Morgunblaðið - 29.10.1976, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1976
Eftir Árna
Johnsen:
EINSTAKLEA finnst mér
ósmekklegt af Guðmundi
G. Þorarinssyni að nefna I
svargrein sinni „Enn um
umboðslaun", i Mbl. 26.
okt., minningargein sem ég
ritaði um vin minn. Sumter
skylt að láta í friði og hefja
yfir dægurþras.
Ohaggaður málflutingur
G.G. Þ. kvartar yfir þvi að ég
hafi ekki raett framkvæmdamál á
vegum Viðlagasjóðs við hann, en
það var timasóun að þvi leyti, að
ég hafði þegar kynnt mér beinan
kostnað við byggingu innfluttu
húsanna 500 og borið saman
bækur minar við ýmsa sem gerst
þekkja til i beinni framkvæmd
þess verks, ekki teikniborðsvinnu.
Stendur það óhaggað sem ég hef
„Að þakka sjálfum
sér sérstaklega”
sagt í þeim efnum, óráðsía og
fjármunaaustur umfram allt eðli
legt, þótt byggingarhraðinn hafi
verið talsverður og skeikar þar
hiklaust um 200—300 milljónum
í bruðli 1973.
Upplýsingar ekki á lausu
G.G.Þ. spyr hvers vegna ég hafi
ekki skrifað þeim erlendu fyrir
tækjum sem seldu hingað húsin
500 og spurt hver hafi fengið
umboðslaunin fyrir þau ef svo hafi
verið. Ég hef fyrir löngu reynt að
fá það upplýst erlendis hjá fyrir-
tækjunum, en slíkar upplýsingar
liggja ekki á lausu eins og G.G.Þ.
veit mæta vel. Einu aðilarnir sem
eiga möguleika á slíkri upp-
lýsingaöflun eru þeir sem beinlínis
semja um kaup húsanna eða rlkis-
skattstjóri í gegnum skattstofur
— um svar G.G.Þ.
vegna Eyja-
gosmálsins
Norðurlandanna. Til hægðarauka i
þessu sambandi birti eg heimilis-
föng og nöfn téðra fyrirtækja er-
lendis Ég er ekki að eltast við
einn eða neinn sérstaklega en svo
margt hefur farið úrskeiðis i þessu
máli og þótt sumt sé ekki óeðli-
legt, þá er svo margt, sem sýnir
beinan ótuktarskap og makk, að
spyrja verður og deila á. Megin-
málið snýst að sjálfsögðu um það
hvers vegna Vestmannaeyingar
hafa raunverulega fengið til tjóna-
bóta minnihluta af heildarveltu
Viðlagasjóðs, sem er um 7000
millj. kr. og það tiggur fyrir að
tjónabætur til Vestmannaeyinga
hafa ekki numið nema um
40—45% eftir loforð stjórnvalda
um 100% bætur vegna jarð-
eldanna í Heimaey.
Staglazt á
undantekningunum
G.G.Þ. reynir enn einu sinni að
Sigurgeir í Eyjum tók þessa mynd
yfir hluta af Vestmannaeyjakaupstað
fyrir skömmu, en við blasa handan
byggðar Eldfellið og Helgafell til
hægri. Öskusvæðin undir Eldfelli og
Helgafelli eru nú orðin grasi gróin
eins og sjá má á myndinni miðað við
Ijósu svæðin
verja kostnað við grunnbyggingar
húsanna 500, en eins og fyrr I
svörum hans þar að lútandi er allt
svo loðið og opið í alla enda að
kostnaðurinn gæti nánast verið
endalaus án þess að G.G. Þ. þætti
nokkuð óeðlilegt við það. Tinir
verkfræðingurinn til neikvæðustu
dæmin sem upp komu, undan-
tekningarnar, og segir gjarnan:
„Sumir smiðuðu", „í mörgum til-
fellum", „og oft raflagnir", og
þegar bezt lætur „sums staðar".
