Morgunblaðið - 30.10.1976, Qupperneq 1
32SIÐUR OG LESBOK
Bretar
vilja fá
annað
stórlán
London, 29. október. — NTB.
BREZKA stjórnin reynir nú að
tryggja sér 10 miiljarða doll-
ara(1897. milljarða (sl. kr) lán
frá Bandarfkjunum, Vestur-
Þýzkalandi og Japan, sem á að
nota til að styrkja pundið, að þvf
er opinberar heimildir f London
skýrðu frá f morgun.
Það er einnig mögulegt að ein-
stök Arabalönd muni lána hluta
af þessari upphæð. Mun brezki
forsætisráðherrann, James
Callaghan, hafa vakið máls á
þessu þegar starfsbróðir hans f
Vestur-Þýzkalandi, Helmut
Schmidt, var f Bretlandi fyrir
skömmu.
Undirbúningsviðræður um lán-
töku hafa einnig farið fram við
bandaríska embættismenn, en
formlegir samningar verða tæp-
ast gerðir fyrr en eftir nýár þegar
Bretar hafa veitt viðtöku öðru
láni frá Alþjóða gjaldeyrissjóðn-
um að upphæð 3.9 milljarðar doll-
ara.
Þá var það einnig upplýst að
Denis Healey fjármálaráðherra
hafi ýmsar aðgerðir á prjónunum
til stuðnings pundinu. Tæplega
verður um að ræða frekari niður-
skurð á opinberum útgjöldum,
eins og íhaldsmenn hafa krafist,
en á meðal efnahagsspámanna er
Framhald á bls. 18.
Ægilegir eld-
ar í Japan
Yamagata, Japan, 29. okt. Reuter.
ÆGILEGIR eldar geisa f borginni
Sakata f norðvestur hluta Japans,
og hvorki slökkvilið né öflugt
varalið fengu við neitt ráðið þeg-
ar sfðast fréttist. Þá höfðu um það
bil eitt þúsund byggingar orðið
eldinum að bráð og þúsundir
höfðu flúið heimili sfn.
Jimmy Carter, forsetaframbjóðandi demókrata, sést hér veifa krepptum hnefa til
áheyrenda sinna í Brooklyn í New York í fyrradag, en þangað kom hann skyndilega
og fór í tveggja tíma ferð um Brooklyn eins og vikið er að í fréttinni frá blm. Mbl.
neðar á síðunni.
Njósnir í
þágu Rússa
í Finnlandi
Stokkhólmi, — ntb. tt. 29. okt.
Háttsettur starfsmaður f
finnsku tollgæzlunni var f dag
handtekinn sakaður um að
hafa stundað njósnir fyrir
Sovétríkin.
I sænsku dagblöðunum kem-
ur fram að maðurinn hafi
starfað f þeirri deild toll-
gæzlunnar, sem f jallur um við-
skiptamál og að hann hafi
veitt Rússum upplýsingar f
mörg ár.
Upplýsingarnar snertu verð-
lag á vélum, byggingarefnum
og viði. Finnska lögreglan tók
að gruna hann, vegna þess hve
hann vann mikla yfirvinnu.
Finnska viðskiptaráðuneytið
hefur lengi furðað sig á, að
starfsbræður þeirra á Rúss-
landi virtust vita náið um við-
skipti Finna við útlönd. Vit-
neskja þeirra þar að lútandi
Framhald á bls. 18.
Utanríkisráðherrafundur EBE:
Vonir standa til að samkomu-
lag um útfærslu náist í dag
Haag, 29. október. — Reuter.
Vonir glæddust f dag um það að málamiðlunarsamkomulag gæti
náðst á fundi utanríkisráðherra Efnahagsbandalags Evrópu, sem
byrjar á morgun, þannig að EBE löndin geti fært fiskveiðilögsögu sína
út f 200 mflur um áramót, að sögn embættismanns bandalagsins.
Irar, sem er umhugað um að tryggja réttindi sinna sjómanna næst
ströndum landsins, komu f veg fyrir að samkomulag gæti náðst á
utanrfkisráðherrafundinum í Luxemborg f sfðustu viku um 200 mfl-
urnar og stefnuna f fiskveiðimálum.
Garret Fitzgerald, utanríkisráð-
herra íra, álítur að tryggja verði
hagsmuni írskra sjómanna áður
en stjórn hans getur fallist á út-
færslu fiskveiðilögsögunnar í 200
milur og samninga við önnur ríki.
Miklar viðræður diplómata
hafa staðið yfir undanfarna daga
til að finna leið sem fullnægir
kröfum íra án þess að ákveðin
verði 50 mílna einkafiskveiðilög-
saga þeim til handa.
Finn Olov Gundelach, fulltrúi í
stjórnarnefnd EBE, sem fer með
utanrikismál, hitti írska em-
bættismenn í Dublin i gær og
ræddi um hugsanlega mála-
miðlun við sendiherra hjá banda-
laginu i dag.
Bretar leggja einkum mikla
áherslu á að aðildarríki EBE færi
út fiskveiðilögsögu sína, svó að
bandalagið geti gert nýtt fisk-
veiðisamkomulag við Islendinga í
stað tvíhliða samkomulags
íslendinga og Breta, sem fellur úr
gildi 1. desember.
