flug-
ránsöldu undanfarinna ára. Var
fjölda flugvéla snúið til Kúbu,
sem orðin var nokkurs konar
paradís flugræningja. Samkvæmt
samningum átti kúbanska stjórn-
in að dæma flugræningja, sem til
Kúbu kæmu eða framselja þá til
Bandaríkjanna.
þetta eru mestu byggingarfram-
kvæmdir, sem verið hafa í Siglu-
firði nú um árabii.
Óvenju bjart hefur verið yfir
atvinnulífi öllu í Siglufirði það
sem af er þessu ári, bæði vegna
loðnuveiðanna í vetur og sumar,
auk ágæts afla heimaskipa á öðr-
um helztu nytjafiskum.
m.j.
Hvalveið-
ar hefjast
Vancouver 15. október — AP.
Japanskir og sovézkir hvalveiði-
bátar hafa lagt af stað til Suður-
heimskautsins til að veiða meir en
13.000 hvali, sagði talsmaður
Greenpeace-sjóðsins í Kanada í
dag. Sagði hann að samtökin sæju
sér enga leið til að koma í veg
fyrir hvaladrápið. Mörg svæði við
Suðurheimskautið eru friðuð fyr-
ir hvalveiðum, þar sem hvölum
hefur verið næstum útrýmt á
þeim.
Tveir seldu í
Hirtshals í gær
Aðeins tvö síldveiðiskip seldu
afla í Hirtshals í Danmörku I gær,
voru það Ljósfari ÞH sem seldi 32
lestir fyrir 2.5 millj. kr., meðal-
verð kr. 80, og Víkurberg GK, sem
seldi 32 lestir fyrir 2.4 millj. kr.,
meðalverð kr. 79.
— Carter
Framhald af bls. 1
limi sem sérstaka sendiherra væri
að „láta fólk vita af þvi að við
látum það okkur varða og að láta
þá gefa mér skýrslu um hvað við
eigum að gera til að leiðrétta mis-
tök eða styrkja bandalag eða vin-
áttu“.
Ný Gallup-skoðanakönnun
sýndi i dag að Carter hefur aukið
á ný forystu sína yfir Gerald
Ford. Carter hafði eitt sinn 20%
meira fylgi en Ford, en bilið
minnkaði niður í 2% fyrir rúmri
viku. Ymis vandamál hjá Ford að
undanförnu hafa nú haft þau
áhrif að nú nýtur hann fylgis 6%
færri kjósenda en Carter.
Aðrar skoðanakannanir, sem
New York Times og fréttastofa
CBS létu gera sfna Carter hefur 6
til 8% meira fylgi.
I viðtalinu við Los Angeles
Times sagði Carter einnig að syn-
ir hans tveir, Jack og James Earl
mundu vinna fyrir stjórn sína, og
kvað hann þá vera vel heima f
vandamálum bandarfsku þjóðar-
innar og geta komið sér að gagni f
innanríkismálum.
Ford forseti hélt sinn fyrsta
meiriháttar blaðamannafund í 8
mánuði í gærkvöld, og fagnaði
hann þar ákvörðun Watergate-
ákærandans að lýsa hann saklaus-
an af misferli með kosningasjóði
og kvaðst hann vona að kosninga-
baráttan færi nú að snúast um
málefni, sem skiptu meira máli.
Sagði hann að of mikið hefði
verið deilt um mál sem enga þýð-
ingu hafa.
Forsetinn varði af hörku þá
ákvörðun sfna að selja ísraels-
mönnum ný og fullkomin vopn og
að hækka verð á hveiti á heima-
markaði. Vísaði hann á bug þeim
fullyrðingum að með þessu hefði
hann verið að fiska eftir atkvæð-
um Gyðinga og bænda.
— Sendiráðs-
menn . . .
Framhald af bls. 1
Danmerkur. Eru þrír hinna hand-
teknu Danir, einn Líbanonmaður
og tveir Sýrlendingar.
Enginn þeirra var diplómati en
þeir höfðu allir gott sambad við
sendiráð í Kaúpmannahöfn.
Réttarhöld yfir mönnunum hafa
verið lokuð.
1 tilkynningu stjórnarinnar
sagði að ákveðið hefði verið að
reka Kóreumennina eftír mjög
nákvæma rannsókn. Þá segir í
tilkynningunni að auk þess að
hafa selt eiturlyf hafi allir dipló-
matarnir gerst sekir um að selja
smyglað áfengi og tóbak.
„Það hefur verið staðfest að
diplómatarnir hafa selt mikið
magn af eiturlyfjum og f langan
tíma hafa þeir stundað sölu á
áfengi og sígarettum, sem flutt
var inn til nota í sendiráðinu."
sagði í tilkynningunni.
— Norðmenn
Framhald af bls. 1
ingurinn fæli f sér viðurkenningu
á 200 mílna fiskveiðilögsögu en
sagði að það væri ekki víst að
Sovétmenn mundu mótmæla þeg-
ar Norðmenn færðu út 1. janúar.
