Morgunblaðið - 29.10.1976, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 29.10.1976, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1976 VIÐSKIPTI VIÐSKIPTI — KFNAHAGSMAL — ATHAFNALÍF. Bandarísk svartsýni á efnahagsafturbata HAGFRÆÐINGAR 22 bandarískra stórfyrirtækja, hafa látið í ljós svartsýni um að verulegur afturbati í efnahagsmálum heimsins eigi sér nú stað. Segja þeir að of mörg veikleikamerki séu á efnahag Bandarikj- anna, Vestur Þýzkalands og Japans til þess að hægt sé að sannfærast um að verulegt vaxtarskeið sé framundan. Á fundi, sem þeir héldu i Hot Springs í Virginiu, létu hagfræðingarn- ir í ljós bjartsýni með miklum fyrirvara á að sá samdráttur, sem varð I Bandarfkjunum í síðasta mánuði, sé aðeins timabundinn og að efna- hagslffið nái sér á strik eftir áramót. Rökstuddu þeir þetta með því að benda á að vestrænu iðnríkin væru í raun ein efnahagsleg heild og að veikleiki i efnahagsmálum Bandaríkjanna V-Þýzkalands og Japans sem framleiða meir en helming allrar framleiðslu á Vesturlöndum, gæti komið i veg fyrir aukinn hagvöxt. Alíta þeir að stjórnir þessara þriggja landa hafi með stefnum sfnum lagt of mikla áherslu á að vinna bug á verðbólgu en vanrækt aðgerðir sem hefðu getað flýtt fyrir efnahagslegum framförum á Vesturlöndum og þvf hafi öðrum vest- rænum rfkjum, þar á meðal íslandi, verið búinn verulegur skaði, og að afleiðingin geti orðið almennt efnahagslegt þróttleysi. Þá benda hagíræðingarnir á að allt of mörg rfki, ekki aðeins í Vestur-Evrópu, heldur einnig kommúnistaríkin treysti um of á útflutn- ing sem efnahagslegan hvata. Markaðir eru af of skornum skammti til að hægt sé að byggja hagvöxt á útflutningi og má í þvf sambandi benda á aukna innflutningshaftastefnu f löndum eins og Bretlandi. Þá eru austantjaldslöndin ekki lengur freistandi markaður fyrir vestrænar útflutningsvörur, þar sem mikill skortur er á gjaldeyri í þessum löndum. Það er ekki lengur neitt vafamál að iðnframleiðsla í sjö helztu iðnrfkjum heims — Bandarfkjunum, Kanada,V-Þýzkalandi, Bretlandi, Frakklandi, Italíu og Japan, hefur dregist saman. Auk þess er eftir- spurn neytenda undir meðallagi síðustu fimm ára. Hagfræðingarnir fordæmdu háa vexti f Evrópu, sem hafa leitt til samdráttar í fjárfestingu iðnaðar. Þó að vextir séu ekki nema 3.5 til 6.5% f Bandaríkjunum, V-Þýzkalandi og Japan, þá eru þeir aimennt frá 8%og upp í 15% f Kanada og Evrópu. Segja þeir að niðurskurður á opinberum útgjöldum og jafnvægi fjárlaga hefði haft betri áhrif en háir vextir, sem þeir álíta vera erfiða hindrun fyrir efnahagslegar framfarir. Afkastageta San- itas fimmföldud NÝLEGA voru settar upp nýjar átöppunarvélar í gos- drykkjaverksmiöjuna Sanitas, sem bæta mjög af- köst verksmiðjunnar. Gefa nýju vélarnar möguleika á fimmfalt meiri afköstum en þær, sem áður voru not- aðar. Þessar nýju vélar eða vélasam- stæða geta tappað á 400 flöskur á mínútu, en þær gömlu afköstuðu 80—90 flöskum á mínútu. Af- kastagetan er þó ekki