Morgunblaðið - 29.10.1976, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 29.10.1976, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1976 Auðunn vestfirzki hálft dýrið, og máttu á það líta, að dýrið mun deyja fyrir þér, þar eð þið þurfið vistir miklar, og er búið við, að þú hafir þá ekki gagn af dýrinu, ef það sveltur til bana fyrir þér.“ Auðuni þótti þessi kost- ur þungur, en sá þó ekki annan fyrir liggja líkara, þar sem þá var komið. Urðu þeir á það sáttir, að hann seldi Áka hálft dýrið með því skilyrði að þeir skyldu þá þegar fara á konungs fund, og skyldi hann virða hvorttveggja: vistir þær, er Áki fékk honum og dýrið, en Áki bæta Auðuni svo mikið, sem vert væri, ef konungi þætti betra hálft dýrið. Þeir fóru báðir saman, þar til þeir fundu Svein konung, og stóðu fyrir borð- inu. Konungur fagnaði vel Áka ármanni og íhugaði, hver þessi maður mundi vera, er hann kenndi eigi, og mælti síðan til Auðunar: „Hver ert þú?“ Hann svarar: „Ég er íslenzkur maður, herra“, segir hann, „og kominn utan af Grænlandi og nú af Noregi, og ætlaði ég aö færa yður bjarndýr þetta. Keypti ég það á Græn- landi fyrir alla eigu mína; og nú er þó á orðið mikið fyrir mér: ég á nú aðeins hálft dýrið.“ Og hann sagði siðan kon- ungi, hversu farið hafði með þeim Áka, ármanni hans. Konungur mælti: „Er það satt Áki, er hann segir?“ „Satt er það“, segir Áki. Konungur mælti: „Og þótti þér það til liggja, þar sem ég hef sett þig mikinn mann og fengið þér mikió lén, að tefja það og tálma, að útlendur maður og mér ókunnur gerðist til að færa mér gersemi og gaf þar til alla eigu sína, og vorir hinir mestu óvinur sáu það að ráða, að iáta hann fara í friði? Hygg að þá, hversu ósæmilegt þér var slíkt að gera, og er vonlegt, að margt og mikið skilji ykkur Harald konung, er hann gaf hon- um frið. Nú væri það maklegt, aö þú létir eigi aðeins alla eigu þina, heldur og lífið með. En ég mun nú eigi láta drepa þig að sinni. En braut skaltu fara þegar úr landinu og koma aldrei aftur síðar mér í augsýn. En þér, Islendingur, kann ég slíka þökk, sem þú gæfir mér allt dýrið, og því öllu betur sem vistir þær eru verðar, er Áki seldi þér, en hann átti að gefa, og ver hér með mér.“ Auðunn Ég ætla að skoða hér jakka á manninn minn! kafunu w r* GRANI göslari Þú verður að skipta um vinnustað og hætta í snæraverksmiðj unni. <7 Ég heimta að þú greiðir fyrir- framgreiðsluna f gjaldheimt- una nógu snemma næst, svo við þurfum ekki að standa í þessu á hverju ári. Spákonan: Þér munuð gift- ast háum og dökkhærðum manni. Stúlkan: Ég er engu nær, þeir eru allir háir og dökk- hærðir. Læknir: Ég get því miður ekki læknað manninn yðar af þvf að tala f svefni. Frúin: En getið þér þá ekki fengið hann til að tala nokkuð skýrar? Innbrotsþjófur: Þú ætlar þó ekki inn í húsið aftur? Félagi hans: Jú, ég má til. Ég gleymdi innbrotsjárninu mfnu, og það er afmælisgjöf frá konunni minni. Nafnið mitt stendur á því. Kennari: Menn borða kjötið af dýrunum, en hvað er gert við beinin? Tommi litli: Menn skilja þau eftir á diskinum. Hún: Endar bókin vel? Hann: Það veit ég ekki. Það stendur bara að þau hafi gifzt. Konan: Þú verður að hugga þig við það, Vilhjálmur, að við hittumst aftur. — Æ, vertu nú ekki að ergja mig á banasænginni. Kfnverju lýsir réttarhöldum f Englandi á þennan veg: —Einn maður þegir alltaf,. annar talar allan tfmann, og tólf menn dæma svo þann sem þagði. Fangelsi óttans Framhaldssaga aftir Rosamary Gatanby Jóhanna Kristjónsdóttir þýddi 57 — iteyndu að vera sem næst mér, sagði Jack. — Jamie á að vera með Erin. Þegar við komum að múrnum skal ég hjálpa þér upp. En þú verður að gæta þfn þegar upp kemur hinum megin. Helene mun þá vera viðbúin að ‘ijálpa þér