— Ekkja Maos
Framhald af bls. 1
um og boðað var til annars, þar
sem Hua var eftir heitar umræð-
ur kosinn formaður kommúnista-
flokksins.
Að sögn Tanjug voru þrír verð-
ir drepnir i skotbardaga þegar
hinir róttæku voru handteknir,
en engan þeirra fjögurra sakaði.
Mikil herferð er hafin f Kfna á
veggspjöldum gegn Chiang Ching
og félögum hennar og eru þau
fordæmd sem Shanghai fjór-
menningarnir „óvinaklíka flokks-
ins“.
I Shanghai þar sem ekkjan og
félagar hennar hófu stjórnmála-
feril sinn f menningarbyltingunni
fyrír 10 árum sfðan, voru máluð
slagorð á veggi sem sögðu „kremj-
um og hengjum þorparana fjóra“
og við Futan háskóla voru vegg-
spjöld, sem á var letrað „merjum
hausana á hundunum fjórum".
Stúdentar sem hingað til hafa
verið álitnir stuðningsmenn
Chiang Ching, hafa haldið fundi
þar sem hún var gagnrýnd.
-*■ Iþróttir
Framhald af bls. 30
Árni Indriðason, Gróttu.
Fyrirliði úrvalsliðsins verður
Viðar Simonarson, FH, en stjórn-
andi liðsins verður Birgir Björns-
son.
Takist úrvalsliði þessu að sýna
álíka góðan leik og það náði f
landsleiknum við Sviss f Laugar-
dalshöllinni, þá er þess að vænta
að um mikinn og skemmtilegan
baráttuleik geti orðið að ræða, og
er vonandi að áhorfendur fjöl-
menni f Laugardalshöllina i dag
og styðji við bakið á íslenzka úr-
valsliðinu, þó ekki væri nema til
þess eins að hjálpa því til að
stöðva sigurgöngu þýzk-fslenzka
Dankersensliðsins.
— Neyðarástand
Framhald af bls. 32
Bæjarráð véfengir rétt Pósts og
síma til þess að segja upp þessari
neyðarþjónustu sem stofnunin
bauð að annast fyrir 27 árum og
hefur gegnt athugasemdalaust
síðan. Til þess að fá úr þessu
skorið hefur bæjarráð kært upp-
sögn Pósts og síma á umræddri
þjónustu við samgönguráðuneyt-
ið.og bíður úrskurðar þess.
Benda ber á að boðun slökkvi-
liðs Isafjarðar er samkvæmt stað-
festu starfsskipulagi Almanna-
varna fyrir Isafjörð og nágrenni
fyrsta aðgerð til bjargar í flestum
eða öllum neyðartilvikum, en það
er lagaleg skylda Pósts og síma að
annast boðun liðsins samkvæmt
lögum um almannavarnir. Bæjar-
ráð lítur svo á að ekki sé ástæða
til að gera mun á hættu af völdum
eldsvoða og annarri vá og telur
því óhjákvæmílegt að Póstur og
sími annist þessa þjónustu áfram.
Bæjarstjórn telur hins vegar eðli-
legt að bæjarsjóður greiði Pósti
og síma sannvirði kostnaðar
vegna þessarar þjónustu sam-
kvæmt staðfestri gjaldskrá."
— Stórsókn
Framhald af bls. 1
manna f Trípolí, en sú borg er á
valdi vinstri sinna. Friðarviðræð-
urnar í Riyadh hafa næstum
gleymst síðan Sýrlendingar hófu
sókn sína f Bhamdoun á miðviku-
dag, en fyrir þeim vakir að opna
þjóðveginn frá Austur-Lfbanon til
austanverðrar Beirútborgar, sem
er á valdi hægri manna. Liggur
vegurinn um Bhamdoun.
Talsmenn skæruliða sögðu í
kvöld að þeir ætluðu að berjast
áfram en lið þeirra er nú næstum
alveg umkringt.
I fjöllunum fyrir ofan Sidon
eru miklir herflutningar á vegum
Sýrlendinga, en þeir hafa komið
þar upp fallbyssum, sem draga til
hafnarinnar og þjóðvegar með-
fram ströndinni. Er hætt við að
þeir geti þar með skorið af mikil-
vægar flutningaleiðir til vestur-
hluta Beirút.
Fundurinn í Riyadh, höfuðborg
Saudi Arabiu, byrjar á morgun en
á honum munu forsetar Sýrlands,
Egyptalands og Líbanon ásamt
palestfnska skæruliðaleiðtogan-
um Yasser Arafat ræða saman.
Konungur Saudi Arabiu, Khalid,
verður í fórsæti á fundinum.
Saudi Arabia og Kuwait hafa gert
tilraunir til að sætta stjórnirnar i
Kairo og Damaskus, sem greint
hefur á um þátt Sýrlendinga í
stríðinu í Lfbanon.