nýtt að fullu, þannig að um 250 flöskur fara í gegn á mínutu. Fjögur hundruð fermetra stál- grindarhús var byggt yfir nýju vélasamstæðuna við verksmiðju fyrirtækisins við Kleppsveg, en þar sem gömlu vélarnar stóðu skapast gott lagerrými. Verðmæti fjárfestinga í vélum og húsi nemur rúmlega 100 milljónum króna, en til þeirra fengust er- lend lán og lán úr Iðnlánasjóði. Nýju vélarnar geta bætt gæði gosdrykkjanna, þar sem þær blanda drykkina áður en þeir koma í flösku en áður var blandað beint I flöskuna. 40—50 manns starfa hjá Sanitas. Tveir þriðju hlutar veltu fyrirtækisins eru af sölu gos- drykkja, en þriðjungur af saft og ávaxtasultum. Að sögn Gylfa Hinrikssonar, forstjóra Pappírsvara, skapaðist grundvöllur fyrir þennan út- flutning, þegar fyrirtækið fékk sjálfvirkar vélar f lok maí. Þær voru teknar f fulla notkun fyrir rúmum mánuði sfðan en að- lögunartíma þurfti til að þjálfa starfsfólk og fullkomna fram- íslenzkar vör- ur á Fish Expo NU STENDUR yfir stærsta fiskveiðitækjasýning í Banda- ríkjunum, Fish Expo, en hún er haldin á hverju ári til skipt- is í Seatle og Boston. A sýn- ingunni í ár sýna tvö fslenzk fyrirtæka vörur. Elliði Norð- dahl sýnir Elektra- handfæravinduna og Stál- vinnslan h.f. síldarflokkunar- vél. Þetta er í fyrsta sinn, sem þessir aðilar sýna á þessari sýningu, en þeir hafa stundað þó nokkurn útflutning til aust- urstrandar Kanada. Afkoman sambærile það sem er á Norðurl AFKOMA heildverzlunar á Islandi er vel sambærileg við af- komu heildverzlana á öðrum Norðurlöndum. Kom þetta fram á ráðstefnu norrænna stórkaup- manna sem haldin var f Reykja- vfk f ágúst sfðastliðnum. þar sem meðal annars var fjallað um hag- kvæmni og fjármagnsþróun heildverzlana á Norðurlöndum. Skýrsla Júlfusar Sæbergs Ólafs- sonar, framkvæmdastjóra Félags íslenzkra stórkaupmanna um arð- semi og fjármagnsþróun íslenzkra heildverzlana var höfð til saman- burðar við skandinaviskar upplýsingar. Kom fram í skýrsl- unni að hlutfallslega færri starfa við verzlpn á Islandi en f Dan- mörku og Svfþjóð. 1966 störfuðu 12.6% alls fslenzks vinnuafls við verzlun, þar af 4.3% við heild- verzlun, að undanskildum þeim, sem verzla með olfu, bfla og byggingarvörur, en árið 1972 var hliðstætt hlutfall 4.2% Arið 1965 voru sambærilegar tölur hvað vinnuafl f verzlun varðar í Svíþjóð 15.5% og í Danmörku 15% af heildarvinnuafli. Islenzk heildverzlun skilur sig mjög frá skandinviskum að þvi leyti að mikill meiri hluti eða 95% þess varnings sem hún verzlar með er innfluttur. Þvf eru umboðslaun stærri hluti heildar- tekna fslenzkra heildverzlana en hinna skandinavisku. Brúttóhagnaður sem hundraðs- hluti af veltu var svipaður á Stöðug vöruþróun hjá Málningu h.f. — á stærstu rannsóknarstofu í einkaeign MIKIL vöruþróun hefur átt sér staS hjá fyrirtækinu Málningu h.f. I Kópavogi, en samkvæmt upplýsingum Ragnars Magnús. framkvæmdastjóra fyrirtækis- ins, er langmestur hluti framleíðslunnar eftir eigin framleiðsluuppskrift. sem fundin er