í sambandi við skrif min um
feikilegan kostnað við grunn-
byggingarnar á sínum tima segir
G.G.Þ: „Ég hirði ekki um hér að
rifja upp eftir minni gang mála
þar, nú að 3 árum liðnum, en ég
fullyrði að hér fer Árni rangt með,
og verða margir til að staðfesta
það, ef eftir er leitað."
AS vita betur
Enginn mun staðfesta að ég fari
hér rangt með þvi að allir sem
þekkja málið vita betur. Minni ég
þar á ummæli eins verktakans á
Suðurlandi sem sagði við mig að
„allir sem hefðu komið nálægt
þessu hefðu grætt ofsalega og
aldrei annað eins miðað við stærð
verks". Þetta segir mikla sögu og
ég get jafnframt vitnað í verk-
fræðing sem vann við ákveðinn
þátt þessara framkvæmda. en
hann sagði að það væri alveg rétt
að þetta verk hefði verið féþúfa
fyrir marga á kostnað Viðlaga
sjóðs og um leið fólks ! landinu og
þá ekki sizt á kostnað möguleika
fyrir Eyjamenn að fá eðlilegar
Framhald á bls. 25
Skipstjóraefni úr Stýrimannaskóla Vestmannaeyja búa sig undir
starfið með sextantmælingum á Stórhöfða
Síldarsöltun i Eyjum
Hjalli á Vegamótum þenur trompettinn á bjargveiðimannaball-
inu i siðustu viku
„Burt með alla
réttmdalausa”
Þökk sé Morgunblaðinu fyrir
það framtak að leita tal kennara
og spyrja þá hvað þeir telji helst
til úrbóta um laun og stöðu
kennara.
Svör kennaranna birtust svo i
sunnudagsblaði Mbl. þ. 10. okt.
Margt var þar viturlega sagt og
vel að orðí komist. Illilega brá
mér þá, þegar það rann upp fyrir
mér hvaða aðgerð flestir þeirra
töldu brýnasta. Eins og sjá má af
meðfylgjandi úrkiippum búa
höfundar þeirra hver á sínu
landshorni. Má þvi ætla að það sé
úrbreidd skoðun meðal kennara
að ráðning hinna réttindalausu sé
á allan hátt mesta böl sem að
skólunum steðjar.
Ég býst við að flest okkar, sem
réttindaiaus höfum fengist við
kennslu, hafi sótt um stöður
okkar með þvi hugarfari að við
værum að tina upp molana sem
hrjóta af borðum húsbændanna
og unnið störf okkar i þeirri trú
að við værum að bjarga því sem
við gætum, meðan þeir menntuðu
og hæfu væru að fást við annað
mikilvægara. Það er því ekki lítið
áfall að vera allt í einu leiddur í
þann sannleik að við séum
vargarnir sem hrifsa bitana frá
munnum barnanna. Aldrei hef ég
verið þjakaður af jafn sáru sam-
viskubiti og eftir að ég las þau
ummæli, sem úrklippurnar sýna.
Ég gekk þess vegna beina leið á
fund skólastjóra og fræðsluráðs
þeirrar stofnunar sem ég starfa
við og tjáði þeim að ég væri
hættur störfum. Ég gæti ekki ris-
ið undir því að haf.a valdið heilli
stétt þvílíkum skaða. Eftir langar
fortölur, þar sem mér var m.a.
bent á að kerfi hins opinbera væri
svo seinvirkt að vonlaust yrði að
bæta úr óréttlætinu á einni nóttu;
og einnig að, að nemendum
mínum kæmi það líklega skár að
notast við mig en ekki neitt, lét ég
til leiðast að þrauka til vorsins.
En erfitt verður að rækja hið
vandasama starf og þurfa jafn-
framt að eyða orku i að rfsa undir
oki þvílíkrar sektar.
Þegar ég fór að íhuga vísdóms-
orð þess mæta fólks sem þarna lét
ljós sitt skfna gat ég ekki að því
gert, að ýmsar spurningar urðu
mér áleitnar. Ef það eða ein-
hverjir aðrir vita svör við þessum
spurningum yrði mér og trúlega
mörgum þjáningarsystkinum
mfnum, mikill fengur í að heyra
þau (eða sjá).
