Morgunblaðið - 16.10.1976, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. OKT0BER 1976
Aldarminning:
Guðmundur Sigurður
Benjamínsson á Grund
Fyrir 100 árum, þann 16.
október 1876, fæddist drengur á
Hróbjargarstöðum í Hítardal sem
skírður var Guðmundur Sigurður.
Hann var tíunda barn foreldra
sinna og nafn sitt fékk hann af
tveimur gistivinum, sem þá voru
horfnir yfir móðuna miklu, en
létu foreldrana vita af sér í
draumi, sem ráðinn var þannig að
þeir vildu þar lengur dvelja. Slíkt
var algengt hér á landi.
Með hliðsjón af þeirrar tíðar
hætti er mjög vafasamt að ætla að
fáeðing þessa drengs hafi verið
mikið fagnaðarefni. Ekki er óiik-
legt að ómagahálsinn hafi þótt
vera orðinn nógu langur í þessu
fjallakoti, þó að þessi liður bætt-
ist ekki við. En „fár veit að hverju
barni gagn verður" er eilift spak-
mæli sem alltaf er að rætast og
hætt er við að ættingjum og vin-
um þætti nokkur eyða vera ef
þessi drengur hefði ekki fæðst.
Hróbjargarstaðir var um marg-
ar aldir innsta býlið í Hitardal,
harðbýlt og erfitt fjallakot, i eyði
annað veifið og nú búið að vera i
eyði i full 50 ár. Hitardalurinn er
stór og hrikalegur, heitinn eftir
tröllkonu og tröilakirkjur eru á
fjallseggjum báðum megin dals-
ins. Mikið af undirlendi dalsins er
hraun og sandar, víða eldvörp og
ummerki mikiila eldsumbrota. En
þar eru líka grösugar hlíðar og
grónir dalir þar sem áður var talið
„gott undir bú“. Fjölbreytni er
mikil i landslagi og viða má þar
fegurð finna.
Hjónin á Hróbjargarstöðum
1876 hétu Benjamín Jónsson og
Katrín Markúsdóttir. Bæði voru
þau vel ættuð sem kallað var.
Benjamín var kominn i beinan
karllegg af Marteini biskupi
Einarssyni og forfeður hans
höfðu verið bændahöfðingjar og
lögréttumenn um Mýrar og
Snæfellsnes. Katrin var af mestu
prestaætt landsins. Forfeður
hennar voru prestar á Reynivöll-
um, Reykholti, Gilsbakka o.v. og
ættmenn hennar voru biskuparn-
ir Oddur Einarsson, Finnur og
Hannes, auk margra annarra stór-
menna.
Ekki hefir ættgöfgin tekið
mikið rúm í öskum barnanna á
Hróbjargarstöðum, því sam-
kvæmt frásögnum þeirra systkina
sem ég þekkti, var fátæktin og
baslið þar meiri en nútímafólk
kann að gjöra sér grein fyrir.
Bæði voru þau hjónin vel vinn-
andi og iðjusöm og hinar fornu
dyggðir, iðjusemi og sparsemi
voru þar í heiðri hafðar. Börnin
voru mörg, bústofninn lítill og
bjargráðin fá á þessu heiðarkoti.
Urðu börnin því snemma að
bjarga sér sjálf og fara í vistir til
annarra. Guðmundur var á
unglingsaldri i Miðgörðum i Kol-
beinsstaðahreppi hjá Eggerti
Eggertssyni og Þorbjörgu
Kjartansdóttur. Minntist hann
þeirra hjóna jafnan af miklum
hlýleik og tók á unglingsárum þá
tryggð við „Garðaplássið“ sem
varaði ævilangt.
Guðmundur náði góðum þroska
til líkama og sálar, var fríður sin-
um, glaður og reifur og hvers
manns hugljúfi. Hann kvæntist
Asdísi Ólöfu Þórðardóttur, Svein-
bjarnarsonar prests frá Staðar-
hrauni, f. 13. júlí 1873, d. 10. marz
1967. Þau voru saman í hjóna-
bandi í 70 ár. og eignuðust sex
syni og eina dóttur. Af þeim eru
nú lifandi tveir synir. Hjónaband
þeirra var hið ástúðlegasta alla
tíð. Þau voru bæði einstaklega
samhent og úrræðagóð að bregð-
ast við margs konar vanda og
breytingum á sínum langa og
breytilega æviferli.
Þegar Guðmundur og Ásdís
giftust rétt fyrir aldamótin, var
ástandið hér á landi þannig að
lítil framtíð virtist vera fyrir
efnalaust æskufólk að hefja
búskap. Þau fóru því til Ameríku
árið 1900 og dvöldu þar í sjö ár.