— Afþakka fé . .
Framhald af bls. I
fyrir fjármálum sfnum og bráð-
lega verður nefnd skipuð til að
komast til botns í málinu.
Hægfara flokkurinn telur að
sem minnst leynd eigi að hvíla
yfir framlögum til stjórnmála-
flokka. Flokkurinn mun lfklega
leggja til að öll framlög hærri en
30.000 sænskar krónur verði birt
opinberlega. Flokkurinn vill að
fólk sem gefur fé til stjórnmála-
flokka þurfi ekki að gefa upp
hvaða flokka það styður.
— Könnun
Framhald af bls. 3
þurfi að skipta um vagna til að
komast á áfangastað en nú er
talið að um 20% farþega þurfi
að skipta um vagna í þvf skyni,
sem þykir nokkuð hátt hlutfall.
Það kom fram hjá forráða-
mönnum bæði Strætisvagna
Reykjavákur og Strætisvagna
Kópavogs að þeir telja ómetan-
legan feng í niðurstöðum sem
út úr svo viðtækari könnun
kunna að koma f þvf skyni að
gera umbætur á leiðakerfum
beggja fyrirtækjanna, bæði f
þágu farþega og fyrirtækjanna.
Til að mynda geta umbætur á
leiðakerfinu fyrir farþegana
orðið í þá veru að lengja ein-
hverjar leiðir til að draga úr þvi
hlutfalli farþega sem verður að
skipta um vagna til að komast á
leiðarenda og á sama hátt getur
niðurstaðan f einhverjum til-
fella orðið sú að stytta má
leiðir, sem hefur f för með sér
verulegan sparnað fyrir fyrir-
tækin. Fyrir umferðarþróunina
á höfuðborgarsvæðinu geta
hins vegar slfkar umbætur á
leiðakerfum strætisvagnanna
haft í för með sér að alrrtenn-
ingur nýtir sér þjónustu þeirra
f ríkari mæli, sem aftur leiðir
til þess að draga úr mesta
umferðarþunganum.
— Viðskipta-
kjörin . . .
Framhald af bls. 17.
ræða nein stökk, sem geri það að
verkum, að unnt sé að standa
undir þeim háu kaupkröfum, sem
sumir talsmenn hagsmunasam-
taka bera nú fram. Við skulum
hafa það í huga, að víða annars
staðar þykir það veruleg kaup-
hækkun, ef kaup hækkar um
3&8% á ári. Hér hafa kauptaxtar
hækkað margfalt meira. Af því
hlýtur að leiða, að kauphækkunin
hverfur í eld verðbólgunnar. Og
sú hefur reyndin orðið á.
Það er von mín, að starf þeirrar
nefndar, sem fjallar um viðnám
gegn verðbólgu, opin umræða
meðal landsmanna og skilningur
og samheldni þeirra, verði til
þess, að við náum valdi á verð-
bólguþróuninni.
Þess krefst þjóðarhagur.
— Orkustofnun
Framhald af hls. 2
þessara kaupa heldur verður að
fjármagna þau mað lántöku, ef af
verður. Hins vegar er í
heimildadgreinum fjárlagafrum-
varpsins til rfkisstjórnarinnar
gert ráð fyrir að fella megi niður
aðflutningsgjöld og söluskatt
vegna kaupa á nýjum bor.
— Times
Franthald af bis. 2
frá íslandi, sem yrði viðameira ef
auglýsingamagnið ykist. Dvelur
hún hér fram f næstu viku býr á
Sögu, og er að sækja heim
hugsanlega auglýsendur.
Greinarnar um Island verða svo
skrifaðar af hinum kunna blaða-
manni William Dullforce, sem er
kunnugur málum hér. Hann kom
m.a. oft til Islands meðan land-
helgisdeilan stóð yfir og skrifaði
þá góðar greinar um land og þjóð.
Hann er búsettur í Sviþjóð og
mun koma til Islands til að viða að
sér efni.
Dullforce hefur gert áætlun um
efni f þetta blað. Inngangsgreinin
verður um lok þorskastriðsins og
stjórnmála- og efnahagsmála-
ástandið í kjölfar þess. Þá hyggst
Dullforce rita sérstaka grein um
efnahagsmál tslendinga i heild,
aðra um utanríkisstefnu Islands,
þá þriðju um fiskiveiðar og fisk-
iðnað, fjórðu um iðnað á Islandi
og orkufrekan iðnað, fimmtu
greinina um jarðhitamál og þá
sjöttu um ferðamál.
Suzanne H. Ralph sagðist vona
að sér yrði vel tekið. Eftir því sem
fleiri auglýsendur vildu vera
með, þeim mun myndarlegra yrði
blaðið um tsland.
Kúbustjórn riftir
flugránssamningi
Miklar byggingarfram-
kvæmdir í Siglufirdi