á rannsóknarstofu þess. En fyrirtækið kaupir einnig framleiðsluleyfi erlendis frá. þó að það eigi við um minnihluta vara Málningar. Ragnar sagði að fyrirtækið hefði lagt áherslu I auglýsingum I ár á aðrar málingartegundir en plast-málningu. Sérstaklega hefði hraunmálning verið auglýst í sumar enda hefði orðið mikil söluaukning í henni. Er hraunmálning- in eigin uppgötvun eða hönnun Málningar h.f. Þá sagði Ragnar að starfsmenn Málningar hefðu verið að vinna að gerð nýrrar tegundar af málningu. þar á meðal. svo nefndrar þykkhúðar. sem er s.k. klórkátsjúk málning Reyndar hefði hún verið áður á markaðnum, en reynt hefði verið að koma henni I söluhæfara form og koma með fleiri tegundir af henni. Hefur fyrirtækið nýlega gefið út tæknirit um þessa málningu. sem er utanhússmálning. Þá hefur fyrirtækið sett á markað nýja tegund af gólfefni, svo nefnt Deka gólf, en hér er um að ræða massa I tveim þykktum 2 millimetrar og 5 millimetrar. Er það samsett úr epoxið-bindiefní, sem er með þeim sterkari, sem þekkjast. og kvartssandi. Er þetta efni aðallega ætlað á gólf, þar sem mikið mæðir á. Er þetta gert I samvinnu við danskt fyrirtæki. Ragnar taldi að Málning h.f. ætti stærstu rannsóknarstofu I einkaeign á Islandi, en við hana starfa þrlr efnaverkfræðingar og tveir aðstoðarmenn. Samtals starfa 55 til 60 manns hjá fyrirtækinu, sem veltir á þessu ári á 5. hundrað milljónum króna. Námskeid og fundir FÍS FÉLAG Islenzkra stórkaupmanna heldur á þriðjudag I næstu viku fé- lagsfund með verðlagsstjóra. Verður fundurinn haldinn að Hótel Loftleið- um klukkan 12.15. Þá verður nám- skeið félagsins um verðútreikninga Stærstu fyrir- tæki í Svíþjóð SÆNSKA viðskiptatlmaritið Veckans Affárer hefur birt lista yfir 200 stærstu fyrirtæki Svlþjóðar. Tiu stærstu fyrirtækin skv. ársveltu 1975 eru 1. Samvinnuhreyfingin, KF. 2. Volvo 3. ICA (samtök smá- sölukaupmanna). 4. Johnson- koncernen. 5. Statsföretag A.B. 6. Saab Scania. 7. Asea. 8. Telefon AB LM Ericson. 9. AB Svenska kullagerfabriken, SKF. 10. Electrolux. Plastpokavél Pappirsvara. Pappírsvörur hef ja út- flutning á plastpokum Pappírsvörur h.f. dóttur- fyrirtæki Kassagerðar Reykjavíkur áætla að flytja út plastpoka á næsta ári til Norðurlanda fyrir 60—80 milljónir króna. Er hér um að ræða poka í mjólkurumbúðir, en fyrir- tækið hefur framleitt þess háttar poka fyrir inn- lendan markað í 11 ár. leiósluna þannig að hún stæðist allar gæðakröfur. Það er dótturfyrirtæki Pappirsvara, Liquid Box of Scandinavia, sem dreifir pokunum, en þeir eru eins og 10 lítra pokarnir, sem notaðir hafa verið undir mjólk á Akureyri og vlðar um árabil, nema stærri. Gylfi sagði að 75—80% plast- pokaframleiðslunnar yrðu flutt út, fyrst aðallega til Svíþjóðar en sfðan til hinna Norðurlandanna einnig, en innlendi markaðurinn væri vaxandi. Verðmæti vélanna, sem settar voru upp til þessarar framleiðslu er 20 milljónir króna. . íslenzkar heildverzlanir:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.