Ekki urðu þau rík af veru sinni i
Ameríku, en Guðmundi mun hafa
aukist þekking og áræði til að
athuga möguleika og leita úrræða
í margs konar erfiðleikum sem
biðu þeirra hér. Næstu tuttugu
árin gekk á ýmsu hjá þeim hér á
landi. Guðmundur var við búskap
í Mosfellssveit, verzlun í Reykja-
vík, sveitarverzlun í Kolbeins-
staðahreppi o.fl.
Um 1930 nam Guðmundur land
í Yztu-Görðum i Kolbeinsstaða-
hreppi og reisti þar nýbýli er
hann nefndi Grund. Þar byggði
hann og ræktaði og bjó í full 40 ár
til æviloka 3. janúar 1972.
Ég spurði Guðmund einu sinni
að því hvort honum hefði ekki
líkað vel við Ameríku og hvort
hann hefði ekki viljað taka þátt í
þeim marghæfu verkefnum og
möguleikum sem þar hefðu verið
fyrir hendi. Hann taldi að slíkt
AÐALFUNDUR Sambands aust-
firzkra kvenna var haldinn að
Húsmæðraskólanum á Hallorms-
stað dagana 3. og 4. sept. 1976.
Aðalmál fundarins voru:
1. Húsmæðraskólinn á
Hallormsstað og framtið hans. En
sá skóli og margir aðrir
húsmæðraskólar hafa átt í
miklum erfiðleikum með rekstur
vegna ónógrar aðsóknar. Það
hefur þvi 2 undanfarin ár verið
farin sú leið að taka nemendur á
grunnskólastigi af Austurlandi á
vikunámskeið í heimilisfræðum.
Eftirfarandi tillaga kom fram og
var samþ.
„Aðalfundur S.A.K. haldinn á
Húsmæðraskólanum á Hallorms-
stað 3. og 4. sept. 1976 lýsir
ánægju sinni með þá tilrauna-
starfsemi sem húsmæðraskólinn
hefur starfrækt þar undanfarna 2
vetur með kennslu í heimilis-
fræðum á grunnskólastigi og
hvetur eindregið til að skólinn
haldi áfram á þeirri braut að svo
stöddu, og leysi þar með að
nokkru leyti þann þátt grunn-
skólafræðslunnar sem flestir
hinir smærri skólar eru ekki
færir um að sinna enn sem komið
er.
hefði verið freistandi um skeið,
en til langframa hefði starfið þar
orðið ólffrænt fyrir íslenskan
sveitamann sem þráði hina
ósnortu náttúru sfns gamla lands.
„Það var hægt að lifa f Ameríku,“
sagði hann,„ en það var ómögu-
legt að hugsa sér að deyja þar.“
Mér þótti þetta fallega hugsað og
vel sagt og lýsa manninum vel.
Það má segja að þetta sé aðeins
sönnun hins gamla spakmælis að
„allt leitar til upphafs síns“. En
það veitta líka skilning á þeirri
lffshamingju Guðmundar á síðari
árum hans er hann hafði komið
fótum undir sig á æskustöðvum
sínum og gat notið þess að sjá
En um leið vill fundurinn
leggja á það þunga áherzlu, að
námsefnið og kennslufyrirkomu-
lag verði betur skipulagt fyrir-
fram og miðist að þvf að
nemendurnir fái þar ekki
skemmri tíma en svo að þeir nái
þeim lágmarkstíma sem krafizt er
miðað við námsskrá grunnskóla 7.
og 8. bekk.
Einnig leggur fundurinn
áherzlu á að skólarnir sendi með
hverjum hópi nemenda kennara
eða forráðamann.
Fundurinn lýsir eindregnum
stuðningi við framkomna tillögu
Byggingarnefndar Menntaskóla á
Austurlandi, þar sem kemur fram
sú hugmynd um hugsanlega sam-
vinnu við fjölbrautarskóla á
Egilsstöðum, að Húsmæðra-
skólinn á Hallormsstað verði sér-
kennslustofnun á sviði heimilis-
ræktar (verkleg heimilisfræði)
fyrir nemendur efstu bekkja
grunnskóla og framhaldsskóla á
Austurlandi svo og fyrir
almenning innan ramma
/úllorðinsfræðslu eftir því sem
aðstæður leyfa.“
grasið gróa og ull vaxa á sauðum á
Grundinni sinni.
Guðmundur á Grund er minnis-
stæður öllum sem kynntust
honum. Frjór i hugsun og fleygur
f orðfæri var hann skemmtilegri í
samtali en allir aðrir. Áhugi hans
og víðsýni á vandamálum sam-
tíðar sinnar var einstakur og leit
hans að sannleika hvers máls var
einlæg og fölskvalaus.
1 dag, á aldarafmæli hans,
munu afkomendur hans, ætt-
ingjar og tengdafólk koma saman
f samkomuhúsinu Lindartungu í
Kolbeinsstaðahreppi.
Guðm. IUugason.
2. Á fundinum var samþykkt
áframhaldandi aðild að Minja-
safninu á Skriðuklaustri og létu
fulltrúar f ljós áhuga fyrir að
rakna færi úr þeim málum og
taldi fundurinn að stjórn Safnast.
