Morgunblaðið - 30.10.1976, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 30.10.1976, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1976 5 Mjög góð sala í Þýzkalandi SNÆFUGL SU. seldi Bremerhaven í gærmorg- un 71,7 tonn af fiski fyrir 123.900 mörk. 1 íslenzkum krónum er þetta 9,8 mill- jónir, meðalverð 136,5 krónur, sem er mjög gott verð. Nokkrir togarar og bátar munu selja afla erl- endis í næstu viku þar á meðal þrír í Bretlandi, en markaðurinn þar verður sí- fellt óhagstæðari vegna gengissigs brezka pundsins gagnvart islenzku krón- unni. Félag stofnað um heimspeki Kl. 14.30 ( dag verður fluttur á vegum Félags áhugamanna um heimspeki fyrirlestur f Lögbergi, húsi Lagadeildar Háskóla tslands. Fyrirlesari er Halldór Guðjónsson stærðfræðingur, og nefnir hann erindi sitt Málfræði Noan Chomsky og gagnrýni á hana. Fyrirlesturinn er ölium op- inn. Chomsky er einn kunnasti mál- visindamaður samtfmans og er hann sérstaklega frægur fyrir hina svokölluðu málmyndunar- fræði. Þessa stefnu innan málvís- indanna má að nokkru leyti rekja til áhuga Chomskys á nútíma rök- fræði og undirstöðum stærðfræð- innar, en margar fræðigreinar eiga hlut að máli og má nefna sálarfræði og heimspeki, og þá ekki sfzt heimspeki 17. aldar. Þá hefur Chomsky látið að sér kveða f stjórnmálum og verið í fremstu röð gagnrýnenda banda- rfskrar stefnu í utanrfkismálum og skrifað all mikið um þau efni. Chomsky er ekki með öllu óþekkt- ur hérlendis, þvf árið 1973 kom út eftir hann á vegum Hins íslenzka bókmenntafélags bókin Mál og mannshugur í þýðingu Halldórs Halldórssonar prófessors. Félag áhugamanna um heim- speki var stofnað 16. október s.l. og er tilgangur félagsins að efla Brengl ALLMIKIÐ brengl varð f grein um leikstarfsemi í föstudagsblað- inu. Með vandlegum lestri má ráða í hver röðin á að vera, en hlutaðeigendur eru beðnir vel- virðingar á mistökunum. kynni áhugamanna um heimspeki og gangast fyrir fyrirlestrarhaldi um heimspekileg efni. Fyrirlest- ur Halldórs Guðjónssonar er sá fyrsti f röð átta fyrirlestra, sem fyrirhugaðir eru í vetur. Stjórn nýja félagsins skipa Ingimar Ingi- marsson, formaður, Eyjólfur Kjalar Emilsson, gjaldkeri og Halldór Halldórsson, ritari. Brekku- kotsannáll um helgina Um þessa helgi gefst kostur á að sjá sjónvarpskvikmyndina Brekkukotsannál f Norræna hús- inu. Myndin verður sýnd á vegum þýzka sendikennaraembættisins, Goethestofnunarinnar og Nor- ræna hússins ( tilefni þess, að stjórnandi kvikmyndarinnar, Itolf Hádrich, dvelst hér á landi um þessar mundir við leikstjórn þýzka ieikritsins Woyzeck eftir Georg Buchner. Brekkukotsannáll verður sýnd- ur í tvennu lagi og verður fyrri hlutinn sýndur f kvöld kl. 20.30 og sfðari hluti á sunnudagskvöld á sama tíma í samkomusal Norræna hússins. Rolf Hadrich mun segja frá gerð kvikmyndarinnar og svara spurningum. Þá mun hann einnig segja frá kvikmynd, sem Norddeutscher Rundfunk lætur gera í samvinnu við sjónvarps- stöðvar Norðurlanda eftir Para- dfsarheimt