niður. — Helene? spurði hún þrumu lostin. — Já. við erum með kaðalstiga sem við komum fyrir hinum meg- in. Heldurðu að þú ráðir ekki við þetta? — Areiðanlega. — Þú verður að 'gæta þess að missa ekki jafnvægið, þvf að þá detturðu annað hvort f klettana eða sjóinn og það er ekkert smá- ræðis fall. Hún hallaði sér að öxl hans og leit út yfir garðinn og Sðan að dagstofunni og bjóst við að sjá Reg eða Whelock koma á hverri stundu. — Mér var sagt að þú værir dáinn. Hann leit sem snöggvast inn f djúp augu hennar. Hvernig ætli hún hafi brugðist við þeirri frétt, hugsaði hann en sagði upphátt: — Þeir hafa bersýnilega verið eínum of fljótir með fréttina. — Jæja, þá erum við búnir, sagði Erin. — Við skulum þá koma og sjá. Linn og Jack fóru á undan og hin tvökomu á eftir þeim. Þau gengu meðfram sundlauginni og f áttina að þrepunum. Skothrfðin fyrir framan húsið var hætt f bili. Þau komu að steinþrepunum og fóru að ganga niður. Og þrátt fyr- ir allar skipanir var fyrsta mann- eskjan sem þau sáu þegar niður kom Helene. Hún hafði falið sig f skugganum. Erin hrópaði: — Þú áttir ... — Farðu á undan, sagði Jack við I.inn meðan hann horfðí á Jamie faðma systursfna. — Nei, annars, það er bezt að Helene fari fyrst, hún þekkir leið- ina ... Helene ... Hann snerist á hæli þegarskothvellur kvað við. Erin hafði hleypt af. Jack leit um öxl og sá engan. — Haltu áfram sagði hann við Helene. — Þeir urðu að koma stúlkunum tveimur yfir múrinn! En áður en hún náði að hreyfa sig skall kúla á múrnum rétt við nefið á þeim. Það kom að ofan. — Við erum með ykkur f skot- lfnu! Það var rödd Arts Whelock. Annað skot frá vinstri. Það kom úrglugga að ofan. — Hreyfið ykkur ekki, kallaði Whelock. — Kastið frá ykkur byssunum. Annars skjótum við ykkur niður eins og hunda. — Hann getur gert það, sagði Erin og horfði örvæntingarfuliur á litla hópinn sinn. Hann kastaði frá sér byssu Dan Bayles. — Við verðum að bfða færis að yfirbuga þá. Jack fylgdi dæmi hans og kast- aði frá sér byssunni. Martin Case hafði áhyggjur af skothvellunum. Þetta leit ekki nógu vel út.En hann hafði aðeins fengið fyrirmæli um að valda truflun. Og ef enginn þeirra kæmi f kvöld átti hann aðláta lögregluna vita. Ilann varð að bfða átekta enn um hrfð. En hvað f ósköpunum skvldi vera að gerast innan múr- anna. Enginn var lengur við hlið- ið til að fylgjast með þeim. Ber- sýnilega höfðu þeir nóg að gera annars staðar. En nú var skothrfð- in hætt. Hann fýsti að vita hvort það væri góðs vitieðaekki. Han gekkaðdyrunumogkíktigegn- umlitlulúguna.Tannsáblómagarð ogþrepsem lágu upp að voldugum útidyfum. Dyrnar voru opnar en engan mann að sjá. En þarna kom ... Hversu hann varfeginn að sjá Helene Everest sem kom hröðum skrefum til hans, klædd f rönd- ótta baðkápu og með sólhatt á höfði. — Martin, sagði hún þegar hún var komin nær. Hún sá andlit hans gegnum lúguna. — Halló, sagði hann. — Ég ætla bara að segja þér að bróðir minn er viti sfnu fjær af bræði. Þetta var ekkert nema grfn að Jamie sé haldið hér sem fanga. Erin og ég duttum ofan á það f grfni. Og rithöfundurinn bróðir minn er foxillur — sérstaklega yfir þvf að þessi björgunaraðgerð var sett á svið. Það var ekki vit- und sniðugt... Hann sá að hún var í miklu uppnámi. — Svo að allt loftið hefur farið úr blöðrunni eða hvað? — Öldungis rétt... Hún reyndi að brosa en hann sá ekki f augu hennar vegna þess hve sólgler- augun þöktu mikinn hluta efra andlits hennar. — Fyrirgefðu, sagði hann iðr- andi röddu. — Þetta var Ifka ein- um of æsingslegt... Hann gerði sér upp hlátur. — Og hvenær fæ ég þá að hitta Jamie? Nú þegar málið er til lykta leitt? — A morgun. — A morgun? — Já, það er betra en f dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.