Austurlands ætti þakkir skilið
fyrir hina myndarlegu þjóðminja-
sýningu á Egilsstöðum s.l. sumar.
1 stjórn Minjasafnsins var kosin
Arnþrúður Gunnlaugsdóttir,
Egilsstaðakauptúni.
3. Vegna stórmyndarlegs
stuðnings Stéttarsambands
bænda við kvennasamtök dreif-
býlisins voru eftirfarandi tillögur
samþykktar.
„Aðalfundur S.A.K. haldinn að
Húsmæðraskólanum á Hallorms-
st. 3. og 4. sept. 1976 þakkar
Stéttarsambandi bænda þann
virðingarvott sem samtök bænda
sýna kvennasamtökum lands-
byggðarinnar með þvi að veita
þeim fjárstyrk af tekjustofni
sfnum.“
„Aðalfundur S.A.K. haldinn að
Húsmæðraskólanum á Hallorms-
stað 3. og 4. sept. 1976 felur
formanni að kanna möguleika á
fjárframlögum útgerðarstofnana
og annarra aðila er til greina
koma við sjávarsiðuna til sam-
ræmis við framlag Stéttarsam-
bands bænda.“
4. Þá fól fundurinn stjórn sam-
bandsins að vinna að útgáfu á
sögu Húsmæðraskólans Hallorms-
stað f tilefni þess, að S.A.K. á 50
ára afmæli á næsta ári.
5. Framkvæmdastjóri Orlofs
húsmæðra á Austurlandi gaf
skýrslu um starfsemi orlofsins s.l.
ár. Hún sagði að miklir fjárhags-
örugleikar heftu nú starfsemina
eftir að rfkið hefur velt fjár-
mögnun orlofsins yfir á sveitar-
félögin að öllu leyti. Þó kvað hún
hina árlegu leikhúsferð orlofsins
fyrirhugaða f nóvember n.k.
6. Lög sambandsins voru endur-
skoðuð og samþykkt með nokkr-
um breytingum til samræmis við
breyttar aðstæður og tfma.
7. Kosningar. Úr stjórninni
gekk Guðrún Sigurjónsd. Nesk. í
stjórn S.A.K. eru nú Ásdfs Sveins-
dóttir Egilsstöðum form., Annar
Þorsteinsdóttir Heydölum ritari,
Helga Kristjánsdóttir Reyðarfirði
gjaldkeri, Elfa Björnsdóttir
Stangarási og Ingibjörg
Kristófersdóttir Seyðisfirði með-
stjórnendur. Varaformaður er
Guðlaug Þórhallsdóttir, Breiða-
vaði. Framkvæmdastjóri Orlofs
húsmæðra á Austurlandi er Þór-
dís Bergsdóttir, Seyðisfirði.
+
Eigmmaður minn
JÓNAS ÞORVALDSSON,
Birkihvammi 17, Kópavogi,
lést i Borgarsjúkrahúsinu 1 3 þ m
Fyrir mína hönd, barna minna og annarra ættingja
Sesselja Jónsdóttir.
+
Móðir okkar
INGIBJORG SIGURÐARDÓTTIR,
frá Vegamótum, Stokkseyri
andaðist í Sjúkrahúsinu á Selfossi, 1 4 þ m
Börn hinnar látnu.
+
Eiginmaður minn,
ÓLAFUR INGIMUNDARSON
fyrrum bóndi að
Nýjabæ i Meðallandi
andaðist á Landakotsspítalanum að morgni 1 5 október
Árbjörg Árnadóttir.
+
Faðir okkar
EINAR MAREL ERLENDSSON
bifreiðastjóri,
Kóngsbakka 12
lést á heimili sínu miðvikudaginn 1 3 október
Sigrún E. Einarsdóttir
GIsli V. Einarsson.
+ Móðir okkar
ANNA HELGADÓTTIR
Selvogsgrunni 31
lést i Landspítalanum aðfaranótt 1 5 október Börnin.
+
Útför
JENNÝAR KAMILLU JÚLÍUSDÓTTUR
Garðhúsum, Garði
fer fram frá Útskálakirkju i dag 1 6 október kl. 1 4
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á liknarstofnanir
Börn og tengdabörn.
+
Útför
EINARS B. WAAGE.
hljómlistarmanns,
fer fram frá Dómkirkjunni, þriðjudaginn 1 9. október kl 1 3.30.
Eiginkona, móðir og dætur.
+
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför eiginkonu minnar, móður og dóttur
GUNNAR GUNNARSOÓTTUR
Friðbjorn Hólm.
Gunnar Björn Hólm,
Matthildur Guðmundsdóttir.
Sitthvað á prjónunum
hjá austfirskum konum
Útfaraskrevtingar
blómouol
G'oOurhusió wf/Sigtun simi