Morgunblaðið - 30.10.1976, Page 2

Morgunblaðið - 30.10.1976, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 30. OKTÓBER 1976 Háhyrningarnir tveir um borð f Guðrúnu, en holienzkir safnamenn standa fyrir veiðinni á þeim f samvinnu við Sæ- dýrasafnið f Hafnarfirði. Fara leiðangursmenn aftur á miðin f dag til að freista þess að veiða önn- ur tvö dýr. <Á myndinni er stærra dýrið, kvendýr, hægra megin, en á trýni, uggum og sporði eru á- breiður til þess að halda dýrunum rökum. Ljösmynd Mbl. Gudfinnur. Sædýrasafnsháhyrningarnir: Fara til Hollands og Bandaríkjanna „ÞESSIR háhyrningar sem eru komnir f Sædýrasafnið munu ekki verða þar lengi, því þeir verða fluttir til útlanda," sagði Jón Kr. Gunnarsson forstöðu- maður Sædýrasafnsins í Hafnar- firði I samtali við Mbl. ( gær- kvöldi. „Við höfum ekki aðstöðu til að hafa dýrin hjá okkar nema til skamms tima og erum aðallega f þessu brasi nú til að afla okkur reynslu á þessu sviði og auðvitað gæium við við þá hugmynd að Framhald á bls. 18. S j áv arútvegsráðherr a: Karvel og bráða birgðalögin t TILEFNI af yfirlýsingu Karvels Páimasonar alþingismanns, sem birt var hér f Morgunblaðinu, þar sem hann mótmælir þvf að hafa leitað til sjávarútvegsráðherra með tilmæli um að ráðherra hefði afskipti af fausn kjaradeifu sjó- manna, leitaði blaðið umsagnar ráðherrans um þetta atriði. Álafoss selur ullartrefla til Sovétríkjanna: Verðið aðeins 40 til 50% af því, sem fæst fyrir trefil í Bandaríkjunum ALAFOSS h.f. undirritaði nýlega samning um sölu á 600 þúsund treffum við V/O Raznoexport I Moskvu fyrir rúmlega 1.4 milljón dollara eða um 266 milljónir Is- lenzkra króna. Lætur þvf nærri að verðið á hverjum trefli, en þeir eru úr uli, sé rúmlega 443 krónur. Er þetta I fyrsta skipti, sem Ala- foss h.f. gerir sölumsamning við Sovétrlkin og á afhending trefl- anna að fara fram á næsta ári. Pétur Eiríksson, forstjóri Ála- foss h.f., sagði I viðtali við Morg- unblaðið I gær að allir treflarnir væru úr ull, röndóttir og prónað- ir. Pétur sagði að þessa samninga hefði borið talsvert brátt að, en Álafoss hefði lítið gert til þess að selja til Austur-Evrópuríkja, enda hefði hið sovézka fyrirtæki sótt á um þessi viðskipti. Til samanburðar aflaði Morgun- blaðið sér upplýsinga um verð á treflum, sem útflutningsfyrirtæk- ið Hilda flytur út, aðallega til Bandarfkjanna og Kanada. Hilda flytur út tvær stærðir af treflum og fær fyrir minni trefilinn 4.59 dollara eða 855 krónur og fyrir hinn stærri 5.60 dollara eða 1.064 krónur. Um er að ræða ullartrefla Framhald á bls. 18. I dag: /t—> /v— Hverfafundur borgar- stjóra í Glæsibæ BIRGIR Isleifur Gunnars- son borgarstjóri heldur fyrsta hverfafund sinn tneð íbúum Reykjavíkur að þessu sinni f Glæsibæ f Meðaltals- aukning á skjálftum Síðasta sólarhring mældist 81 skjálfti á Kröflusvæðinu, en dag- ana þrjá á undan voru það 68,69 og 81. Meðalskjálftafjöldi á dag síðustu 5 daga var 72,4, 5 daga þar á undan 64,4 og sfðustu 5 daga þar á undan 55,2, samkvæmt upplýs- ingum Helenu Guðmundsson vaktmanns á skjálftavakt í gær- kvöldi. dag, laugardaginn 30. okt. kl. 14 og er sá fundur ætlaður fbúum Laugar- ness- og Langholtshverfis. Fundarstjóri verður Hulda Valtýsdóttir húsfrú og fundarritari Garðar Ingvarsson hagfræðingur. Borgarstjóri mun halda sex hverfafundi með borgarbúum og m.a. mun hann á þessum fundum ræða um líklega þróun Reykjavfk- ur næstu 20 árin og þær hug- myndir sem uppi eru um aðal- skipulag á þeim tfma. Annar fundur borgarstjóra verður sunnudaginn 31. okt. með íbúum