Bretar vilja eins og Írar fá 50
mílna einkafiskveiðilögsögu, en
hafa sjö hin aðildarríkin á móti
sér í því. Þeir álita þó að leggja
beri aðaláhersluna á að færa út í
200 mílur og semja við lönd utan
bandalagsins, en geyma sérkröfur
þar til siðar.
Önnur aðildarríki eru sömu
Framhald á bls. 18.
Muzorewa biskup:
Líkir öryggissveitum
Smiths við Gestapo
Genf, 29. okf. Reuter. NTB.
AFRlKANSKIR fbúar geta ekki
sætt sig við að varnar- og dóms-
málaráðuneytum f Rhódesfu sé
stýrt af mönnum sem bera ábyrgð
á viðbjóðslegum pyndingum á
Ford að ná fótfestu í
Suðurríkjunum?
Ahyggjur í her-
búðum Carters
New York, 29. okt.
Frá blaðam. Mbl. Ingva Hrafni Jóns-
syni.
SVO virðist sem lokadagar
kosningabaráttunnar ætli að
verða örlagarfkir fyrir Jimmy
Carter. A sl. tveimur dögum
hefur að áliti stjórnmálafrétta-
ritara orðið töluverð breyting á
stöðu frambjóðendanna, að
mestu Ford f hag. t gær kom
fram að demókratar f Kali-
fornfu væru búnir að gefa upp
vonir um að Carter sigraði þar
og útlitið f New York var mun
betra fyrir Ford. 1 dag er talað
um að forsetanum sé að takast
að losa það tangarhald sem
Carter hefur haft á Suðurrfkj-
unum og var grundvöllur þess
að honum hefur verið spáð
sigri f þessum kosningum.
Þetta kom fram í kvöldfrétta-
tfma allra helztu sjónvarps-
stöðvanna í gærkvöldi og í blöð-
unum f morgun. Stjórnmála-
fréttaritarar segja það stað-
reynd, að frá því þriðja sjón-
varpseinvígið var háð fyrir
viku, hafi forsetinn sótt mjög á
í Texas, Louisiana, Missisippi,
Virginíu og Norður- og Suður-
Karólínu. Þetta etú allt fylki,
sem talið var öruggt að Carter
myndi sigra í. Richard B.
Cheney, yfirmaður starfsliðs
Hvíta hússins, sagði við frétta-
menn í gær að forsetinn og
bandamenn hans teldu úrslit
kosninganna enn vera mjög tví-
sýn, en væru mjög bjartsýnir og
glaðir yfir fylgisaukningu for-
setans undanfarið. Hann sagði
að fréttirnar frá Suðurríkjun-
um væru einkar uppörvandi og
ef héldi fram sem horfði þyrfti
forsetinn ekki að sigra nema í 4
stærstu fylkjum landsins til að
hljóta kosningu í stað fimm,
eins og sérfræðingar hans töldu
fyrir viku. Aðeins 5 dagar eru
liðnir síðan tímaritið Time birti
skoðanakönnun um fylgi fram-
bjóðendanna í hverju fylki og
kom þar fram að Ford hefði
forystu í 10 fylkjum með 60
kjörmenn og kjósendur 5 fylkja
með 37 kjörmenn hölluðust
fremur að honum. Carter hafði
forystu i 15 fylkjum með 176
kjörmenn og kjósendur 6 fylkja
með 97 kjörmenn hölluðust
fremur að honum. 1 12 fylkjum
með 168 kjörmenn var staðan
of tvísýn til að hægt væri að
gera spár. Alls þarf 270 kjör-
menn til þess að sigra og skv.
Framhald á bls. 18.
svertingjum f landinu. sagði þjóð-
ernissinnaleiðtoginn, Abel
Mozorewa biskup, á Genfarráð-
stefnunni um Ródesfu f dag.
Hann vfsaði á bug kröfu Ian
Smiths forsætisráðherra um að
lykilstöður f bráðabirgðarfkis-
stjórn landsins yrðu að vera f
höndum hvftra manna og sagði að
öryggissveitir hvftra manna
hefðu staðið að baki hinum svf-
virðilegustu pyndingum og
glæpaverkum á alþýðu manna.
Smith hefur aftur á móti sagt að
ekkert það liggi fyrir sem renni
stoðum undir ásakanir um að
pyndingum hafi verið beitt.
Biskupinn var mjög hvassyrtur
í ræðu sinni og líkti öryggissveit-
unum við Gestaposveitir nasista f
grimmd sinni. Van der Byl fyrr-
verandi varnarmálaráðherra neit-
aði að hermenn sínir hefðu
nokkru sinni gripið til ruddalegra
aðgerða gegn blökkumönnum að
ósekju og sagði að svartir skæru-
liðar hefðu þvert á móti sýnt
glæpsamlega grimmd í framferði
sinu.
Fundurinn í dag stóð í eina og
hálfa klukkustund. Var honum
siðan frestað fram á þriðjudag til
að gefa tíma fyrir óformlegar við-
ræður.