1. Hversu há þyrftu kennara-
laun að verða (t.d. við næstu úr-
borgun) til þess að réttindamenn
fengjust i ALLAR kennarastöður
á íslandi?
2. Með hverjum hætti ætti að
framkvæma bann við ráðningu
réttindalausra, ef svo óliklega
skylda vilja til að finnanlegur
væri á landinu sá staður, sem
enginn réttindamaður vildi sækja
um starf á þótt laun hækkuðu f
það horf sem telja mætti viðun-
andi? Á kannski að loka þeim
skólum?
3. Og svo ein samviskuspurning,
borin fram af hreinum kvikindis-
hætti:
Hvort skyldi vera heilladrýgra
skólanemendum á afskekktum
stað að njóta á hverjum tfma
handleiðslu kennara með fyllstu
réttindi þó aldrei neins lengur en
einn vetur, eða manns, sem ekki
hefur haft tök á að afla sér
réttinda en starfar árum, jafnvel
áratugum saman við sömu stofn-
un og reynir stöðugt að bæta sér
upp réttindaleysið með því að
heyja sér fróðleik, bæði á nám-
skeiðum og annars staðar sem
fróðleikur liggur á lausu?
Ef kennara brestur hugmyndir
um það hvernig þessum málum
yrði hægast komið á réttan kjöl,
vil ég koma með tillögu, sem ég er
alveg handviss um að myndi alveg
bjarga málinu ef hún kæmist til
framkvæmda.
S.Í.B. þarf að koma á fót
embætti ráðhingarstjóra. Hann
skal, ásamt einum fulltrúa frá
menntamálaráðuneytinu og öðr-
um frá fjármálaráðuneytinu,
mynda kennararáðningarnefnd
ríkisins. Þegar kennarar hafa
verið ráðnir með venjulegum
hætti f allar þær stöður sem
réttindafólk kærir sig um, þa
mætti setja svohljóðandi aug-
lýsingu í útvarpið og aðra
áberandi f jölmaðla:
KENNARAR
Þeir kennarar, sem gætu hugsað
sér að starfa á afskekktum út-
kjálkabyggðum, og enn hafa ekki
fengið starf eru vinsamlega
beðnir að koma á stöðuuppboð
sem verður haldið í stöðuveitinga-
sal kennararáðningarnefndar
ríkisins.
(Staður dagsetning, undirskrift).
Uppboðið myndi svo fara fram
með eftirfaandi hætti:
Umsækjendur safnast saman í
þægilegum samkomusal. Gegnt
þeim á upphækkun sitja svo
ráðningarnefndarmenn.
Ráðningarstjóri S.l.B. stjórnar
-ouuan vic
“arnaskólann á
Ak ureyri.
ml^S^Zg^iai!Zd?s,Sk°nUr er
sem bvður Upp á léleo la„ S .a*s9re'r». t
''' *en9óar J'L eS JI T: Skh
f 'Je,,sl Það. að fá.st ek" ' rfsha»a [
rétlmd, ,.| starfsrns er ba " meS l
:r;;ið'nn
deildum siúkráhúsa’í^nTL'" S<ar,a áí
‘”"ial9eng,erme& boð,« uPP á ^9 [
hvi heúlu U,D '
eru P
f' A8 irudd n,a
^f'stdíva
Venoara
i hVrir s. . rS/U
b">9 , -------**■h
Sv*ð, onQnara^rn,ar
m*00 °9 rJ' vOru 8"°a
£t""a J j aW 5*1' J ,
að er,. _ að fA .. e'nh,... ' nvi,,A
rr>eðal
' ">á/a
, "ð /)ef„ <*>n, . he'nr w« °'k ú,
£*». Cr ' °9 nna'Jn bla'9
hetta ,, hag „ sé,„. ,"°'t, u
hn, 6lh hj, 9efl>r I,, S,a*/ena . e,»
"'O,
' ti
úrr
Vistinn Helgj
Ha,,dórsson
Rennari á
_^9*l sstöðum
I 6 Stað,
/ híustað á l;
1 ré'tinda1áUS
ve,ííar stöði
sí®ðum ó|
rfnindalaUSr
lýstar nema t