Halldórs Laxness. Helena Mennander og Agnes Löve á æfingu ( Norræna húsinu I gær. „Eg elska alla tónlist” — segir finnski fiðluleikarinn, Helena Lehtelá-Mennander t DAG, laugardag, kl. 16.00 verða tónleikar I Norræna hús- inu. Hingað er kominn fiðlu- leikari frá Finnlandi, Helena Lehtelá-Mennander og mun hún leika á tónleikunum ásamt Agnesi Löve pfanóleikara. A efnisskránni verða fimm verk, þar af eitt einleiksverk fyrir fiðlu, cadenze eftir Aulis Sallinen. Auk þess verða leiknar sónötur eftir Corelli, Beethoven, Debussy og Grieg. Morgunblaðið hitti Helenu Mannander á æfingu f Norræna húsinu í gær og ræddi lftillega við hana. „Ég nam fiðluleik við Sibelísuarakademiuna i Helsingfors á árunum 1948—1964,“ sagði hún. „Siðan fór ég I framhaldsnám til Parfsar og var þar undir hand- leiðslu prófessors Boullion, en 1965 innritaðist ég á Tschai- kovskytónlistarháskólann i Moskvu og var þar f eitt ár. Eftir það var ég svo við nám hjá Arthur Grumiaus i Briissel þangað til i fyrra. Sfðan hef ég verið önnum kafin við tónleika- hald. Ég hef aldrei leikið neitt verk eftir íslenzkt tónskáld, en ég hef mikinn áhuga á verki eftir Þórarinn Jónsson. Það er prelódía og fuga fyrir einleiks- fiðlu. Ég hef ekki getað fengið það úti, en kannski væri hægt að fá það í verzlunum hér. Annars elska ég alla tónlist en þó einkum verk eftir Sibelius. Þetta er f fyrsta skipti, sem ég kem hingað til Islands og ég er ákaflega hrifin af þvi, sem ég hef séð. Sérstaklega finnst mér gaman að sjá hvað öll hús- in eru ólík, mismunandi bygg- ingarlag og litir. Hér eru líka svo fallegir litir og allt er svo hreint. Ég hefði gjarnan viljað ferðast eitthvað um landið, en við höfum verið svo önnum kafnar við æfingar, að það hef- ur enginn tfmi gefizt til þess.“ Kveðjumessa í Háteigskirkju Á morgun, sunnudaginn 31. okt., flytur sér Jón Þorvarðsson kveðjumessu í Háteigskirkju kl. 11. f.h. Sr. Jón vfgðist aðstoðarprestur föður síns í Vík í Mýrdal 23. júnf 1932, var settur sóknarprestur á Akranesi 1. okt. 1932 til 15. júlí 1933. Hann var sóknarprestur í Vík 1934—1952, og prófastur í Vestur-Skaftafellsprófastsdæmi 1935—1952. Sóknarprestur i Há- teigsprestakalli hefir hann verið frá 1. nóv. 1952 eða i 24 ár. Hlutavelta vegna útfararsjóðs SKÖLAKÓR Menntaskólans i Hamrahlið heldur hlutaveltu og sitthvað fleira i matsal Mennta- skólans í Hamrahllð og hefst at- höfnin kl. 9 í dag f.h. og verður fram haldið þar til liða tekur á dag. Margt muna er á boðstólum og engin núll, en tilgangurinn með veltunni er að safna i út- ferðasjóð skólakórsins. Hefur hann eins og kunnugt er staðið sig mjög vel á erlendum sönghátíðum og m.a. liggur fyrir ferð á sönghá- tið i israel. AUGI.ÝSINGASÍMINN F.R: 22480 í flestum stærðum. Mjög hagstætt verð Hjólbarða- Pionustan Opin í Qiaq og á y Smiðjuvegj 32__34 simar 43988 og 44880 m°rgun ATLAS snjóhjólbaróar með hvítum hringjum — Gott verð. Þið gerið hagstæð dekkjakaup hjá okkur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.