Austurbæjar, Norðurmýr- ar, Hlíða- og Holtahverfis og verður sá fundur i Domus Medica og hefst kl. 15.30. Birgir Isleifur Gunnarsson. WöíK KOJ-HO BflBB f BRTíNKI Lýst eftir vitnum FÖSTUDAGINN 22. október um klukkan 12.30 var kona að koma út úr strætisvagni, sem hafði stöðvað við biðskýli á Austurbrún rétt við Hólsveg. Þegar konan kom út úr vagninum bar að pilt á reiðhjóli, en hann hjólaði eftir gangstéttinni. Ök piltur á konuna og felldi í götuna. Lögreglan var ekki kvödd á staðinn. I ljós kom að konan var með áverka á and- liti, höfði og hendi. Er reiðhjóla- drengurinn beðinn að hafa sam- band við slysarannsóknardeild lögreglunnar, svo og vitni ef ein- hver eru. Þórarinn Þórarinsson: 200 mílna fisk- veiðilögsaga EBE Skilyrði viðræðna um hugsan- leg gagnkvæm veiðiréttindi ÞÓRARINN Þórarinsson formað- ur utanríkismálanefndar Alþing- is og þingflokks Framsóknar- flokksins, sagði í umræðu á Al- þingi í gær, að það væri persónu- leg skoðun sfn, að forsenda við- ræðna við Efnahagsbandalag Evrópu um hugsanleg gagnkvæm veiðiréttindi væri sú, að það hefði tekið sér jafnstóra fiskveiðilög- sögu og við. Frumskilyrði við- ræðna í alvöru væri það, að við- ræðuaðilinn væri búinn að til- einka sér 200 mílna fiskveiðilög- sögu. Matthfas Bjarnason sjávarút- vegsráðherra sagðistengu hafa við að bæta það, sem hann hefði um þetta mál sagt í útvarpsum- ræðum á dögunum. Karvel Pálmason hefði komið hvað eftir annað til sfn fyrir þinglok sl. vor og spurt, hvort ekki yrði eitthvað gert til að binda endi á kjaradeilu sjómanna, sem væri komin í al- gjöra sjálfheldu. Hvatti hann mig ftrekað til aðgerða er fælu í sér lausn á þessu máli. Ef Karvel þorir ekki að viður- kenna þetta, en telur sér betur henta að reyna að ófrægja mig, einkum í kjördæmi okkar beggja, þá hann um það, en hann segir í yfirlýsingu sinni í Morgunblaðinu að „allra sízt hefði hann kvatt til aðfarar að fslenzkum sjómönnum, að ekki sé talað um þá hlið, sem ráðherrann sýnir vestfirzkum sjó- mönnum. Ekki get ég séð eða fundið að bráðabirgðalögin komi verr niður á einum stað en öðrum, enda ekki staðbundin. En þetta orðalag á að undirstrika drengskap þessa sam- þingsmanns mlns. Það skiptir mig litlu, þótt Karvel haldi áfram að þræta fyrir eigin gjörðir og það sem hann hefur sagt, sagði ráð- herrann að lokum. Hestamenn þinga á Höfn LANDSAMBAND hestamanna- félaga heldur árlegt þing sitt á Höfn f Hornafirði um helgina. Þingið sitja um 100 fulltrúar vfðs vegar að af landinu. Fjölmörg mál verða til umræðu á þinginu og má nefna að tekin verður ákvörðun um hvar næsta landsmót hesta- manna verður haldið. Á þinginu flytur Gunnar Bjarnason erindi um förina á íslenskum hestum þvert yfir Amerfku í sumar. Lögmadur Sigurbjörns mætti ekki í Hæstarétti MUNNLEGUR málflutningur f máli Sigurbjörns Eirfkssonar veitingamanns Klúbbsins gegn sýslumanninum í Kjósar- sýslu og Gjaldheimtunni átti að fara fram f Hæstarétti f gærmorgun. Hins vegar mætti lögmaður Sigurbjörns, Ingi Ingimundarson hrl., ekki f réttinn og fékk málið þvf úti- vistardóm. Lögmaðurinn getur þó hafið málssókn á ný innan f jögurra vikna. Mál þetta er tilkomið vegna uppboðs, sem átti að fara fram á jörðinni Alsnesi, eign Sigur- björns, vegna vangoldinna skulda við rfkissjóð og Gjald- heimtuna í Reykjavík. Þegar uppboðið átti að fara fram, neitaði Sigurbjörn að fallast á uppboðsskilmála og eftir nokk- urt vafstur áfrýjaði hann ákvörðun sýslumanns Kjósar- sýslu um uppboðsskilmálana til Hæstaréttar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.